Morgunblaðið - 16.11.1995, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 16.11.1995, Blaðsíða 49
MORGÚNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1995 49 BRIPS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Philip Morris landstvímenningnrinn FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 17. nóv- ember verður árlegur Philip Morris Lands- og Evróputvímenningur spilaður. Sömu spil eru spiluð um alla Evrópu og árangur allra sem taka þátt reiknaður saman. Keppnin er reyndar 3 keppnir í einni, spilað er um bronsstig (tvöfaldan skammt) í félögunum og þar fá efstu keppend- ur verðlaunaskjöl og penna, á lands- vísu er keppt um gullstig og fá 6 efstu pör í N/S og 6 efstu pör í A/V gullstig. Svo eru allir með í Evrópu- kepjini. A íslandi verður spilað á 14 stöð- um á landsbyggðinni og í Þöngla- bakka 1 þar sem tekið verður við skráningu uns húsfyllir verður en það er einmitt um þessa helgi sem ár er liðið síðan húsnæðið við Þönglabakka var tekið í notkun og þá komust færri að en vildu í Philip Morris landstvímenninginn. Spilarar eru hvattir til að frjölmenna og halda upp á árs afmæli hins glæsilega hús- næðis okkar. Skráning er á skrif- stofu Bridssambands Islands í síma 587-9360 og svo verður hægt að láta skrá sig á staðnum meðan hús- rúm leyfir. Keppnin byijar kl. 19.30. Stofnanakeppnin 1995 Skráning í Stofnanakeppnina stendur nú yfir en hún verður spiluð helgina 18.-19. nóvember. Spilaður er Barómeter-tvímenningur og í þessari keppni verða spilararnir að vinna eða eiga í því fyrirtæki eða stofnun sem þeir keppa fyrir. Þetta er í fyrsta sinn sem spilaður er tví- menningur i þessari keppni og von- andi verða nú öll litlu fyrirtækin með sem ekki áttu spilara í heila sveit. Keppnisstjóri verður Sveinn R. Ei- ríksson og keppnisgjald er 10.000 kr. fyrir par. Skráning verður út fimmtudaginn 16. nóvember á skrif- stofu Bridssambands íslands í síma 587-9360. Bridsfélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 13. nóvember var síð- asta spilakvöld af 4 í Minningarmóti félagsins um Kristmund Þorsteinsson og Þórarin Andrewsson. Öruggir sig- urvegarar voru Sigurður B. Þor- steinsson og Helgi Jónsson með 1.327 stig. Þeir höfðu forystu frá 1. spilakvöldi og létu hana aldrei af hendi heldur juku alltaf við forskot- ið. Lokastaða efstu para var: Sigurður B. Þorsteinsson — Helgi Jónsson 1327 Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir Ásbjömsson 1242 Halldór Einarsson - Gunnlaugur Óskarsson 1222 Friðþjófur Einarsson -'Guðb. Sigurbergssön 1214 Böðvar Magnússon - Júlíus Snorrason 1177 Andrés Þórarinsson - Halldór Þórólfsson 1154 JónGíslason-Ingvarlngvarsson 1148 Meðalskor var 1080. Besta skori kvöldsins náðu: NS: Sigurður B. Þorsteinsson - Helgi Jónsson 333 Andrés Þórarinsson - Halldór Þórólfsson 327 Halldór Einarsson - Gunnlaugur Óskarsson 305 AV: Guðrún Jóhannesdóttir—Jón HersirElíasson 311 DröfnGuðmundsdóttir-ÁsgeirÁsbjömsson 309 Hjálmar S. Pálsson - Helgi Hermannsson 301 Meðalskor var 270. Næsta keppni félagsins er Aðal- sveitakeppni. Spilaðir verða 16 spila leikir, allir við alla. Tekið er við skrán- ingu hjá Ársæli Vignissyni í síma 554-2209. Spilað er á mánudags- kvöldum í félagsálmu Haukahússins með innkeyrslu frá Flatahrauni. Spilamennska byrjar kl. 19.30. Lands- og Evróputvímenn- ingurinn nk. föstudagskvöld Bridsfélag Suðurnesja og Muninn í Sandgerði standa