Morgunblaðið - 10.11.1995, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.11.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995 7 Fólk Prófessor í giiðfræði •MENNTAMÁLARÁÐHERRA hefur með bréfi dags. 6. október sl. sett theol. dr. Sigurð Örn Stein- grímsson prófessor í guðfræðideild um þriggja ára skeið frá 1. janúar 1996 að telja. Prófessors- staðan lýtur ákvæðum sam- komulags milli Hins íslenska Biblíufélags og Háskóla íslands um stofnun tímabundinnar prófessorsstöðu í guðfræðideild Háskóla íslands vegna þýðingar Gamla testament- isins á íslensku. Dr. Sigurður Öm Steingrímsson er fæddur að Hólum í Hjaltadal hinn 14. nóvember 1932. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1952_og stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og Hochschule fúr Musik und Darstell- ende Kunst í Vínarborg. Hann lauk embættisprófi frá guðfræðideild Háskóla Islands haustið 1969. Lagði stund á gamlatestamentis- fræði við Uppsalaháskóla og lauk doktorsprófi þaðan 1978 með dokt- orsritgerðinni Vom Zeichen zur Geschichte. Eine literar- und form- kritische Untersuchung von Ex. 6.28-11.10. Auk þess lagði dr. Sig- urður stund á assýrísk fræði, ara- meísku og arabísku. Hann varð dósent við Uppsalaháskóla 1980 og kenndi auk þess við Stokkhólmshá- skóla og aðra háskóla í Svíþjóð. Árin 1985 til 1988 var hann settur prófessor í gamlatestamentisfræð- um við guðfræðideild Háskóla ís- lands og frá 1. nóvember 1988 hef- ur hann verið aðalþýðandi við nýja þýðingu Gamla testamentisins á íslensku. dr. Sigurður hefur skrifað nokkur vísindarit og birt greinar í erlendum vísindaritum. Dr. Sigurður er kvæntur Guð- rúnu Blöndal, hjúkrunarfræðingi. -----♦ ♦ ♦----- Samtök seljenda fjarskiptabúnaðar Ekki nógu fast kveðið að orði ÞÓRÐUR Guðmundsson, formaður Samtaka seljenda fjarskiptabúnað- ar, segir að í niðurstöðum sam- keppnisráðs, þar sem gagnrýndur er dráttur á afgreiðslu umsóknar um rekstur farsímakerfis, sé ekki nægilega fast kveðið á um tíma- setningar. í niðurstöðum ráðsins sé tekið undir ábendingar Samtaka seljenda fjarskiptabúnaðar um að aðstaða Pósts og síma til sölu á notandabúnaði allt önnur og 'betri en þeirra aðila sem keppa við þá á þessum markaði. „Skýrslan er ágæt svo langt sem hún nær en það vantar í hana nán- ari tímasetningar, hvenær og hvað eigi að gera. Það kemur hins vegar skýrt fram í skýrslunni að við erum að berjast við risa sem við ráðum ekkert við,“ sagði Þórður. Hann segir að það sé á valdi samgönguráðuneytis að taka á þessum málum. „Samgönguráðu- neytið og ríkisstjómin skapa Pósti og síma starfsumhverfi. Þar starfa menn eftir fyrirfram settum regl- um. Það er.deginum ljósara að þær reglur eru mjög óréttmætar gagn- vart þeim sem era í einkarekstri. Við hefðum viljað sjá kveðið fastar að orði,“ sagði Þórður. FRÉTTIR Athygli bankaeftirlits vakin á máli Islandsbanka og A. Finnssonar FINNUR Ingólfsson viðskiptaráð- herra sagði á Alþingi á miðvikudag, að athygli bankaeftirlits Seðlabank- ans yrði vakin á viðskiptum íslands- banka á Akureyri og fyrirtækisins A. Finnssonar, sem er gjaldþrota. Þetta kom fram í svari ráðherrans við fyrirspum. Fyrirspyíjandi, Vilhjálmur Ingi Árnason, varaþingmaður Þjóðvaka, sagði að komið hefði fram að „óreiðufyrirtækjum“ væri haldið gangandi löngu eftir að ljóst væri að þau gætu ekki staðið við skuld- bindingar sínar. Tekjur banka af óreiðuskuldum Vilhjálmur' vitnaði í skýrslu sam- starfshóps um bætt viðskiptasið- ferði á Akureyri, þar sem hann sagði koma fram hvernig viðskiptabanki hefði með blekkingum haldið fyrir- tækinu A. Finnsson gangandi, löngu eftir að því hefði verið skylt að gefa sig upp til gjaldþrotaskipta. Vilhjálmur sagði koma fram að fyrirtækið hefði verið með 100 millj- óna króna yfirdrátt í bankanum, þar af 40-50 milljónir í óheimilum yfir- drætti. Jafnframt kæmu fram í skýrslunni upplýsingar um að bank- inn hefði á 30 mánaða tímabili haft um 70 milljóna króna vaxtatekjur af órciðuskuldum fyrirtækisins. Vildi Viihjálmur meðal annars fá að vita hvort viðskiptaráðuneytið myndi hlutast til um rannsókn bankaeftirlitsins á viðskiptum ís- landsbanka og A. Finnssonar, með tilliti til þess hvort um væri að ræða brot á lögum um viðskiptabanka. Viðskiptaráðherra sagðist ekki vilja tjá sig um málið efnislega. Hann sagði hins vegar að í tilefni af fyrirspum Vilhjálms, myndi ráðu- neytið vekja athygli bankaeftirlits- ins á málinu. GDS ER HAFIÐ Á BÍLARINGSSVÆÐINU. SÉRFRÆÐINGAR TELJA AÐ G0SIÐ MUNI STANDA YFIR í N0KKRA DAGA. N0TAÐIR BÍLAR Á SJÓÐHEITU TILBOÐI FLÆÐA UM ALLT SV/EÐIÐ. GREIÐSLUKJÖR TIL ALLT AÐ 48 MÁNAÐA. AFSLATTUR ALLT AÐ KR. SÉRTILBOÐ Á VETRARDEKKJUM FYLGIR SELOUIVl BILUIVI PAÐ ER ÓÞARFI AÐ TAKA MEÐ SÉR NESTI PVi VIÐ BJÓDUM UPP Á KAFFI, GOS OG KLEINUR ÞAÐ SKELFUR ALLT OG NÖTRAR. DRÍFÐU ÞIG OG GERDU GOÐ KAUP. BÍLAÞINGHEKLU N O T A Ð I R JHH B í L A R Bílaþing Heklu • Laugavegi 174 • Símasambandslaust er viö svæöiö vegna mikils álags • Betra er að koma 0PNUNARTÍMI: MIÐVIKUDAGUR - FÖSTUDAGUR KL. 9.00-21.00, LAUGARDAGUR KL. 10.00-17.00. 'íSMIfÉ® m •' f*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.