Morgunblaðið - 10.11.1995, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.11.1995, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Njála og norræn goðafræði heilla Rushdie Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. RITHÖFUNDURINN Salman Rushdie var á ferð um Kaupmannahöfn nýlega til að kynna nýju bókina sína, „The Moor’s Last Sigh". í viðtali við danska blaðið „Politiken" sagði hann meðal annars frá kynnum sínum af norrænum bók- menntum. Þar nefnir hann til norræna goða- fræði og Njálu sem áhrifavalda síðan hann var strákur. Rétt eins og argentínski rithöfundurinn Jorge Luis Borges heldur Rushdie mikið upp á íslenskar fombókmenntir. Rushdie segir kvenpersónur nýju bókarinnar vera heillandi, en einnig svolítið ógnarlegar og það leiðir huga hans að Snædrottningunni í sam- nefndu æfintýri H.C. Andersens. Hann segist hafa lesið öll ævintýri hans, en einnig Grimms- ævintýri. Hvomg greinin tilheyri nokkurri þjóð lengur, heldur séu ævintýrin eiginlega orðin goðsöguleg. Norræn goðafræði sé hins vegar mjög sérstök og hafi heillað hann síðan hann var 14 eða 15 ára. Goðafræði leiðin að Njálu Á þeim aldri las hann Tolkien af ákefð og þá benti einn kennari hans honum á að lesa uppsprettu Tolkiens, hina upprunaleu norrænu goðafræði. Það gerði hann og hún hefur fyigt honum síðan, ekki síst sögurnar um Auðhumlu, Yggdrasil og Ragnarök, sem að sögn Rushdies em enn betur gerðar en grísk og rómversk goða- fræði. Og norrænu nöfnin hefur hann léttilega á takteinunum. Goðafræðin kom honum á spor íslenskra fom- bókmennta. Hann hélt lestrinum áfram og tók nú til við íslendingasögumar. Af þeim segist hann meta Njálu mest. Rushdie er nú að búa sig undir að taka upp eðlilega lífshætti og von- ast til að koma næst til Kaupmannahafnar án lífvarða. Salman Rushdie er ekki eini ritsnillingurinn, sem nefnir íslendingasögumar sem uppáhalds- lesningu sína. Argentínski rithöfundurin Jorge Luís Borges bæði skrifaði og talaði um íslend- ingasögumar og þá ekki síst Njálu sem mikla uppáhaldsbók sína og norræn goðafræði var honum einnig vel kunn. Þessir tveir rithöfundar eiga það sameiginlegt að vera miklir sagnamenn og því ekki undarlegt að íslendingasögumar skuli einmitt eiga trygga lesendur í þeim. Jónasarvaka í Kaupmannahöfn Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Söngleik- urinn Dagur DAGUR heitir nýr söng- og gamanleikur sem leikhópurinn Hamingjupakkið sýnir á litla sviði Borgarleikhússins um þessar mundir. Hamingjupakk- ið er samsett af ungu fólki sem viða hefur leitað fanga í lista- flórunni, svo sem leiklist, tón- list og danslist. Hópurinn hefur stillt saman strengi sína þannig að úr hefur orðið fjöllistasýn- ing. Helena Jónsdóttir, sem er höfundur og leikstjóri verks- ins, segir að verkið segi frá einum degi í lífi ungs fólks. „Við erum að gera góðlátlegt grín að okkur sjálfum, ungu fólki í dag. Dagur er ósköp venjulegur drengur, þessi Jack and Jones-týpa, sem vaknar einn morgun I ókunnu rúmi við hliðina á ókunnri stúlku. Hann þarf auðvitað að komast heim. En hvernig? Fötin fær hann ekki, simann má hann ekki nota og enginn hefur áhuga á að skutla honum. Stúlkan sem hann eyddi nóttinni með hefur aðeins áhuga á einu, að koma honum út. Fatalaus og vinalaus í ókunnu húsi og veit ekki sitt rjúkandi ráð.