Morgunblaðið - 16.11.1995, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 16.11.1995, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1995 AÐSEIMDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ 1 Bráðumkoma l blessuðjólin... o >- ____—T* VELJUM ÍSLENSKT! Kristin fræði í grunnskólum FIMMTUDAGINN 19. október birtist í Morgunblaðinu grein eftir Þorvald Örn Amason, formann Sið- menntar, undir fyrirsögninni „Trú- arbragðamismunun í grunnskólum?" Það er ekki oft sem umræður fara fram hér á landi um stöðu kristinna fræða í skólum og því þakkarvert að einhver skuli vekja máls á efninu. Þorvaldur kemur inn á margt í grein sinni og setur þar fram sjónarmið sín varðandi kristin fræði og telur að núverandi staða þeirra valdi trúar- bragðamismunun. í grunnskólum landsins. Það sjónarmið er að sjálf- sögðu fullgilt. Gallinn á grein hans er hinsvegar sá að í röksemdafærslu sinni staðhæfír hann ýmislegt um afstöðu þjóðarinnar til kristinna fræða í grunnskólum og gefur sér eitt og annað um kristinfræðikennsl- una sem ekki á við rök að styðjast. Hann telur að fáir muni samþykkja kristinfræðistefnuna í Aðalnámskrá grunnskóla frá 1989 og segir m.a. að kristinfræðikennslan sé „lítið dul- búin innræting á lúthersk-evangel- ískri guðstrú. Nemendur eiga að „skilja" og „skynja" eitt og annað á þann eina hátt sem er kirkjunni þóknanlegur." Hvað segir Aðalnámskrá? Ekki er ljóst á hvetju Þorvaldur byggir ofangreinda lýsingu sína á kristinfræðikennslunni. Vera má að hann lesi þetta út úr Aðalnámskrá grunnskóla eða hafi einhver dæmi úr skólum þar sem einhvers konar innræting af þessum toga fer fram. Sé þetta viðhorf lesið út úr Aðalnám- skrá er nauðsynlegt að benda á að þar fer Þorvaldur ftjálslega með þeg- ar hann túlkar textann. Vissulega talar Aðalnámskráin um evangelísk- lúthersku þjóðkirkjuna í 3. lið megin- markmiða greinarinnar kristin fræði, siðfræði og trúarbragðafræðsla. Þar er talað um að nemendur „kynnist sögu og starfí evangelísk-lúthersku þjóðkirkjunnar og eigin safnaðar og skilji mikilvægi helgihalds og kær- leiksþjónustu í lífi kristinna manna og skynji tjáningu trúar og tilbeiðslu í listum“ (Aðalnámskrá grunnskóla 1989, bls. 76). Það er hæpið að halda því fram að þetta merki að nemend- Samkvæmt þjóðskrá voru 91,8% þjóðarinnar skráð í þjóðkirkjuna, 3,2% í lútherskar frí- kirkjur og 2% í önnur kristin trúfélög. Gunn- ar J. Gunnarsson fjall- ar í þessari fyrri svar- grein sinni um kristin fræði í grunnskólum. ur eigi „að „skilja" og „skynja“ eitt og annað á þann eina hátt sem kirkj- unni er þóknanlegur". Aðrar greinar meginmarkmiðanna gefa varla tilefni til þess heldur. Þær snúast m.a. um að nemendur fræðist um grundvall- arþætti kristinnar trúar, öðlist þekk- ingu á Biblíunni, fáist við trúarleg og siðræn viðfangsefni og skoði þau í ljósi kristinnar trúar, temji sér sam- skiptareglur sem byggjast á kristi- legu siðgæði og fræðist um helstu kirkjudeildir og trúarbrögð heims. Þá gerir Aðalnámskrá ráð fyrir því að þrátt fyrir að eðlilegt sé að kennsl- an taki mið af túlkun evangelísk- lútherskrar kirkju sé lögð sérstök áhersla á sameiginlegan arf allra kristinna manna, bæði trúarlegan og menningarlegan, og að kennslunni sé hagað þannig að sem flestir nem- endur geti tekið þátt í henni, þrátt fyrir mismunandi trúar- og lífsskoð- anir (Aðalnámskrá bls. 78). Einnig er skýrt tekið fram að skóíanum sé ekki ætlað að þröngva ákveðnum trúarlegum viðhorfum upp á nem- endur sína (bls. 75). Því sjónarmiði má hins vegar halda fram hvort það sé ekki eðlilegt að kristinfræði- kennslan í skólum á íslandi taki mið af því menningarlega, sögulega og félagslega samhengi sem hún fer fram í. Samkvæmt þjóðskrá voru 91,8% þjóðarinnar skráð í evangel- ísk-lúthersku þjóðkirkjuna 1. desem- ber 1994 og 3,2% að