Morgunblaðið - 16.11.1995, Qupperneq 24
24 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1995
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Silli
FORSETI bæjarsljórnar ávarpar heiðursgestina.
Hjón heiðruð
meðtónleikum
Húsavík. Morgunblaðið.
Kalinn á hjarta
Klassískar
kvikmynd-
ir í Bíó-
borginni
Á HVERJUM fimmtudegi í
Bíóborginni eru haldnar sýn-
ingar á vegum Kvikmynda-
safns íslands á klassískum
kvikmyndum. í kvöld kl. 19
og 21 verða sýningar á Casa-
blanca eftir Michael Curtiz frá
1942.
í kynningu segir: „Þessi
ógleymanlega ástarsaga með
Ingrid Bergman og Humphrey
Bogart í aðalhlutverkum er
talin ein af „frægustu mynd-
um allra tíma“. Hún segir frá
brennandi ástum í skugga
seinni heimsstyijaldarinnar og
gerist í Casablanca þar sem
fólk af ýmsu þjóðerni kemur
saman á vinsælum bar. Þar
er einskonar smáheimur sem
endurspeglar sundrungu sam-
tímans og baráttuna við nas-
ismann.
Bogart er hér í einum af
sínu bestu hlutverkum sem
Rick, hinn lífsleiði og kald-
hæðni eigandi barsins, sem
hittir þar aftur sína eilífu ást,
fagra stúlku (Bergman) sem
sveik hann í París.
í kvikmyndum síðari tíma
er enn vitnað í þessa mynd
og tilvitnanir úr henni óspart
notaðar."
Nýjar bækur
• ÚT ER
komin bókin
Jökulheim-
ar. í þessari
bók um is-
lenskajökla
og umhverfi
þeirra flytur
Ari Trausti
Guðmunds-
son fróðleik
um alla
helstu jökla
landsins.
Bókin, sem
er prýdd 77
litljósmynd-
um Ragn-
ars Th. Sig-
urðssonar,
fæst einnig
á ensku
(Light on
Iee) og þýsku (Eisvisionen).
I inngangi bókarinnar eru
grunnatriði jöklafræðinnar
skýrð. Myndun jöklanna,
jöklabúskapur, framhlaup og
jökulrof eru meðal efnisþátta.
Síðan er öllum helstu jökla-
svæðum landsins lýst í máli
og myndum. í myndatextun-
um finna lesendur viðbótar-
upplýsingar sem ekki eru í
meginmálinu.
Bókin var Jtynnt fyrst á ljós-
myndasýningu Ragnars,'
Norðurslóðum, sem opnuð var
í Gerðarsafni í Listasafni
Kópavogs 4. nóvember sl. og
stendurtil 19. nóvember.
IJtgefandi er Ormstunga.
Jökulheimar er 82 bls. ístóru
broti (26x26 cm) með 77 litljós-
myndum og kostar 2.560 kr.
Síðasta
sýningar-
helgi Ásdísar
SÝNING á málverkum eftir
Ásdísi Kalman sem staðið hef-
ur yfír i Ásmundarsal frá 4.
nóvember, lýkur nú á sunnu-
dag.
Sýningin er opin frá kl.
14-18.
TIL heiðurs hjónunum Björgu
Friðriksdóttur og Ingvari
Þórarinssyni á Húsavík, efndi
menningarmálanefnd Húsavík-
ur til tónleika í Húsavíkurkirkju
föstudagskvöldið 10. nóvember
sl. þar sem Sigrún Hjálmtýs-
dóttir sópransöngkona og Jónas
Ingimundarson píanóleikari
skemmtu við frábærar móttök-
ur áheyrenda, sem fylltu Húsa-
víkurkirkju.
í upphafi tónleikanna ávarp-
aði fulltrúi menningarmála-
nefndar, Svala Hermannsdóttir,
heiðursgestina, skýrði frá til-
efni þeirra, sem væri að heiðra
og þakka það mikla brautryðj-
enda- og framfarastarf sem þau
Björg og Ingvar hefðu unnið á
undanförnum áratugum þki-
geyskri tónlist og menningu til
framdráttar.
