Morgunblaðið - 05.11.1995, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1995 41
I DAG
ÁRA afmæli. Á
morgun, mánudaginn
6. nóvember, verður níræð
frú Margrét Pinnbjörns-
dóttir, Grenimel 29,
Reykjavík. Margrét bjó öll
sín hjúskaparár á ísafirði,
en maður hennar var Krist-
ján Tryggvason, klæð-
skerameistari, sem lést
árið 1974. Margrét verður
á heimili dóttur sinnar á
Einimel 9 frá klukkan
15.30 á afmælisdaginn.
ÁRA afmæli. Á
morgun, mánudaginn
6. nóvember, verður sextug
Anna R. Einarsdóttir,
Hnotubergi 15, Hafnar-
firði. Eiginmaður hennar
er Þórir E. Magnússon,
flugumferðarstjóri. Þau
hjónin taka á móti gestum
í dag, sunnudaginn 5. nóv-
ember, milli kl. 17 til 198
í Kiwanishúsinu, Hellu-
hrauni 22, Hafnarfirði.
ÁRA afmæli. Á
morgun, mánudaginn
6. nóvember, verður sex-
tugur Oddur Guðmunds-
son, leigubifreiðarstjóri,
Goðheimum 23, Reykja-
vík. Kona hans er Eyvör
Friðriksdóttir. Þau verða
að heiman á afmælisdaginn.
BRIPS
llmsjón Guðmundur Páll
Arnarson
FIMM tíglar er spennandi
samningur í NS, sem má
vinna, eins og spilin liggja.
En Frakkinn Soulet valdi
ekki bestu leiðina og end-
aði tvo niður. Þetta var í
riðlakeppni HM, í viður-
eign Frakka og Argentínu-
manna.
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ 9742
V ■
♦ ÁD76
+ Á8754
Vestur Austur
♦ DG63 ♦ 1085
V K1083 IIIIH V ÁG952
♦ K32 111111 ♦ 104
♦ G9 ♦ D106
Suður
♦ ÁK
V D764
♦ G985
♦ K32
Opinn salur:
ÁRA afmæli. Á
morgun, mánudaginn
6. nóvember, verður fimm-
tug Olga Bjarklind
Magnúsdóttir, íþrótta-
kennari, Víkurbakka 2,
Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Stefán H. Sand-
holt, bakarameistari, en
hann verður fimmtugur 28.
nóvember nk. Olga og Stef-
án taka á móti gestum í til-
efni afmælis beggja þann
28. nóvember nk. í Iðnaðar-
mannahúsinu, Hallveigar-
stíg 1, Reykjavík, milli kl.
17 og 20.
ÁRA afmæli. Á
morgun, mánudag-
inn 6. nóvember, verður
fímmtugur Knut Odegárd,
skáld, fyrrverandi for-
sljóri Norræna hússins,
Stórholti 41, Reykjavík.
Eiginkona hans er Þor-
gerður Ingólfsdóttir. Þau
hjónin taka á móti gestum
í Norræna húsinu milli kl.
20-23 á afmæiisdaginn.
Vestur Norður Austur Suður
Monsegur Reiplinger Mooney Soulet
1 tígull
Pass 1 spaði Pass 1 tígull
Pass 2 lauf* Pass 2 tíglar
Pass 3 tíglar Pass 3 grönd
Pass 4 lauf Pass 4 spaðar
Pass 5 tíglar Allir pass
Lokaður salur:
Vestur Norður Austur Suður
Perron Muzzio Chemla Villegas
1 tigull
Pass 1 spaði Pass 1 grand
Pass 2 lauf* Pass 2 hjörtu
Pass Allir pass 3 tíglar Pass 3 grönd
Þijú grönd fóru hratt og
örugglega tvo niður í lok-
aða salnum eftir útspil
vesturs í hjarta. Soulet fékk
einnig út hjarta í fimm tígl-
um, sem er óþægilegt, en
ekki banvænt. Hvemig
myndi lesandinn spila?
Soulet trompaði í borði,
fór heim á háspaða og svín-
aði tíguldrottningu. Dúkk-
aði svo lauf. En þegar vöm-
in hamraði á hann enn einu
sinni var spilið gjörtapað,
enda blindur innkomulaus
og hjartaliturinn galopinn.
Eftir útspilið er ekki um
annað að ræða en spila upp
á víxltrompun. Sagnhafi
trompar öll hjörtun fjögur
í borði(!) og tvo spaða
heima. I millitíðinni hefur
hann auðvitað tekið ÁK í
laufi. Þetta gefur honum
samtals 10 slagi. í þriggja
spila endastöðu á suður G9
í trompi og eitt lauf. Hann
spilar laufmu og fær ör-
ugglega slag á tígulgosa,
því vestur neyðist til að
trompa og spila frá tígul-
kóngnum.
GULLBRÚÐKAUP. í dag,
sunnudaginn 5. nóvember,
eiga fimmtíu ára hjúskapar-
afmæli hjónin Ingunn Þor-
varðardóttir og Krislján
Einarsson, Grænugötu 12,
Akureyri. Þau verða að
heiman.
