Morgunblaðið - 16.11.1995, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.11.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1995 19 Erlendir eftirlitsmenn gagnrýna kosningar í Azerbajdzhan Flokkar bannaðir og logið um kjörsókn Bakú. Reuter. Norskt laxeldi Kærir ESB und- irboð? Ósló. Morgunblaðið. FULLTRÚAR fyrirtækja í norsku og skosku laxeldi munu ásamt embættismönn- um ríkjanna eiga fund í dag til að ræða offramleiðslu Norðmanna á eldislaxi. Norð- menn óttast að Evrópusam- bandið, ESB, muni senn bera fram kæru vegna meintra undirboða norskra framleið- enda. Lágt verð á norskum eldis- laxi á Evrópumarkaði verður aðalefni fundarins sem verður í Osló. Skotar saka norsku fyrirtækin um að beita undir- boðum, að sögn NTB. Jan Henry T. Olsen, sjávar- útvegsráðherra Noregs, ræddi við talsmenn helstu samtaka í norsku laxeldi á mánudag og segist hann telja að þeir skilji alvöru málsins. „Það er hlutverk atvinnu- greinarinnar að sjá til þess að magnið hæfi markaðnum á hveijum tíma,“ sagði ráð- herrann. KOSIÐ var til þings í Azerbajdzhan á sunnudag og er talið fullvíst að flokkur Haydars Alíjevs forseta, Nýja Azerbajdzhan, fái hreinan meirihluta. Eftirlitsmenn frá Evr- ópuráðinu eru óánægðir með margt í framkvæmd kosninganna og sama er að segja um fulltrúa breska Helsinki-mannréttinda- hópsins, Mark Almond. Ekki hefur enn verið skýrt frá neinum niðurstöðum en fullyrt að kjörsókn hafi verið um 80%. Eftir- litsmennirnir voru á því að raun- verulegt hlutfall hefði verið mun lægra. „Kosningarnar fóru friðsamlega fram en það var nokkuð um að reglum væri ekki framfylgt og dæmi voru um augljós svik,“ sagði Jacques Baumel, fulltrúi Evrópu- ráðsins. Hann sagði að Azerbajdz- han gæti ekki kallast raunverulegt lýðræðisríki enn þá en kosningarn- ar væru skref í rétta átt. Gagnrýnt hefur verið að ýmsir flokkar og einstaklingar stjórnar- andstöðunnar voru bannaðir fyrir kosningarnar og ríkisfjölmiðlar voru misnotaðir í þágu stjómar- flokksins. Fulltrúum andstöðu- flokka var meinað að heimsækja kjörstaði eftir að talning hófst, í nokkrum tilvikum var ráðist á þá og þeir færðir burt með lögreglu- valdi. Sums staðar fékk fólk að greiða atkvæði fyrir ættingja sína, emb- ættismenn ráku fólk eins og fénað til að kjósa stjórnarflokkinn og víða voru margir í einu í kjörklef- anum, sumir greiddu nokkrum sinnum atkvæði. Á nokkrum kjör- stöðum fóru embættismenn af stað eftir að kjörfundi lauk og gengu hús úr húsi með kjörkassana til að reyna að auka þátttökuna. „Ótrúlega ósvífnir" Helmingur kjósenda þurfti að mæta á kjörstað til að kosningarn- ar væru löglegar samkvæmt stjórnarskrá. Fulltrúi Helsinki- hópsins var hvassyrtur. „Þessar kosningar voru ekki lögmætar og með þeim er stigið skref aftur á bak í þróun lýðræðis í Azerbajdz- han,“ sagði Mark Almond. Hann sagðist hafa heimsótt kjörstaði og séð embættismenn stinga í augsýn allra „bunkum“ af kjörseðlum í kassana til að falsa kjörsóknartölur. „Þeir voru ótrú- lega ósvífnir í svindlinu. Þeir föls- uðu kosningatölur með því að úr- skurða atkvæði stjórnarandstöð- unnar ógild.“ Azerar eru margir orðnir þreytt- ir á fátækt og ringulreið sem m.a. á rætur að rekja til átaka við Armeníu vegna hins umdeilda hér- aðs, Nagorno-Karabak en þau hafa að mestu fjarað út að undanförnu vegna sigra Armena. Miklar olíulindir eru í Azerbajdz- han og við strendur þess, nýlega var gerður mikill samningur við nokkur erlend olíufélög um vinnsl- una og haldist friður getur efna- hagur landsmanna skjótt vænkast. Er ljóst að margir kusu stjórnar- flokkinn í von um að stöðugleika verði komið á. Enn beðið eftir lokaniðurstöðum þingkosninga í Georgíu loseliani handtekinn Tbilisi. Reuter. LÖGREGLAN í Georgíu handtók í gær Jaba Ioseliani, sem var áður leiðtogi vopnaðra samtaka, Hestlið- anna, og einn af andstæðingum Eduards Shevardnadze forseta á þingi. Ioseliani mun samkvæmt bráðbirgðatölum hafa misst þing- sæti sitt í kosningunum 5. nóvem- ber en kjörnefnd sagði að hann ætti að njóta þinghelgi fram til 24. nóvember, þá