Morgunblaðið - 10.11.1995, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.11.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995 19 ERLEIMT Andstæðingar Silvios Berlusconis þjarma að honum Saka Forza Italia um tengsl við mafíuna Róm. Reuter. SILVIO Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, sem hefur sjálfur verið sakaður um aðild að spillingarmáli, stendur nú frammi fyrir ásökunum andstæðinga sinna um að flokkur hans, Forza Italia, sé „mafíuflokkur". ítölsk dagblöð lögðu í gær forsíðurnar að mestu undir fréttir um að Francesco Musotto, héraðs- stjóri Palermo og atkvæðamikill félagi í Forza Italia á Sikiley, hefði verið handtekinn vegna gruns um tengsl við mafíuna. „Forza Italia verður fyrir áfalli, sikileyski leið- toginn í handjárnum vegna maf- íunnar," sagði í fyrirsögn dag- blaðsins La Stampa. Forystumenn Forza Italia sögðu ásakanimar á hendur Musotto lið í samsæri rannsóknardómara og vinstrimanna. Berlusconi hélt á fund Oscars Luigis Scalfaros forseta og sagði að binda þyrfti „enda á þessa grimmilegu dómaraherferð“. Eitt af dagblöðum Berlusconis hafði nokkrum dögum áður sakað for- setann um spillingu. Berlusconi verður leiddur fyrir rétt í janúar vegna ásakana um að íjölmiðlaveldi hans hafí greitt skattrannsóknamönnum mútur. Hann segir ásakanirnar lið í til- raunum rannsóknardómaranna til að koma höggi á hann í pólitískum tilgangi. Meint aðstoð við mág Riina Musotto er lögfræðingur og hefur tekið að sér að veija marga mafíuforingja. Hann var áður tengdur Sósíalistaflokknum, sem Silvio Berlusconi fór illa út úr spillingarmálunum sem tröllriðið hafa ítölskum stjórn- málum síðustu misseri. Musotto er sakaður um að hafa aðstoðað mafíuforingjann Leoluca Bagarella, mág guðföðurins Sal- vatore Riina, við að komast hjá handtöku. Bagarella var handtek- inn í júní og lögreglan hafði þá leitað hans í fjögur ár. Nokkrum dögum fyrir handtöku Musottos höfðu dómarar skýrt tveimur þingmönnum frá því að verið væri að rannsaka meint tengsl þeirra við mafíuna. Annar þeirra, Tiziana Maiolo, er í Forza Italia og hinn, Vittorio Sgarbi, kemur reglulega fram í sjónvarps- stöðvum Berlusconis til að gagn- rýna framgöngu rannsóknardóm- aranna og saka þá um að beita aðferðum „rannsóknarréttarins og nasista". Erfðu gamla valdakerfið Pino Arlacchi, varaformaður þingnefndar sem fjallar um barátt- una gegn mafíunni, sagði að í við- tali við Corriere della Sera að Forza Italia nyti stuðnings maf- íunnar. „Það væri gróf lygi að lýsa Forza Italia sem glæpasamtök- um,“ sagði hann. „Á Sikiley, í Calabria og Campania hefur flokk- urinn erft mikilvægan hluta valda- kerfis Kristilegra demókrata og sósíalista." Arlacchi sagði að flestir félaga Forza Italia og bandamanna þeirra í Þjóðarbandalaginu hefðu hreinan skjöld en flokkamir þyrftu hins vegar að „hreinsa til á nokkrum svæðum“. Gianfranco Fini, leiðtogi Þjóðar- bandalagsins, og forystumenn Forza Italia sögðu ásakanirnar lið í ófrægingarherferð vinstriflokk- anna, sem vildu tryggja sér sigur í þingkosningum á næsta ári. Leiðtogakreppa Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð Dagar Sahlín sem formannsefnis taldir Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. MONA Sahlin, varaforsætisráð- herra Svía og frambjóðandi til flokksformennsku í Jafnaðar- mannaflokknum, fundaði á mið- vikudag með Sven Hulterström, sem stjórnar formannsleit flokks- ins. Stjarna Sahlin hefur dalað eftir að í hámæli komst að hún hefði notað greiðslukort embættis- ins til að greiða einkaneyslu og hún væri skuldseig við greiðslu- kortafyrirtæki og víðar. í vikunni bættist svo við, að hún hefði tekið ritara sinn með sér í fjölskyldufríið til Mauritius og ferð ritarans hefði kostað skattgreið- endur um 250 þúsund íslenskar krónur. Hulterström hefur hótað að hætta leit að formanni ef ekki næst samkomulag um hæfan frambjóðanda innan mánaðar. Styttri tími dugi ekki til að und- irbúa kjörið í mars og átökin verði þá að fara fram á flokksþinginu. Áður en fjármálaóreiða Sahlin komst í hámæli fyrir nokkrum vik- um virtist leið hennar í flokksfor- mannsstólinn bein og breið, þar sem enginn annar