Morgunblaðið - 16.11.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.11.1995, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Danska stúlkan sem varð fyrir árás í Hróarskeldu Mundi lítið við yfirheyrslu Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. UNGA stúlkan sem slegin var nið- ur á götu í Hróarskeldu í mars hefur nú náð sér svo að lögreglan hefur getað yfirheyrt hana. Hún man lítið frá kvöldinu, en gat þó veitt upplýsingar, sem nú er unnið úr. Hópur íslendinga, sem var á sama skemmtistað og stúlkan, hefur dregist inn í rannsókn máls- ins, en alls hafa um 700 manns verið yfírheyrðir vegna hennar. Um tíma var ósennilegt að hægt yrði að yfírheyra hana, en hún hefur náð sér mun betur en á horfðist. Hún getur ekki talað, en skilur það sem við hana er sagt og svarar með höfuðhreyfíngum og getur notað lyklaborð. Slæmir áverkar á stúlkunni stöfuðu að mati lögreglunnar ekki af hrottalegri árás, heldur af slysa- legum kringumstæðum. Ástand stúlkunnar batnar Stúlkan virðist lítið sem ekkert muna frá kvöldjnu, þegar atburð- urinn gerðist. í fyrsta samtalinu við lögreglumennina gat hún þó veitt þeim upplýsingar, sem nú er unnið úr, meðal annars um þann hóp, sem hún umgengst. Búist er við að hægt verði að yfírheyra hana frekar síðar, þar sem ástand hennar fer batnandi. Stúlkan var að skemmta sér á diskóteki í Hróarskeldu á Sjálandi og þaðan sást hún fara með ung- um manni, sem álitið er að hafí verið gestkomandi. Skammt frá staðnum hefur þeim tveimur lík- lega sinnast eitthvað og pilturinn þá slegið til hennar. Af andlitsáverkum hennar mátti sjá að höggið var töluvert, en við höggið hefur hún fallið kylliflöt aftur á bak á steinlagða stéttina. Svo virðist sem þröng föt hafi gert hana óstöðuga og hún því ekki náð að bregðast við högginu. Fallið varð því harkalegt og við það sködduðust efstu hryggjarliðir stúlkunnar, auk þess sem hún hefur að öllum líkindum hlotið slæman heilahristing, sem getur hafa orsakað áverka langt inni í heila. Gestir á skemmtistaðnum voru yfirheyrðir Hópur íslendinga í diskótekinu var yfírheyrður eins og aðrir gest- ir og eins komu danskir rannsókn- arlögreglumenp til Islands til að yfírheyra íslendingana frekar. Að sögn lögreglunnar var einn þeirra yfirheyrður sem grunaður, þar sem vitni höfðu bent á hann, en ekkert meira kom fram í þá átt. Jörgen Juhl rannsóknarlög- reglumaður hefur áður sagt í sam- tali við Morgunblaðið að höggið væri vissulega ofbeldisverk, en lík- lega hefði gerandinn orðið hrædd- ur og hlaupist strax á brott og lögreglan væri enn að vonast til að hann gæfí sig fram. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gæslumenn æfa sig LANDHELGISGÆSLAN hélt í að æfa lækna af Borgarspítal- í sigi úr þyrlunni. Myndin var gær björgunaræfingar á anum og áhöfn björgunarþyrlu tekin á Höskuldarvöllum í Reykjanesi. Tilgangurinn var Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, gærdag. Inflúensutilfellum fjölgar sunnanlands og norðan INFLÚENSU er farið að gæta hér á landi og þegar hafa afbrigði af A-stofni greinst í sjö sýnum. „Það er greinilegt að hún er farin að stinga sér hér niður," sagði Ólafur Ólafsson landlæknir í gær. Einnig hefur berkjubólgu orðið vart í haust. „Það er aragrúi af veir- um og bakteríum, sem valda berkju- sýkingum," sagði Haraldur Briem smitsjúkdómafræðingur. „í Reykja- vík hefur orðið vart tilfella af slæmri berkjubólgu." Sigursteinn Guðmundsson, héraðs- læknir á Blönduósi, sagði að nokkuð hefði verið um það að fólk hefði Slæmrar berkju- bólgu orðið vart veiksti. „Það hefur verið töluvert um það að fólk hafí verið með 39 til 39,5 stiga hita og beinverki," sagði Sigursteinn, en kvaðst ekki geta full- yrt að þar væri inflúensa á ferð. Sjö tilfelli greind Arthur Löve, yfirlæknir á rann- sóknastofu Landspítalans í veiru- fræði, sagði að þégar hefðu greinst nokkur tilfelli og þeim fjölgaði með hveijum deginum. „Þegar eru komin sjö tilfelli, fjög- ur eða fímm frá Akureyri og tvö eða þtjú frá Reykjavík," sagði Arthur. Fyrsta sýnið barst veirurann- sóknastofunni fyrir tíu dögum. Inflú- ensan er af stofninum H2N3, sem er annar meginkvisturinn á meiði hinna svokölluðu asíustofna. H2N3- stofninn hefur einnig verið kenndur við Hong Kong, að sögn Arthurs, og kom fyrst upp árið 1967. Arthur sagði að fleiri sýni væru á leið til Reykjavíkur til greiningar, m.a. frá Sauðárkróki, en ekki hefði verið staðfest að kominn væri farald- ur. Tólf ára íslensk stúlka