“ Fjöldi leikara, dansara og tónlistarmanna koma fram í sýningunni. Jóhann G. Jó- „FATALAUS og vinalaus í ókunnu húsi og veit ekki sitt ijúkandi ráð.“ Dagur í samnefndum söngleik. hannsson leikur Dag en meðal annarra leikara má nefna Brynhildi Björnsdóttur, Jar- þrúði Guðnadóttur, Pétur Örn Guðmundsson, Sigurþór Hei- misson og Helenu Jónsdóttur. Hljómsveit skipa Gunnlaugur Briem, Hrólfur Sæmundsson, Stína Bongó og Tómas Jóhann- esson. Næsta sýning á leiknum verður sunnudaginn 12. nóv- ember kl. 20.30 og er það jafn- framt lokasýning. 150 ARA ártíðar Jónasar Hall- grímssonar var nýlega minnst í Kaupmannahöfn á vegum bók- menntafélagsins Thors, sem að vanda heldur uppi merki bókmennt- anna í Jónshúsi. Þar komu fram þau Páll Valsson bókmenntafræð- ingur, Ingibjörg Guðmundsdóttir söngkona og íslenski kirkjukórinn. Sérstakir gestir voru Ólafur G. Einarssou, fórseti Alþingis, og Friðrik Olafsson, skrifstofustjóri Alþingis, en eins og kunnugt er á Alþingi íslendinga Jónshús. Sr. Lárus Þ. Guðmundsson sóknar- prestur minntist þeirra sem létust í sjóflóðinu á Flateyri. Þar sem samkoman var sú fyrsta DAGSKRÁ í tengslum við yfirlits- sýningu á verkum Einars Sveins- sonar, arkitekts og húsameistara Reykjavíkur, á Kjarvalsstöðum er eftirfarandi: Sunnudagana 12., 19. og 26. nóvember kl. 16. Leiðsöjgn á Kjarv- alsstöðum. Pétur H: Armannsson arkitekt, safnvörður byggingarlist- ardeildar Listasafns Reykjavíkur, leiðbeinir sýningargestum. Mánudagur 13. nóvember kl. 20. í minningu Einars Sveinssonar. Dagskrá á Kjarvalsstöðum. Fjögur stutt erindi um starf og listsköpun Einars. Flytjendur eru: Aðalsteinn Richter arkitekt, Einar B. Pálsson í Jónshúsi eftir snjóflóðið á Flat- eyri hófst samkoman með ávarpi sr. Lárusar Þ. Guðmundssonar. Páll Valsson bókmenntafræðingur, sem dvelst nú við fræðistörf í Kaup- mannahöfn, hélt erindi um Jónas, en hann hefur áður staðið að út- gáfu verka Jónasar. Ingibjörg Guð- jónsdóttir söngkona söng lög við texta Jónasar, en Ingibjörg býr nú í Danmörku. Kirkjukórinn söng síð- an einnig lög við texta Jónasar. Það eru þeir Böðvar Guðmunds- son og Sverrir Hólmarsson, sem af miklum myndarskap kynna lönd- um sínum íslenskar bókmenntir fyrsta fimmtudag í hvetjum vetrar- mánuði. prófessor, Pétur H. Ármannsson arkitekt, Þorgeir Ólafsson listfræð- ingur. Laugardagur 18. nóvember kl. 14-16. Skoðunarferð um Reykja- vík: Skoðuð dæmi um áhrif Einars á ásýnd bæjarins og tvær af bygg- ingum hans heimsóttar. Leiðsögn: Pétur H. Ármannsson. Brottför í rútu frá Kjarvalsstöðum. Hámarks- íjöldi 30 manns. Þar að auki er skipulögð leiðsögn fyrir almenning um sýningamar Einskonar hversdagsrómantík og Kjarval - mótunarár 