Morgunblaðið - 16.11.1995, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1995 31
________AÐSEIMPAR GREINAR____
Hvenær á að huga að við-
haldsvinnu næsta sumars?
Á HVERJU ári ger-
ist það sama. Viðhalds-
markaðurinn leggst al-
gjörlega í dvala yfir
veturinn. Verktakarnir
verða að segja upp
fólki sem fer á atvinnu-
leysisbætur. Húsfélög,
fyrirtæki og stofnanir
draga sæng yfir höfuð
og hugsa ekki um við-
hald fyrr en vorar.
Mörg fyrirtæki lifa
ekki veturinn af og
verða að gefast upp og
dýrmæt reynsla og
fagþekking glatast.
Þegar vorar og vor-
laukarnir gægjast upp
úr moldinni þá muna allir samtímis
eftir því að það er að koma sumar
og í sumar var ætlunin að gera
ýmislegt. Þá er oft komið fram í
maí, jafnvel júní. Flestir halda að
málið sé nú samt auðvelt; bara að
Veturinn er kjörinn
tími, segir Ríkharður
Kristjánsson, fyrir
undirbúning viðhalds á
fasteignum.
hringja í einhvem til þess hæfan
aðila, láta meta skemmdir og láta
bjóða verkið út. Allt sumarið er
framundan og öllum finnst sitt
dæmi svo sérstakt, en það hafa
bara allir fengið sömu hugmyndina
sama daginn. Það er
engin furða því hug-
myndin kom með hlýj-
unni og hana skynja
allir samtímis. Þegar
allir þurfa að láta
skoða fasteignirnar
samtímis, meta
skemmdir, viðgerðar-
möguleika og valkosti,
ræða málin, gera út-
boðsgögn , afla tilboða
hjá verktökum og
semja um verk sama
daginn þá verður eitt-
hvað undan að láta.
Það sem verður undan
að láta er í fyrsta lagi
tíminn en einnig vand-
virknin og kostnaðurinn.
Þetta verður til þess að viðhalds-
vinnan fer hægt að stað hvert ein-
asta vor og því miður hefur frekar
hallað undan fæti undanfarið.
Stjórnmálamennirnir, hvar sem er,
virðast taka sér sífellt lengri tíma
til að afgreiða ramma fjárveiting-
anna en reikna síðan með því, að
þegar þeir hafa kveðið upp sinn
úrskurð þá sé allt leyst. En þá er
yfirleitt allur undirbúningurinn eft-
ir.
Fyrstu vormánuðirnir sem eru
kjömir fyrir múrbrot, háþrýstiþvott
og annan undirbúning viðhaldsins
líða án þess að nokkur maður sjáist
á byggingarstað. Allir eru að skoða
fasteignir, reikna út tilboð, ráða
menn og útvega efni.
Þetta kostar vitanlega peninga
án þess að menn kannski verði þess
varir. Það kostar peninga að ætla
sér að stytta framkvæmdatíma við-
haldsins meira en örlögin hafa þeg-
ar gert með staðsetningu landsins
norður við heimskautsbaug og þetta
er algjör óþarfi og tilgangslaus sóun
fjármuna og dýrmæts tíma.
Veturinn er kjörinn tími • fyrir
þann undirbúning sem viðhald sum-
arsins kallar á. Slagveður haustsins
sýnir skoðunarmönnum best hvar
veikleikarnir mannvirkjanna eru og
hversu alvarlegir þeir eru og vetrar-
mánuðirnir eru kjörinn tími fyrir
verktakana til að bjóða í verk,
skipuleggja sumarvinnuna, raða
upp verkunum, athuga með nauð-
synlega mannskap, efni o.s.fr.
Við lesum í bókum um lágþróað-
ar vitsmunaverur sem enga sjálf-
stæða hugsun hafa heldur bregðast
eingöngu við áhrifum og ertingu
umhverfisins. Mannkyninu er haldið
til góða að vera öðru vísi og eiga
til sjálfstæða hugsun sem aðgreini
það frá lægri flokkum lifandi vera.
Ef eingöngu væri horft á skipulagn-
ingu viðhaldsvinnu á íslandi myndi
mannkynið líklega teljast til flokka
óæðri dýrategunda, langt fyrir neð-
an maura og býflugur.
Með fullri virðingu fyrir þessum
flokkum lifandi vera væri samt
óskandi að eigendum fasteigna á
Islandi, hvort sem það eru einkaað-
ilar, fyrirtæki, borg eða ríki, auðn-
aðist að slíta sig frá þessari bein-
tenginu við sumarsólina og byija
að huga að viðhaldsvinnu næsta
sumars strax á morgun.
Höfundur er verkfræðingvr á
Verkfræðistofunni Línuhönnun hf.
Ríkharður
Kristjánsson
í Viðeyjarstofu Bjóðum zrið dansfit jóíafiUiðborð að
ricetti matr&iðsíumeistara riíóteCs Óðinsvéajyrir fiópa.
‘Effert fiús d ísCandi er Betur tidþessfaCCiðaðsfapa
andrúmsCoftfriðar og CiátíðCeifa en Viðeyjarstofa.
SigCing með fhíaríusúð út í d'iðey tekur aðeins 5 mín.
\
RYMINGARSALA
Vegna breytinga á versluninni bjóðum við ýmsar vörur á frábæru verði
rur
Gönguskór stgr. frá kr. 3.240
Fjallahjólaskór stgr. frá kr. 2.755
Svefnpokar stgr. frá kr. 2.755
Litlir bakpokar stgr. frá kr. 940
Mittistöskur stgr. frá kr. 465
ttur
Reiðhjól
Fjölskylduhjól stgr. kr. 9.405
Kvenhjól 28" án gíra stgr. kr. 9.405
10 gíra dömu- og herrahjól stgr. kr. 9.405
18 gíra fjallahjó!
21 gíra fjallahjól
Reiðhjólahjálmar
stgr. frá kr. 18.900
stgr. frá kr. 23.700
stgr. frákr. 1.490
Vélsleðagallar, leður, stgr. kr. 18.905
Vélsleðahjálmar, kevlar, stgr. kr. 4.655
Skíðavörur
Skíði 15-60% stgr. afsláttur
Skíðaskór 15-50% stgr. afsláttur
Barnaskíði stgr. frá kr. 4.275
Unglinga keppnisskíði stgr. frá kr. 8.455
Fullorðins keppnisskíði stgr. frá kr. 13.965
Skíðagallar barna, stgr. frá kr. 4.940
Skíðagaltar fullorðins, stgr. frá kr.
Skótöskur
Skíðapokar
Skíðahúfur
Lúffur, barna,
og margt fleira.
stgr. frá kr.
stgr. frá kr.
stgr. frá kr.
stgr. frá kr.
6.935
940
1.190
333
333
Opnum breytta og miklu stærri búð í Ármúla 401. desember næstkomandi.
Ministepper stgr. frákr. 1.990
Multi teygjubekkur stgr. kr. 13.205
Æfingastöðvar 25-50% afsláttur
Sendum í póstkröfu.
Kreditkortaþjónusta og kreditsamningar.
Armúla 40
Sfmar: 553 5320
568 8860
l/erslunin
/U4R
e