Morgunblaðið - 10.11.1995, Page 14

Morgunblaðið - 10.11.1995, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ h VIÐSKIPTI Framleiðsla íslenskra sjávarafurða aldrei verið meiri Hagnaður fyrstu 9 mán- aða 50% meiri en í fyrra HAGNAÐUR af rekstri íslenskra sjávarafurða fyrstu 9 mánuði þessa árs varð 50% meiri en á sama tíma í fyrra. Alls nam hagnaðurinn átíma- bilinu 121,5 milljónum króna fyrir skatta, en hagnaður félagsins á sama tíma í fyrra var tæpar 85 milljónir fyrir skatta. Þetta kom fram í ræðu Benedikts Sveinssonar, forstjóra ís- lenskra sjávarafurða, á hlutahafa- fundi félagsins sem haldinn var á Grand Hótel í gær. i máli Benedikts kom það einnig fram að markaðsdreifíng ÍS hefur breyst nokkuð á milli ára. Stærstur hluti afurða félagsins er nú seldur á Asíumarkað en Evrópumarkaður hefur fallið niður í annað sæti, eins og sjá má í meðfylgjandi töflu. Að sögn Benedikts má reikna með því að vægi Asíumarkaðar aukist enn meira á næsta ári vegna samninga ÍS við UTRF í Kamtsjatka. Benedikt greindi einnig frá því að allf stefndi í að árið 1995 yrði metár í sögu félagsins. Áætlanir gerðu ráð fyrir því að heildarframleiðsla á veg- um ÍS yrði rúmlega 68 þúsund tonn, sem er 23% framleiðsluaukning frá síðasta ári. Þá sagði hann að reikna mætti með því að framleiðsla næsta árs gæti allt að því tvöfaldast vegna samningsins við UTRF í Rússlandi. Mest er aukningin í vinnslu á loðnu og loðnuhrognum, en loðnuvinnslan hefur rúmlega tvöfaldast og vinnsla á hrognum hefur aukist um ríflega 250%. Þá hefur framleiðsla ÍS erlend- is aukist um rúm 41% og munar þar mestu um mikla framleiðsluaukningu í Namibíu. sjáum í þessum samningi þýðingu þess að nafn ÍS komi við sögu í sölu þessara afurða. Ef miðað er við þá samninga sem UTRF var að gera á síðasta ári þá gefur þessi samningur nú u.þ.b. 30% hærra afurðaverð en fyrri samningar," sagði Benedikt. Fyrsti sölusamningurinn í höfn Benedikt sagði þó rétt að fara varlega f ailar áætlanir um arðsemi þessa samnings fyrir ÍS. Hann sagð- ist þó reikna méð því að ef áætlanir félagsins gengju eftir gætu heildar- tekjur þess af samningnum á næsta ári jafnvel orðið meiri en heildartekj- ur alls þessa árs. Það kom fram í máli Benedikts og Guðbrands Sigurðssonar, fram- kvæmdastjóra þróunarsviðs ÍS sem stýrir verkefninu í Rússlandi, að mikils er vænst af samstarfinu við UTRF. Benedikt greindi frá því að þegar hefði verið gengið frá samn- ingi um sölu á 12 þúsund tonnum af afurðum frá UTRF til Kína. „Við Á fundinum var jafnframt sam- þykkt samhljóða að auka hlutafé í Islenskum sjávarafurðum um allt að 100 milljónir króna. Tilgangur þess- arar hlutafjáraukningar er að styrkja stöðu ÍS og auk þess að fjármagna þær framkvæmdir sem framundan eru á vegum félagsins í Rússlandi, að því er fram kom í máli Hermanns Hanssonar, stjómarformanns ÍS. SIEMENS Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs Borgarnes: Glitnir Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála Hellissandur: Blómsturvellir KÆLI-5 OG FRYSTISWI Grundarfjörður. Guðni Hallgrímsson Stykkishólmur: Skipavík Búðardalur: Ásubúð ísafjörður: Póllinn Hvammstangi: Skjanni Sauðárkrókur: Rafsjá Sigluhörður Torgio Akureyri: Ljósgjafinn Húsavík: Öryggi Þórshöfn: Norðurraf Við bjóðum nú þessa sambyggðu kæli- og frystiskápa írá Siemens með nýju mjúklínuútliti. Þetta eru skáparnif fyrir þig! Uj Neskaupstaður: Rafalda Reyðarfjörður: Ratvélaverkst. Árna E. Egilsstaðir: Sveinn Guðmundsson ^ Breiðdalsvík: Stefán N. Stefánsson KG 36V03 KG 31V03 • 