Morgunblaðið - 10.11.1995, Page 45
i MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995 45
I
I
I
I
i
I
i
i
I
;
i
i
i
i
i
í
i
i
i
:
í
I
I
í
i
I
■I
+Guðbjörg
Magnúsdóttir
fæddist 2. júní 1914
í Landsbroti í Kol-
beinsstaðarhreppi.
Guðbjörg lést 3.
nóvember síðastlið-
inn í St. Jósefsspít-
ala í Hafnarfirði.
Foreldrar hennar
voru María Ólafs-
dóttir fædd 7. febr-
úar 1882, dáin 17.
febrúar 1970, og
Magnús Jóhannes-
son fæddur 3. nóv-
ember 1880, dáinn
1. febrúar 1969.
Systkini Guðbjargar voru: Guð-
mundur Magnússon, bifreiða-
s^jóri, látinn. Ólafur Magnússon,
húsasmíðameistari, látinn.
Magnús Magnússon, bifreiða-
sljóri, látinn. Katrín Magnús-
dóttir, húsmóðir, látin, Valgerð-
ur Magnúsdóttir húsmóðir og
Kjartan Magnússon.
Hafðu þðkk fyrir öll þín spor.
Það besta sem fellur öðrum í arf
er endurminning um göfugt starf.
Moldin er þín.
Moldin er trygg við bömin sín,
sefar allan söknuð og harm
og svæfir þig við sinn móðurbarm.
Grasið hvíslar sitt ljúfasta ljóð
á leiðinu þínu. Moldin er hljóð
og hvfldin góð...
(Davíð Stefánsson)
í dag langar mig að minnast
elskulegrar ömmu minnar, Guð-
bjargar Magnúsdóttur.
Þegar ég var lítil var alltaf svo
Guðbjörg giftist
Karel Ingvarssyni
21.10. 1939. Hann
lést árið 1942.
Helga Magnússyni
giftist hún síðan
16.6. 1945. Hann
lést einnig fyrir ald-
ur fram eða 52 ára.
Börn Guðbjargar
eru: Erla M. Karels-
dóttir, fædd 21.
október 1940, Karel
I. Karelsson, fædd-
ur 4. maí 1943, Mar-
ía S. Helgadóttir,
fædd 31. janúar
1946, Magnús J.
Helgason, fæddur 28. september
1947, og Erlendsína G. Helga-
dóttir, fædd 4. nóvember 1948.
Barnabörn Guðbjargar hei-
tinnar eru 17, barnabarnabörn
12 og stjúpbörn eru 3.
Útför Guðbjargar fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
gaman þegar amma kom með rút-
unni til Keflavíkur í heimsókn og
mikil spenna var í loftinu þegar
hún opnaði töskuna og sjá hvað
hún geymdi mikið.
Það er mér minnisstætt er við
dvöldum sumarlangt hjá henni í
Hafnarfirði þegar mamma mln var
í námi, þá fékk ég tækifæri til að
kynnast henni betur, minningin um
þetta sumar hefur alltaf verið ofar-
lega í huga vegna hlýjunnar frá
ömmu minni og hvað við vorum
velkomin.
Árið 1985 bjó ég hjá ömmu heil-
an vetur. Þá skemmtum við okkur
mjög vel saman. Það var svo margt
sem hún kenndi mér eins og setja
rúllur í hár og hengja þvott fallega
upp á snúru og margt fleira.
Orð fá ekki lýst hversu við eigum
eftir að sakna hennar, hlátursins,
brossins, hlýjunnar og lyktarinnar.
Guð blessi minninguna um ömmu
mína.
Svo að lifa, ég sofni hægt,
svo að deyja, að kvöl sé bægt,
svo að greftrast sem Guðsbam hér
gefðu, sætasti Jesú, mér.
(Hallgrimur Pétursson)
Þórunn fris Þórisdóttir.
Hún mamma mín er dáin. Hún var
ekki eingöngu móðir mín, heldur
líka minn besti vinur. Þessa stund
óttaðist ég sem bam og kveið eftir
að ég varð fullorðin. Mamma var
alltaf til staðar, hún var heima á
meðan við börnin þurftum hennar
með, og ef hún þurfti að bregða
sér frá þá var gjaman spurt: Er
enginn heima? Mamma var glöð
og þakklát fyrir allt sem fyrir hana
var gert. Kvartaði aldrei eða krafð-
ist nokkurs fyrir sjálfa sig. Þó hafði
hún kannski ástæðu til annars.