saman að spila- mennsku í landstvímenningnum nk. föstudagskvöld í Hótel Kristínu klukkan 20. Sveit Arnórs Ragnarssonar hefir forystu í JGP-minningarmótinu sem er 9 umferða sveitakeppni með 14 spilum milli sveita. Staðan er nú þessi: Arnór Ragnarsson 124 GuðfínnurKE 115 Birkir Jónsson 98 Garðar Garðarsson 90 Svala K. Pálsdóttir 87 Þremur umferðum er ólokið og verða tvær spilaðar nk. mánudags- kvöld. Spilað er í Hótel Kristínu kl. 19.45. Hnetu/ávaxta- kökur Matur og matgerd Hnetur sem við kaupum núna eiga að vera upp á sitt besta, segir Kristín Gests- dóttir, sem fræðir okkur um pecan- og valhnetur og gefur okkur uppskriftir af gómsætum hnetu/ávaxtabökum. VALHNETUTREÐ getur orðið 30 m hátt og hefur gríðarmikla vellagaða krónu. Það er uppr- unnið í Litlu- Asíu og barst til Rómar frá Grikkjum um 100 árum f.Kr. Rómverskir herir fluttu fræið síðan með sér til Frakklands og Englands. Þegar búið er að bijóta skelina utan af hnetukjarnanum líkist hann mannsheila en á Miðöldum trúðu menn því að kjarninn gæti lækn- að sálrænar truflanir. Sjálft hnotutréð er svo notað í fínustu húsgögn. Georg Washington fyrsti forseti Bandaríkjanna plantaði pecantré við heimili sitt að Mount Vernon í Virginíu fyrir um 200 árum. Það tré er núna 39 m hátt, en pecantré geta orðið 50 m há og vaxa allt frá Iowa suður til Texas og Mexíkó. Nú er far- ið að flytja hingað hina amerísku pecanhnetu, sem oft er kölluð systir valhnetunnar, sem allir þekkja. Hér eru 2 upp- skriftir: Sú fyrri er af pecan/epla- böku, en hin síðari af valhnetu/peru- böku. Berið ís eða þeyttan rjóma með. Hægt er að baka báðar bökurnar í einu og er gert ráð fyrir því hér. Byijið á að smyija 2 bökuform, 25-30 cm í þvermál. Fyrri botninn (epla/pecanbakan) _________3 dl hveiti,______ 'h dl hafragijón ______2 msk. púðursykur____ _________V2 tsk. kanill____ 150 gsmjör ________1 msk. kalt vatn___ Blandið öllu saman og þrýstið á botninn og upp með börmunum á bökumótinu. Síðari botninn (peru/valhnetubakan) 3 dl hveiti 1 dl sykur _________lOOgsmjör_________ ____________legg __________ Blandið öliu saman og þrýstið á botninn og upp með börmunum á bökumótinu. Hitið bakaraofn í 190°C, blást- ursofn í 180°C, setjið í miðjan ofn- inn og bakið í 15 mínútur. Fylling á epla/ pecanhnetubotninn __________5 græn epli 'h dl sykur 1 tsk, kanill 1 msk. hveiti 1 'h dl hveiti til viðbótar 1 dl hafragijón _________1 dl púðursykur________ 75 gsmjör 100 g gróft malaðar pecanhnetur 1 msk. hunang 15-20 pecanhnetukjarnar 1. Afhýðið eplin og stingið úr þeim kjarnann, skerið í þunnar sneiðar. Blandið saman 1 msk. af hveiti, kanil og sykri, veltið eplabit- unum upp úr því og leggið jafnt á bökubotninn. 2. Blandið saman IV2 dl af hveiti, hafragijónum, púðursykri, smjöri og gróft möluðum pecan- hnetum. Þetta verður kornótt deig. Dreifið því yfir eplin og þrýstið örlitið niður. Bakið við 190°C, blástursofn 180°C í 45 mínútur. Takið þá úr ofninum, hitið hunang- ið t.d. í örbylgjuofni og ausið yfir bökuna með skeið. Raðið pecan- hnetukjörnunum fallega ofan á og bakið áfram í 10 mínútur. Fylling á peru/ valhnetubotninn 6 perur safi úr 'h sítrónu ______'h dl sykur á perurnar___ IV2 dl sykur til viðbótar 'h dl ijómi _______150 g gróft brytj aðir ______ valhnetukjarnar________ _____________2egg_____________ 1 msk. hveiti 10-15 yalhnetukjarnar 1. Afhýðið perurnar og takið úr þeim kjarnann, skerið