Síðan ómaði tónlist þeirra
Sigrúnar og Jónasar, en á efnis-
skrá þeirra voru 23 íslensk lög
og var flutningi þeirra ákaft
fagnað og jafnframt starfi
þeirra heiðurshjónanna, svo
hljómlistarmennirnir fluttu 5
aukalög.
í lok tónleikanna ávarpaði
forseti bæjarstjórnar, Valgerður
Gunnarsdóttir, heiðursgestina í
nafni bæjarstjórnar Húsavíkur,
rakti að nokkru störf þeirra og
færði þeim minningar- og þakk-
argjöf fyrir þeirra ómetanlega
menningarstarf í þágu Húsavík-
ur og alls héraðsins.
Það sem lengst mun í minni
KVIKJVIYNDIR
IIÁSKÓLABÍÓ
Að lifa ★ ★ ★ Vi
Leikstjóri Zhang Yimou. Handrit Lu
Wei og Yu Hua. Tónlist Zhao Yip-
ing. Kvikmyndatökustjóri Lu Yue.
Aðalleikendur Gong Li, Ga You, Niu
Ben, Guo Tao, Liu Tien Che.
Kína/Hong Kong 1994
UPPGANGUR kommúnismans
og síðar menningarbyltingin er
martröð líkust í Að lifa, mynd Kín-
veijans snjalla, Zhangs Yimou. Við
sjáum þessa umbrotatíma með
augum fjölskyldu sem tæpast lítur
nokkru sinni glaðan dag. Að iifa
hefst á öndverðum fimmta ára-
tugnum er heimilisfaðirinn og
landeigandinn Fugai (Ga You) tap-
ar öllum eignum sínum á spilavíti
og konu sinni, Jiazhen (Gong Li),
í kjölfarið. Fugai tekur hugarfars-
breytingum og Jiazhen snýr aftur
ásamt bömum þeirra tveimur, þó
hann búi nú í sárri fátækt. Borg-
arastyrjöldin milli þjóðemissinna
og kommúnista skellur á, Fugai
er tekinn til fanga af þeim síðar-
haft mun varða það fornfusa
starf, sem Ingvar hefur í ára-
tugi lagt húsvískri tónlist til
eflingar, með því að fá hingað
tónlistarfólk á sem flestum svið-
um og með því gefið heima-
mönnum tækifæri á því að
heyra margt af því besta sem
flutt hefur verið sunnan heiða.
Það munu vera um 40 ár síðan
hann boðaði fyrst til slíkra tón-
leika með söngvurunum Sigurði
Björnssyni og Ólafi Þ. Jónssyni.
Þeir eru ótaldir tónleikarnir
sem Ingvar hefur boðað til og
staðið fjárhagslega undir, því
alltaf hafa þeir ekki verið vel
sóttir þó með árunum hafi að-
sókn mjög aukist. Hann hefur
og stutt fjárhagslega ungt efni-
legt tónlistarfólk til náms.
Einnig er þess að geta að
Ingvar söng í Kirkjukór Húsa-
víkur í 40 ár, með Karlakórnum
Þrym þá hann starfaði og var
þar oft einsöngvari, hann var
einn af meðlimum Tónakvart-
ettsins, sem landsfrægur er, en
undirleikari hans var Björg,
sem einnig hefur lagt tónlistar-
málum Húsvíkinga ómetanlegt
lið með undirleik sínum hjá
kórum og einsöngvurum.
Björg flutti að lokum þakkir
fyrir þá vinsemd, sem þeim
hefði verið sýnd með þessum
tónleikum.
Húsvíkingar og héraðsbúar
sýndu þakklæti sitt með því að
fjölmenna svo til þessarar sam-
komu, sem raun var á.
nefndu, dregst inn í átökin um
árabil og hefur þá ofan af fyrir
stríðsmönnum Maó með strengja-
brúðuleik. Að lokum hefur hann
upp á fjölskyldu sinni á ný sem
þrælar nú við vatnsburð í heima-
bænum. Fugai er biturri reynslu
ríkari og sinnir nú fjölskyldu sinni
eins vel og kostur er. Áföllin halda
þó áfram að dynja yfir, Menningar-
byltingin þeirra verst.
