Morgunblaðið - 10.11.1995, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Farþegar Royal Jordanian Airlines tóku sprengjuhótuninni með stakri ro
JsS'♦<
AMAL Abu Awad ásamt dóttur sinni í Leifsstöð.
Morgunbiaðið/Ámi Sæberg
SUMIR notuðu tækifærið og fengu sér blund á meðan að á biðinni stóð.
SAHA Sabhi (t.h.), Abdel Hameed Sabhi og Elham Amari biðu
ásamt börnum sínum eftir því að geta haldið ferð sinni áfram.
LÉTT var yfir flestum farþeganna í Leifsstöð í gær.
Sjónvarpið/Viðar Oddgeirsson
BJÖRGUNARSVEITARMENN aðstoða einn farþega frá borði.
„Besta lending sem
ég hef upplifað“
ANDRÚMSLOFTIÐ í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar var furðu af-
slappað þar sem farþegar Tri-
Star vélar Royal Jordanian Air-
lines biðu eftir því að sprengju-
leit í vélinni lyki. Farþegarnir,
224 talsins, höfðu margir hveijir
hópað sig saman og voru léttir
á brún og fúsir til að svara þeim
spurningum sem blaðamenn
lögðufyrirþá.
Þeir farþegar sem Morgun-
blaðið ræddi við tóku þessari
óvæntu töf með ró og margir
lögðu sig á meðan að á biðinni
stóð. Börnin voru hins vegar fljót
að gleyma stað og stund og voru
flest hver að leik þegar blaða-
mann og ljósmyndara bar að.
Vissu ekki af sprengjuhótun
fyrr en eftir lendingu
Farþegum var ekki tjáð
ástæða þess að lenda ætti í Kefla-
vík fyrr en eftir að vélin var
lent og öllum farþegum hafði
verið komið fyrir inni i flugstöð-
inni.
Farþegar voru færðir frá
borði og fluttir með rútum að
flugstöðinni þar sem þeir þurftu
að fara í gegnum vopnaleit.
„Flugstjórinn tilkynnti í kall-
kerfinu að vegna tæknilegrar
bilunar þyrfti vélin að lenda í
Keflavík. Hann bað farþega hins
vegar að vera alveg rólega þar
sem ekkert væri að óttast. Við
vorum þó dálítið óttaslegnar þar
sem við vissum ekki hvað væri
að og dóttir mín spurði í sífellu
hvað væri að gerast. Ég útskýrði
fyrir henni hvað flugsljórinn
hefði verið að segja og sagði
henni að þetta myndi verða allt
í lagi,“ sagði Amal Abu Awad,
en hún var á leiðinni til Chicago
ásamt dóttur sinni, þar sem þær
áttu að hitta eiginmann Amal.
Aðrir farþegar höfðu svipaða
sögu að segja. „Ég held að lend-
ingin hafi verið besta lending
sem ég hef upplifað," sagði Saha
Sobhi, sem var á leið til Banda-
ríkjanna ásamt eiginmanni sín-
um, Abdel Hammeed Sobhi og
börnum þeirra tveimur. „Við
vorum mjög fegin því að okkur
skyldi ekki hafa verið sagt frá
hvernig í máiinu lá fyrr en eftir
á. Það hefði aðeins gert illt
verra.“
Farþegar báru lof
á áhöfn þotunnar
Þau sögðu að áhöfn vélarinnar
hefði staðið sig mjög vel allan
tímann. Tekist hefði að halda
öllum farþegum rólegum fráþví
að flugstjórinn tilkynnti um „bil-
unina“ og þar til að vélin var
lent í Keflavík. Þá hafí það tekið
mjög stuttan tíma að rýma vélina
og koma farþegum út í rútur og
inn að flugstöðinni.
Öllum þeim sem Morgunblaðið
ræddi við bar saman um að vel
hefði verið búið að þeim á meðan
að þessari stuttu dvöl í Keflavík
stóð og fólki var mikið í mun
að koma á framfæri þakklæti til
flugmanna og annarra i áhöfn
vélarinnar fyrir snarræði sitt og
góð viðbrögð.
Önnur sprengjuhótun á
tveimur dögum hjá Royal
Jordanian
Áhöfn vélarinnar og öryggis-
vörðum þeim sem um borð voru,
var hins vegar óheimilt að ræða
nokkuð við fjölmiðla.
Við fyrstu leit í þotunni í gær
var hundur látinn leita að hugs-
anlegum sprengjum, en leit hans
bar engan árangur. Síðan átti
að hefja ítarlegri leit í þotunni
um klukkan 23:30 eða um það
leyti sem upphaflegur og áætlað-
ur lendingartími var í Chicago.
Óvíst var hve langan tíma leit
myndi standa, en síðan var búist
við að vélin héldi áfram vestur
um haf. Konurnar tvær og mað-
urinn, sem handtekin voru eftir
lendingu á Keflavíkurflugvelli i
gærkveldi, voru færð til yfir-
heyrslu hjá lögregluyfirvöldum.
í gærkveldi lá ekki fyrir hvað
yrði um hin handteknu.
Þetta er i annað sinn á tveim-
ur dögum sem vél frá Royal
Jordanian Airlines er neydd til
þess að lenda i skyndingu vegna
sprengjuhótunar. Siðastliðinn
þriðjudag varð vél af sömu teg-
und frá félaginu að lenda í
Vínarborg þar sem að tilkynnt
var að sprengja væri um borð.
Vélin var einnig á leið frá Amst-
erdam.