síðan í sneið- ar. 2. Blandið saman sítrónusafa og 'h dl af sykri og veltið perunum upp úr því. Leggið ofan á bökubotn- inn. 3. Setjið U/2 dl af sykri í lítinn pott og brúnið örlítið, hrærið í með gaffli. Setjið rjóma varlega út í og látið jafnast vel, bætið þá gróft möluðum valhnetukjörnum út í, lát- ið sjóða við mjög hægan hita í 2 mínútur. Gætið þess að þetta brenni ekki. Kælið örlítið og hrærið í með gafflinum. Setjið hveiti og egg út í og hrærið saman. Hellið yfir per- urnar á bökubotninum. 4. Hitið bakaraofn í 190°C, blástursofn í 180°C. Setjið bökuna í miðjan ofninn og bakið í 45 mínút- ur. Takið þá úr ofninum og raðið valhnetukjörnum á brúnina, bakið síðan áfram í 10 mínútur. AFMÆLI JÓN KRISTINSSON ALLTAF finnst mér eins og sumir menn geti ekki orðið gamlir (öllu heldur gamallegir) og hrörlegir. Ekki til að mynda hann Jóndi ' frændi (af Mýrarhúsa- ætt að sunnan), sem á það til að vera botnlaus í dugnaði, enda hefur hann afkastað miklu um ævina — þessi líf- snautnamaður og heimsmaður út í fingur- góma — með þetta rauða írska hár sitt, sem nú er hélað orðið og kominn snjór í eins og í Kinnar- fjöll beint á móti Húsavík, þar sem afmælisbarnið fæddist fyrir 70 árum og ólst upp í gamal-íslenzkum anda, sem sé einkaframtaki, en þess hátt- ar einkennir Mýrarhúsafólk. Jóndi — alias Jón Kristinsson bóndi í Lambey í Fljótshlíð, Rang., er skólasystkinum í gamla MA minn- isstæður, þegar hann var í herbergi með Benna Tor (Benedikt aristókrat Thorarensen framkvæmdastjóra í Þorlákshöfn), einkum þegar þeir vin- irnir og herbergisfélagarnir tóku stundum á rás óg þeystu niður í bæ eins og ungir hestar í leit. Hvers konar leit? í leit að meiri gleði... lífsgleði. Leikurinn barst þá stundum á Oddeyrina, sem jafnan var dular- full og er enn. Ekki orð um það meira. Jón var alltaf hress — aldrei öðru vísi — en ljúfur einsog sumir af ættinni, einsog t.d. amma hans hún Guðríður, kona síra Jóns Arasonar Húsavíkurgrests. Guðríður var systir Þórunnar Olafsdóttur úr Mýrarhús- um á Seltjarnarnesi, konu síra Olafs Finnssonar móðurafa greinarhöf- undar. Sá, er þetta ritar, telur sér til tekna að vera þremenningur við afmælisbarnið, sem er ekkert venju- legur maður. Hann Jóndi frændi er einn þeirra manna, sem gefa af sjálfum sér og það mikið. Hann er eðliskurteis og háttvís, en beitir hins vegar stríðni faglega á stundum. Hann er skop- teiknari með kímnikennd. Og eins og fyrr segir er hann lífsnautnamað- ur gæddur orku til margra hluta meðal annars til myndlistar og lista- mennsku. Hann er ótilbúinn lista- maður — málar og teiknar jöfnum höndum, hefur haldið sýningar sem hafa gengið vel. Hann er teiknari af guðs náð. Reyndi á það, þegar hann árum eða jafnvel áratugum saman fékkst við auglýsinga- teiknun. Hann teiknaði Rafskinnu, sem var nýjung í auglýsinga- tækni. Hann var eins konar hirðteiknari hjá Grétari Sím, mjólkur- bússtjóra MF á Sel- fossi. Teiknaði Jóndi löngum umbúðir fyrir mjólkurafurðir Mjólk- urbús Flóamanna, oft af hugmyndaflugi. Hann er skemmtilega líkur Kristni Jónssyni, kaupmanni, föður sínum. Yngri bróður hans, Páli heitnum Þór, sem var bæjarstjóri á Húsavík um skeið (náttúrlega, fyrir sjálfstæðið) svipaði og til Kristins, föður hans, systra- barni við móður mína, Halldóru Ól- afsdóttur. Kristinn var kaupmaður og maður af gamla skólanum — öll- um minnisstæður vegna lífsstíls — stórbrotinn