auki í lúth- erskar fríkirkjur. Til viðbótar eru svo rúm 2% skráð í önnur kristin trúfélög (Hag- stofa íslands. Fréttatil- kynning nr. 2 1995). Vilji þjóðarinnar? Þorvaldur telur að innan við fjórðungur þjóðarinnar myndi sam- þykkja kristinfræði- stefnuna í Aðalnámskrá grunnskóla og vísar í því sambandi tii könn- unar á trúarlífi íslend- inga. Þar á hann líklega við könnun sem Björn Björnsson og Pétur Pét- ursson gerðu á vegum Guðfræðistofnunar Há- skóla íslands árið 1986. Niðurstöður birtust í ritröð Guðfræðistofnunar árið 1990. Ekki er ljóst út frá hverju í um- ræddri könnun Þorvaldur dregur þessa ályktun. Það verður líka að teljast hæpið að ályktun hans fái staðist. Ekki er spurt um afstöðu til markmiða og innihalds kristinfræði- kennslu samkvæmt Aðalnámskrá. Á hinn bóginn er spurt: „Hver er skoð- un þín á kristinfræðikennslu í grunn- skólum?" Athygli vekur að aðeins 3,6% töldu að hún ætti að vera minni en nú er, 34,9% að hún væri hæfíleg eins og hún er nú og 33,2% að hún mætti vera meiri. Allmargir vissu ekki hveiju þeir ættu að svara eða 23,7% (Björn Björnsson og Pétur Pétursson 1990, Trúarlíf íslendinga, Ritröð Guðfræðistofnunar nr. 3, bls. 84). Það eru því 68% sem telja að kristinfræðikennslan megi vera jafn- mikil eða meiri en nú er. Hitt er jafn- vel enn athyglisverðara hvernig fólk svaraði þegar það var beðið um að taka afstöðu til fullyrðingarinnar: „Kristin trú ætti að vera liður í upp- eldi bama á dagvistarstofnunum.“ 45„3% voru alveg sammála fullyrð- ingunni og 23,8% frekar sammála. Aðeins 4,2% lýstu sig frekar ósam- mála og 10% algerlega ósammála (Trúarlíf íslendinga, bls. 84). Nú segja þessar tölur ekkert um afstöðu til innihalds kristinfræði- kennslu í grunnskólum eða með hvaða hætti kristin trú ætti að vera liður í uppeldi barna á dagvistar- stofnunum. En þær gefa vísbendingu um vilja fólks og gera verður. ráð fyrir að flestir hafi í huga kristni í anda þjóðkirkjunnar eða almenn kristin grundvallargildi þótt ekki verði um það fullyrt. Afstaða kennara Þorvaldur telur ennfremur að hann geti ályktað um tak- markað fýlgi við kristin- fræðistefnuna út frá því að talsverður hluti kennarastéttarinnar hafi „naumast treyst sér til að kenna náms- efnið“. Það er ekki nýtt að skoðanir séu skiptar um námsefni. Ekki skal heldur dregið í efa að einhveijir kennarar treysti sér ekki til að kenna kristin fræði vegna skoðana sinna á kristinfræðistefnunni eða einfaldlega vegna eigin lífsskoðana. Hitt er augljóst að fleira kemur til, t.d. að sumir kennarar telja sig ekki hafa næga þekkingu eða forsendur til að kenna viðkvæmt fag eða að sumt af námsefninu, sem í boði hefur verið, geri til þeirra óraunhæfar guðfræðilegar eða kennslufræðilegar kröfur. Vissulega eru kennd kristin fræði við Kennaraháskóla íslands. Það er hins vegar afar misjafnt hve mikla fræðslu íslenskir kennarar hafa hlot- ið í þeirri grein. Og til að leiðrétta Þorvald skal bent á það að kristin fræði hafa síðustu árin nánast ein- göngu verið kennd sem valgrein við KHI og því ekki lengur rétt „að kenn- araefni fái dijúgan skammt af krist- infræði í Kennaraháskólanum". Á sama tíma hefur þeim fjölgað sem velja kristin fræði við KHI. Það verð- ur því að skoða fleira en meinta andúð á kristinfræðistefnunni þegar greina á stöðu kristinna fræða í grunnskólum á íslandi. Þá væri einn- ig fróðlegt að velta fyrir sér hvað lesa má út úr þeirri staðreynd að á síðustu árum hefur aðsókn kennara að fræðslufundum og endurmennt- unarnámskeiðum í kristnum fræðum stóraukist. Framhald síðar Hér hefur aðeins verið drepið á fáein atriði af því sem Þorvaldur Örn Ámason fjallar um í grein sinni. Hann ræðir um ýmislegt fleira, m.a. kristilega siðfræði og fræðslu um önnur trúarbrögð. Ætlun mín er að koma aðeins inn á þau efni í annarri grein