Morgunblaðið - 10.11.1995, Side 26

Morgunblaðið - 10.11.1995, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Þróun í íslenzk- um stjórnmálum BOKMENNTIR F r æ d i r i t FRÁ FLOKKSRÆÐI TIL PERSÓNUSTJÓRNMÁLA Fjórflokkamir 1959-1991, eftir Svan Kristjánsson. Félagsvísindastofnun Háskóla íslands, 1994,259 bls. ÞAÐ hefur til skamms tíma ekki farið sérstaklega mikið fyrir rann- sóknum á íslenzkum stjórnmálum í bókum og tímaritum. En nú á síðustu árum hefur orðið á þessu breyting. Það hafa komið út grein- ar og bækur eftir íslenzka stjórn- málafræðinga sem eiga eftir að hafa umtalsverð áhrif á skilning okkar á íslenzkum stjórnmálum, þótt það gerist ekki í einni svipan. Ein þessara bóka er Frá flokksræði til persónustjórnmála: Fjórflokk- arnir 1959-1991 eftir Svan Krist- jánsson, prófessor. í þessari bók skoðar Svanur Kristjánsson framboðsaðferðir ís- lenzku fjórflokkanna á tímabilinu 1959 til 1991 og þær breytingar sem aðferðimar taka á þessu tíma- bili. Þetta gerir höfundur í fyrsta kafla bókarinnar, sem er nánast helmingur hennar. í næsta kafla athugar hann það umboð sem kerf- ið veitir kjömum fulltrúum flokk- anna og það vald sem þeir hljóta. í þriðja kafla athuga Svanur síðan hvemig fjórfiokkarnir tengjast ís- lenzku ríkisvaldi og samfélagi. Að lokum greinir Svanur hlutverk stjómmálaflokka í lýðræðiskerfi hér á landi sem annars staðar. Það ætti öllum að vera ljóst að hér er athyglinni beint að hinum mikilsverðustu málum, sem snerta stjómmál og skilning á þeim. Þegar vikið er að stærra samhengi stjórn- mála vill oft brenna við að umfjöll- unin verði yfirborðsleg, maður skil- ur oft betur einhveija tiltekna kenningu en er ekki miklu nær um raunveruleg stjórnmál. Þetta gerist ekki í þessari bók. í fyrsta kaflan- um er nákvæm og ítarleg rannsókn á því að hve miklu leyti þingmanna- hópur íslenzku íjórflokkanna, Al- þýðuflokks, Alþýðubandalags, Framsóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks, endurnýjast á þeim 32 ámm sem bókin fjallar um. Það er einnig skoðað hvaðan nýju þingmennirnir koma og hvaða aðferðir flokkarnir hafa notað til að velja frambjóðend- ur. Þessi fyrsti kafli er tæpur helm- ingur bókarinnar og er á ýmsan hátt merkilegur. Það liggur í hon- um mikil og nákvæm vinna, sem varpar ljósi á þróun þessara fjög- urra flokka á tímabilinu. Það er til að mynda merkilegt að sjá hvernig Alþýðubandalagið sker sig úr hin- um flokkunum þremur þegar skoð- uð eru tengslin á milli þingmanns- starfs og annarra starfa hjá hinu opinbera. Sömuleiðis er athyglis- vert hve öðrum en langskólagengn- um virðist ganga illa að öðlast frama í stjórnmálum á íslandi. í öðrum kaflanum er fjallað um umboð og vald forystusveita í ofan- greindum fjórum stjómmálaflokk- um. Forysta þiggur umboð sitt frá umbjóðendum sínum. Tveir hópar umbjóðenda eru mikilvægastir i þessu samhengi; annars vegar kjós- endur, sem ráða niðurstöðu í al- þingiskosningum, hins vegar félag- ar í flokkunum sem velja á fram- boðslista. Vald er að geta ráðið niðurstöðu máls annaðhvort einn eða í samráði við aðra. Forystu- mönnum íslenzkra stjórnmála- flokka er falið umtalsvert vald. Þeir geta ákveðið margvíslega notkun á aðstöðu, t.d. ráðið menn í stöður. Þeir geta ákveðið, og þeim ber einnig að ákveða, hvernig fé ríkisins er varið á hveiju ári. Vald- ið og umboðið hafa breyst á því tímabili sem bókin fjallar um. Vald- ið hefur þrengst vegna aukins aðhalds al- mennings og fjölmiðla og vegna breyttra reglna í ríkisgeiranum og hagkerfinu. Um- boðið hefur- breyst vegna þess að prófkjör hafa orðið æ algengari aðferð við að velja frambjóðendur. Það þýðir að stjórnmálafor- ingjar þiggja ekki um- boð sitt frá flokkunum heldur frá þátttakend- um í prófkjörum. Þriðji kaflinn er frekari greining á breyttum aðstæðum ijórflokkanna og