Morgunblaðið - 10.11.1995, Blaðsíða 44
44 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
RAD/A UGL YSINGAR
HJÚKRUNARHEIMILI
Sjúkraþjálfarar
Okkur vantar sjúkraþjálfara í 50% starf
sem fyrst.
Nánari upplýsingar gefa:
Lárus Jón Guðmundsson, yfirsjúkraþjálfari,
og Birna Kr. Svavarsdóttir, hjúkrunarforstjóri,
í sfma 587 3200.
■BB MENNTASKÓLINN
M1 í KÓPAVOGI
Frá Mennta-
skólanum í Kópavogi
Menntaskólinn í Kópavogi auglýsir stöðu
kennara í viðskiptagreinum (bókfærslu og
hagfræði) á vorönn. Einnig 14 stundir í tölvu-
fræði og 12 stundir í þýsku.
Umsóknarfrestur er til 30. nóvember.
Nánari upplýsingar veitir skólameistari
í síma 554 3861.
Skólameistari.
TILKYNNINGAR
Námsstyrkur
Fræðslusjóður Jóns Þórarinssonar hefur það
hlutverk að styrkja til framhaldsnáms efni-
lega nemendur, sem hafa lokið stúdents-
prófi eða öðru lokaprófi frá Flensborgarskó-
lanum í Hafnarfirði.
Styrkur úr sjóðnum verður veittur í fjórða
sinn í desember 1995 og verður þá úthlutað
250 þúsund krónum úr sjóðnum.
Umsóknir um styrkinn þurfa að berast til
Flensborgarskólans í síðasta lagi 1. desem-
ber nk. Umsóknum þurfa að fylgja staðfest
gögn um námsferil eftir að námi í Flensborg-
arskólanum lauk.
Stjórn Fræðslusjóðs
Jóns Þórarinssonar.
BESSASTAÐAHREPPUR
Hesthúsabyggð
- deiliskipulag
Tillaga að deiliskipulagi hesthúsábyggðar við
Suðurnesveg, gegnt Mýrarkoti, auglýsist hér
með samkvæmt skipulagsreglugerð nr.
318/1985 með síðari breytingum.
Tillagan felur í sér, að á svæðinu verða lóðir
fyrir 12 hesthús, sem rúmað geta 160-170
hesta. Þar af eru fjórar lóðir með húsum,
sem standa nú þegar á svæðinu, og átta
lóðir, þar sem gert er ráð fyrir nýjum húsum.
í hesthúsabyggð verður einnig svæði til
hestaíþrótta.
Uppdrættir ásamt skipulagsskilmálum verða
til sýnis á skrifstofu Bessastaðahrepps frá
kl. 10.00-15.00 alia virka daga frá 10. nóv-
ember 1995 til 29. desember 1995.
Fresturtil að skila skriflegum athugasemdum
til sveitarstjóra Bessastaðahrepps er til
föstudagsins 5. janúar 1996.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan til-
skilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Sveitarstjórinn í Bessastaðahreppi.
^ff% BESSASTAÐAHREPPUR
Vesturtún
- breytt deiliskipulag
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúða-
hverfis við Vesturtún í Bessastaðahreppi
auglýsist hér með samkvæmt skipulags-
reglugerð nr. 318/1985 með síðari breyting-
um. /
Samkvæmt tillögunni verða fjögur raðhús í
lengju á lóð 1-3-5 ístað þriggja, sjö parhúsa-
lengjur í stað einbýlishúsa á lóðum 27, 29,
47, 49, 51,53 og 55 og tvær þriggja raðhúsa-
lengjur á lóðum nr. 16, 18, 20, 22, 24 og
26. Heimilt verður að staðsetja útigeymslur
utan byggingarreits á lóð nr. 1-3-5.
Greinargerð er óbreytt nema hvað varðar
fjölda húsa og bílastæða í götunni.
Uppdrættir ásamt skipulagsskilmálum verða
til sýnis á skrifstofu Bessastaðahrepps frá
kl. 10.00-15.00 alla virka daga frá 10. nóv-
ember 1995 til 8. desember 1995.
Athugasemdum skal skilað skriflega til sveit-
arstjóra Bessastaðahrepps innan auglýsts
kynningartíma.
.Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan til-
skilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Sveitarstjórinn í Bessastaðahreppi.
^ff% BESSASTAÐAHREPPUR
Aðalskipulag Bessa-
staðahrepps - breyting
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Bessa-
staðahrepps 1993-2013 auglýsist hér með
samkvæmt 17. gr. skipulagslaga nr. 19/1964
með síðari breytingum.
í tillögunni er gert ráð fyrir breytingu á
svæði, sem merkt er í aðalskipulagi sem
íþróttasvæði með núverandi hesthúsum.
Breytingin felur í sér að svæðið er merkt sem
svæði fyrir hesthúsabyggð og hestaíþróttir.
Á svæðinu verður hesthúsum fjölgað og
hestaíþróttasvæði gert. Svæðið stækkar úr
2 ha. í 3,1 ha. Þá er íbúðasvæði sunnan
hesthúsahverfis minnkað úr 2,8 ha í 1,9 ha.
