Morgunblaðið - 10.11.1995, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINIUINGAR
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995 43
máli? Elskar þú mig? Okkur öll
þessi mannanna börn sem kviknum
til lífs og hverfum eins og hrævar-
eldur?“ - Og það er sem Drottinn
svari: „Þú hefur unnið hættulegt
starf... Hjörtu mannanna geyma
allt en hættulegast af því öllu er
sjálfið og fáir sem ná að deyja áður
en þeir deyja. Svokallaðir sigrar í
lífínu eru oft mestu ósigramir...
mér em engar vígslur gildar aðrar
en lífið sjálft. Farðu í friði.“
Er ég leit til vinar míns seint í
sumar í Borgarnesi þangað sem
hann var kominn sjúkur frá Staðar-
stað, sá ég, að það vom bækur
John Main, sem hann hafði næst
sér á sjúkrabeði ásamt Biblíunni en
John þessi hefur öðmm fremur end-
urvakið íhugunaraðferðir fomkirkj-
unnar í vestrænni kristni. Rögn-
valdur hefur sem fyrr farið með
„formúlu" sína „Guð er minn Guð“,
er hefur þetta framhald í sálmi
Hallgríms Péturssonar: „Guð er
minn Guð, þó geysi nauð / og gangi
þannig yfír, / syrgja skal spart þó
missta'eg margt, / máttugur herr-
ann lifir. / Af hjarta nú og hreinni
trú / til hans skal ég mér venda. /
Nafn Drottins sætt fær bölið bætt,
/ blessað sé það án enda.“ Það var
í þessari trúarvissu og ljósi sem
Guð var Guð Rögnvaldar og snart
dýpstu sálarstrengi hans og grópaði
nánd sína inn í hug hans og hjarta
og gerði hann að því sem hann
varð, trúr þjónn þess sannleika, sem
opinberast í Orði en orð fá sjaldan
lýst, því hann fær aðeins framrás
og farveg fyrir auðmýkt, og ein-
lægni og það látleysi sem eitt rúm-
ar fegurðina í list og lífslindum.
Kirkjan á Staðarstað, lítil að sjá
á ytra borði en glæst að innán, er
sem fögur táknmynd þess. Séra
Rögnvaldar, klerksins þar góða,
mun ég ávallt minnast sem vinar
og djúpviturs manns sem nærðist
af og miðlaði gjöfull lífslindum trú-
ar og listar og svo munu góðvinir
hans gjöra og ástvinir allir. Drottinn
líkni þeim og lýsi.
Gunnþór Ingason.
Með söknuð í hjarta kveðjum við
í dag náinn vin okkar, Rögnvald
Finnbogason.
Við minnumst hans sérstaklega
sem meistara orðsins. Hann var
víðlesinn og spakur með skarpan
huga og kvikan og hafði djúpa og
fagra rödd. Orð hans voru sterk og
hljómmikil. Hvort sem hann sat við
eldhúsborðið og spjallaði, las fyrir
. okkur eða talaði úr stólnum, flugu
orð hans hátt eins og hugurinn.
Auk þessarar meðfæddu og
áreynslulausu andagiftar var hann
með afbrigðum skemmtilegur mað-
ur með mikla kímnigáfu. .
Embættisverk sín vann hann af
látleysi, einlægni og hlýju en jafn-
framt með sérstökum myndarbrag
og smekkvísi. Bestu stólræður hans
voru listaverk . augnabliksins sem
aldrei verða endurtekin. Þar var
ekkert sem öðruvísi mátti vera og
engu ofaukið.
Séra Rögnvaldur var mjög list-
hneigður enda listamaður í eðli sínu.
Kirkjulist var honum afar hugleikin
og fáir voru honum menntaðri á
því sviði eins og margir útvarps-
hlustendur þekkja. En það var orðs-
ins list sem stóð honum næst og
helst veitti honum huggun, þegar
syrti að. í veikindum sínum las
hann ljóð, því að hvert orð sem les-
ið var af veikum mætti mátti hug-
leiða lengi og næra með því sálina.
Þegar hann skynjaði nálægð dauð-
ans fór hann sjálfur að festa ljóð á
blað, og á skömmum tíma varð tíl
ljóðabókin: Hvar er land drauma.
Hún kom út fyrir rúmu hálfu ári
og hlaut einróma lof lesenda og
gagnrýnenda.
Rögnvaldur var engum öðrum
líkur og veröldin er tómlegri án
hans.
Hallveig Thorlacius
og Ragnar Arnalds.
• Fleirí minningargreinar um
Rögnvald Finnbogason bíða birt-
ingar ogmunu birtast í blaðinu
næstu daga.
Faðir okkar og bróðir,
GESTUR SIGURÐUR ÍSLEIFSSON,
lést 7. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar.
Börn og systkini.
Okkar ástkæra dóttir, systir, barnabarn
og frænka,
FANNEY HALLDÓRSDÓTTIR,
Tjarnarlundi 15E,
Akureyri,
lést í Borgarspítalanum þann 7. nóvem-
ber.