Átakanleg er þessi þjóðfélags-
lýsing og hörð ádeila á allt valda-
kerfi kommúnista frá upphafi til
enda. Svo er að sjá að hálfguðinn
Maó hafi breytt landinu í helvíti á
jörðu. Uppbyggingarárin einkénn-
ast af kúgun, blóðstriti og barna-
þrælkun, en fólk átti sér þó örlitla
von um betri tíma - einhverntíma.
KVIKMYNDIR
Rcgnboginn:
Kvikmy ndahátíö
Rcgnbogans og Hvíta
t j a 1 d s i n s
KALINN Á HJARTA „UN
COEUR EN HIVER" ★ Vi
Leiksljóri: Claude Sautet. Aðalhlutverk:
Daniel Auteuil, Emmanuelle Béart. Frakk-
land. 1994. íslenskur texti.
ENGIR telja sig kunna betri skil
á ástinni én Frakkar og bera kvik-
myndir þeirra mjög þess merki. Kal-
inn á hjarta er lítið, persónulegt og
einkar franskt drama um hinn sívin-
sæla franska ástarþríhyrning. Hún
fjallar auðvitað um ástina en ekki
síst um óendurgoldna ást og ást-
leysi. Hún er um mann sem er ekki
þess umkominn að elska af einhverj-
um ástæðum sem auðvitað eru aldrei
skýrðar enda Frakkar ekki tilbúnir
að útskýra ást í smáatriðum. Það er
hans tilvistarfræðilega vai að elska
ekki.
Til að skilja þennan steindrumb
hefði maður þurft að vita hvar dagar
lífs hans hafa lit sínum glatað. Hann
hefur ekki áhuga á ást og ekki vin-
áttu og virðist tilfinningalega dofínn
að öllu leyti. Því fylgir að hann er
einstaklega óspennandi persóna, sér-
staklega eins og Daniel Auteuil leik-
ur hann. Það hvorki dettur af honum
né drýpur, ekkert virðist hafa áhrif
á hann tilfínningalega. Hann er eins
og Dustin Hoffman í Regnmanninum
nema hann er ekki einhverfur eða
Jafnvel hún var drepin síðar í brjál-
æði Menningarbyltingarinnar. í
áhrifamiklu lokaatriðinu er þó ör-
lítil vonarglæta - með þeim for-
merkjum að kommúnisminn sé úr
sögunni. Að iifa getur tæpast látið
nokkum mann ósnortinn, svo mis-
kunnarlaus er hún í lýsingum sín-
um á endalausum mannlegum
þjáningum undir ómennsku kerfi
og harðstjórum þess. Jafnframt er
hún óður til mannlegrar reisnar,
Jiazhen er samnefnari þeirra sem
aldrei láta bugast á hveiju sem
gengur. Maður skynjar óttann og
ógnina allt um kring undir kúgun-
arvaldinu þar sem eins dauði er
annars brauð. Svo kaldhæðnislega
vill til að slík örlög verða einmitt
Fugai til lífs, því sá sem hafði af
Anthony Hopkins í Dreggjum dags-
ins nema ekki eins harmrænn. Þá
tvo skildi maður að einhverju marki.
Frakkinn er nákvæmlega sama ráð-
gátan í byijun myndarinnar og endi
og satt að segja hættir maður að
hafa áhuga á honum löngu áður en
myndin er búin.
Sögusvið hennar er tónlistarheim-
urinn í París. Daniel leikur fiðlusmið.
Samstarfsmaður hans er ástfanginn
af ungum fiðluleikara sem Emmanu-
elle Béart leikur en hún dregst að
hinum hófstillta og hljóðláta smið
og kemst að því sér til hrellingar að
hann er eins ástríðufullur og trélím.
Höfundur myndarinnar, Claude
Sautet, ýtir undir hina tilfinninga-
legu deyfð aðalpersónunnar með ein-
staklega hægum stíganda og þung-
lyndislegu yfirbragði og næstum stó-
ískri rósemi. Engin tónlist er í mynd-
inni, aðeins samræður, talandi'haus-
ar í nærmynd, lítil sem engin hreyf-
ing, ekkert fyrir auga og eyru annað
en endalaus samtöl og maður kemst
ekki hjá því að hugsa af hvetju þetta
var ekki skrifað og leikið fyrir út-
varp. Hið þrönga sjónarhorn gerir
myndina óttalega langdregna og
maður upplifir hana eins og langan
aðdraganda að einhveiju sem aldrei
verður.
