Morgunblaðið - 10.11.1995, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut.
Kopavogi, sími
567-1800 ^
Löggild bílasala
Opið laugard. kl. 10-17
sunnudaga kl. 13-18
MMC Lancer GLXi Station '92, rafm. í
rúðum, samlæsingar, dráttarkúla, ek. 80
þ . km. V. 1.080 þús.
Grand Cherokée SE '93, grænsans.,
sjálfsk., ek. 66 þ. km. Fallegur jeppi. Til-
boðsv. 2.890 þús.
Hyundai Scoupe LS Coupé ’93, rauður,
5 g., ek. 48 þ. km., rafm. í rúðum o.fl.
V. 850 þús.
Subaru Legacy 2.0 GL Station 4x4 ’92,
grásans., 5 g., ek. 52 þ. km. Fallegur bfll.
V. 1.550 þús.
V.W Vento GL ’93, rauður, sjálfsk., ek.
47 þ. km. V. 1.250 þús.
MMC L-300 Minibus ’88, grásans., 5 g.,
ek. 120 þ. km, vél yfirfarin (tímareim o.fl.).
V. 1.050 þús. Mjög hagstæð lánakiör.
MMC Colt GTi 16 v. ’89, hvítur, 5 g.,
uppt. vél (nótur fylgja), álfelgur, rafm. í
rúðum V. 690 þús. Sk. ód.
Renault 19 GTS ’90, 5 g., 5 dyra, ek. 94
þ. km. V. 560 þús. Sk. á dýrari, allt að
600 þ. stgr. í milligjöf. Helst Renault eða
sambærilegan bfl.
Nissan Sunny 1.4 LX ’94, ek. 20 þ. km.,
sjálfsk., 4ra dyra. V. 1.050 þús. Sk. ód.
Porsche 928 S-4 '88, blár, 8 cyl., m/öllu,
ek. 100 þ. km., leöurinnr. o.fl.
Hyundai Pony LS '94, 5 g., ek. 45 þ. km.
V. 780 þús.
Toyota Corolla Sedan '90, Ijósblár, 4 g.,
ek. 100 þ. km. Gott eintak. V. 570 þús.
Toyota Hilux Double Cap diesil '90, blár,
5 g., ek. 97 þ. km. V. 1.400 þús.
Toyota Landcruiser VX langur '93, vín-
rauður, sjálfsk., ek. 38 þ. km., 38“ dekk,
læstur aftan og framan o.fl. V. 4.800 þús.
Honda Civic DXi Sedan ’94, vínrauður, 5
g., ek. 32 þ. km. V. 1.250 þús.
Daihatsu Feroza EL lli '91, 5 g., ek. 51
þ. km Toppeintak. V. 1.050 þús.
Grand Cherokee Limited (8 cyl.) ’94,
sjálfsk., leðurinnr. o.fl., ek. 14 þ. km.
V. 4.150 þús.
MMC Pajero V-6 (3000) ’92, vínrauður,
sjálfsk., ek. 113 þ. km. Einn m/öllu.
V. 2.790 þús.
Nissan Pathfinder EX V-6 (3.9L) '92, 5
dyra, 5 g., ek. 54 þ. km. Fallegur bíll.
V. 2.290 þús.
Tilboðsverð
á fjölda bifreiða.
Góð lánakjör.
Bílaskipti oft möguleg.
MMC Lancer GLXi ’91, 5 dyra, sjálfsk.,
ek. 56 þ. km., rafm. í öllu. V. 910 þús.
Tilboðsv. 790 þús.
Nissan Sunny SR Twin Cam '88, svartur,
5 g., góð vél (skiptivél), sóllúga, rafm. í
rúöum spoiler o.fl. V. 590 þús. Tilboðsv.
490 þús.
Toyota Corolla DX ’87, ek. 114 þ. km.,
gott eintak. V. 340 þús. Tilboðsv. 280 þús.
MMC Coit GL ’91, ek. 55 þ. km. Toppein-
tak. V. 690 þús. Tilboðsv. 630 þús.
MMC Pajero '83, uppgerður, 32“ dekk
o.fl. V. 440 þús. Tilboðsv. 360 þús.