er búist við að niður- stöður kosninganna verði birtar. Shevardnadze vann yfírburðasig- ur í forsetakjöri í síðustu viku. Ekki var ljóst í gær hvað Ioseliani yrði sakaður um en gefin var út handtökuskipun á hann daginn eft- ir að reynt var að ráða She- vardnadze af dög- um í lok ágúst. Fjöldi stuðnings- manna Ioselianis var handtekinn eftir tilræðið og í október leysti for- setinn upp ný samtök sem Iosel- iani stofnaði eftir að hann hafði leyst Hestliðana upp. Georgíumenn töldu flestir að Hestliðarnir tengdust glæpaflokk- um. Ioseliani hefur vísað ásökunum um aðild að morðtilræðinu á bug. Hann segir ennfremur að handtök- urnar á sínum mönnum vegna meintrar. aðildar að fíkniefnaglæp- um og morðum hafi verið af póli- tískum ástæðum. Fulltrúi kjörnefndar sagði í gær að láta ætti Ioseliani lausan þegar í stað en talsmaður ríkissaksóknara sagði að slíka ákvörðun gæti aðeins saksóknari sjálfur tekið. Ioseliani er 68 ára gamall, var prófessor i leikhúsfræðum og af- plánaði eitt sinn dóm vegna vopn- aðs ráns. Hann tók þátt í að velta Zviad Gamsakhurdia, fyrsta lýð- ræðislega kjörna forseta Georgíu, úr sessi 1992 og koma þannig She- vardnadze til valda en síðar skildu leiðir með þeim. Reuter Þröng á þingi LÖGREGLUMENN í Nice fylgj- ast með þúsundum alsirskra borgara sem hugðust kjósa for- seta utan kjörstaða á ræðis- mannskrifstofu Alsírmanna í borginni í gær. Vegna mikillar þátttöku var atkvæðagreiðslan í Nice framlengd um einn dag. Gríðarleg sprenging heyrðist í Algeirsborg í gær en ekki var vitað hvað gerðist, sennilegt talið að atburðurinn hefði orðið einhvers staðar skammt frá borginni. Tugþúsundir manna hafa fallið i innanlandsátökum í landinu undanfarin ár milli stjórnvalda og bókstafstrúar- manna inúslima. Jaba Ioseliani Forseta- kjor í Rússlandi 16.júní EFRI deild rússneska þingsins ákvað í gær að forsetakjör yrði í landinu 16. júní á næsta ári. Kjörtímabil Borís Jeltsíns for- seta rennur út 12. júní og hvatti hann til þess fyrr í vik- unni að kjördagur yrði ákveð- inn strax til að eyða óvissu. Forsetinn, sem enn er á sjúkra- húsi vegna hjartaáfalls, hefur ekki enn skýrt frá því hvort hann muni sækjast eftir endur- kjöri. Hann hitti ívan Rybkín, forseta neðri deildarinnar, að máli í gær og sagði þá að þing- kosningar yrðu að fara fram 17. desember, eins og ákveðið hefur verið. Kohl sakaður um undir- lægjuhátt HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands, er nú í opinberri heimsókn í Kína og hafa þýsk- ir fjölmiðlar sakað hann um undirlægjuhátt gagnvart gestgjöfunum með það að markmiði að tryggja þýska við- skiptahagsmuni. Einkum var gagnrýnt að hann skyldi vera viðstaddur heræfingar. „Var raunverulega nauðsyn- legt að Kohl yrði fyrsti vest- ræni leiðtoginn sem heimsækti úrvalsdeild kínverska hersins eftir atburðina á Torgi hins himneska friðar?“ spurði Siiddeutsche Zeitung. Austur- Timorar til Portúgal RÚMLEGA tveir tugir Austur- Timora, sem leitað höfðu skjóls í japanska sendiráðinu í Ja- karta, höfuðborg Indónesíu og beðið um pólitískt hæli í Japan, fóru í gær með flugvél áleiðis til Portúgal. Stjórnvöld í Japan neituðu að taka við mönnun- um. Indónesía lagði Austur- Timor, sem var portúgölsk nýlenda, undir sig á áttunda áratugnum. Enn leitað í Nepal BJÖRGUNARSVEITIR í Nep- al fundu í gær 56 fjallgöngu- menn, þ. á m. 28 innfædda, sem lent höfðu í vanda vegna fannkyngis og snjóflóða. Vitað er með vissu að 50 létu lífið í snjóflóðunum en embættis- menn sögðu ólíklegt að fleiri hefðu farist. Búið væri að bjarga nær 500 manns. Auknar líkur á kosningum ÍTALSKIR fjölmiðlar töldu í gær að líkur hefðu aukist á því að efnt yrði til kosninga snemma á næsta ári. Er ástæð- an sú að fulltrúum flokkanna mistókst á þriðjudagskvöld að ná samkomulagi um reglur til að tryggja öllum jafnan rétt til aðgangs að sjónvarpi. Er ólíklegt að helstu flokkar semji um það fyrir kosningar að koma á ýmsum stjórnkerfis- umbótum er gætu orðið til að fresta kosningum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.