Ólfna Jónsdóttir, Halidór M. Rafnsson,
Ómar, Elfar, Torfi Rafn og Unnur
Halldórsbörn,
Jón Helgason, Snjólaug Þorsteinsdóttir,
Rafn M. Magnússon, Fanney Jónsdóttir
og aðrir aðstandendur.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN HÚNFJÖRÐ JÓNASSON
frá Hvammstanga,
Fannafold 22,
Reykjavik,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju
í dag, föstudaginn 10. nóvember,
kl. 15.00.
Helga Ágústsdóttir,
Bára Jónsdóttir, Magnús Einarsson,
Marsý Jónsdóttir, Sævar Sigurgeirsson,
Svandi's Jónsdóttir, Leif Österby,
Ástri'ður Jónsdóttir, Svein Inge Stolen,
afa- og langafabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk-
ar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANN KRISTINN
JÓHANNESSON,
Bröttugötu 4B,
Borgarnesi,
verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju
laugardaginn 11. nóvember kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent
á Sjúkrahús Ákraness.
Ragnheiður Ingibjörg Ásmundsdóttir,
Ásmundur Jóhannsson, Rúna Diðriksen,
Jóhannes Gylfi Jóhannsson, Ása Guðmundsdóttir,
Björn Jóhannsson, Sæunn Jónsdóttir,
Jóhann Már Jóhannsson, Guðrún Sigurbentsdóttir,
Gi'sli Margeir Jóhannsson, Bryndi's Jónsdóttir,
Tryggvi Jóhannsson, Sesselja Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SNORRIJÓNSSON,
Grundargarði 1,
Húsavík,
lést þann 7. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Inga Filippía Sigurðardóttir,
Inga Lilja Snorradóttir,
Snorri Snorrason,
Herdis Snorradóttir, Heimir Aðalsteinsson,
Bergljót Snorradóttir, Hermann S. Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og lang-
afa,
ÞORGEIRS ÓSKARS KARLSSONAR,
Kirkjuvegi 1,
Keflavík.
Einnig viljum við senda læknum, hjúkr-
unarfólki og öðru starfsfólki deildar 6-A
á Borgarspítalanum okkar bestur kveðj-
ur og þakkir fyrir sérstaklega góða umönnun.
Sóley Sigurjónsdóttir.
t
Ástkær móðir min, dóttir og systir okkar,
LÁRA SKÚLADÓTTIR,
er látin.
Elísabet Lilja Stefánsdóttir,
Guðbjörg Ólsen
og systkini hinnar látnu.
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
REYNIR VILBERGS
verslunarmaður,
Hringbraut 88,
andaðist í Landspftalanum að morgni
8. nóvember.
Jarðarför auglýst síðar.
Steinunn Þorsteinsdóttir,
Pálmi Þór Reynisson, Jóna Helgadóttir,
Stella Maria Reynisdóttir, Friðgeir Indriðason,
Þorsteinn V. Reynisson, Hjördís Hjörleifsdóttir,
barnabörn og langafabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EINAR JÓHANNESSON
frá Gauksstöðum
ÍGarði,
Brekkubyggð 23,
Blönduósi,
andaðist í Hérðassjúkrahúsinu á Blönduósi 8. nóvember.
Guðrún Sigurðardóttir,
Árni Einarsson, Guðbjörg Kristinsdóttir,
Asta Einarsdóttir, Steinar Guðmundsson,
Jóhannes H. Einarsson, Jónína Færseth,
Ingimar Á. Einarsson,
Eli'n B. Einarsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur og bróðir,
PÉTURPÉTURSSON
rafvirki,
Dalsgerði 2d,
lést laugardaginn 4. nóvember.
Útförin verður gerð frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 13. nóvember kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim,
sem vildu minnast hans, er bent á
Hjartavernd.
Elísabet Pálmadóttir,
Elsa Katrín Pétursdóttir,
Sandra Rós Pétursdóttir,
Elísabet Björk Pétursdóttir,
Aðalheiður Jónsdóttir, Pétur Jóhannsson
og systkini hins látna.
Innilegar kveðjur og þakkir sendum við öllum þeim stóra hópi
ættingja og vina, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við skyndi-
legt andlát foreldra okkar,
GEIRÞRÚÐAR S. FRIÐRIKSDÓTTUR
GUNNLAUGS P. KRISTJÁNSSONAR,
Flateyri.
Jafnframt þökkum við öllum þeim fjölmörgu, sem aðstoðuðu við
björgun og leit eftir þetta hörmulega slys.
Við sendum Flateyringum öllum innilegar kveðjur og vonum að
mannlífið þar komist sem fyrst aftur í eðlilegt horf.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd aðstandenda.
Eli'sabet Alla Gunnlaugsdóttir,
Ardfs Gunnlaugsdóttir,
Kristín Gunnlaugsdóttir,
Ásthildur Gunnlaugsdóttir,
María K. Gunnlaugsdóttir,
Jóhanna Gunnlaugsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Gi'sli Valtýsson,
Bergmann Ólafsson,
Pétur S. Þórðarson,
Guðmundur Finnbogason,
Þorbergur Dagbjartsson,
Valur N. Magnússon,