Morgunblaðið - 16.11.1995, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.11.1995, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1995 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Mennskur dráttarjálkur VERK eftir Iréne. „Síðasti íslendingnrinn". Æting og blönduð tækni. Bautasteinar Islands KVIKMYNPIR Regnboginn: Kvik- myndahátíð Rcgn- bogans og Ilvíta tjaidsins CYCLO ★ ★ >/j Leikstjóri og handritshöfundur Tran Anh Hung. Aðalleikendur Leung Chiu Wai, Tran Nu Yen-Khe. Víetnam/Frakkland 1995. BAKGRUNNUR Cyclo, nýjustu myndar víetnamska leikstjórans Tran Anh Hungs (Ilmurínn afgrænu papæja) er borgin sem kennd er við Ho Chi Minh, sem samkvæmt þess- ari nöturlegu lýsingu virðist sannar- lega borg án vonar. Aðalsöguhetjan er unglingur, „rickshaw“- drengur- inn, sem fetar í fótspor feðranna og harkar á leigukerru myrkranna á milli. Sjálfur leigir hann kerruna af Madam og lendir bláfátækur í stök- ustu vandræðum er hann verður að standa skil á andvirði kerrumnar þegar henni er stolið. Drengurinn, sem einnig þarf að sjá systrum sínum og afa farborða, sér ekki annað ráð út úr vandræðunum en að gerast félagi í glæpagengi hverfisins og þar með er hann kominn út á hálan is. Að lokum hyggur hann á hefndir. KVIKMYNDIR Rcgnboginn: Kvik- myndahátíö Rcgn- bogans og Hvíta tj ald sin s FRÚ PARKER OG VÍTA- HRINGURINN (MRS. PARKER AND THE VIC- IOUS CIRCLE) ★ ★ >/2 Leikstjóri og handritshöfundur Alan Rudolph. TónJist Mark Isham. Aðal- leikendur Jennifer Jason Leigh, Campbell Scott, Matthew Broderick, Stephen Baldwin, Peter Gailagher,, Andrew McCarthy, Gwyneth Paltr- ow, Martha Plimpton, Sam Robards, Lili Taylor. Bandarísk. Miramax 1995. HRINGBORÐIÐ fræga stendur enn á sínum stað á Hótel Algon- quin í New York. Minnismerki hressra, djarfra menningarvita og gáfumanna sem gerðu garðinn frægan á þriðja og fjórða áratugn- um. Fyrrir hópnum fór Dorothy Parker (Jennifer Jason Leigh), al- ræmd fyrir baneitruð tilsvör og Cyclo er ekki aðgengileg mynd en áleitin, hún víkur ekki glatt frá manni. Á köflum afar vel gerð og óþyrmileg, hamslaust ofbeldið og afbrigðilegt kynlíf kemur nokkuð á óvart, en hafa ber í huga að Víetnam er stríðshijáð land sem í áratugi var meira og minna hersetið, saga þess blóði drifín, sterk hefð fyrir miskunn- arleysi og þeirri fádæma grimmd sem einkennir asíska stríðs- og glæpa- menn. Þá hefur þessi limlesta þjóð — og land — ekki braggast undir kommúnistum, frekar en aðrar. Framan af er framvindan með hefð- bundnum hætti, þá er myndin hnit- miðaðri en síðari hlutinn býr þó yfir áhrifaríkustu atriðunum. Hér er fyrst og fremst fjallað um váleg örlög lítil- magna sem fær engu ráðið um at- burðarásina, heldur verður að kyngja því sem að honum er rétt í umhverfí sem lýtur lögmáli frumskógarins. Nauðugur viljugur á hann engra kosta völ, er ósköp lítill leiksoppur kvalara sinna. Hliðarsaga af systur hans sem er tæld út í vændi af mann- inum sem hún elskar verður aldrei jafn áhugaverð og raunir kerrustjór- ans. Sem í lokin, líkt og þjóðin hans, eygir þó örlítinn vonameista. Þessi framandi mynd vann á dögunum aðalverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. fljúgandi orðsnilli sem naut sín í bókmennta- og leikhúsgagnrýni, Ijóðagerð og kvikmyndahandritun (_m.a. A JStar is born, sem hlaut Oskarsverðlaunatilnefningu á sín- um