Skipulagsuppdráttur, sem sýnir hið breytta
svæði á aðalskipulagi, verður til sýnis á skrif-
stofu Bessastaðahrepps frá kl. 10.00-15.00
alla virka daga frá 10. nóvember 1995 til
29. desember 1995.
Frestur til að skila skriflegum athugasemdum
til sveitarstjóra Bessastaðahrepps er til
föstudagsins 5. janúar 1996.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan til-
skilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Sveitarstjórinn í Bessastaðahreppi.
HÚSNÆÐIÓSKAST
Óskum eftir
að taka á leigu til tveggja ára 3ja-4ra her-
bergja íbúð, helst með húsgögnum, mið-
svæðis í Reykjavík, fyrir erlendan starfsmann
okkar.
Tilboð sendist til afgreiðslu Mbl., merkt:
„ÍSAL - 15546", fyrir 20. nóvember nk.
ísierska álfélagið hf.
TÚndÍr - mÁnnv\gnÁður
Aðalfundur
Aðalfundur Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf.
verður haldinn á Hótel Húsavík fimmtudaginn
7. desember nk. kl. 20.30.
Tillögur, sem hluthafar vilja bera fram á fund-
inum, skulu hafa borist á skrifstofu félagsins
eigi síðar en 23. nóvember nk. _ ., .
Stjornin.
Aðalfundur
Aðalfundur Ráðstefnuskrifstofu íslands verð-
ur haldinn í sal B á Hótel Sögu í dag, föstu-
daginn 10. nóvember 1995, kl. 15:00.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins.
Stjórnin.
Rótgróin og þekktur
veitingastaður í Reykjavík
tilleigu
Miklir möguleikar fyrir kraftmikla aðila, sem
hafa þekkingu á veitingarekstri. Staðurinn er
í fullum rekstri og með góða veltu.
Aðeins traustir aðilar koma til greina.
Lysthafendur vinsamlegast skili inn nafni,
kennitölu og síma til afgreiðslu Mbl., merktum:
„í alfaraleið - 17794“, fyrir 16. nóvember.
Bóklegt nám fyrir
atvinnuflugmannsskírteini
Flugskóli íslands mun standa fyrir bóklegri
kennslu fyrir eftirtalin skírteini og áritanir á
árinu 1996, ef næg þátttaka verður.
Atvinnuflugmannsskírteini með blindflugs-
áritun. Kennsla hefst 8. janúar 1996.
Umsóknarfrestur er til 6. desember nk.
Inntökuskilyrði eru: Einkaflugmannsskírteini,
1. flokks heilbrigðisvottorð og stúdentspróf
(a.m.k. 3 einingar í eðlisfræði) eða sambæri-
leg menntun.
Atvinnuflugmannsskírteini 1. flokks.
Kennsla hefst 9. janúar 1996.
Umsóknarfrestur er til 8. desember nk.
Inntökuskilyrði eru: Atvinnuflugmanns-
skírteini með blindflugsáritun.
Flugkennari. Kennsla hefst 15. mars 1996.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 1996.
Inntökuskilyrði: Atvinnuflugmannsskírteini
með blindflugsáritun.
Atvinnuflugmannsskírteini 1. flokks.
Kennsla hefst 3. september 1996.
Umsóknarfrestur er til 8. ágúst 1996.
Inntökuskilyrði: Atvinnuflugmannsskírteini
með blindflugsáritun.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans
á Reykjavíkurflugvelli. Umsóknir, ásamt stað-
festum Ijósritum af skírteínum, þurfa að hafa
borist Flugskóla íslands fyrir lok tilgreinds
umsóknarfrests. Flugmálastjórn.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi elgnum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Áshamar 67, 3. hæð (2ja herb. ibúð), Vestmannaeyjum, þingl. eig.
Stefán S. Harðarson, gerðarbeiðendur húsbréfadeild Húsnæðis-
stofnunar rikisins og Sparisjóður Vestmannaeyja, miövikudaginn
15. nóvember 1995 kt. 16.00.
Faxastígur 21, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Ásdís Gísladóttir, gerðar-
beiðandi húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins, miðvikudaginn
15. nóvember 1995 kl. 16.30.
Kirkjubæjarbraut 11, efri hæð, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Ragnar
(saksson og Ásta Ragnheiöur Rafnsdóttir, gerðarbeiðandi Byggingar-
sjóður ríkisins, miðvikudaginn 15. nóvember 1995 kl. 17.00.
Vestmannabraut 32, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Jón Högni Stefáns-
son, gerðarbeiðendur Byggíngarsjóður ríkisins og íslandsbanki hf.,
miðvikudaginn 15. nóvember 1995 kl. 17.30.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
9. nóvember 1995.
Brynhildur Georgsdóttir, ftr.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hafnarbraut 25,
Hólmavík, sem hér segir á eftirtaldri eign:
1. Tungu, Hómavíkurhreppi, þinglýst eign Signýjar Hauksdóttur,
eftir kröfu Ingvars Helgasonar hf., fimmtudaginn 16. nóvember
1995, kl. 14.00.
Sýslumaðurinn á Hólmavik,
8. nóvember 1995.