Móðir mín giftist föður mínum
Karel Ingvarssyni 21.10. 1939 og
ári seinna, sama mánaðardag, fæð-
ist undirrituð. Tveimur árum eftir
að þau giftust fórst faðir minn með
togaranum Jóni Ólafssyni, en
togarinn lagði af stað heim til ís-
lands frá Englandi 21.10. 1942 á
giftingardegi þeirra, og afmælis-
degi mínum. Ekkert var vitað um
afdrif togarans. Þetta tók mikið á
móður mína, sem var þá barnshaf-
andi og eignaðist hún son, Karel
I. Karelsson, 4. maí 1943. Aldrei
talaði hún um þennan erfiða tíma.
Karel faðir minn átti son, Óskar
Karelsson, áður en hann kvæntist
mömmu. Milli mömmu og fjöl-
skyldu Óskars var alltaf náið sam-
band og áttu þau margar ánægu-
stundir saman. Mamma fór með
mig og Karel bróður minn í vist
upp á Akranes og seinna til Hafnar-
fjarðar. Þar kynntist hún seinni
manni sínum Helga Magnússyni frá
Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd. Þau
giftust 16. júní 1945. Þau eignuð-
ust þijú böm, Maríu, Magnús og
Erlendsínu. Þau áttu sitt heimili á
Hellubraut 7 í Hafnarfirði. Helgi
pabbi minn átti þijú börn frá fyrra
hjónabandi, Óskar sem nú er lát-
inn, Erlu og Valberg.
Álla tíð var mjög kært með börn-
um föður míns af fyrra hjónabandi
og móður minnar. Sýndu þau henni
hlýjuog vinsemd sem þeim er þökk-
uð. Ég man hvað ég var glöð að
eignast annan pabba. Hann reynd-
ist okkur bróður mínum sem besti
faðir og aldrei fann ég fyrir öðra
en elsku og væntumþykju eins og
við værum hans eigin böm. Pabbi
var ekki heilsuhraustur, en hann
var ósérhlífinn og hörkuduglegur.
Fjöratíu og sex ára fékk hann heila-
blóðfall og var þá við störf úti á
sjó. Hann náði adlrei heilsu eftir
það og lést 52 ára. Sömu helgi og
hann dó átti að ferma yngstu börn
þeirra, en fermingu var frestað þar
til viku eftir jarðarför föður þeirra.
Þessi tími var erfiður fyrir mömmu
en sem áður stóð hún eins og klett-
ur og kvartaði ekki. Það var ekki
um annað að ræða en að standa
sig með fjóra unglinga á heimilinu.
Þá var ekki um áfallahjálp eða
aðra utanaðkomandi hjálp að ræða.
Stuttu eftir að mamma missti
seinni mann sinn, fór hún að finna
fyrir óþægindum og þyngslum fyr-
ir bijósti. Nokkram áram seinna
kom í ljós að hún var með krans-
æðastíflu. Mamma vann í frysti-
húsi eftir að hún varð ekkja og
síðan við ræstingar. Fyrst á Kópa-
vogshæli og síðan á Fæðingardeild
Landspítalans. Einnig vann hún við
ýmis önnur störf. Mamma hafði
mjög gaman af því að ferðast.
Meðan hún vann í íshúsi Hafnar-
fjarðar fór hún mörg sumur með
vinnufélögum sínum í ferðir um
landið og naut þess mjög. Einnig
fór hún margar ferðir með slysa-
vamafélaginu Hraunprýði og talaði
hún oft um þessar ferðir. Hún fór
líka nokkram sinnum utan og hefði
kosið að fara oftar en heilsa og
aðrar ástæður leyfðu það ekki.
Eftir að mamma hætti að vinna
tók hún mikinn þátt í starfi aldr-
aðra og hafði yndi og ánægju af.
Hún naut þessa félagsskapar með
Valgerði systur sinni. Mamma naut
þess að vera með fjölskyldu sinni.
Margar ferðir eram við búnar að
fara saman upp í sumarbústað
minn í Munaðamesi, ýmist við tvær
eða með fjölskyldu minni. Hún
naut þess mjög og gladdist yfir að
vera með bamabömum sínum þar
svo nálægt æskuslóðum sínum, og
rifjaði hún þá gjaman upp gamlar
endurminningar.
Nú er komið að kveðjustund.
