Morgunblaðið - 05.11.1995, Qupperneq 32
32 SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Fjarðargata 17
SÍMI 565-2790
FAX 565-0790
Opið í dag sunnudag
milli kl. 12 og 15
Einbýli — par- og raðhús
Austurgata 29b. Eldra timb-
urh. á einni hæð samt. 112 fm. Vel stað-
sett á hraunlóð. Verð 7,7 millj.
Flókagata 1. Fallegt talsv. end-
urn. 181 fm einb. ásamt tveimur bílsk.
á góðum útsýnisstað. Sólskáli. Nýl.
innr., gólfefni, þak. Áhv. byggsj. rík. 2,5
millj. Verð 13,8 millj.
Hverfisgata 4b. Endurn. 65 fm
einb. á einni hæð. Allt nýtt, innr., lagn-
ir, rafm., gler o.fl. Skipti mögul. á
stærra. Áhv. húsbr. 1,2 millj. Verð 6,4
millj.
Lækjarberg 21. 2 íb. Húsið
selst sem ein heild eða hvor í sínu lagi.
Efri hæð er 164 fm auk 37 fm bílsk.
Neðri hæð 78 fm 3ja herb. fullb. íb.
Stuðlaberg 4. Fallegt nánast
fullb. einb. ásamt 34 fm bílsk. Athygl-
isv. hús. Áhv. góð lán 7,1 millj. Verð
12,5 millj.
Öldugata 2. Gott 130 fm einb.
kj., hæð og ris á góðum stað u. Hamrin-
um. Góð og stór lóö. Miklir mögul.
Verð 8,7 millj.
Suöurholt 4. Nýl. 162 fm einb.
m. innb. bílsk. Húsið er fullb. að utan
en ekki fullkl. að innan. Áhv. húsbr. 5,8
millj. Skipti mögul. Verð 11,9 millj.
Hraunkambur 1. Virðul. eldra
128 fm timburh. ásamt 40 fm nýl. bílsk.
Góður staður í enda botnlanga. Laust
fljótl. Ahv. góð lán 3,7 millj. Verð 8,6
millj.
Garðavegur 6b. Talsv. endurn.
107 fm eldra steinh. ásamt 36 fm nýl.
bílsk. Endurn. rafm., hiti, innr. o.fl. Ról.
staður. Áhv. byggsj. rík. 3,7 millj. Verð
8,6 millj.
Álfholt 6. Fallegt 157 fm enda-
raðh. á tveimur hæðum. Húsið fokh.
Til afh. strax. Gott verð 6,5 millj.
Klausturhvammur 5. Fallegt
276 fm raðhús á tveimur hæðum ásamt
hluta í kj. og 30 fm bílsk. Falleg og
fullb. eign. Skipti mögul. Verð 13,8 millj.
Suðurhvammur 23. Fallegt
224 fm raðh. á tveimur hæðum m. innb.
bílsk. Vandaðar innr., parket, flísar.
Áhv. byggsj. rík. 5,0 millj. Verð 13,4
millj.
Klapparholt 4-8. Fallegt 128
fm parh. ásamt 25 fm bílsk. Húsin selj.
fullb. að utan, lóð frág. og fokh., tilb.
u. tróv. eða lengra komin aö innan.
Áhv. húsbr. 5,5 millj. Verð frá 8,4 millj.
Lindarberg 32. Nýl. 221 fm
parh. m. innb. bílsk. Neðri hæð íbhæf,
efri hæð fokh. en hiti kominn. Áhv.
húsbr. 4,0 millj. Verð 11,7 millj.
Studlaberg 62. Nýl. 160 fm
parh. tvær hæðir og ris ásamt bílsk-
plötu. Góð staðsetn. Áhv. byggsj. rík.
5,0 millj. Verð 11,2 millj.
Vesturbraut 10. Gott talsv.
endurn. parh. kj., hæð og óinnr. ris
ásamt 32 fm bílsk. Skipti mögui. Áhv.
góð lán 3,6 millj. Verð 7,5 millj.
Sérhaedir
Arnarhraun 16. Góð 4ra-5
herb. efri hæð í góðu þríb. Gott útsýni.