tíma). Þessi áhrifa- og fyrirferð- armikli hópur taldi m.a. háðfuglinn og gagnrýnandann Robert Benc- hley og leikritaskáldið George S. Kaufman, auk margra annarra sem áttu eftir að setja mark sitt á samt- íðina og víst er að andi hópsins lif- ir enn. Ekki aðeins umhverfís hring- borðið fræga heldur í bandarísku menningarlífi. Parker var fyrsti kvengagnrýnandi New York-borgar sem tekið var mark á og virtur að verðleikum. Stjama hennar reis hæst á fjórða og fímmta áratugnum en þrátt fyrir velgengni í starfí og IRÉNE Jensen grafíklistakona opnar sýningu í Gallerí Úmbru, Ajntmannsstíg 1, í dag, fimmtu- dag, kl. 17. Iréne stundaði mynd- listarnám í Stokkhólmi 1976-1977 og í Myndlista- og handíðaskóla íslands 1990-1994 og útskrifaðist úr grafíkdeild. Iréne hefur áður haldið einka- sýningar á Sauðárkróki og í Stokkhólmi, samsýningu í Boston á vegum School of The Museum of Fine Arts og í Hafnarborg 1995. Myndimar eru unnar í kopar- skáldskap var einkalífið oftast í molum, hún lést einmanna, lífs- þreytt og drykkjusjúk. Leikstjórinn og handritshöfund- urinn Alan Rudolph er metnaðar- fullur maður þó honum hafi ekki enn tekist að fullvissa kvikmynda- húsgesti og gagnrýnendur um ágæti sitt. Hann er laghentur fag- maður sem fær hrós fyrir að velja sér gjarnan ótroðnar slóðir, vinnu- brögðin draga óneitanlega dám af lærimeistara hans, Robert Altman. Viðfangsefnin eru gjarnan lista- menn og umhverfi þeirra, minnir Mrs Parker ... mjög 'á The Mod- erns, mynd sem hann gerði fyrir fáeinum árum um listamannaný- lenduna í París á þriðja áratugnum. Aftur erum við stödd á „djassárun- ætingu og blandaðri tækni. Heiti sýningarinnar er Bautasteinar fs- lands fyrr og nú, og er persónuleg hugleiðing um sögu og menningu íslands, segir í kynningu. Iréne hefur verið búsett á ís- landi síðan 1988 og er meðlimur myndlistarhópsins Áfram veginn, sem rekur grafíkverkstæði i Þing- holtsstræti 5. Sýningin, sem stendur til 6. desember, er opin þriðjudaga til laugardaga kl. 13-18, sunnudaga kl. 14-18 og lokað á mánudögum. um“ frægu, sú endursköpun er óað- fínnanleg hvað snetir útlitið og tón- listina og textinn er hnyttin, mörg samtölin og tilsvörin skörp og hæð- in — líkt og efni standa til þegar frú Parker er annars vegar. Leik- hópurinn er stór og að hætti Rud- olphs gefur að líta urmul miðlungs- leikara sem eru alltaf við það að verða frægir. Stóra spurningar- merkið er Jennifer Jason Leigh í titilhlutverkinu. Hún sýnir á sér nýjar hliðar og engin spurning að hér fer ágætis Ieikkona. Hvort hún er best fallin í hlutverk Parker er annað mál. Notar heldur þreytandi raddbeitingu í fangbrögðum sínum við skáldkonuna og svo mikið er víst að hún er alltof ung fyrir hlut- verkið, sem roskin, tannhvöss fylli- bytta fær hún gula spjaldið. Camp- bell Scott er hinsvegar trúverðugur Benchley og Matthew Broderick fer vel að vanda með sitt. Vandvirknis- leg en nokkuð yfírborðskennd mynd, forvitnileg þeim fyrst og fremst sem hafa áhuga fyrir bók- menntahræringum millistríðsár- anna í Vesturheimi. Sæbjörn Valdimarsson Skoðunar- ferð um Reykjavík SKOÐUNARFERÐ um Reykjavík í tengslum við yfír- litssýningu á verkum Einars Sveinssonar arkitekts og húsa- meistara á Kjarvalsstöðum er áformuð laugardaginn 18. november næstkomandi. Skoðuð verða áhrif Einars á ásýnd bæjarins og tvær af byggingum hans