Morgunblaðið - 22.11.1995, Síða 1
I
4-
72 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
267. TBL. 83. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Víðtækt samkomulag um frið í Bosníu næst fyrir tilstilli Bandaríkjamanna
4-
60.000 manna NATO-her
ætlað að tryggja frið í Bosníu
Washington, London. Daily Telegraph.
FORSETAR Serbíu, Króatíu og
Bosníu staðfestu í gærkvöldi víð-
tækt samkomulag um frið í Bosn-
íu maraþon-samninga í Wright-
Patterson-herstöðinni i Dayton í
Ohio-ríki í gær..Um tíma leit út
fyrir að samningar væru að fara
út um þúfur og Bosníustríðið, sem
staðið hafði í nær fjögur ár, héldi
áfram. Þakkaði Bill Clinton
Bandaríkjaforseti Warren Christ-
opher utanríkisráðherra sínum að
sættir tókust. Þjóðarleiðtogar uin
heim allan fögnuðu niðurstöðunni
og stjórnmálaskýrendur sögðu að
um mikinn sigur væri að ræða
fyrir Clinton forseta þótt enn ætti
hann eftir að yfírstíga fjölda hindr-
ana fram að forsetakosningunum
að ári.
„Við höfum náð áfanga sem
margir töldu óhugsandi. Þeir hafa
sameinast um að nú sé komið nóg
eftir fjögurra ára eyðileggingu.
Tími sé kominn til að stuðla að
friði með réttlæti," sagði Christop-
her í upphafí athafnarinnar í gær-
kvöldi. Þar rituðu Slobodan Mi-
losevic Serbíuforseti, Franjo Tudj-
man Króatíuforseti og Alija Izet-
begovic Bosníuforseti friðarsam-
komulagið. Við svo búið tókust
þeir í hendur. Friðarsamningarnir,
fjöldi fylgiskjala og um 100 landa-
kort, þar sem markalínur yfirráða-
svæða í Bosníu eru nákvæmlega
skilgi-eindar, verða formlega und-
irrituð með viðhöfn í París eftir
2-3 vikur.
Um 60.000 manna herliði Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) er
ætlað að tryggja framgang friðar-
samkomulagsins í Bosníu. Gert er
ráð fyrir að það dveljist í landinu
í eitt ár. Þriðjungur heraflans verð-
ur bandarískur. Um verður að
ræða flóknustu aðgerð í sögu
NATO og talið er að sex vikur
taki að hrinda henni í fram-
kvæmd. Verkefnið hefur hlotið
nafnið Fjallaskjöldurinn. í gær
voru um 100 bandarískir sérfræð-
ingar sendir af stað til Bosníu til
að skipuleggja komu sveitanna.
Glímir við þingið
Fulltrúar um 40 þjóða, sem
leggja munu sveitum NATO lið,
koma saman í London 6.-8. desem-
ber til að útfæra friðargæsluna.
Fram að því mun Clinton forseti
freista þess að vinna fylgi Banda-
ríkjaþings við þau áform sín að
senda 20.000 hermenn til Bosníu.
Mun hann bíða með að tilkynna
um ákvörðun þar til þingið hefur
fengið tækifæri til að fjalla um
málið. Bob Dole, leiðtogi repúblik-
ana í öldungadeildinni, sagði að
forsetinn ætti eftir að sýna fram
á nauðsyn þess að senda hersveit-
ir til Bosníu og krafðist „ná-
kvæmra áætlana um brottför“
þeirra sem ætti að eiga sér stað
um svipað leyti og forsetakosning-
ar fara fram í Bandaríkjunum.
Newt Gingrich, forseti fulltrúa-
deildarinnar, sýndi meiri sáttavilja
en Dole og sagðist myndi bjóða
leiðtogum deiluaðila í Bosníu að
tala máli friðargæslusveitanna í
þinginu. í ljósi fjárlagadeilna að
undanförnu og niðurskurðar þykir
sýnt, að andstaða verði á Banda-
ríkjaþingi við að veija um 1,5
milljarði dollara til eins árs friðar-
gæslu í Bosníu og 500 milljónum
dollara til endurreisnarstarfs.
Talsmaður forsetans vildi ekki
svara því hvort forsetinn myndi
taka mestu áhættu ferils síns með
því að senda sveitir til Bosníu án
samþykkis þingsins.
Undirritun í París
Um það bil viku eftir Lundúna-
fundinn er gert ráð fyrir að friðar-
samningar verði formlega undir-
ritaðir í París.
Áköf átök um landamörk urðu
til þess að tefja samkomulag síð-
ustu sólarhringa. Enginn deiluað-
Reuter
FORSETAR (f.v.) Serbíu, Bosníu og Króatíu, Slobodan Mi-
losevic, Alya Izetbegovic og Franjo Tudjman, staðfesta friðar-
samninga í Dayton í gær. Af hálfu Bandaríkjanna ritaði Warr-
en Christopher utanríkisráðherra stafi sína á það, Carl Bildt
af hálfu Evrópusambandsins og af hálfu Rússa Igor ívanov
aðstoðarutanríkisráðherra.