mat á mikilvægi þessara breytinga fyrir íslenzkt þjóðfélag. Svanur leitast við að skýra þá skoðun sína að djúptæk kreppa einkenni valdakerfi íslenzks þjóðfélags. í upphafi kafl- ans gerir hann grein fyrir skipting- unni í kjarnaflokka og fjöldaflokka, sem hann beitir síðan til að greina flokkana fjóra og einkenni þeirra. En hann staðhæfir einnig að þrír af þessum fjórum flokkum hafi verið fyrirgreiðsluflokkar. Það er bagalegt að merking orðsins fyrir- greiðsla sem lýsing á nokkrum ein- kennum íslenzks valdakerfis skuli hvergi vera beinlínis skilgreind, sérstaklega vegna þess að það er fyrirgreiðslan sem ber uppi rök- semdirnar í kaflanum. En það má skilja af samhenginu að íslenzka fyrirgreiðslukerfið hafi tvö ein- kenni. í fyrsta lagi einkennist það af sambandi höfðingja og hjúa eða stuðningsmanna innan flokkanna. í öðru lagi einkennist það af víð- tækum völdum flokkanna í þjóðfé- laginu. Fyrirgreiðsluflokkarnir hafi allir verið miklir ríkisafskiptaflokk- ar. í fyrirgreiðslukerfinu beiti flokkamir áhrifum sínum í þjóðfé- laginu til að tryggja samband höfðingja og fylgismanna. Hug- mynd höfundarins er sú að þetta hafi ein- kennt íslenzkt valda- kerfi allt framundir 1970 en upp frá því hafi kerfið veikst og annað kerfi leiti á sem lýsa má með fjölræði eða margræði, þar sem verkaskipting milli efnahagslífs, stjórnmála og emb- ættismannakerfis sé skýrari en er í fyrir- greiðslukerfi og bein völd stjómmálamanna minni. Þessi nýja skip- an togist á við þá gömlu og því séu bæði hugmyndir okkar nú á dögum og veruleiki óskýr. í síðasta kaflanum er síðan leit- ast við að skýra þróunina. í sem allra styztu máli er kenning höf- undar sú að prófkjör sem aðferð hafi veikt stjórnmálaflokkana sem stofnanir. Þau hafí kallað á per- sónustjórnmál þar sem flokkarnir verði fremur bandalag höfðingja en virkar stjórnkerfiseiningar. Aukið sundurlyndi innan flokkanna hafi gert þeim erfítt fyrir um stjóm landsins. Raunar lætur höfundur liggja að því að þessi veikleiki póli- tíska stjórnkerfisins sé meginskýr- ingin á afdrifaríkum mistökum við efnahagsstjórn landsins síðustu 25-30 árin, en það er ljóst að efna- hagsvandinn sem fengist er við þessi árin í landsstjóminni er fyrst og fremst afleiðing íslenzkrar óstjórnar en ekki ytri áfalla. Þessi bók er mikilvægt framlag til að skilja og skýra íslenzk stjórn- mál. Það liggur í henni gífurleg heimildavinna, sem er vönduð í hví- vetna, að því er ég fæ bezt séð. Það er umtalsverður kostur á bókinni að höfundur skirrist ekki við að draga ályktanir af gögnum sínum um vanda stjómkerfisins og æski- legustu leiðir úr honum. Hann er alveg laus við þann einkennilega geldingshátt sumra félagsvísinda- manna að forðast allt tal um gott og slæmt, en allt tal um staðreynd- ir um gott og slæmt gerir sömu fræðilegu kröfur um vandvirkni og nákvæmni og ræða um aðrar stað- reyndir. Það er ekki sjálfgefið að allir verði sáttir um ályktanir höfund- ar en þær eru allar þannig að þær verður að taka alvarlega og þær verðskulda yfirlegu og umhugsun. Stíllinn á bókinni er harður á köflum, en hann kemur ekki í veg fyrir skilning. Töflur eru margar í bókinni og til verulegs skilnings- auka. Heimildaskrá er aftast en ekki atriðisorðalisti, sem er alvar- legur galli. Prentvillur em nokkrar og það sjást mistök eins og þau að tala um að „ná sem flestum at- kvæðafjölda" (bls. 38). í töflu á bls. 20 vantar útskýringu á lið U í töflu. En þessir gallar draga ekki á neinn hátt úr mikilvægi bókarinnar. Guðmundur Heiðar Frímannsson Svanur Kristjánsson Úr Safnkortspottinum komu eftirtaldir vinningar: Samviiwiilerllir- Ferð að eigin vali með Samvinnuferðum-Landsýn að verðmæti 60.000 kr. Finnur Bergsveinsson, Laugamesvegi 90, 105 Reykjavík JAPISS ÚTILÍF Panasonic CQ-DP200 geislaspilari í bíl frá Japis að