Morgunblaðið - 16.11.1995, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 16.11.1995, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1995 17 NEYTENDUR Almenn verð- lækkun á kjöti Verð á svína- og nautakjöti hefur sums stað- ar lækkað að undanfömu, allt að 20%. SS hefur lækkað nautakjöt um allt að 15,6% og 15% afsláttur verður ájólahangikjöti. Bónus lækkar svínalqot um 15-20% á föstu- daginn. Kjamafæði og Ferskar Igotvömr lækka líka verð. ÞAÐ ER titringur á kjötmarkaðnum og menn greinir á um hvort ástæður verðlækkunar megi rekja til offram- boðs á kjöti, hvort útsölulambakjötið eigi hlut að máli eða hvort lækkunin stafi af harðri samkeppni hjá slátur- leyfishöfum og kjötvinnslustöðvum. „Staðan er sú að salan hefur ver- ið ágæt á svínakjöti og framundan er mikil sala vegna jólanna," segir Kristinn Gylfi Jónsson, formaður Svínaræktarfélags íslands, þegar umrædd lækkun á svínakjöti er bor- in undir hann. „Það hefur engin verðlækkun staðið til hjá bændum, en hinsvegar er mikill slagur hjá verslunum og einstaka sláturleyfis- höfum. Sláturleyfishafar og kjöt- vinnslustöðvar eru að slást um mark- aðinn og lækkunin kemur þaðan. Ekki offramboð „Við höfum að undanförnu lækk- að verð á nauta- og svínakjöti, en hyggjumst að svo stöddu halda að okkur höndum. Okkar mat á stöð- unni núna er að framboð á þessi kjöti sé ekki það mikið að það gefi tilefni til frekari lækkana. Það er af og frá að um offramboð sé að ræða,“ sagði Snorri Jónsson fram- kvæmdastjóri Ferskra kjötvara. Eiður Gunnlaugsson fram- kvæmdastjóri hjá Kjarnafæði á Ak- ureyri segir að ein ástæða fyrir lækkuninni sé að kjötvinnslufyrir- tæki eru að keppa við heimaslátrun. Þá hefur niðurgreiðsla á lambakjöti haft töluvert að segja. „Ársgamla lambakjötið í útsölupokunum fór nið- ursagað beint frá afurðastöðvum til verslana, en var líka lækkað til kjöt- vinnsla um 15% og háð kvóta. Það kjöt höfum við verið með á lágu verði.“ - Hefur lambakjötssalan ekki komið illa niður á annarri kjötsölu? „Að sjálfsögðu. Við höfum orðið að lækka svínakjöt um 10-15% í sumum tilvikum og þá alfarið á okk- ar kostnað. Nautakjötssalan er líka mjög léleg í haust. Það kemur okkur á óvart hversu mikið framboðið er. I sumar var það í jafnvægi en hefur nú gjörbreyst. Skýringin hlýtur að vera sú að nautin eru stærri og vöðvameiri en áður.“ Jón Ásgeir Jóhannesson, hjá Bón- us, segir að nautakjöt hafi þegar lækkað þar, en svínakjöt muni einn- ig lækka um 15-20% á morgun, föstudag. Jólahangikjötið lækkar líka Sláturfélag Suðurlands hefur lækkað verð á nautakjöti. Að sögn Finns Árnasonar sölu- og markaðs- stjóra hjá fyrirtækinu hafa nokkrar tegundir af svínakjöti; svínahakk, svínagúllas og svínasnitzel, lækkað að undanförnu um 20%. - En hvað með unnar kjötvörur? „Unnar vörur úr kindakjöti hafa lækkað auk þess sem sérstök fjöl- skyldupakkning af SS vínarpyslum er á tilboði með 15% afslætti og mun sú lækkun vara að minnsta kosti í nokkra mánuði. Úrbeinað birkireykt SS hangikjöt verður 15% læg^ra nú en fyrir síðustu jól.