sem mun birtast hér í Morgun- blaðinu á næstunni. Auk þess mun ég ræða spuminguna: Hvers konar kristinfræðikennslu viljum við í grunnskólum landsins? Höfundur er lektor í kristnum fræðum og trúarbragðasögu við Kennaraháskóla ísiands. Gunnar J. Gunnarsson BROXOFLEX -Mestseldu Áratuga reynsla á íslandi innandyra sem utan í skólum, íþróttahúsum, fyrirtækjum, stofnunum og heimilum. Broxoflex burstamott- urnareruþægilegarí meðförum, hægt að rúlla þeim upp. Broxoflex burstamotturnar eru ís- lensk framleiðsla. Þær hreinsa vel jafnt finmunstraða sem grófmunstr- aða skósóla. Broxoflex burtsamotturnar eru framleiddar með svörtum, rauðum, bláum, gulum eða grænum burstum í stærðum eftir óskum viðskiptavina. TÆKMIOEltO tXhfk Smiðshöfða 9 Sími 587 5699 132 Reykjavík Fax 567 4699 Aldingarðurinn Eden, forboðn- ir ávextir og Kynlegir dagar NÚ ÞEGAR blásið er t\\ Kynlegra daga SHÍ er alllangt um liðið síðan Adam og Eva lágu í makindum í ald- ingarðinum Eden og nörtuðu í forboðna ávexti af skilnings- trénu. Guð, sem hafði lagt blátt bann við öllu ávaxtanarti, brást reið- ur við þessu ístöðuleysi þeirra skötuhjúa, ásak- aði Evu fyrir að hafa freistað Adams og rak þau á brott úr garðin- um. Lögðu þau af stað í dögun og fylgdu þeim formælingar Drottins allsheijar. I bytjun september 1995 ákvað Guð að nú væri tími til kominn að endurráða Adam og Evu hjá Aldin- garðinum hf. En það hlutafélag starfrækir hann í samvinnu við Eim- skip, Flugleiðir, Hagkaup og Sjóvá- Almennar. Adam og Eva starfa þar hlið við hlið og ganga jafnt til allra verka. Þau eru með sömu menntun, svipaðar starfsskyldur og vinnutím- inn er jafn langur. Eini áþreifanlegi munurinn á störfum þeirra birtist fyrsta virka dag hvers mánaðar, en launaumslag Adams er að jafnaði 25% þykkara en launaumslag Evu. Þrætueplið í dag er ávöxtur mis- jafnrar stöðu kynjanna. Jafnrétti á ekki að vera umdeilanlegt heldur óumdeilt, Það hefur hins vegar háð jafnrétt- isumræðunni að hún hefur ekki náð út fyrir þrönga hópa og verið læst inni í fundargerð- um ríkisstyrktrar kvennahreyfingar sem eyðir öllu sínu púðri í að upplýsa þá sem eru upplýstir fyrir. Við erum enn að glíma við gömul viðhorf og gamla frasa. Jafnrétti kynj- anna ætti að vera sjálf- sagt mál, en þó veldur hugtakið ógleði hjá ákveðnum hópi manna og sú ógleði birtist í því að þeir skella skollaeyrum við frekari umræðu um vandamálið. Vandamál- ið liggur nefnilega í því að ríkjandi valdakynslóð samanstendur af mið- aldra karlmönnum sem hafa komið sér þægilega fyrir þjóðfélaginu og efast hvorki um eitt né neitt í heimi hér — ekkert sem er. Með nýrri kynslóð koma breyttar áherslur og vonandi lítum við bráð- um bjartari tíma. Ungt fólk í dag telur jafnrétti kynjanna vera sjálf- sögð mannréttindi. Það vill færa umræðuna um jafnréttismál út fyrir þann ramma sem einkaleyfishafar Launaumslag Adams er 25% þykkara en Evu, segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, sem minnir á Jafnréttisdaga Stúdentaráðs. hennar hafa smíðað henni hingað til. Jafnréttisumræðan getur nefni- lega verið skemmtileg. Það er ekki nauðsynlegt til að umræðan haldi virðingu sinni að hún fari fram á háalvarlegum nótum á ráðstefnum og öðrum hundleiðinlegum fundum fjarri skemmtana- og menningarlífí almennings. Stúdentaráð og kvennafulltrúi stúdenta standa í vikunni fyrir jafn- réttisdögum undir yfírskriftinni: Kynlegir dagar. Markmiðið er að hrista upp í umræðunni um jafnrétt- ismál með því að setja hana í nýtt samhengi, fá fram viðhorf ungs fólks og leita nýrra leiða. Þess vegna er dagskrá Kynlegra daga ekki bundin við fræðilega fundi formlegra nefnda heldur teygir sig allt frá mannrétt- indum til kynfæra mannskepnunnar. Höfundur er formaður hagsmuna nefndar SHÍ. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.