Ekkert nema Ijúfar, góðar minning-
ar. Hafðu hjartans þakkir fyrir
góða innrætingu sem þú lést okkur
í té og varst-okkur fyrirmynd með
heiðarlegu og fögra lífemi þínu.
Far þú í friði. Friður Guðs þig
blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Þín dóttir,
Erla Karelsdóttir.
GUÐBJÖRG MAGNUSDOTTIR
| AUGL YSINGAR
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Hörðuvöllum 1,
Selfossi, þriðjudaginn 14. nóvember 1995 kl. 10.00 á eftirfarandi
eignum:
Múlaland 12, 0102, ísafirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd ísafjarðar,
gerðarbeiðandi Bæjarsjóður ísafjarðar.
Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Heiðarvegi 15,
Vestmannaeyjum, fimmtudaginn 16. nóvember 1995 kl. 10.00 á
eftirfarandi eignum:
Arnarheiði 29, Hveragerði, þingl. eig. Halldóra E. Bjarnadóttir, gerðar-
beiðandi Húsasmiðjan hf.
Bakkatjörn 10, Selfossi, þingl. eig. Þorbjörg Árnadóttir, gerðarbeið-
andi Bæjarsjóður Selfoss.
Kambahraun 22, Hverageröi, þingl. eig. Sigrún Arndal, gerðarbeið-
endur Olíuverslun Islands, Landsbanki íslands, 0152, Byggingarsjóð-
ur rikisins og Landsbanki íslands 0150.
Aðalgata 43b, Suðureyri, þingl. eig. Lárus Helgi Lárusson, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóður ríkisins og innheimtumaður ríkissjóðs,
17. nóvember 1995 kl. 14.00.
Túngata 25, Suðureyri, þingl. eig. Suðureyrarhreppur, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður verkamanna, 17. nóvember 1995 kl. 14.20.
Sýslumaðurinn á ísafirði,
9. nóvember 1995.
Áshamar 71,2. hæð E, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Húsnæðisnefnd
Vestmannaeyja, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Áshamar 75, 3. hæð B, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Erna Fannbergs-
dóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Búastaðabraut 9, neðri hæð, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Kjartan
Sigurðsson og Hlíf Helga Káradóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður
Vestmannaeyinga.
Kviarhóll, Ölfushreppi, þingl. eignarhl. Gunnars Baldurssonar, gerðar-
beiðendur Stofnlánadeild landbúnaðarins, Þorsteinn Högnason,
S.lda hf. og Vátryggingafélag Islands hf.
Reykjamörk 2b, íbúð 03-03, Hveragerði, þingl. eig. Kjartan Jón Lúð-
víksson, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Skipið Sverrir Bjarnfinns ÁR-110, skipaskrárnr. 0467, þingl. eig.
Nesbrú hf., gerðarbeiðandi Látraröst hf.
Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Grashagi 5, Selfossi, þingl. eig. Guðlaug Ásgeirsdóttir, geröarbeið-
endur Byggingarsjóður ríkisins, Kristín Guömundsdóttir og Lifeyr-
issj. verslunarmanna, fimmtudaginn 16. nóvember 1995, kl. 13.30.
Þelamörk 50, Hveragerði, þingl. eig. Eyjólfur Gestsson, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóður rikisins, Stofnlánadeild landbúnaðar-
ins, sýslumaöurinn á Selfossi, Vátryggingafélag íslands hf. og
Framleiðsluráð landbúnaðarins, fimmtudaginn 16. nóvember 1995,
kl. 14.30.
Sýsiumaðurinn á Selfossi,
9. nóvember 1995.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 1,
3. hæð, þriðjudaginn 14. nóvember 1995 kl. 14.00, á eftirfarandi
eignum:
Aðalgata 59, Suðureyri, þingl. eig. Aldey hf., gerðarbeiðandi Fisk-
veiðasjóður Islands.
Aðalstræti 13, 0201, e.h. og ris, Isafirði, þingl. eig. Hálfdán Daði
Hinriksson, gerðarbeiöendur Bifreiðar og landbúnaðarvélar, Bíla-
naust hf., Búland hf. og Gúmmívinnslan hf.
Betanía, Mosvallahreppi, V-ls., þingl. eig. Jarðasjóður ríkisins, gerðar-
beiðandi Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Fitjateigur 4, Isafirði, þingl. eig. Sigurlaug Ingimundardóttir og Ólaf-
ur Halldórsson, gerðarbeiðandi Sumarrós K. Jóhannsdóttir.