UV.lvuviiuuviiu ■ uuiiniiiiyu
viðræðunum í Dayton í Ohio
féllust í gær á tillögu um frið-
samlega lausn Bosníudeilunnar
AÐALATRIÐI SAMKOMULAGSINS
Bosnía verður eitt ríki innan núgild-
andi landamæra sem samanstendur
af ríkjasambandi múslima og Króata
og sjálfstjórnarsvæði Bosníu-Serba.
Sarajevo verður óskipt og þar
verður aðsetur ríkisstjórnar Bosnfu.
Lýðræðislega kjörin stjóm mun
stjórna landinu ásamt þingi, embætti
forseta og stjómlagadómstól.
Meintir stríðglæpamenn verða
útilokaðir frá stjórnmálaþátttöku
í Bosníu
Um 60.000 manna fjölþjóölegt
herlið NATO mun fylgjast með t
framkvæmd friðarsamninganna. œ
ila fékk það sem hann nákvæm-
lega vildi en niðurstaðan er sam-
komulag um nokkurs konar
ríkjasamband, Samband Bosníu-
Hersegovínu, þar sem báðir sam-
bandsaðilarnir munu reka eigin
her og eigin lögreglu.
Clinton sagði, að með sam-
komulaginu lyki illvígustu
stríðsátökum í Evrópu eftir
seinni heimsstyijöldina. Enn er
óleystur ágreiningur um Posa-
vina-landræmuna, mjótt belti í
norðanverðri Bosníu sem tengir
saman yfírráðasvæði Bosníu-
Serba. Verður þetta ágreinings-
efni lagt í alþjóðlegan gerðar-
dóm. Serbar hafa viljað að svæð-
ið yrði breikkað í a.m.k. 20 kíló-
metra.
■ Stórt skref í átt/18
■ Bosnía eitt ríki/18
■ Einmana, gömul/22-23
Díönu boðið til viðræðna
Ásakanir um kosningasvik í Póllandi
Vilja að hæstiréttur
ógildi kosningamar
Varsjá. Reuter.
Frakkar
sprengja
París. Reuter.
FRAKKAR sprengdu fjórðu
kjarnorkusprengjuna í til-
raunaskyni í Suður-Kyrra-
hafí í gærkvöldi.
Ástralir og Nýsjálendingar
mótmæltu sprengingunni
harðlega en hún átti sér stað
á Mururoa-kóralrifínu. Jafn-
gilti hún því að sprengd hefðu
verið 40.000 tonn af venju-
legu sprengiefni. Talið var
að fréttir um sprenginguna
myndu hverfa í umfjöllun
fjölmiðla um lyktir Bosníu-
deilunnar.
London. Reuter.
BRESKA konungsfjölskyldan
bauð í gær Díönu prinsessu af
Wales til viðræðna um framtíð-
arhlutverk hennar, aðeins
nokkrum klukkustundum eftir
að hún hafði lýst sjálfri sér sem
fórnarlambi samsæris innan
hallarinnar.
Samkvæmt skoðanakönnun-
um eru Bretar almennt sammála
um, að Díana hafi gert rétt í því
að segja allt af létta um hjóna-
bandserfiðleika þeirra Karls
prins og ríkisarfa og talið er,
að.það hafi nokkur áhrif á þá
ákvörðun að bjóða henni heim
í höllina.
í viðtalinu við BBC viður-
kenndi Díana að hafa haldið
framlvjá manni sínum og dró
ekkert undan þegar hún lýsti
öllum þeim vandamálum, sem
upp hefðu komið. Kom þessi
hreinskilni hennar á óvart og
ekki siður, að henni skyldi vera
boðið á eins konar sáttafund
strax á eftir.
Andrew Morton, sem skrifaði
bók um Díönu fyrir nokkrum
árum, sagði að með boðinu væri
konungsfjölskyldan að viður-
kenna, að til að komast af yrði
hún að ná samningum við Dí-
önu, sem hún og þegnarnir gætu
sætt sig við. „Þau vilja, að þess-
um vopnaviðskiptum linni.“
■ Óhamingjusamt líf/20
AÐSTOÐARMENN Lech Walesa,
fráfarandi forseta Póllands, sökuðu
í gær stuðningsmenn Aleksanders
Kwasniewskis, sigurvegara kosn-
inganna, um kosningasvik.
„Við höfum ástæðu til að tala
um kosningasvik," sagði Boguslaw
Kowalski, talsmaður kosninga-
skrifstofu Walesa. „Við ætlum að
leggja fram viðeigandi beiðni til
hæstaréttar." Þegar hann var
spurður hvort dómstóllinn yrði beð-
inn um að ógilda kosningamar játti
hann því.
Kowalski hélt því fram að einn
af kjörstjórnarmönnunum í Varsjá
hefði verið staðinn að verki við að
bæta við bunka af kjörseðlum í
kjörkassa. Kwasniewski fékk
51,7% atkvæða en Walesa 48,3%.
Munurinn var um 600.000 at-
kvæði.