Morgunblaðið - 22.11.1995, Blaðsíða 4
I
4 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Frumvarp um tæknifrjóvgun
Ekkí fyrir samkyn-
hneigða og einhleypa
Deilt um nafn-
leyndarákvæði
ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráð-
herra flutti í gær lagafrumvarp með
tillögum um það hvaða lagaákvæði
skuli gilda hér á landi um tækni-
frjóvgun. Samkvæmt frumvarpinu
verður samkynhneigðum og ein-
hleypum bannað að fara í tækni-
ftjóvgun og svokölluð staðgöngu-
mæðrun verður ekki leyfð.
Dómsmálaráðherra sagði að
ákvæði um að aðeins samkynhneigð-
ir ættu rétt á tæknifrjóvgun væri
liður í að tryggja hag bamsins og
þessum máli væri eins varið annars
staðar í Evrópu.
Þorsteinn sagði að frumvarpið
tryggði kynfrumugjöfum nafnleynd,
en bætti við að bent hefði verið á
að réttur bams til að.þekkja uppruna
sinn stangaðist á við rétt kynfrumu-
gjafa til nafnleyndar.
Fmmvarpinu var fagnað af þeim
þingmönnum,. sem tóku til máls, en
nokkur umræða varð um áðumefnt
ákvæði þess um nafnleynd.
Réttur barna til að vita
uppruna sinn
Bryndís Hlöðversdóttir, þingmað-
ur Alþýðubandalags í Reykjavík,
sagði að hún teldi það „grundvallar-
mannréttindi" að „þessi börn ættu
rétt á því eins og önnur að rekja líf-
fræðilegan uppmna sinn þegar þau
hefðu náð þroska“.
Össur Skarphéðinsson, þingmaður
Alþýðuflokks í Reykjavík, sagði að
svipting nafnleyndar gæti haft í för
með sér að fmmvarpið yrði óþarft
vegna þess að enginn myndi vilja
gefa kynfrumur til fijóvgunar. „Ef
bömum yrði tryggður þessi réttur
gæti vepið komið í veg fyrir að þau
yrðu til,“ sagði Össur.
Össur var öllu hrifnari af Þorsteini
Pálssyni í embætti dómsmálaráð-
herra í gær, en þegar hann gagn-
rýndi frammistöðu hans í hlutverki
sjávarútvegsráðherra í síldarsamn-
ingum við Norðménn og Rússa á
mánudag og sakaði um linkind. „Ég
óska dómsmálaráðherra til hamingju
með þetta fína frumvarp,“ sagði
Össur.
í fmmvarpinu er gert ráð fyrir að
tæknifijóvgun megi ejnungis fram-
kvæma á heilbriðisstofnun, sem
fengið hafi leyfiráðherra og sé undir
eftirliti sérfræðinga. Par þarf að
hafa verið í sambúð samfellt í þijú
ár og heilsa og félagslegar aðstæður
góðar.
Staðgöngumæðrun bönnuð
Staðgöngumæðmn verður bönn-
uð. Með staðgöngumæðrun er átt við
það þegar tæknifijóvgun er-fram-
kvæmd á konu, sem hyggst ganga
með barn fyrir aðra konu og hefur
fallist á að láta barnið af hendi að
meðgöngu lokinni. Guðný Guðbjöms-
dóttir, þingmaður Kvennaiista í
Reykjavík, fagnaði þessu ákvæði um
staðgöngumæður, sem einnig væm
kallaðar leigumæður kæmi til
greiðsla.
í máli sínu tók Þorsteinn sérstak-
lega til þess að læknir ætti við val
sitt á kynfrumugjafa að hafa í huga
að hann sé sem líkastur foreldri jafnt
að hárlit og hæð, sem litarafti.
Hugtakið tæknifijóvgun er notað
um getnað, sem verður í framhaldi
af tæknisæðingu eða glasafijóvgun.
Tæknisæðing hefur verið fram-
kvæmd hér frá árinu 1980, en glasa-
fijóvgun frá 1991. Þá vora reglur
settar án þess að fyrir lægi löggjöf.
Sameming hjá Alþýðubandalaginu í Reykjavík
Birting’ sameinast Framsýn
ALÞYÐUBANDALAGSFELOGIN
Birting og Framsýn verða sameinuð
næstkomandi laugardag. Forystu-
menn félaganna hafa einnig staðið í
viðræðum við formenn Alþýðubanda-
lagsfélags Reykjavíkur (ABR), sem
er stærsta flokksfélagið í Reykjavík,
og Sósíalistafélagsins um möguleika
á sameiningu allra félaganna.