heimsóttar. Leiðsögumaður verður Pétur Ármannsson, arkitekt og safn- vörður byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum. Lagt verður af stað frá Kjarvalsstöðum kl. 14 og kom- ið til baka kl. 16. Hámarks- fjöldi er 30 manns. Þátttaka tilkynnist fyrirfram í af- greiðslu Kjarvalsstaða. Þátttökugjald er kr. 300, og er innifalið í því skoðunar- ferðin og aðgangseyrir inn á sýningar Kjarvalsstaða. Jörgen rakari kvikmynduð SMÁSAGAN Jörgen rakari eftir Ásgeir Hvítaskáld sem birtist í Lesbók Morgunblaðs- ins í vor hef- ur verið kvikmynduð í Danmörku þar sem höf- undurinn er búsettur. Búið er að klippa myndina og verið er að semja tónlist við hana. Hún verður tilbúin til sýninga í næsta mánuði. Ásgeir Þórhallsson sem kall- ar sig Hvítaskáld hefur tekið upp höfundarnafnið Asger Thor. Det danske Video- værksted í Haderslev sem heyrir undir dönsku Kvik- myndastofnunina hefur lagt fram 130.000 danskar krónur til verkefnisins. Ungir kvikmyndagerðar- menn hafa unnið við gerð myndarinnar og fara sjálfir með hlutverkin. Framundan er kynningarstarf sem miðast helst að því að koma Jörgen rakara á framfæri við sjón- varpsstöðvar. Kvikmynda- jiátíð á ísafirði í TILEFNI 100 ára afmælis kvikmyndarinnar hefur Kvik- myndasafn íslands og Kvik- myndasjóður skipulagt sýn- ingahald víðsvegar um landið. Á Isafírði eru myndirnar sýnd- ar í samvinnu við Isafjarðarbíó og Menningarmiðstöðina í Ed- inborg. Sýndar verða ýmsar gamlar myndir frá Isafirði, sem varð- veittar eru í Kvikmyndasafni íslands, meðal annars mynd sem Marthinus Simson tók árið 1923. Aðrar myndir sem sýndar verða á hátíðinni eru: 79 af stöðinni, Hadda Padda, mynd frá lýðveldishátíðinni 1944 og Pappírs Pési. Hátíðin hefst í Ísafjarðarbíói laugardaginn 18. nóvember kl. 16. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Dagskráin verður nánar kynnt í svæðisútvarpi og götu- auglýsingum. Sæbjörn Valdimarsson Vel heppnað styrktarátak Operunnar UNDANFARNAR vikur hefur Styrktarfélag íslensku óperunnar staðið fyrir viðamiklu starfí til söfnunar nýrra styrktarfélaga. Átakið gekk vonum framar, um 600 nýir félagar bættust í hópinn og er þá heildarfjöldi styrktarfé- laga íslensku óperunnar á fjór- tánda hundrað, samkvæmt frétt frá Óperunni. Styrktarfélagsgjald- ið er 3.000 krónur en fyrsta árið var greiðslukorthöfum boðinn 250 króna afsláttur. í inngöngutilboði nýrra styrktarfélaga felast tveir frímiðar á Carmina Burana, tveir frímiðar á sérstaka jólatónleika kórs og einsöngvara íslensku óper- unnar í desember og tveir frímiðar á einhveija af fímm tónleikum Styrktarfélagsins í vetur. Auk þess stendur til að gefa út geislaplötu með Kór Islensku óperunnar og verður hann sendur nýjum félögum í vetur. Styrktarfélagið hefur staðið fyr- ir ýmiss konar útgáfustarfsemi, Óperublaðið kemur reglulega út og er sent öllum félagsmönnum og einnig hafa verið gefín út tvö myndbönd, Don Giovanni og Æv- intýri Hoffmans, sem nýjum styrktarfélögum bjóðast nú á hálf- virði, eða á 1.000 krónur. Styrktar- félagar njóta ennfremur forkaugs- réttar á allar óperusýningar fs- lensku óperunar og afsláttar á alla tónleika Styrktarfélagsins. Þess má svo geta að nær öllu styrktarfé er varið til viðhalds og endurnýjun- ar á húsnæði íslensku óperunnar. Stórriddari hringborðsins Ásgeir Hvítaskáld
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.