Morgunblaðið - 10.11.1995, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995 9
FRÉTTIR
Sjúkrasjóður Verslunarmannafélags Reykjavíkur
Dagpening’ar nú greiddir
vegna veikra barna
Rauðar dragtir aðsniðnar með
gylltum hnöppum. Verð kr. 27.100
TBSS
Opiö laugardag frá kl. 10-14
- Verið velkomin -
neðst við Opið virka daga
r, . kl.9-18,
Dunhaga, laugardaga
sími 562 2230 kl. 10-14.
Tekjur fyrir veikindi eða siys Dagpeninga- greiðslur úr Sjúkrasj. VR Dagpeninga- greiðslur frá Tryggingast. Dagpeninga- greiðslur samtals:
80.000 80.000 0 80.000
120.000 119.784 0 119.784
160.000 143.784 0 143.784
DÆMI
Dagpeningar vegna veikinda barna
Félagsmaður í V.R. með tvö börn yngri en 18 ára
Dagpeningar vegna veikinda
Félagsmaður í V.R. með tvö börn yngri en 18 ára
Tekjur fyrir
veikindi
eða slys
80.000
120.000
160.000
Dagpeninga-
greiðslur úr
Sjúkrasj. VR
54.440
94.224
118.224
Dagpeninga-
greiðslur frá
Tryggingast.
25.560
25.560
25.560
Dagpen.-
greiðslur
alls, nú:
80.000
119.784
143.784
Dagpen.-
greiðslur
alls, áður:
80.000
99.848
107.848
Aukning á
greiddum
dagpeningum
0% 0
20% 19.936
33% 35.936
TEKJUTRYGGING sjúkra- og
slysadagpeninga hjá sjúkrasjóði
Verslunarmannafélags Reykjavík-
ur hefur nú verið hækkuð úr 20%
í 60% af launum umfram 70.160
krónur. Ennfremur hefur sjúkra-
sjóður V.R. tekið upp greiðslur á
dagpeningum vegna veikinda
barna félagsmanna yngri en 16
ára.
Pétur A. Maack, framkvæmda-
stjóri VR, segir að á síðasta ári
hafi félagið greitt tæplega 30 millj-
ónir króna í sjúkradagpeninga.
Sjúkrasjóðsgjald er 1% af heildar-
tekjum og segir Pétur að hækkun
tekjutengingar sé raunhæf í ljósi
þess að þeir greiði meira í sjúkra-
sjóð sem hærri hafa launin. Um
þá nýjung að greiða nú dagpeninga
vegna veikra bama segir Pétur:
„Fólk með börn á þessum aldri
má sjaldnast við tekjumissi, enda
yfirleitt að koma undir sig fótun-
um. Við töldum tímabært að koma
til móts við þennan hóp félags-
manna með þessum hætti.“
Sjúkradagpeninga vegna veikra
barna verður hægt að fá í 30 daga
á hverju 12 mánaða tímabili ef
félagsmaður missir launatekjur
vegna veikinda barna sinna. „Við
hefjum greiðslur dagpeninga eftir
að 7 daga samningsbundinn veik-
indaréttur hjá atvinnurekanda hef-
ur verið fullnýttur,“ segir Pétur.
„Sjúkradagpeninga greiðum við til
félagsmanna-ef launagreiðsla fell-
ur niður vegna veikinda þeirra eða
slyss og ef fjarvist frá vinnu varir
lengur en 12 daga. Sömuleiðis
vegna fjarvista í tengslum við
ýmsar aðgerðir, til dæmis áfengis-
méðferð eða glasaftjóvgun."
Leðri, súkku-
laði og tækj-
um stolið
NOKKUR innbrot voru framin í
Reykjavík í fyrrinótt og var þýfið
allt frá súkkulaði upp í leðurvörur.
Skiptimynt og leðurvörum fyrir
tugi þúsunda var stolið í innbroti í
KOS-leðurvörur á Laugavegi. Þá
var geislaspilara og diskum stolið
úr bíl við Sæbraut, geislaspilara úr
bil við Frostafold og tónjafnara úr
bíl við Leirubakka.