höfðingi. Páll Þór var leikari af guðs náð, eftirherma og bráðskemmtilegur. Hann á afkom- endur. Jóndi er kvæntur stólpa- myndarlegri konu, Ragnheiði Svein- björnsdóttur, dóttur þess merka klerks og lærdómsmanns síra Svein- bjarnar Högnasonar (fáir á íslandi hafa verið jafn klassísk menntaðir eins og síra Sveinbjörn). Jóndi og kona hans eiga nokkur glæsileg börn. Auk þess átti hann son áður en hann festi ráð sitt, Gunnar Rafn, skurðlækni og yfirlækni á Húsavík. Móðir hans, Inga Gunnarsdóttir, kennd við Þverárdal í A-Hún., var um skeið hótelstýra við Hótel KEA með myndarbrag. Það klæðir Jónda og hans fólk að sjtja mikinn garð — sem er Lamb- ey í Fljótshlíð. Þar eru víðar lendur og þar er sú fagra hlíð, Fljótshlíðin, sem marga heillar og hefur heillað, sbr. Gunnar á Hlíðarenda. Gest- kvæmt er jafnan í Lambey. Jón er ættrækinn eins og hans ættmenn. I dag verður magnaður hlýhugur sendur hvaðanæva að til Jónda, hvar sem hann verður staddur, þessi úr- valsmaður, sem alltaf er til góðs. Guð blessi þig frændi og vinur og kollega. P.t. Húsavík við Skjálfanda, Steingrímur St. Th. Sigurðsson. MATTHÍAS GUÐMUNDS SON MATTHÍAS Guð- mundsson húsasmíða- meistari, Hringbraút 104, Keflavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Matthías fæddist í Reykjavík en ólst upp í Vestmannaeyjum. Hann lærði húsasmíði hjá Óskari Kristjáns- syni á Brautarhóli í Ytri-Njarðvík 1955- 1959, stundaði nám við Iðnskólann í Keflavík en sveinsprófi lauk hann 1961. Matthías var við húsbyggingar í sveitum til 1947, þar sem hann byggði m.a. hús á Kirkjubóli í Stað- arsveit 1946, á Akranesi hjá Jóni Guðmundssyni 1947-1951 og stund- aði smíðavinnu í Hvalstöðinni i Hval- firði og starfaði síðan við vinnslu þar til 1953. Hann starfaði á Kefla- víkurflugvelli 1953-1955 þar sem hann vann við pípulagnir hjá varn- arliðinu og vann síðan við bygging- arvinnu í Keflavík og nágrenni. Hann var verkstjóri hjá bygginga- verktökum síðan 1957 en er hættur störfum. Matthías hefur setið í stjórn Verkstjórafélags Suðurnesja og sat í stjórn Iðnaðarmannafélags Suður- nesja 1966-1968. Hann var vara- maður í prófnefnd húsasmiða og hefur setið í fasteignamatsnefnd. Matthías kvæntist 6. október 1956 Friðbjörgu Ólínu Kristjánsdótt- ur, f. 8. júní 1928, dóttur Kristjáns Jónssonar skósmiðs, sem lést 1970, og konu hans Jóneyjar Jóns- dóttur, sem lést 1994. Börn Matthíasar og Friðbjargar eru Sigurð- ur Sævar og Hafdís. Hafdís er gift Sigbirni Ingimundarsyni og eiga þau þrjú börn, Ingi- björgu, f. 17.9. 1977, Matthías, f. 14.6. 1984 og Pétur Inga, f. 17.9. 1986. Ingibjörg á eitt bam, Sigbjörn Helga, f. 14.9 1995. Albræður Matthías- ar voru Asþór, f. 20.3. 1918, d. í nóvember 1985, og Kristján Rós- berg, f. 17.9. 1919, d. 24.7. 1975. Auk þess átti Matthías fimm hálf- systkini samfeðra. Foreldrar Matthíasar: Guðmundur Jónsson frá Heiðarbóli í Þingvalla- sveit, f. að Ártúni við Elliðaár 11.4. 1876, d. 31.10. 1958, pg kona hans, Guðríður Þórunn Ásgrímsdóttir, ættuð úr Árnessýslu, f. 26.9. 1880, d. 11.5. 1954. Föðurforeldrar Matt- híasar voru Jón Jónsson úr Húna- vatnssýslu og Guðlaug Tómasdóttir frá Kárastöðum í Þingvallasveit. Móðurforeldrar Matthíasar voru Ás- grímur Guðmundsson frá Reykjum í Ölfusi og Þórunn Guðmundsdóttir, sem var ættuð af Suðurnesjum. Matthías verður að heiman á af- mælisdaginn. Hafdís.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.