vinnur við fréttalestur fyrir bresk börn og unglinga Starfar í ár hjá Channel 4 ANNA Holt gefur öndunum á Tjörninni í Reykjavík brauð- bita, en sjálf hefur hún verið búsett alla sína ævi ytra. TÓLF ára gömul íslensk stúlka, Anna Holt, hefur verið ráðin til að koma fram sem fréttamaður í þætti fyrir börn- og unglinga á Channel 4 í Bret- landi. Hún hefur þegar unnið að einum þætti sem sýndur var fyrir skömmu og mun vinna á sex vikna fresti að nýjum þætti fram á næsta haust. Anna er dóttir hjónanna Patricks Holt og Sigríðar Pét- ursdóttur, en þau starfa bæði við kennslu í Edinborg í Skot- landi, hann er dósent í verk- fræði við Herriot Watt háskól- ann og hún lektor við Steven- son-kennaraháskólann. Þau hafa búið ytra í um 19 ár. Anna gengur í James Gil- lespies High School, en þang- að komu fulltrúar Channel 4 og efndu til áheymarprófs fyrir áhugasama nemendur, á sama hátt og í fjölda annarra skóla í Englandi og Skotlandi. Einn nemi kom til álita fyrir utan Onnu í skólanum hennar. Anna segir að eftir þessu hafi verið tekið í skólanum og hafi henni fundist athyglin heldur óþægileg. Hún segist þó hafa talsverð- an áhuga á að verða fréttaþul- ur þegar hún velur sér fram- tíðarstarf. „Ég gæti látið slag standa þegar þar að kemur, að minnsta kosti finnst mér þetta spennandi starf núna,“ segir Anna. Gerðist hratt „Anna spurði mig hvort hún mætti fara í áheyrn hjá sjón- varpinu og ég jánkaði um- hugsunarlaust. Hún kom síðan heim og sagðist halda að hún hefði staðið sig vel. Maður tekur svoleiðis fregnum sjaldnast alvarlega og ég sagði bara já, vinan, fínt að heyra. Sama kvöld, sem var föstudag- ur, var hringt frá Channel 4 og hún beðin um að mæta á mánudegi, okkur sagt að samningurinn væri kominn i póst og lögfræðingar stöðvar- innar myndu tala við okkur. Við vissum ekki hvaðan á okk- ur stóð veðrið," segir Patrick. Þátturinn nefnist First ed- ition, er um tuttugu mínútna langur og reifar helstu frétt- næma atburði heimsins hverju sinni. Upptökur fara fram í nýreistu stórhýsi JTN (Inde- pendant Television Neiwork) í Lundúnum. Þekktur sjón- yarpsfréttamaður í Englandi, John Snow, hefur yfirumsjón með þættinum sem sérstak- Iega er ætlaður ungmennum, við kennslu í skólum o.s.frv., og er hann sýndur skömmu fyrir hádegi á þriðjudögum, en siðan endursýndur tvívegis í sömu viku. Snow hefur alltaf ungling sér til halds og traust og skipta sex slíkir með sér verkum, þannig að hver þeirra vinnur að einum þætti með sex vikna millibili. Stóð sig vel „Anna þarf að ferðast til Lundúna í fylgd okkar á sex vikna fresti í heilt ár til að sinna þessu starfi. Hún þarf ekki aðeins að lesa upp, heldur verður blessað barnið að þræla sér í gegnum málefnin og búa til eigin spurningar," segir Patrick. Frumraun Önnu var að ræða við yfirmann í flótta- mannahjálp Sameinuðu þjóð- anna, sem nýkominn var frá Bosníu. „Ég spurði hann um stríðið, flóttamennina og Bosníu; eða ósköp svipaðar spurningar og fullorðinn fréttamaður myndi bera upp, að ég held,“ segir Anna. Hún þótti standa sig svo vel að Snow bauð henni að koma í starfskynningu hjá stöðinni eftir tvö til þrjú ár og bauðst til að sjá sjálfur um að hún fengi að kynnast störfum fréttadeildarinnar. Húsnæðisnefnd Reykjavíkur 59 íbúðir í Grafar- vogi verði keyptar HÚSNÆÐISNEFND Reykjavíkur auglýsti fyrir nokkrum vikum eftir nýjum og gömlum íbúðum til kaups og bárust um 170 tilboð í gamlar íbúðir. Húsnæðisnefndin leggur til við Innkaupastofnun Reykjavíkur- borgar að engin gömul íbúð verði keypt. Astæðan er sú að verð á þeim sé of hátt miðað við byggingarverð á nýjum íbúðum. Þá hefur Hús- næðisnefndin lagt til að keyptar verði 59 nýjar íbúðir í Grafarvogi, sem Ríkharður Steinbergsson, fram- kvæmdastjóri Húsnæðisnefndar, segir að bjóðist á hagstæðu verði. Ibúðirnar sem Húsnæðisnefndin leggur til að verði ekki keyptar eru byggðar á mismunandi tíma en megnið af þeim er frá árinu 1955 til 1975. íbúðirnar í Grafarvogi eru allar nýjar og bjóðast á mjög góðu verði, segir Ríkharður. Húsnæðisnefnd Reykjavíkur hefur heimild frá Hús- næðisstofnun á þessu ári til að byggja eða kaupa 110 íbúðir innan félagslega kerfisins, þar með taldar íbúðirnar 59 í Grafarvogi. Fyrir næsta ár hefur Húsnæðis- nefnd sótt um lán til Húsnæðisstofn- unar til kaupa á 150 félagslegum íbúðum. Húsnæðisnefndin er nú með ( byggingu 84 íbúðir í Grafarvogi en byrjað var á Sumum þeirra á síð- asta ári.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.