Þjófur, sem braust inn í sendibíl
við Rangársel, hafði einn kassa af
Twix-súkkulaði upp úr krafsinu og
hefur vonandi ekki borðað það allt
í einu.
Með fíkniefni
undir stýri
Ljosmynd/Ingveldur
Skyndiblundur
ÞREYTAN getur látið til sín taka
án mikils fyrirvara, jafnt hjá
eldri þegnum samfélagsins sem
þeim yngri og við margvíslegar
aðstæður. Að minnsta kosti varð
Sindri Þór, tveggja ára, að lúta
í lægra haldi fyrir skyndilegri
þörf á blundi í miðjum matmáls-
tíma á leikskólanum Smára-
hvammi. Skólafélagar hans, þau
íris, Ásdís og Skúli Þór, létu á
engu bera þótt drengurinn hall-
aði höfði á stól meðan þau gæddu
sér á kræsingunum, enda
kannski um daglegan viðburð að
ræða.
LÖGREGLAN í Kópavogi fann
fíkniefni og tæki til neyslu þeirra
þegar bifreiðar voru stöðvaðar við
venjulegt umferðareftirlit í fyrrinótt
og nóttina á undan.
Aðfaranótt miðvikudags var för
ökumanns í bænum stöðvuð og kom
í ljós að hann var með amfetamín
og sprautur á sér. Sama reyndist
uppi á teningnum þegar annar öku-
maður var stöðvaður í fyrrinótt.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu voru mennirnir ekki með stóra
skammta af fíkniefninu á sér.
Volkstrauertag 1995
Kæru landar,
í tilefni af minningu látinna hermanna,
Volkstrauertag, sem er sunnudaginn
19.11. 1995, mun þýska sendiráðið
minnast dagsins þann 12.11. 1995
með breska sendiráðinu vegna
„remembrance day” og er ákveðið að
hittast á bitreiðaverkstæðinu við
Fossvogskirkju þann dag kl. 10.45.
Þýska sendiráðið.
Volkstrauertag 1995
Liebe Landsleute,
aus Anlaí3 des diesjáhringen
Volkstrauertages am 19.11. 1995, den
die deutsche Botschaft zusammen mit
der britischen Botschaft bereits am
12.11. 1995, dem britischen remem-
brance day, begeht, treffen wir uns auf
dem Parkplatz des Friedhofes
Fossvogur um 10.45 Uhr.
Wir freuen uns iiber Ihre Teilnahme.
Ihre Botschaft.
Fáksfélagar
Aöalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn
16. nóvember í félagsheimilinu og hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aöalfundarstörf. stjórn Fáks
Glæsilegt
HARKOLLUTILBOÐ!
DÖMUR OG HERRAR
Tökum gömlu hárkolluna
upp í nýja - vikuna
7.-15. nóvember.
(Ðpryði
V y FATAPR}
----
FATAPRYÐl
BORGARKRINGLUNNl
S:553-2347
Stœrðir 34-40.
Litir: Hvitt, grátt.
■/. ■><>*/fS/ -/ZZf
Fólk er alltaf
að vinna
íGullnámunni:
78 milljónir
Vikuna 2. til 8. nóvember voru samtals 78.378.742 kr.
greiddar út í happdrættisvélum um allt land.
Þetta voru bæöi veglegir Silfurpottar
og fjöldinn allur af öðrum vinningum.
Siifurpottar í vikunni:
Dags. Staöur Upphæö kr.
2. nóv. Tveirvinir.................... 90.006
2. nóv. Rauða Ijónið................. 132.988
2. nóv. Háspenna, Hafnarstræti... 63.799
3. nóv. Góði dátinn, Akureyri.... 99.587
3. nóv. Ölver......................... 87.533
5. nóv. Mónakó....................... 330.234
6. nóv. Ölver........................ 161.840
6. nóv. Kringlukráin................. 132.515
6. nóv. Mónakó........................ 60.813
7. nóv. Hótel Saga................... 140.265
7. nóv. Rauða Ijónið.................. 62.020
8. nóv. Mónakó....................... 160.942
Staöa Gullpottsins 9. nóvember, kl. 11:00
var 4.100.000 krónur.
Silfurpottarnir byrja alltaf f 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr.
og hækka siðan jafnt og þétt þar til þeir detta.