230 1 kælir • 195 1 kælir • 90 I frystir • 90 1 frystir • 186 x 60 x 60 sm • 171 x 60 x 60 sm Verð: 77.934 stgr. Verð: 73.900 stgr. KG 26V03 • 195 1 kælir • 55 1 frystir • 151 x 60 x 60 sm Verð: 69.900 stgr. Höfn í Hornafirði: Kristall Vestmannaeyjar: Tréverk CQ í vcrslun okkarað Nóatúni SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 51 1 3000 Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga Selfoss: Árvirkinn Grindavík: Rafborg Garður Raftækjav. Sig. Ingvarss. Keflavík: Ljósboginn Hafnarfjörður. Rafbúð Skúla, Álfaskeiði v wMMMiáiÉmáiiéStög!. Viljiröu Islenskar sjávarafurðir hf. Ur rekstri og efnahag 1995 Upphæðir i milljónum króna Rekstur Áætlun 1995 Jan.- sept. 1995 Jan.- sept. 1994 Tekjur 380,7 411,6 376,1 Gjöld (291,8) (303,0) (269,7) Hagnaður 88,9 108,6 106,4 Fjármagnsliöir (19,2) 12,9 (14,8) Óreglulegir liðir (2,2) 0,0 (7,0) Hagn. f. skatta 67,5 121,5 84,6 Úr efnahagsreikningi Í.S. 30. sept 1995 Veltufjármunir 2.467,3 Skammtímaskuldir 2.509,5 Fastafjármunir 1.470,0 Langtímaskuldir 406,7 Eigið fé 1.021,1 Eignir alls 3.937,3 Skuldir alls 3.937,3 Eiginfjárhlutfall 25,93% Veltufjárhlutfall 0,98% lltflutningsmarkaðir Islenskra sjávarafurða hf. Allar frystar afurðir - hlutfallsleg skipting eftir magni Janúar - september 1994 Bandaríkin Janúar - september 1995 Bandaríkin Evrópa Asiulönd 0,7% Aörír markaöir Evrópa Asíulönd 0,2% Aörír markaðir NÝHERJI hf. hyggst kaupa um 20% hlut í hugbúnaðarfyrirtækinu Hug hf. og hefur þegar verið geng- ið frá munnlegu samkomulagi þess efnis að sögn Gunnars M. Hans- sonar, forstjóra Nýheija. Seljendur bréfanna eru Páll Kr. Pálsson og Þróunarfélag íslands. Ýmsar ástæður liggja að baki þessum kaupum að sögn Gunnars. „Það hefur verið mikil gróska í starfsemi Hugs og þeir hafa verið að gera marga mjög áhugavérða hluti, bæði hvað varðar Concorde hugbúnaðinn og tímaskráningar- kerfi þeirra. Þar teljum við okkur geta aðstoðað fyrirtækið á erlend- um mörkuðum í gegnum okkar sambönd," segir Gunnar. Hann segir það einnig hafa haft áhrif á þessa ákvörðun, að IBM Nordic eigi 50% hlutafjár í þróunarfyrirtæki Concorde hug- búnaðarins í Danmörku. Það liggi fyrir að þessi búnaður verði bráð- lega fáanlegur á IBM AS/400 og því hafí mönnum verið mikið í mun að tryggja að svo verði einnig hér á landi. Nýheiji muni síðan í fram- haldinu fara út í markaðssetningu á hugbúnaðinum. Mikil uppsveifla lyá Hug á þessu ári Hugur hf. hefur verið í mikilli sókn á undanförnum árum og er m.a. gert ráð fyrir um 45% aukn- ingu í veltu á milli ára. Auk þess hefur starfsmannafjöldi fyrirtæk- isins tvöfaldast á nokkuð skömm- um tíma. Gunnar Ingimundarson, framkvæmdastjóri Hugar, segist vænta góðs af þessu samstarfí sem nú fari í hönd og þetta sé til marks um þær breytingar sem nú séu að eiga sér stað á hugbúnaðar- markaðinum. „Það er að færast í aukana að verið sé að setja upp viðskiptahugbúnað á borð við Concorde á stærri tölvum á borð við AS/400. Við töldum þetta sam- starf því sterkan leik í stöðunni," segir Gunnar. Hann segir verk- efnastöðu fyrirtækisins vera mjög góða um þessar mundir og fjöl- mörg stærri verkefni framundan. ! I » » » t Nýherji kaupir 20% hlutíHug i ! i í i ■ í BINÓO — BINÚO — BINCO Munið fjölskylduBINGÓIÐ á morgun laugardag, 11. nóv, í Glæsibæ kl. 14. Glæsiiegir vinningar: Flugferðir, húsbúnaður, matarkörfur, rafmagnstæki, barnaleikföng og fleira. Styrkið gott málefni. Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík. ■ M í I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.