Skipti mögul. Hagst. verð 7,5 millj.
Flókagata 5. Góð 125 fm efri
sérhæð ásamt 25 fm bílsk. í góðu þríb.
Nýl. gler, þak, kæðning o.fl. Skipti
mögul. Verð 9,5 millj.
Grænakinn 3. Góð talsv. end-
urn. 76 fm sérhæð í góðu þríb. Nýl.
rafm., gler o.fl. Góö eign. Verð 5,9 millj.
Hraunhvammur 1. Talsvert
endurnýjuð 79 fm neðri sérhæð í góðu
viðhaldsfríu tvibýli. Nvl. innréftingar,
hiti, rafm., gler og fl. Áhv. góð lán 2,8
millj. Verð 6,3 millj.
Klettaberg 62. Mjög vönduð
152 fm, 5 herb. ib. ásamt 28 fm bílskúr
í 4ra íbúða „stallahúsi". Allt sér. Vand-
aðar innróttingar, parket, flísar, rúmgóð
svefnh. Topp eign. Verð 11,9 millj.
Suðurgata 94. Vönduð nýleg
4ra til 5 herb. neðri sórhæö, ásamt
bílsk. í fallegu þrýbíli. Vandaðar innrétt-
ingar, parket og flísar. Verð 11,5 millj.
Vesturbraut 15. Góð 65 fm
efri hæð í eldra tvíbýli. Sór inng. Gott
útsýni. Verð 4,5 millj.
Fasteignakaupendur
athugið!
Hér erum við að auglýsa eignir þar
sem um er að ræöa mjög ákveðna
sölu og helst þurfa þær að seljast
strax. Seljendur þessara eigna eru
mjö^ sveigjanlegir gagnvart verði
og greiðslukjörum þ.e. að ásett
verð er alls ekki heilagt og óskað
er eftir tilboðum. í mörgum tilvik-
um kæmi til greina að taka ódýrari
íbúðir og/eða bíla upp í kaupverð.
Hafið endilega samband og fáið
nánari upplýsingar um eignirnar.
Athugið sérstaklega að ásett verð
er alls ekki það sama og söluverð.
Öldutún 2. Talsvert endurnýjuð
95 fm neðri sérhæð, ásamt 14 fm
geymsluskúr á lóð. Góðar innr. og fl.
Áhv. húsbr. 3,7 millj. Verð 6,5 millj.
Grenigrund 18. KÓPAV. Góð
104 fm 4ra herb. íb. ásamt bílsk. í góðu
fjórbýli. Sér inng., parket og flísar. Verð
8,9 millj.
Ásbúðartröö 3. Góð 91 fm 3ja
herb. íb. á 1. hæð í góðu þríb. góð stað-
setn. Laus strax. Verð 6,0 millj.
Austurgata 4a. Talsvert end-
urnýjuð 113 fm hæð og óinnréttað ris.
Húsið er einangrað og klætt að utan
og íb. mikið endurn. Nýir gluggar og
gler, hiti, rafmagn og fl. Áhv. húsbr. 3,1
millj. Verð 6,9 millj.
Lindarberg 12. Nýl. 270 fm
efri sérh. með innbyggðum tvöf. bífsk.
á mjög góðum útsýnisstað. Eignin er
ekki fullb. en vel íbúðarhæf. Verð 12,9
millj.
Sunnuvegur 3. Rúmgóð eftir
sérh. í góðu steinh. ca 115 fm á mjög
rólegum stað. Eignin er gömul en góð.
Möguleg 4 svefnherb. Verð 7,9 millj.
4ra herbergja
Hjallabraut 2. Talsvert endurn.
104 fm 4ra til 5 herb. íb. á 2. hæð í
góðu fjölbýli. Góðar innr., allt nýtt á
baði. Ahv. Byggingasj. rík. 2,4 millj.
Verð 7,9 millj.
Hjallabraut 43. Falleg mikið
endurn. 134 fm endaíb. í nýl. viðgerðu
og máluðu fjölbýli. Nýl. innréttingar,
gólfefni, gler og fl. Skipti möguieg.
Verð 9,4 millj.