frambjóðandi hafði þann stuðning, sem hún virt- ist hafa, hvorki innan þingflokks- ins né í flokknum. En eftir að i ljós kom að Sahlin hefur átt í erfíð- leikum með að hafa stjórn á greiðslukortanotkun og verið skuldseig hefur fylgið hrunið af henni. Ferð ritarans var svo drop- inn sem fyllti mælinn. Óformlegar skoðanakannanir innan þing- flokksins sýna að hún hefur ekki lengur fylgi þar. Vandinn er hins vegar að enginn frambjóðandi hef- ur komið í stað hennar. Öldurnar lægir ekki Sahlin hefur vonast eftir að skýringar hennar og játningar dygðu til að lægja öldumar en svo hefur ekki orðið. Hún hefur sagt eftir sem áður að skori flokkurinn á hana að taka við formannsemb- ættinu muni hún taka þeirri áskor- un. Það verður hins vegar æ ósennilegra að hún fái slíka áskor- un. Eftir fundinn með Sven Hult- erström sagði hann, að ekki væri hægt að horfa fram hjá minnk- andi stuðningi við Sahlin innan flokksins. Vandinn væri að meðan enginn annar frambjóðandi kæmi fram á sjónarsviðið snerist umræð- an áfram um Sahlin. Hann sagði, að væri ekki kominn skýr fram- bjóðandi um miðjan desember hygðist hann láta af verkefni sínu, því þá væri orðinn of stuttur tími til að undirbúa formannskjörið í mars. Það hefur hins vegar aldrei gerst áður að ekki hafí verið búið að finna frambjóðanda fyrir þing- ið. Eftir afhjúpanirnar um Sahlin undanfarið reikna fæstir með að hún komist hjá því að draga sam- an seglin, því það fari illa á því, að þjóðarleiðtogi, sem stjóma á efnahagsmálunum, geti ekki stjómað eigin fjármálum. En mál- ið hefur einnig vakið upp spum- ingar um fjárreiður stjómmála- manna. Meiri kröfur til kvenna? Fyrr á árinu kom í ljós að ný- kjörinn formaður Þjóðarflokksins, Maria Leissner, var í skuld við skattinn og hafði ekki talið fram í nokkur ár. Og þetta hefur einnig vakið upp spumingar um hvort kvenfólk sé meiri skussar en karl- ar, eða hvort þetta sé enn eitt dæmi um að kvenfólk verði. að vera enn fullkomnara en karlar til að eiga sér viðreisnar von. Ófarir Sahlin em einnig ófarir Ingvars Carlssons, sem hefur stað- ið óhaggaður við hlið hennar nú og hlaðið dyggilega undir hana innan flokksins undanfarin ár. Hann skilur við flokkinn klofinn og með frambjóðanda, sem ekki stenst siðferðiskröfur, sem gerðar eru til stjórnmálamanna. . Trust Þú gerir góð kaup hjá okkur - Trust tölvur á tilboðsverði! Trust Pentium PCi Pentium 75 PCI 8 MB minni - 850 MB diskur Wlndows 95 uppsett m/margmiðlun C) Pentium 90 PCI 8 MB minni - 850 MB diskur Windows 95 uppsett m/margmiðlun (*) : Trust 486 PCI DX2/80 PCI 8 MB minni • 850 MB diskur lliVJIrl.l.l m/margmiðlun C) DX4/100 PCI 8 MB minni - 850 MB diskur Windows 95 uppsett NYHERJA m/margmiðlun C) EEESEEEI SKAFTAHLIÐ 24 SÍMI5697800 (*) Hljóðkort, hátalarar, geisladrif og geisladiskar m/190 leikjum og 300 forritum! TILBOÐ Vandaðir gripir á einstöku verði! Bjóðum nú þessar sívinsælu eldavélar frá Siemens á sérstöku kostaverði. Vélarnar eru einfaldar í notkun, traustar og endingargóðar. HS 24020 • Breidd 60 sm • Yfir-/undirhiti, grill • 4 hellur • Geymsluskúffa Verð: 49.900 stgr. HN 26020 • Breidd 50 sm • Yfir-/undirhiti, grill • 4 hellur • Geymsluskúffa Verð: 45.900 stgr. UMBOÐSMENN OKKAR Á LANDSBYGGÐINNI: Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs • Borgarnes: Glitnir • Borgarfjörður: Rafstofan Hvitárskála • Hellissandur: Blómsturvellir • Grundarfjörður: Guöni Hallgrimsson • Stykkishólmur. Skipavfk » Búðardalur: Ásubúð • Isafjörður. Póllinn • Hvammstangi: Skjanni • Sauðárkrókun Rafsjá • Siglufjörður Torgið • Akureyri: Ljósgjafinn • Húsavik: öryggi • Pórshöfn: Noröurraf • Neskaupstaður: Rafalda • Reyðarfjörður: Rafvélaverkst. Árna E. • Egilsstaðir: Sveinn Guðmundsson • Breiödalsvik: Stefán N. Stefánsson • Höfn I Hornafirði: Kristall • Vestmannaeyjar: Tréverk • Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga • Selfoss: Árvirkinn • Grindavik: Rafborg • Garður: Raftækjav. Sig. Ingvarss. • Keflavík: Ljósboginn • Hafnarfjörður: Rafbúö Skúla, Álfaskeiöi í x'erslun okkar að Nóatúni SMITH & NORLAND Nóatúni 4 • Sími 511 3000 NVlO
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.