Morgunblaðið - 10.11.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995 23
„...Landið sem alltaf
kemur á óvart“
BÓKMENNTIR
Fcrðabók
ÍRLANDSDAGAR
eftir Sigurð A. Magnússon.
Ljósmyndir Sigríður
Friðjónsdóttir. Fjölvi 1995.224 bls.
Verð 3.860. kr.
SIGURÐUR A. Magnússon rit-
höfundur hefur áður skrifað tvær
ýtarlegar ferðasögur, „Við elda Ind-
lands“ og „Grikklandsgaldur“, jafn-
framt sem hann hefur látið frá sér
ýmislegt um ísland fyrir útlendinga.
Bókin „írlandsdagar" skiptist
eiginlega í þrjá hluta, fyrst um land
og sögu, síðan kemur stærsti ein-
staki kaflinn um Dyflinnarborg og
að lokum er umfangsmesti hlutinn
hringferð um sýslur og héruð ír-
lands.
Inngangskaflinn um land og þjóð
er ágætis yfirlit um sögulegan bak-
grunn írlands, og er hann spenn-
andi lesning um þá miklu sögu sem
býr þar að baki. Einnig dregur Sig-
urður upp mynd af írum, þar sem
hann skilgreinir lyndiseinkunn
þessarar rammkaþólsku þjóðar,
sem hefur lifað bæði súrt og sætt
undir oki Normanna og Englend-
inga. En gullöld írlands nær langt
aftur til forsögulegs tíma og rís
hæst í stórveldi Kelta eða Galla sem
töluðu gelísku.
En forvitnilegasti kaflinn er frá
Dyflinni, borginni sem víkingar
stofnuðu og Joyce lýsir í „Ódys-
seif“ og „í Dyflinni“, en bæði þessi
verk hefur Siguður A. þýtt. Þar
tvinnar hann saman fróðleik úr
sögu írlands jafnframt sem hann
lýsir hinum ýmsu byggingum og
atburðum bæði sögulegum og bók-
menntasögulegum á stórfróðlegan
hátt. Þannig blandast saman lýs-
ingar á byggingum eins og
Dyflinnarkastala, Patrekskirkju og
Killmainham-fangelsinu en að auk
er minnst á hagnýta hluti, þ.e.
helstu stórverslanir og krár. Þetta
tvennt er hnýtt saman þannig að
notagildi bókarinnar verður hið
gagnlegasta fyrir vikið, en þó ekki
á kostnað sögulegs fróðleiks sem
er fyrirferðarmeiri þátturinn í
þessari írlandslýsingu. Allt er þetta
sett saman skýrt og skilmerkilega
þannig að læsilegt sé.
Viðamesti hlutinn er síðan lýsing
á ferð um sveitir og héruð írlands
með viðkomu á hinum ýmsu minnis-
verðu stöðum svo sem eins og Cork,
Aran-eyjum og á hin-
um forsögulegu minj-
um í Newgrange og
„þjóðarhelgidómi“ íra
eða „hákonungsborg-
inni“ Tara. En þó að í
öllum textanum búi
fyrst og fremst sögu-
legt upplýsingagildi þá
skortir ekki persónuleg
innskot frá kráarferð-
um og er jafnvel verð
gistinátta á hinum
ýmsu stöðum á írlandi
nefnt til glöggvunar.
Með þessari ágætu
samsetningu sem þó
getur orkað tvímælis
fyrir unnendur hand-
bóka, þá eru „Írlandsdagar" fyrst
og fremst ferðalýsing sem hefur
einnig notagildi handbókar þrátt
fyrir stórt brot. Þar koma til skrár
yfir þekktar byggingar, staði,
mannanöfn auk korta sem gerir
bókina aðgengilegri, sem og að
hægt er að notfæra sér kaflaskipt-
Sigurður A.
Magnússon
ingu fyrir afmarkað
svæði ef menn hyggja
á ferðalög.
í bókinni er mikill
ljöldi ljósmynda, sem
teknar eru af Sigríði
Friðjónsdóttur og eru
þær ómissandi til
stuðnings. Aftur á
móti eru þær misjafn-
lega skýrar og margar
hverjar of dökkar að
gæðum.
Ekki fletti ég upp á
heimildum eftir tilvís-
anaskrá, en aftast er
getið um rit sem stuðst
hefur verið við og eyk-
ur það fræðilegt gildi
bókarinnar. í heild séð hefur vel
tekist og þetta form sem ferðalýs-
ingin er nær Sigurður að nýta til
að ljúka upp heillandi frásögn af
þessari margbrotnu þjóð sem írar
eru fyrir alla þá sem hyggja á „ír-
landsdaga".
Einar E. Laxness.
IWONA Jagla pianóleikari og
Svava Kristin Ingólfsdóttir
mezzósópran.
Einsöngs-
tónleikar
í Selfoss-
kirkju
EIN SÖN GSTÓNLEIKAR verða
haldnir í Selfosskirkju laugardag-
inn 11. nóvember nk. og hefjast
þeir kl. 16.00. Þar koma fram þær
Svava Kristín Ingólfsdóttir mezzó-
sópran-söngkona og Ywona Jagla
píanóleikari.
Svava lauk söngkennaraprófi
frá Söngskólanum í Reykjavík
vorið 1992 hjá Katrínu Sigurðar-
dóttur og Jórunni Viðar. Hún hef-
ur víða komið fram sem einsöngv-
ari auk þess að syngja með ýmsum
kórum svo sem Óperukórnum,
Hljómkórnum og Kammerkór
Langholtskirkju. Hún starfar sem
söngkennari í Reykjavík og á
Laugarvatni við Tónlistarskóla
Árnesinga.
Ywona er fædd í Póllandi. Lauk
hún píanónámi frá Tónlistaraka-
demíunni í Gdansk árið 1983 og
tók þar einleikarapróf. Áður en
hún lauk námi hóf hún störf við
söng- og kammermúsíkdeild aka-
demíunnar.
Jafnframt vann hún sem æf-
ingastjóri við óperuna í Gdansk frá
árinu 1983 til ársins 1990. Kom
hún til íslands í september 1990
og hefur starfað hjá Islensku óper-
unni undanfarin ár. Hún kennir
nú við Söngskólann í Reykjavík.
Á efnisskránni eru íslensk söng-
lög eftir Karl O. Runólfsson, en
95 ár eru liðin frá fæðingu hans
um þessar mundir, Tonadillas, sem
er söngvasafn eftir spænska tón-
skáldið Enrique Granados og Sí-
gaunasöngvar eftir tékkneska tón-
skáldið Antonín Dvorák.
HN VERSLBN
erfyrir þig
Spœnskar
Appelsínur og Klementínur.
Sœtar & safaríkar!!