“ - Er um að ræða gamalt kjöt? „Að hluta til, en hluti er einnig af nýslátruðu og þessi lækkun á m.a. að gera kjötið samkeppnishæf- ara á markaðnum." Að sögn Finns á lækkun á ársgömlu lambakjöti ekki þátt í ákvörðun þeirra um að lækka um- ræddar ferskar kjötvörur. „Við vilj- um leggja áherslu á að við erum að borga bændum fullt verð fyrir vör- una. Þessi lækkun er hluti af mark- aðsátaki m.a. til að kynna nýjan tækjabúnað okkar sem gefur kjötinu lengra geymsluþol en ella. Þá er þetta einnig gert vegna aukins fram- boðs á nautakjöti." Ekki aukið framboð Stjórn Landssambands kúabænda fjaliaði í gær um verðlækkun SS á unnu nautakjöti. Að sögn Guðbjörns Árnasonar, framkvæmdastjóra landssambandsins, álítur stjórnin að um sé að ræða tímabundið mark- aðsátak sem fyrirtækið leggi í tals- verða fjármuni til að bæta stöðu sína gagnvart öðrum vinnsluaðilum nautakjöts. Stjórnin telur það vill- andi að gefa í skyn að þarna standi að baki aukið framboð sláturgripa umfram það sem vænta má á þessum árstíma, enda ekki um slíkt að ræða. Þá lýsa þeir ánægju sinni með að fyrirtækið greiði framleiðendum skráð verð. „Við höfum áhyggjur af því að þetta komi af stað einhveij- um látum og við leggjum áherslu á að aðrir sláturleyfishafar bregðist ekki við með því að lækka verð til bænda. Það er aldrei gott að róta mikið með verð hvort sem það er til hækkunar eða lækkunar," segir Guðbjörn. Samkeppnisstofnun áminnir Radíóbúðina SAMKEPPNISSTOFNUN hefur beint fyrirmælum til Radíóbúðarinn- ar um að þar verði farið að lögum í auglýsingum og upplýsingagjöf. Að öðrum kosti verði tekið harðar á brotum fyrirtækisins í framtíðinni. Forsagan er sú að fyrr í þessum mánuði birtust í dagblöðum auglýs- ingar frá Radíóbúðinni um svonefnt gámtilboð á Vestel 7294 sjónvarps- tækjum. Þar var fullyrt að sjónvörp- in væru vestur-þýsk gæðavara með 29 tommu skermi. Við athugun sam- keppnisyfirvalda kom í ljós að sjón- vörpin eru sett saman úr evrópskum einingum í Tyrklandi og því tyrk- nesk framleiðsla. Þá reyndist skerm- urinn vera 28 tommu í stað 29 tommu. í auglýsingum sem birst hafa eft- ir áminningu Samkeppnisstofnunar eru sjónvörpin sögð vera gæðavara með 28 tomma skermi. Samkeppnisstofnun segist í fréttatilkynningu margoft hafa sent Radíóbúðinni athugasemdir vegna rangra og villandi upplýsinga í aug- lýsingum á undanförnum árum. Af þeim sökum fái fyrirtækið þessa aðvörun nú. BOLTAMAÐURINN Laugavegi 23 • sími 551 5599 Ckfiíce oj, CkmnpumA* joggingbuxur kr. 2.690 Nýtt kortatímabil Ckoíce o|j Ckamplonó® „loose fit“ hettupeysur LITIR: Dökkblátt Vínrautt Grátt Dökkgrænt Þykk og mjúk bómull kr. 2.990 Viltn hafa það Nvart/hvítt eða í lit? HP Desk Jet bleksprautuprentarar HP 340 HP 600 HP 6600 kr. 25.800 nír kr. 25.900 ivír kr. 35.900 HP 850C HP 12000 HP 16000 kr. 46.500 kr. 97.000 kr. 129.900 HP LaserJet geislaprentarar HP 5L HP 4Plus kr. 49.900 nVr kr. 169.900 HP 5P kr. 115.500 HP 4M Plus kr. 234.000 I HEWLETT I PACKARD Viðurkenndur söluaðili Þjónusta og ábyrgð BOÐEIND Við erum í Mörkinni 6 - Sími 588 2061 • Fax 588 2062
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.