Fjarðargata 4, Þingeyri, þingl. eig. leikfangaverslunin Alda hf., gerðar-
beiðandi Iðnlánasjóður.
Mánagata 6a, ísafirði, þingl. eig. Arna Ásberg hf., gerðarbeiðandi
Bæjarsjóður isafjarðar.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Aðalgötu 7, Stykkis-
hólmi, þriðjudaginn 14. nóvember 1995 kl. 10.00 á eftirfarandi
elgnum:
Fiskverkunarhús við Dalbraut, Snæfellsbæ, þingl. eig. Fiskiðjan Dal-
ur, gerðarbeiðandi Þróunarsjóður sjávarútvegsins.
Fiskverkunarhús við Norðurtanga, Snæfellsbæ, þingl. eig. Norður-
garður hf., gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Blönduósi.
Grundargata 84, Grundarfirði, þingl. eig. Þórður Á. Magnússon,
gerðarbeiðandi tollstjórinn i Reykjavík.
Hafnargata 11, þjónustumiöstöð, Snæfellsbæ, þingl. eig. Sturla
Fjeldsted og Kristín S. Þóröardóttir, gerðarbeiöendur Ferðamálasjóð-
ur og Snæfellsbær.
Hellisbraut 9, Snæfellsbæ, þingl. eig. Sigurður Þ. Sigurðsson og
Bryndis Snorradóttir, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður Vesturlands og
Lífeyrissjóður sjómanna.
Hliðarvegur 13, Grundarfiröi, þingl. eig. Ingibjörg Sigurðardóttir og
Valgeir Þ. Magnússon, geröarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Nesvegur 13, Stykkishólmi, þingl. eig. Trésmiðjan Nes hf., gerðar-
beiðandi sýslumaðurinn Stykkishólmi.
Siglunes SH-22, þingl. eig. Lárus Guömundsson, gerðarbeiðandi
Þróunarsjóður sjávarútvegsins.
Silfurgata 22, Stykkishólmi, þingl. eig. Bjarghildur Pálsdóttir og Jó-
hannes Ólafur Jónsson, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður Suðurnesja.
Skipholt 1, Snæfellsbæ, þingl. eig. Gylfi Scheving, gerðarbeiðandi
Sparisjóður Hafnarfjarðar.
Stekkjarholt 1, Snæfellsbæ, þingl. eig. Þorgeir G. Þorvaldsson og
Lovisa Guðmundsdóttir, gerðarbeiöendur Byggingarsjóður ríkisins
og Lífeyrissjóður sjómanna.
Ólafsbraut 32, Snæfellsbæ, þingl. eig. Kjartan F. Jónsson, gerðar-
beiðandi Féfang hf.
Sýslumaðurinn i Stykkishólmi,
9. nóvember 1995.
Foldahraun 41, 2. hæð D, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Helga Ólafs-
dóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Foldahraun 42, 2. hæð D, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Húsnæðis-
nefnd Vestmannaeyja, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Heiðarvegur 11, n.h., Vestmannaeyjum, þingl. eig. Lilja Richardsdótt-
ir, gerðarbeiðandi Ríkisútvarpið, innheimtudeild.
Illugagata 56, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Stefán Pétur Sveinsson,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Kirkjubæjarbraut 16, efri hæð og ris, Vestmannaeyjum, þingl. eig.
Jón Ólafur Ólafsson, gerðarbeiðandi Fjárfestingafélagið Skandía hf.
Nýjabæjarbraut 3, neðri hæð, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Heiða
B. Scheving, gerðarbeiðendur húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkis-
ins, sýslumaðurinn í Hafnarfirði og sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum.
Sólhlíð 26, efri hæð, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Sigurbjörn Ingólfs-
son, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Strandvegur 51, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Neisti sf., gerðarbeið-
andi íslandsbanki hf.
Vesturvegur 13 A, Vestmannaeyjum, þingl. eig. Anna Sigmarsdótt-
ir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Lífeyrissjóður Dags-
brúnar og Framsóknar.
Sýslumaðurinn i Vestmannaeyjum,
9. nóvember 1995.
Brynhildur Georgsdóttir, ftr.
Hrafnista Hafnarfirði
Basar
laugardaginn 11. nóvember kl. 13-17 og
mánudaginn 13. nóvember kl. 9-16.
Margt fallegra muna. Sjón er sögu ríkari.
Hrafnista Hafnarfirði.