Leikurinn er í þessum þyngslalega
og innilokunarkennda stil. Béart er
viðkvæmnislegi fiðluleikarinn sem
tekst ekki að bijóta hina undurþykku
skel og örvinglast. Auteuil er ekki
öfundsverður af að leika þverhausinn
sem eins og leitar eftir samúð áhorf-
andans en því miður, fær enga.
Arnaldur Indriðason
honum reyturnar er orðinn eigna-
maður og réttdræpur. Á hinn bóg-
inn skín einnig í gegnum fjölmörg,
vönduð atriði í þessari ágætis-
mynd, hinar hlýrri og mannlegri
hliðar þjóðarsálarinnar kínversku ,
- ef hún fær að vera í friði - það
sem hún kýs sér fremst af öllu.
Yimou er hljóðlátur sem fyrr og
þarf engar brellur né blóðsúthell-
ingar til að segja sína áhrifamiklu
skelfingarsögu. Hann nýtur hér
enn krafta Gong Li, sem aldrei
hefur verið fegurri né töfrað fram
jafn stórkostlegan leik sem hér,
enda bíður hlutverk Jiazhen upp á
mikil, dramatísk tilþrif fyrir hæfi-
leikaríka leikkonu. Ga You fer 1
myndarlega með hlutverk eigin-
mannsins sem jafnan stendur í
skugga sinnar kraftmiklu konu.
Ungu leikaramir sem fara með
hlutverk barna þeirra eru einnig
eftirminnileg. Sama er að segja
um áhrifamikla tónlistina og renna
allir þessir þættir saman í geysi-,
sterka heild sem skipa Að lifa nán- 1
ast á bekk með því sem þessir ein- j
stöku listamenn, Yimou og Gong j
Li, hafa best gert á glæstum ferli.
Sæbjörn Valdimarsson
Verðlaunaritgerð birt
TÍMARITIÐ NY saga, 7. árgang-
ur, er komið út, og kennir þar
ýmissa grasa, meðal annars er þar
að fmna ritgerðina Síldarævintýrið
í Hvalfirði 1947-48 eftir Guðna
Thorlacius Jóhannnesson, en hún
er önnur tveggja ritgerða sem
hlaut verðlaun í ritgerðasam-
keppni er Sögufélag, Sagnfræð-
ingafélag íslands og Sagnfræði-
stofnun Háskóla íslands efndu til
á seinasta ári.
Þá er birt ritgerðin Pólítísk fata-
hönnun eftir Margréti Guðmunds-
dóttur, greinin Fornar menntir í
Hítardal eftir Guðrúnu Ásu Gríms-
dóttur, ritgerðin Siðferðilegar fyr-
irmyndir á 19. öld eftir Sigurð
Gylfa Magnússon og greinin Að
byggja sér veldi eftir Eggert Þór
Bernharðsson.
Mynd Riou af íslandi
í þættinum Sjón og saga dregur
Sumarliði R. Isleifsson fram þá
mynd sem teiknarinn Riou bregður
upp af íslandi með teikningum sín-
um í bók Jules Verne, Leyndar-
dómar Snæfellsjökuls, sem kom
upphaflega út í Frakklandi 1864.
í greininni Gildi sagnfræðinnar
ljallar Björn Bjamason um að
sagnfræðingar gegni með rann-
sóknum sínum lykilhlutverki í að
leggja grundvöll að skynsamlegri
stjórnmálaumræðu. Þá minnist
Sigfús Haukur Andrésson 200 ára
afmælis Almennu bænaskrárinnar
og birt er umfjöllun um Hvíta stríð-
ið svo kallaða, annars vegar sam-
tímafrásögn af atburðunum úr
dagbókum Elku Björnsdóttur,
næsta nágranna Olafs Friðriksson-
ar, og áður óbirtar ljósmyndir.
Guðmundur J. Guðmundsson ritar
inngang. þessarar umfjöllunar.
Sögufélag gefur Nýja sögu út.
í ritstjórn tímarita Söguféiags sitja
Anna Agnarsdóttir, Guðmundur
J. Guðmundsson, Guðmundur
Jónsson, Ragnheiður Mósesdóttir
og Sigurður Ragnarsson.
Eins dauði er
annars brauð