Ljjósm. Oddgeir
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 9. september sl. í
Hvalsneskirkju af sr. Jónu
Kristínu Þorvaldsdóttur ÓI-
afía Marelsdóttir og
Magnús Þórisson. Heimili
þeirra er á Holtsgötu 5a,
Sandgerði.
Pennavinir
17 ÁRA stúlka frá Króatíu
með áhuga á tónlist, kvik-
myndum, ferðalögum og
náttúrunni:
Suncaim Ugljesic-Scap,
Antuna Stipancica 9,
HR-IOOOO Zagreb,
Croatia.
17 ÁRA stúlka frá Króatíu
sem hefur áhuga á tónlist,
kvikmyndum, ferðalögum
og náttúrunni:
Lana Hideg,
Siget 15 A,
HR-10 000 Zagreb,
Croatia
LEIÐRÉTT
Ingólfshöfði
Ranghermt var í baksíðu-
frétt Morgunblaðsins í gær,
að kolmunni hefði fundizt
út af Ingvarshöfða. Þar var
auðvitað átt við Ingólfs-
höfða. Morgunblaðið biðst
afsökunar á þessum
mistökum.
Kartöflur
I grein um kartöflur, sem
birtist í gær, var sagt að
sterkja í kartöflum breyttist
í sykur við 110°C, en á vita-
skuld að vera lloC.
STJÖRNUSPÁ
cftir Franccs Drakc
SPORÐDREKI
Afmælisbam dagsins:
Einlægni er þér í blóð
borin og þú eignast fjölda
góðra vina.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Nú er ekki rétti tíminn til að
hugsa um viðskipti. Sinntu
frekar fjölskyldunni í dag og
njóttu frístundanna heima.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nú gefst þér tími til að reyna
að koma bókhaldinu f iag og
kanna stöðuna f fjármálum
heimilisins í samvinnu við
ástvin.
Tviburar
(21.maf-20.júní) **
Þú ættir ekki að draga það
lengur að hefja vinnu við þær
umbætur á heimilinu sem til
hafa staðið. Slakaðu svo á f
kvöld.
Krabbi
(21. júnf — 22. júlí) Hig
Einhver afturkippur hefur
komið í þróunina í fjármál-
um, en hann varir ekki lengi,
og þú mátt eiga von á kaup-
hækkun fljótlega.
Ljón
(23. júl! — 22. ágúst)
Þú ert eitthvað miður þín í
dag og gæti það stafað af
erfíðleikum í samskiptum
ástvina. En sættir ættu að
takast fljótlega.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Þú átt erfitt með að skilja
framkomu ættingja, en ef þið
ræðið málið kemst þú að raun
um að hann hefur á réttu að
standa.
Vog
(23. sept. - 22. október) .
Dagurinn hentar vel til að
efna til fundar með vinum
eða ættingjum. Þú munt
njóta þess áð fá tækifæri tii
að blanda geði við aðra.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember) ®!|j0
Þótt margir óski eftir nær-
veru þinni í dag, ættir þú
ekki að láta góðan vin sitja
á hakanum. Vináttuböndin
eru mikils virði.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Þú ættir að halda fyrirætlun-
um þínum í fjármálum leynd-
um í bili til að tryggja fram-
gang þeirra. Góð sambönd
reynast þér vel.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Sýndu ástvini umhyggju í
dag og varastu ástæðulausa
afbrýðisemi. Ræðið málin í
hreinskilni og eyðið kvöldinu
saman heima.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Aðlaðandi framkoma þín og
góðlyndi afla þér mikilla vin-
sælda, sem þú nýtur í kvöld
í góðum hópi vina og vanda-
manna.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Peningamálin geta verið við-
kvæmt umræðuefni milli þín
og ættingja í dag. Þér ber
engin skylda til að iána öðr-
um peninga.
Stjörnuspá á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu
tagi byggjast ekki á traust-
um grunni vísindalegra stað-
reynda.
20. nóv.
40 s»ti
London
á kr.
16.930
Flug og hótel
19.930
2078 manns bókaðir til London.
Viðbótarflug 27. og 30. nóvember.
Viðbótargisting á hinu ágæta ráðstefnuhóteli Earls Court, sem
við bjóðum nú á frábæru verði í þessa brottför. Gott hótel með
öllum aðbúnaði. ÖIl herbergi með sjónvarpi, síma, baði og
buxnapressu. Veitingasalir, barir, fundaaðstaða. Kynntu þér
borgarrispu Heimsferða til London, mestu heimsborgar Evrópu,
á ótrúlega hagstæðu verði og íslenskir fararstjórar Heimsferða
tryggja þér ánægjulega dvöl í heimsborginni.
Verð 16.930
Flugsæti með sköttum.
Verð 19.930
M.v. 2 í herbergi, Earls Court, 3 nætur.
Verð með flugvallasköttum.
Áðeins íö
lierbergí
Earls
ráðstefnu-
hótelið
Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562 4600.