Ford Escort ’86, ek. 112 þ. km. V. 190
bús. Tilboðsv. 140 þús.
MMC Lancer EXE '91, 5 dyra, sjálfsk.,
ek. 62 þ. km. V. 920 þús. Tilboðsv. 830
þús.
Nissan Micra '87, uppt. vél. V. 270 þús.
Tilboðsv. 210 þús.
Toyota Celica Supra 2,8i '84. V. 490
þús. Tilboðsv. 380 þús. Toppeintak.
Chevrolet Monza 1,8 '87, ek. 88 þ. km.
V. 250 þús. Tilboðsv. 160 þús.
Daihatsu Coure ’87, 5 dyra, ek. 105 þ.
km. V. 190 þús. Tllboðsv. 130 þús.
ATRIÐI úr Benjamín dúfu.
Riddarar bernsku-
minninganna
Kvlkmyndir
Stjörnubíó og
Bíóhölli n
BenjamSn dúfa ★ ★ ★ Vi
Leikstjóri: Gísli Snær Erlingsson.
Handrit: Friðrik Erlingsson.
Framleiðandi: Baldur Hrafnkell
Jónsson. Kvikmyndtaka: Smurður
Sverrir Pálsson. Tónlist: Olafur
Gaukur. Hljóðhönnun: Kjartan
Kjartansson. Klipping: Kirsten
Eriksdottir og Gísli Snær. Baldur
film í samvinnu við íslensku kvik-
myndasamsteypuna, íslenska út-
varpsfélagið, NDF og Migma film.
1995.
Aðalhlutverk: Sturla Sighvatsson,
Gunnar Atli Cauthery, Sigfús
Sturluson, Hjörleifur Björnsson,
Guðrún Þ. Stephensen, Kári Þórð-
arson, Jóhann Sigurðarson, Pálmi
Gestsson.
BENJAMÍN dúfa, í leikstjórn
Gísla Snæs Erlingssonar, sem
frumsýnd var í Stjömubíói og Bíó-
höllinni í gær og byggist á verð-
launaskáldsögu Friðriks Erlings-
sonar, er sérlega vel heppnuð
bama- og fjölskyldumynd. Hefur
ekki áður tekist eins vel með ís-
lenskt verk í þeim flokki, enda
gengur allt upp í henni sem prýða
má slíka mynd svo hún verður
ekkert síður fyrir fullorðna en
börn. Hún er sumsé fyrir alla fjöl-
skylduna.
Sagan er mjög góð og höfðar
sterkt til áhorfenda. Hún hefur í
sér alla þætti skemmtilegra
drengjabókmennta; er ljúfsár end-
urminningasaga, spennusaga,
þroskasaga og harmsaga, en síðast
en ekki síst riddarasaga og í kvik-
myndagerðinni hefur Gísla Snæ
og handritshöfundinum, Friðrik
Erlingssyni, auðnast að taka allt
þetta inn í myndina og búa úr því
heilsteypta og sanna ævintýra-
sögu. Hún er í senn sorgleg, spenn-
andi og fyndin og á einhvern hátt
heillandi í einfaldleika sínum.
Strákarnir er fylla riddararegluna,
sem er í miðpunkti myndarinnar,
fara ágætlega með hlutverk sín
undir fjarska ákveðinni stjóm Gísla
Snæs. Það er reyndar orðinn kapít-
uli útaf fyrir sig hversu vel íslensk
böm standa sig á hvíta tjaldinu.
Vönduð og úthugsuð kvikmynda-
taka Sigurðar Sverris Pálssonar,
sem ýtir fínlega undir atburðarás-
ina, og góð kvikmyndatónlist Ólafs
Gauks, sem alltaf hittir á rétta
strengi, fylla svo út í rammann.
Sérstök natni hefur verið lögð í
handritsvinnuna. Hér er ekki talað
niður til áhorfenda eins og hættan
er í bama- og fjölskyldumyndum
heldur er fjallað um atburði og
persónur af fullri alvöru og djúpu
innsæi. Persónurnar eru skýrt
mótaðar án þess að vera einfeldn-
ingslegar eða klisjukenndar og
samtöl drengjanna hljóma alltaf
eðlilega. Frásögnin er mestan part
keyrð áfram með hraða og ná-
kvæmni kvikmyndagerðarmanna
sem leggja áhersluna á skemmti-
gildið og það skilar sér með góðum
árangri.