Hörgsholt 31. Nýl. 110fm enda-
íb. á 2. hæð í nýl. fjórbýli. Vandaðar
innr. Fallegt útsýni. Áhv. húsbr. 5,0
millj. Verð 8,7 millj.
Klukkuberg 27. Vönduö I08fm
4ra til 5 herb. íb. á tveimur hæðum.
Sér inng. Vandaðar innrétt., parket og
flísar. Frábært verð. Útsýni. Verð 9,5
millj.
Traðarberg 3. 2 íbúðir: Ný 125
fm 4ra herb. íb. á 1. hæð og 56 fm íb.
á jarðhæð. íbúðirnar er báðar tilb. und-
ir tróv. Hús og lóð fullfrág. Verð 9,8 millj.
Vallarbaró 3. Nýl. 118 fm íb. í
litlu fjölb., ásamt 23 fm bílsk. Góðar
innrétt. Fallegt útsýni. Áhv. byggsj. rík.
2,5 millj. Verð 8,4 millj.
Eyrarholt 14. Á einum besta
útsýnisstað í Hafnarfirði góð 162 fm
„penthouse" íb. Mögul. 4 svefnherb. íb.
er ekki alveg fullbúin en langt komin.
Áhv. húsb. ca. 5,0 millj. Verð 10,9 millj.
Áifaskeið 74. Laus 4 herb. 115
fm íb. á fyrstu hæð ofan kjall., ásamt
24 fm bílsk. Skipti mögul. Laus strax.
Gott verð 7,5 millj.
3ja herbergja
Miðvangur 41. Góð 66 fm 3ja
herb. íb. á 3. hæð í lyftuhúsi. Húsvörð-
ur. Sér inng. af svölum. Fallegt útsýni.
Áhv. Byggsj. rík. 3,0 millj. Verð 5,9 millj.
Sléttahraun 23. Talsvert end-
urn. 78 fm íb. á 1. hæð í fjölb. Áhv.
Byggsj. rík. 2,4 millj. Verð 6,3 millj.
Álfholt 24. Nýl. 115 fm 3ja til 4ra
herb. íb. á 1. hæð í glæsil. fjölb., íb.
selst tilb. undir trév. að innan, hús full-
búið að utan. Aukaherb. í kjall. fylgir.
Verð 6,7 millj.
Álfaskeiö 76. Álfaskeið - gott
verð. Góð 86 fm. 3ja herb. íb. á 1. hæð
ofan kjallara í góðu fjölb. Hagstætt
verð 5,9 millj.
2ja herbergja
Klukkuberg 19. Nýl. fullb. 2ja
herb. íb. á 1. hæð í fallegu fjölb. Vand-
aðar innr., parket og flísar. Sór inng.
og lóð. Frábært útsýni. Áhv. húsbr. 4,0
millj. Verð 6,2 millj.
Klukkuberg 35. Ný 2ja herb. íb.
á 1. hæð í fallegu fjölb. Sér inng. og
lóð. íb. selst rúml. fokh. aö innan eða
lengra komin. Verð frá 4,0 millj.
Miðvangur 41. Falleg 57 fm.
2ja herb. íb. á 2. hæö í lyftuh. Húsvörð-
ur. Parket. Sór inngangur af svölum.
Falleg útsýni. Áhv. Byggsj. rík. 2,6
miilj. Verð 5,2 millj.
Klukkuberg 33. Nýl. fuilb. 60
fm 2ja herb. ib. á frábærum útsýnis-
staö. Góðar innr., sór inng. og sór garö-
ur. Gott verð 5,2 millj.
INGVAR GUÐMUNDSS0N lögg. fasteignas., heimas. 555-0992
JÓNAS HÓLMGEIRSSON kerfisfræSingur, heimas. 565-3155.
KÁRI HALLDÓRSS0N hagfræðingur, heimas. 5654615.
MINNINGAR
FJOLA AÐALSTEINSDOTTIR,
MAGNÚS E. KARLSSON OG
LINDA BJÖRK MAGNÚSDÓTTIR
+ Fjóla Aðal-
steinsdótt-
ir var fædd í
Hafnarfirði 4.
apríl 1945 og
þar ólst hún
upp. Foreldr-
ar hennar
voru Jónína
Þóroddsdóttir
sem nú er látin
og Aðalsteinn
Tryggvason
sjómaður.
