Morgunblaðið - 05.11.1995, Síða 52
SYSTEMAX Kapalkerfi
fyrir öll kerfi
AT&T <Q> NÝHERJI SKIPHOLTI 37 - SIMI 580 8070 Alllaf skrejl á undan
jólabögglana
tímanlega til
fjarlœgra
landa.
POSTUR OG S!Ml
MORGVNBLAÐID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: IIAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Vill flytja
inn hrein-
dýrakjöt
frá Græn-
landi
PÉTUR Pétursson, kaupmaður í
Kjötbúri Péturs í Austurstræti, vill
sækja um leyfi til að flytja inn 3
til 10 tonn af hreindýrakjöti frá
Grænlandi. „Veiðikvótinn hér á
landi var skorinn svo stórlega niður
frá síðasta ári að framboðið dugar
ekki. Islenska Iqotið er hreinlega
að klárast. Ef ég fæ leyfi til að flytja
þetta kjöt inn væri það komið á
markað eftir svona þijár vikur. Ef
engir sérstakir tollar falla á það,
gæti það verið 300 til 400 krónum
ódýrara, hvert kíló, en íslenska kjöt-
ið,“ sagði Pétur í samtali við Morg-
unblaðið.
Pétur sagði enn fremur að for-
dæmi væri þegar fyrir hendi þar
sem leyfður hefur verið innflutning-
ur á kjúklingum. Hann væri því
hæfílega bjartsýnn á að dýralækn-
ir, sem hann hefur þegar leitað
umsagnar hjá, og ráðuneytið, í
'^þ'essu tilviki viðskiptaráðuneytið,
myndu gefa sér grænt ljós þar sem
um villibráð er að ræða. Dýrin
myndu koma úr hjörðum frá suð-
vesturhluta Grænlands. Á haustin
eru þau rekin í girðingar og valið
úr til slátrunar. Slátrunin sjálf fer
fram í húsum þar sem fýllsta hrein-
lætis er gætt. „Þannig að frá heil-
brigðissjónarmiði sé ég ekkert sem
gæti komið í veg fyrir þetta. Ef
innflutningur lukkast tel ég að það
sé meiri háttar ávinningur fyrir
neytendur,“ bætti Pétur við.
■ „Náttúrubarn í Búrinu“/A22
:: ' '.
Morgunblaðið/RAX
Fimm þúsund tonn af Hekluvikri
UM 6.700 rúmmetrar af vikri voru lestaðir
í flutningaskip í Þorlákshöfn í vikulokin, eða
um 5.000 tonn. Skipið fer til Þýskalands með
viðkomu í Rotterdam þar sem farminum
verður umskipað í smærri skip, en vikurút-
flutningurinn er á vegum Jarðefnaiðnaðar
hf. Fyrirtækið hefur flutt út um 100 þúsund
tonn af vikri á þessu ári að verðmæti um
300 milljónir króna. Árni Benedikt Árnason
framkvæmdastjóri Jarðefnaiðnaðar hf., segir
að stærstu kaupendur að vikri séu nú á
Þýskalandsmarkaði. Fimm til sex útflytjend-
ur starfi nú hérlendis. Erfitt sé að meta heild-
arverðmæti útflutnings, en hann sé sennilega
einhvers staðar á milli 500 og 900 millj. kr.
j- ---------------;---------------
Breytingar nauðsynlegar í Leifsstöð ef Island tengist Schengen-svæðinu
Stóraukið álag á toll
og útlendingaeftirlit
Kynna sér aðstæður í Frankfurt
og Lúxemborg
TVEIR embættismenn sýslu-
mannsembættisins á Keflavíkur-
flugvelli munu síðar í vikunni skila
skýrslu um þær breytingar, sem
nauðsynlegar verða í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar á Keflavíkur-
flugvelli ef ísland tengist Scheng-
en-svæðinu svokallaða, þar sem
vegabréfaskoðun á landamærum
hefur verið afnumin. ísland myndi
þá í raun gæta ytri landamæra
Evrópusambandsins og slíkt hefði
í för með sér stóraukið álag á
to.llgæzlu og útlendingaeftirlit í
Keflavík. Breyta þyrfti innréttingu
Leifsstöðvar og hugsanlega ráða
nýtt starfsfólk.