Uppbygging myndarinnar og
útlit eða stílisering tekur mið af
því að sagan er sögð bæði í endur-
minningastíl og frá sjónarhóli
drengjanna. Fullorðnir eru að
flestu leyti í bakgrunni utan vin-
kona strákanna, Guðlaug gamla,
sem Guðrún Þ. Stephensen leikur.
Foreldrar eru aðeins óbeinir þátt-
takendur í frásögninni. Myndin
lýsir fýrst og fremst heimi strák-
anna, innbyrðis átökum þeirra á
milli, heitstengingum, vináttu,
samhug og örlagaríkum klofningi.
Jóhann Sigurðarsson er sögumað-
ur myndarinnar, Benjamín dúfa
kominn á fullorðinsár, og það er í
gegnum hans saknaðar- og endur-
minningartón sem myndin fær út-
lit sitt og sál. Aðeins aðalatriðin
skipta máli í myndhugsuninni.
Lögð er áhersla á að þurrka út öll
sérkenni. Það er t.d. mjög óvíst á
hvaða tíma sagan gerist, því tími
hennar er aðeins til í endurminn-
ingunni. Sögusviðið er einnig mjög
óvíst en virðist vera borg eins og
Reykjavík þar sem ekkert er eins
og áður. Stofnanir eins og spítali
og banki hafa engin heiti en gegna
aðeins hlutverki sem spítali og
banki. Með þessu fæst mjög mark-
visst og tímalaust útlit en líka
dularfull og draumkennd frásögn.
Við erum sett niður mitt í sjálfri
endurminningunni. Hún er gerð
að aðalatriðinu og henni fylgir
tregafullur söknuður eftir horfnum
tíma sem kemur ekki aftur og
missir sem aldrei verður bættur.
Þótt vel hafi tekist til í flesta
staði má hnýta í einstaka smáat-
riði. Kaflinn með Guðlaugu á
sjúkrahúsinu fær álltof mikið vægi
og er full grátklökkur auk þess sem
hann dregur óþarflega niður í
skemmtilegri frásögninni. Eitt af
því sem stendur upp úr hins vegar
er leikur drengjanna í hlutverkum
Benjamíns dúfu, Rólands, Baldurs
og Andrésar. Þeir eiga allir hrós
skilið fyrir frammistöðu sína.
Sturla Sighvatsson leikur titilhlut-
verkið og er snaggaralegur og
ákveðinn foringi, sem lætur ekki
vaða oní sig og er fullur réttlætis-
kenndar eins og sannir riddarar
eiga að vera. Róland hinn hálfs-
koski er sposkur og skemmtilegur
í túlkun Gunnars Atla Cautherys
og hefur riddarablóð hálendingsins
í æðum. Sigfús Sturlusson er sálin
í hópnum og ljúfur merkisberi ridd-
arahugsjónarinnar. Og loks storm-
ar af Hjörleifi Bjömssyni í hlut-
verki skaphundsins Andrésar, sem
munar ekki um að níðast á minni-
máttar af því það er nákvæmlega
það sem pabbi hans gerir.
Guðrún Þ. Stephensen lýsir
flarska vel Guðlaugu gömlu, ein-
stæðingi er reynist eina konan í
nauðum sem riddarareglan bjargar
undan einskonar dreka. Sá er
óknyttapiltur sem Kári Þórðarson
leikur ágætlega og er villingurinn
í hverfinu. Pálmi Gestsson er fylli-
byttan faðir Andrésar, Guðbjörg
Thoroddsen er áhyggjufull móðir
Baldurs og Kjartan Ragnarsson
gefur kímna mynd af einstaklega
hjálplegum bankastjóra.
Það hefur ekki aðeins verið sett
mikil vinna í söguna því natni hef-
ur einnig verið lögð í hina tækni-
legu hlið myndarinnar. Lýsing og
myndataka Sigurðar Sverris er
eins og best verður á kosið og
dregur okkur inn í hinn spennandi
endurminningaheim, ýmist sól-
bjartan og kátan eða niðdimman
og drungalegan. Tónlist Ólafs
Gauks fellur vel að efninu án þess
að trana sér fram en ýtir undir
dramatíkina.