Systkini Fjólu
eru Hilmar
Þór, Þórey og
Tryggvi, öll á lífi.
Magnús Karlsson var fæddur
í Hafnarfirði 2. október 1942
og þar ólst hann upp. Foreldrar
hans voru Klara Þórðardóttir
og Karl Magnússon sem nú er
látinn. Bræður Magnúsar eru
Þórður, Ottó, Rúnar og Ómar,
allir á lífi.
Þau Fjóla og Magnús gengu
í hjónaband 26. desember 1965.
Þeim varð fimm barna auðið,
einn sonur dó í bernsku en hin
eru: Karl Jóhann, búsettur á
Seyðisfirði, kvæntur og á tvö
börn; Margrét Þórey, búsett á
Flateyri, á unnusta og eitt barn,
Linda Björk, sem fórst í snjó-
flóðinu, f. 28. apríl 1971, og
Anton Már, búsettur á Flateyri
og á hann tvö börn. Þau Fjóla
og Magnús bjuggu lengst í
Hafnarfirði og á Seyðisfirði, en
höfðu um hríð búið á Flateyri.
Magnús var sjómaður lengst af
og Fjóla starfaði utan heimilis
jafnan, í fiskvinnslu og fleira.
Útför Fjólu, Magnúsar og
Lindu Bjarkar fer fram frá
Víðistaðakirkju á morgun,
mánudaginn 6. nóvember, og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
SANNARLEGA hefur nú syrt að og
sorgin svo víða tekið völd. Harmaský
hafa um hugarhimin hrannast og
vakið okkur til helkaldrar vitundar
um vanmátt okkar gagnvart ægiöfl-
um náttúrunnar.
Hin íslenzka þjóð hefur í djúpri
hryggð sameinast eins og ein særð
sál, enginn er ósnortinn af hinum
grimma harmleik sem hrifíð hefur
af heimi svo marga samferðamenn
í andrá undrasnöggri. Samúðaralda
söknuði blandin berst til allra þeirra
ótalmörgu er um sárt eiga að binda
eftir ógnum þrunginn atburðinn vest-
ur á Flateyri. I bljúgri auðmýkt er
blessunar beðið með þeirri vermandi
von að birta megi upp á ný eftir
myrkan dag mikilla örlaga. Hugur
leitar á vit horfinnar tíðar, horfinna
kynna, daganna sem aldrei koma
aftur.
Orð hrökkva svo skammt gegn
ofurharmi þeirra sem nú sakna nán-
ustu ástvina sinna, enda verða orðin
aðeins undurveikt bergmál þeirra til-
fínninga sem í brjósti bærast.
Þó skal með klökkvabundnum
kveðjuorðum kærra vina minnzt og
mætrar samleiðar með þeim, aðeins
svo alltof, alltof skammrar. Orðin eru
helguð hugumkærum vinum, hjónun-
um fjólu og Magnúsi og dóttur þeirra
Lindu Björk.
Hugþekk og
gefandi minning
merlar í harmi
lostnum huga.
Pjóla var
systurdóttir
konu minnar og
minnisstæð er
hún mér frá
unglingsárum
hennar, þessi
djarflega ljós-
hærða stúlka
með þennan
hreina svip og
hressandi fas.
Einbeitt og
ákveðin var hún alla tíð, lét skoðan-
ir sínar hiklaust og greindarlega í
ljós, glaðlynd og hreinlynd í senn.
Sönn kona í sjón og raun. Hún var
einstaklega vel verki farin, kappsfull
við hvaðeina sem hún tók sér fyrir
hendur, hvort sem var heima eða
heiman, en húsmóðirin og móðir var
hún þó helzt og fyrst, hennar dag-
lega önn var helguð fjölskyldunni
umfram allt annað, enda samheldni
og samhugur einstakur á heimili
þeirra Fjólu og Magnúsar og báru
foreldrunum fagurt vitni. Magnús
var hinn röski og dugandi heimilis-
faðir, þýð lund og þekk framkoma
fóru saman við iðjusemi hans og
dugnað. Hann var sjómaður í innsta
eðli sínu og naut þess að draga björg
í bú úr sævardjúpi, sókndjarfur og
gætinn. Hann var ævinlega glaður í
bragði og glettinn vel, glöggur mað-
ur með fastmótuð viðhorf, skýr mað-
ur og skapfastur.