ísland og Noregur hafa sótzt
eftir aukaaðild að Sehengen-sam-
komulagi ríkja Evrópusambands-
ins til þess að unnt verði að við-
halda samningi Norðurlandanna
~um vegabréfafrelsi norrænna
ríkisborgara á ferðum milli ríkj-
anna fimm. Þar sem þrjú Norður-
landanna eru nú í ESB verða ís-
lendingar að taka að sér gæzlu
ytri landamæra Evrópusambands-
ins til þess að af þessu geti orðið.
Aðskilin
vegabréfaskoðunarhlið
Að sögn Ólafs W. Stefánssonar,
skrifstofustjóra í dómsmálaráðu-
neytinu, myndi aukaaðild að
Schengen áreiðanlega hafa breyt-
ingar í för með sér í Leifsstöð.
Þannig er líklegt að setja yrði upp
aðskilin vegabréfaskoðunarhlið
líkt og tíðkast á flestum alþjóðleg-
um flugvöllum í Evrópusamband-
inu, annað fyrir ríkisborgara ríkja
Schengen-svæðisins og hitt fyrir
aðra.
Þá segir Ólafur að með tengingu
við Schengen yrðu íslenzk yfirvöld
að skoða vegabréf hjá mun fleira
fólki en þau gera nú. Það muni
einkum eiga við um farþega, sem
koma frá Bandaríkjunum, skipta
um flugvél í Keflavík og halda för
sinni áfram til meginlandsins.
„Það verður að gera skipulags-
breytingar í flugstöðinni og er
verið að skoða það. Svo þarf að
líta á hve stór hópur þarf að fara
í vegabréfaskoðun og hvað hann
kemur á stuttum tíma,“ segir Ólaf-
ur. „Af hálfu Flugleiða hefur verið
lýst yfir að fjórar.flugvélar með
900 manns geta komið á fimmtán
mínútum að morgni dags. Þetta
fólk dreifist á Oslóar-, Stokk-
hólms- og Kaupmannahafnarflug-
vélar og einhveijar fleiri, og þarf
að halda áfram innan klukku-
stundar. Það tekur tíma að vega-
bréfaskoða hvern einstakling.“
Skoðað með arkitektum
flugstöðvarinnar
Pétur Guðmundsson, flugvallar-
stjóri á Keflavíkurflugvelli, segir
að tveir menn frá embætti sýslu-
mannsins á Keflavíkurflugvelli
hafi verið sendir til Lúxemborgar
og Frankfurt að kynna sér skipu-
lag á flugvöllum og muni þeir
skila skýrslu síðar í vikunni. „Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar yrði hluti
af Schengen. Hún hefur til þessa
verið venjuleg miliilandaflugstöð.
Það er gífurlegur munur þar á,“
segir Pétur. Hann segir að þegar
skýrslan liggi fyrir muni hann eiga
fund með sýslumanni og arkitekt-
um flugstöðvarinnar og skoða
hvaða breytingar sé unnt að gera.
Ungling-
ar færðir
í athvarf
UNGLINGAR sem bijóta reglur
um útivistartíma eru færðir í
athvarf á vegum lögreglu og
borgaryfirvalda og sóttir þang-
að af foreldrum. Ómar Smári
Ármannsson aðstoðaryfírlög-
regluþjónn segir að með því að
framfylgja reglum um útivist
geri menn sér vonir um að draga
úr líkum á að unglingar verði
misnotaðir kynferðislega, hefji
vímuefnaneyslu of snemma eða
fremji afbrot af einhveiju tagi.
Mest hafa um 100 unglingar
undir 16 ára aldri verið færðir
af lögreglu í athvörf þau sem
um ræðir, en að jafnaði eru
þeir 10-20 talsins um helgar.
Unglingar, sem Morgunblað-
ið ræddi við í athvarfi í austur-
borginni aðfaranótt laugardags,
kváðust ekki þekkja reglur um
lögboðinn útivistartíma barna
og unglinga, eða virða hann
ekki.
Tvær mæður, sem Morgun-
blaðið ræddi við þegar þær
komu að sækja börn sín í at-
hvarfið, lýstu yfir ánægju sinni
með þessa þjónustu lögreglu og
borgaryfirvalda.
■ Minni hætta á/4