Þannig er Benjamín dúfa hin
besta fjölskylduskemmtun. Hún er
um það þegar slokknar á sakleysi
bernskuáranna, harkalega og mis-
kunnarlaust, og hið barnslega og
hrekklausa hverfur úr lífinu. 1 því
finnur Gísli Snær hinn rétta tón
söknuðar og trega. Þeir Friðrik
Erlingsson eru riddarar bernsku-
minninganna.
Arnaldur Indriðason
Helgi Laxdal á vélstjóraþingi VSFÍ
Dregið hefur úr þátttöku
sjómanna í kvótakaupum
sú er sett var á laggimar eftir samningana í vor
hafi hins vegar tekið fyrir ágreiningsmál sem öll
hafi fengið faglega umfjöllun og flestir hafi mátt
una þokkalega sáttir við niðurstöður hennar.
Hann sagði erfitt að átta sig á áhrifum nefndar-
innar á þróun fiskverðs. Enginn vafi væri hins
vegar á að sú aðferð sem valin hafi verið í samn-
ingunum til að spoma gegn þátttöku sjómanna
í kvótakaupum hafi skilað árangri. Hann sagði
að sjómenn yrðu að vera óragir að leita til nefnd-
arinnar til að ná ásættanlegum samningum um
fiskverð. Endanlegt markmið hvað varðar verð-
lagningu sjávaraflans hljóti að vera að mestur
hluti hans fari í gegnum markaði.
Fækkun nemenda í Vélskóla íslands á undan-
förnum ámm sagði Helgi að væri mikið áhyggju-
efni og brýnt væri að laða fleiri nemendur að
vélstjóranámi. Til þess þyrfti breytt viðhorf í þjóð-
félaginu og meiri áherslu þyrfti að leggja á undir-
stöðuatvinnuveg þjóðarinnar í skólakerfínu.
VÉLSTJÓRAÞING Vélstjórafélags íslands var
sett á Grand Hótel Reykjavík í gær. Helgi Lax-
dal, formaður Vélstjórafélags íslands, setti þingið
og Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra,
ávarpaði fundargesti. í máli þeirra beggja kom
fram að rétt skref hafi verið stigið með því að
fara inn í fijálst verðmyndunarkerfi og með samn-
ingum sjómanna og útvegsmanna í vor hafi dreg-
ið úr þátttöku sjómanna í kaupum á veiðikvóta.
Sjávarútvegráðherra sagði að þau mál sem ris-
ið höfðu hæst og átök hafi staðið um, snerust
einkum um verðmyndun á sjávarfangi. Hann sagði
að eitt af hans fyrstu verkum í ráðuneytinu hafi
verið að varða leið fyrir nýja löggjöf um frjálst
fiskverð og það hafi ekki verið síst fyrir áeggjan
Vélstjórasamtakanna. Tilraun til að ná samkomu-
lagi á síðasta ári hefði ekki tekst og tvívegis
hefði komið til verkfalla sjómanna. Niðurstaða
þeirra hafí Verið samningar sjómanna og útgerð-
armanna sem meðal annars fela í sér að hægt
sé að leita til samninganefndar þar sem deiluaðil-
ar ná ekki samkomulagi um mál sín. Þorsteinn
fullyrti ekki að þessar tilraunir fælu i sér hina
endanlegu lausn. Það væri þá mikilvægt að láta
á þessa nýju skipan reyna og menn freistuðu
þess að þróa vinnubrögð og leiðir til að leysa
ágreining. Hann sagðist sannfærður um að stigið
hafi verið rétt skref hafi verið stigið með því að
hverfa frá gamla verðmyndunarkerfinu inn í
fijálst verðmyndunarkerfi.
Störf samninganefndar
skila árangri
Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags ís-
lands, ræddi í setningarræðu sinni um átök í
kvótamálum. Hann gagnrýndi harðlega forystu
LÍÚ fyrir taka ekki nægilegan þátt í að koma í
veg fyrir þátttöku sjómanna við kaup á veiðikvót-
um. Helgi sagði að markmið útgerðarmanna hafi
frá upphafi verið að tryggja óbreytt ástand. Nefnd