1885-1930 alla sunnudaga í nóvember kl. 16.30. Leiðsögn og skoðunarferð Teiknað með tölvum NORRÆNA húsið hefur sett saman dagskrá fyrir böm og ungt fólk sem hefur hlotið nafnið Cyklonen. Á dagskrá á Cyklonen í vetur verður m.a. boðið til „námskeiðs" í tölvuteikningu, tónleika, kvik- myndasýninga og 50 ára afmælis Línu Langsokks. Þann 11. nóv- ember kl. 11 er börnum á aldrin- um 6-12 ára boðið til smiðju í kjall- ara Norræna hússins, þar sem þeim gefst færi á að teikna sínar eigin myndir með tölvum. Leiðbeinandi er Kristín Maria Ingimarsdóttir, teiknari, menntuð í Bandaríkjunum. Hún hefur starfað hér heima m.a. við að leiðbeina börnum og ungling- um í myndbandaframleiðslu. Myndirnar verða prentaðar út í lit og sett verður saman sýning á verkum þátttakanda í bókasafni Norræna hússins þann 11. nóvem- ber til 20. nóvember. Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis. ------» ♦ ♦----- Þrír sýna í Nýlistasafninu GUÐNÝ Richards og Thomas Ruppel opna sýningu í Nýlistasafn- inu, Vatnsstíg 3b, laugardaginn 11. nóvember kl. 18. Guðný og Thomas, sem bæði eru búsett í Þýskalandi, sýna málverk og grafíkverk í safninu. Guðný Ric- hards útskrifaðist frá Grafíkdeild Myndlista- og handíðaskóla íslands 1985 og stundaði framhaldsnám í London og Stuttgart. Lauk hún námi frá Akademíunni í Stuttgart 1994. Thomas Ruppel lauk námi frá Grafíkdeild Akademíunnar í Stutt- gart 1990. Hann hefur um árabil rekið eigið grafíkverkstæði í Stutt- gart og þrykkt fyrir aðra lista- menn, gellerí og söfn. Thomas er nú gestakennari í grafíkdeild Mynd- iista- og handíðaskólans. Gestur safnsins í Setustofu er þýski listamaðurinn Martin Leien- setter frá Ludwigsburg. Martin sýnir málverk. Sýningarnar eru opnar daglega frá kl. 14-18 og þeim lýkur sunnudaginn 26. nóvem- ber. ------♦ ♦ ♦—---- Tilbo'd á hreinlætistækjum Mikið úrval af sturtuklefum, sturtuhornum og hur&um. AtkuejeJ&u t/eiðiÍ! Verð frá i) Ver& frá Ba&kör 17 ger&ir. Stærðir: 100-190 cm. Handlaugar 17 ger&ir á vegg og borö. Verslið þar sem úrvalið er mest! Stálvaskar í eldhús yfir 30 ger&ir. VerS frá Blöndunartæki yfir 40 ger&ir. ■^rtkuýaðu tfeuðið! Kvikmyndasýn- ingar fyrir börn NORSK mynd gerð eftir ævintýri Asbjomsen og Moe, Herremanns- bruden, verður sýnd í Norræna húsinu á sunnudaginn kl. 14. Ríkur óðalsbóndi verður ástfanginn af dóttur vinnumanns síns. Hann býð- ur til brúðkaups, en stúlkan vill ekki játast honum. Myndin er með norsku tali og er 18 mín. að lengd. -----».♦-♦-- Nýjar bækur • UNGLINGABÓKIN Keflavíkur- dagar/Keflavíkumætur eftir Lárus Má Bjömsson er komin út. Óli er fimmtán ára og í tíunda bekk, starfsdeild. Hann er hundleið- ur á stríðni og ein- elti og ákveður að breyta ástandinu. Með vaxandi sjálfstraust að vopni tekst honum að ná árangri og virðist í lokin flest- ir vegir færir. Útgefandi erMál ogmenning. Bók- in er 223 bls., prentuð í Svíþjóð og kostar 1.880 kr. Kápumynd er eftir Atla Má Hafsteinsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.