verðmæti 34.900 kr. Garðar Agnar Garðarsson, Sjávargötu 3, 225 Bessastaðahreppur Guðmundur Einarsson, Goðalandi 11, 108 Reykjavík Skíðaútbúnaður frá Útilífi að verðmæti 20.000 kr. Freyr Karlsson, Hafnargötu 22, 190 Vogar ZakariaElías Anbari, Hraunteigi 15, 105 Reykjavík MM Iff! og menníng Heiisubókin frá IVláli og menningu að verðmæti 4.950 kr. Anna Sigurjónsdóttir, Smáragili, 500 Brú Baldrún Hrönn Sævarsdóttir, Lokastíg 1, 620 Dalvík Einar Guðberg Jónsson, Hjarðarhaga 56, 107 Reykjavík Garðar Jóhannsson, Stuðlaseli 27, 109 Reykjavík Helgi Oddsson, Brúarfossi, 311 Borgames Hjalti Gestsson, Reynivöllum 10, 800 Selfoss Ingvar Sigurjónsson, Hlíðarvegi 1, 860 Hvolsvöllur Jóhann Bergur Hlynsson, Bugðulæk 7,105 Reykjavík Sigurður L. Einarsson, Miðholti 7, 270 Mosfellsbær Víðir Jónasson, Dalseli 12, 109 Reykjavík Viðskipti vinningshafa áttu sér stað á eftirtöldum afgreiðslustöðum: Bensínafgreiðslunum Artúnshöfða, Borgartúni, Fellsmúla, Geirsgötu, Stóragerði, Bjarkarholti Mosfellsbæ og Lækjargötu Hafnarfirði. Einnig Fossnesti Selfossi, Hlíðarenda Hvolsvelli, Hymunni Borgamesi, Staðaskála Hrútafirði og Veganesti Akureyri. i(0) ms Olíufélaglöhl Til hamingju með vinninginn! SAFNK0RT ESS0 - enginn kostnaður, aðeins ávinningur! Eltingarleikur við óskapnað Kvlkmyndlr Bíó h ö11 i n, Laugarásbíó HÆTTULEG TEGUND (SPECIES) ★★>/! Leikstjóri Roger Donaldson. Tón- list Christopher Young. Aðalleik- endur Ben Kingsley, Michael Madsen, Forerst Whitaker, Alfred Molina, Marg Helgenberger, Nat- asha Henstride. Bandarísk. MGM 1995. ÁRIÐ 1974 senda bandarísk- ir vísindamenn ýmsar upplýs- ingar útí himingeiminn um lífið og tilveruna á Hótel Jörð, m.a. uppbyggingu kjarnasýranna. Tuttugu árum síðar koma loks skilaboð „að utan“ og innihalda m.a. hliðstæðar upplýsingar um svarendurna og hvernig blanda megi saman kjarnasýrum manna og geimveranna. Úr verður stúlkubarnið Sil sem virðist í fyrstunni öll hin eðlileg- asta en brátt kemur annað í ljós. Undir fögru skinni reynist geimveira, hin ægilegasta ásýndum. Vísindamenn Geim- vísindastofnunarinnar grípa þá til gamalla útrýmingarráða og hyggjast koma óskapnaðinum fyrir kattarnef með gasi en hnátan virðist aðeins braggast af blásýrunni og brýtur sér leið útí frelsið þar sem hún hyggst auka kyn sitt. Hér er kominn hreinasti hval- reki fyrir hina fjölmörgu unn- endur mynd á borð við Alien og býsna vel að flestu staðið. Söguþráðurinn er ekkert ýkja frumlegur en virkar og Donald- son heldur mönnum. við efnið með fínni keyrslii og mörgum, hressilegum augnablikum sem fá mann fram á sætisbrúnina. Leikhópurinn er misjafn með stórleikarann Ben Kingsley í fararbroddi sem yfirmann vís- indastofnunarinnar, hann gefur myndinni aukið vægi með nær- veru sinni. Michel Madsen er langbestur fjögurra sérfræð- inga sem Kingsley hóar saman til að drepa hálfmennið, enda sérfræðingur í manndrápum. Marg Helgenberger og Alfred Molina eru litlaus sem vísinda- menn en Forrest Whitaker mun skárri sem sjáandinn - fjórði fagmaðurinn. Nýstirnið Nata- sha Henstridge fer með hlutverk hálfmennisins, mikil kynbomba en ekki spáð miklum frama á leiklistarsviðinu á þessum síðum - Hollywood á nóg fýrir af sæt- um stelpum. Þá er tónlist Chri- stophers Young krassandi inn- legg í myndina, magnar upp spennuna og dulúðina. Allt gengur að óskum uns kemur að höfuðvanda handrits- höfunda - lokakaflanum. Þá verða menn að grípa til útjask- aðra klisja sem segja ekkert nýtt og eru alltof langdregnar. Ljóður á annars spennandi og vel gerðri erkivitleysu. Góður penni hefði hæglega getað aukið dýpt Hættulegrar teg- undar til muna með því að vekja meiri samúð með örlög- um hálfmennisins en allt er lagt uppúr spennunni og skemmtuninni og það gengur lengst af vel eftir. Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.