Linda Björk dóttir þeirra var ákaf-
lega yndisleg ung kona, sem hafði
orðið fyrir örðugri reynslu af völdum
alvarlegs slyss sem hún bar eftir
miklar menjar, en ljúft geislandi bros
átti þessi fallega stúlka alltaf öðrum
til handa, vel gerð var hún í hví-
vetna, alúðleg og hlý í allri fram-
göngu sinni.
Æviganga þessara ágætu vina
verður ekki rakin hér en hvar sem
leið þeirra lá urðu þau vinmörg og
vel látin, ötult atgervisfólk sem aðrir
festu traust á.
Þau bjuggu lengi á Seyðisfírði og
þar átti ég athvarf undragott hveiju
sinni sem komið var þangað. Heimil-
ið var fallegt ytra sem innra, en ein-
lægur geislandi kærleikur einkar
samrýndrar fjölskyldu þó aðalein-
kennið. Börnin svo náin hvert öðru
að hvar sem til eins þeirra sást mátti
treysta því að hin væru nálægt og
glöggt jafnan að góð og holl var
heimanfylgja þeirra út í lífið.
Sorg þeirra systkina sem eftir lifa
er því sárari sem svo mikið ástríki
var milli þeirra og foreldra þeirra og
systur. Hugur okkar Hönnu frænku
þeirra og okkar fólks leitar til þeirra
nú í einlægri samúð vegna hins
óbærilega missis. Megi vermandi
ljósar og bjartar minningar lýsa þeim
fram á veg og létta þeim hinn sára
söknuð.
í skugga þessara dimmu daga
djarfar fyrir hugumkærum, ljúf-
sárum miiiningamyndum sem allar
bera með sér ylhlýja birtu, endurskin
þess alls sem þau voru í lifanda lífi,
gott fólk og gjöfult.
Ég hefí fyrir hugarsjónum heimilið
þeirra hlýlega og fallega, umvafíð
eindrægni og elskusemi, undurfagurt
vitni um alúðarríkan kærleika, sem
segir meira en mörg orð um horfna
hollvini.
Aðstandendum þeirra öllum eru
sendar innilegar samúðarkveðjur.
Saknaðar- og samúðarkveðjur eru
sendar öllum þeim öðrum er harma
hýsa vegna hörmulegs áfalls.
Við munum geyma merlandi
skæra mynd af þeim Fjólu, Magnúsi
og Lindu Björk, þessu mannkosta-
fólki sem átti svo margt ógert á
akri lífsins. Hjartahlý þökk fyrir gef-
andi samfylgd og gjöfular stundir
fylgi þeim öllum yfír á eilífðarland
ódauðleikans.
Blessuð sé þeirra bjarta minning.
Helgi Seþ'an.
—....*
SÖLUSÝNING
Brúarási 1-19
í dag, sunnudag, kl. 14-16 verður sölusýning á þessum
glæsilegu og vönduðu raðhúsum sem eru 206 fm ásamt
42 fm bílskúr.
Húsin eru á tveimur hæðum og afhendast fullbúin að
utan en fokheld að innan. Bílskúr og lóð afhendast full-
búin. Tengigjöld vegna rafmagns og hita greidd.
★ Mjög vandaður frágangur ★ Bílskúr tvöfaldur fullb.
★ Lóð fullfrágegnin ★ Góð greiðslukjör
★ Traustur byggingameistari ★ Giæsilegt útsýni
★ ★ ★ GOTT VERÐ 11.800.000 KR.
Byggingarmeistari: Björn Traustason.
Söluaðili:
<f ÁSBYRGI if
Suóurlandsbraut 54
vi& Faxafan, 108 Rayk|avik,
simi 568-2444, »ax: 568-2446.
Ingileifur Einarsson, löggiltur fasteignasali.
Sölumenn: Lárus Hauksson og Viðar Marinósson.