Viðræður um sameiningu Birting-
ar og Framsýnar hafa staðið yfir frá
því í sumar en um 120 félagsmenn
em í hvom félagi. Ákveðið var fyrir
skömmu að sameina félögin og í gær
var haldinn sameiginlegur stjómar-
fundur féiaganna til undirbúnings
sameiningunni. Þau verða svo form-
lega sameinuð á fundi næstkomandi
laugardag, að sögn Arthurs Morth-
ens, varaformanns Birtingar. „Það
er lengra í sameiningu við ABR en
það er þó komið í gang,“ segir hann.
„Þegar menn fóru að ræða saman
kom í ljós að menii höfðu mjög svip-
aðar skoðanir á fjölmörgum málum.
Þessi hópur er fyrst og fremst mjög
samstilltur um nauðsyn sameiningar
félagshyggjuaflanna. Við teljum
okkur einfaldlega sterkari í einum
hópi en tveimur," segir Arthur.
Morgunblaðið/Ásdís
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra var meðal þeirra sem hlýddu á Ruth Richardson, fyrrver-
andi fjármálaráðherra Nýja-Sjálands, flytja mál sitt á ráðstefnunni á Scandic Hótel Loftleiðum í gær.
Ráðstefna fjármálaráðherra um nýskipan í ríkisrekstri
Tekist á um „nýsjá-
lensku“ leiðina
Á ráðstefnu um nýskipan í ríkisrekstri sem
fjármálaráðuneytið gekkst fyrir í gær kvaðst
Ruth Richardson, fyrrverandi fjármálaráð-
---------,--;-----------------------?-------
herra Nýja-Sjálands, telja best fyrir Islend-
inga að tileinka sér aðferðir þarlendra stjóm-
valda í ríkisrekstri. Forsvarsmenn BSRB
mótmæltu því harðlega.
UM 170 manns sóttu ráðstefnuna
og vom stjómendur ríkisfyrirtækja
og stofnana auk forsvarsmanna
BSRB áberandi í þeim hópi. Ric-
hardson lýsti þeim breytingum á
ríkisrekstri Nýja-Sjálands, sem þar-
lend stjómvöld hafa gengist fyrir á
síðastliðnum ellefu ámm, og íjallaði
um reynsluna af þeim. Breytingarn-
ar felast m.a. í því að ríkisfyrirtæki
eru annaðhvort einkavædd eða þau
gerð að hlutafélögum. Einnig hafa
ríkisfjármál verið tekin föstum tök-
um. Taldi hún breytingarnar hafa
verið til mikilla bóta og hvatti Is-
lendinga til að leggja út á sömu
braut.
Derry Ormond, framkvæmda-
stjóri hjá Efnahags- og framfara-
stofnuninni (OECD), fjallaði um
nýskipan í ríkisrekstri innan OECD-
landanna, dr. Guðfinna Bjarnadótt-
ir, framkvæmdastjóri LEAD Con-
sulting í Bandaríkjunum, fjallaði um
leiðir til árangurs til umbóta í ríkis-
rekstri, Friðrik Sophusson, fjár-
málaráðherra fjallaði um stefnu rík-
isstjómarinnar í nýskipan í ríkis-
rekstri, og Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra og Ingibjörg Pálma-
dóttir heilbrigðisráðherra fjölluðu
um nýskipan og hugsanlegar breyt-
ingar á rekstri, sem heyrir undir
ráðuneyti þeirra. Að því loknu var
efnt til umræðna og voru tveir
stjórnarandstöðuþingmenn, Mar-
grét Frímannsdóttir, formaður Al-
þýðubandalagsins, og Össur Skarp-
héðinsson, þingflokksformaður Al-
þýðuflokksins, fengnir til að gefa
álit sitt.
Fjömgar umræður urðu um er-
indi Richardson og gerði Ögmundur
Jónasson, alþingismaður og formað-
ur BSRB, m.a. aivarlegar athuga-
semdir við það. Ögmundur taldi að
umræddar breytingar hefðu ekki
gefist vel enda hefði efnahagur
Ný-Sjálendinga versnað eftir að þær
hefðu komið til framkvæmda.
Richardson vísaði þessari gagn-
rýni á bug og vísaði í nýjar tölur
frá OECD þar sem kæmi fram að
efnahagslíf Nýja-Sjálands hefði tek-
ið verulegan kipp á síðustu ámm.
Friðrik sagði að á þessu kjörtíma-
bili yrði unnið að umbótastarfi í rík-
isrekstrinum af enn meiri þunga en
fyrr. Einkenni nýskipunar í ríkis-
rekstri væra að dreifa valdi, auka
ábyrgð og flytja ákvarðanir sem
næst vettvangi. í þessu skyni ætti
að einfalda alla stjórnsýslu, halda
áfram einkavæðingu og sameina og
fækka stofnunum eins og kostur
væri. Samhliða því að draga úr rík-
isumsvifum mætti koma samskipt-
um stofnana og ráðuneyta á meiri
viðskiptagrann en áður og auka
ábyrgð stjórnenda þeirra. Einnig
þyrfti að búa stjórnendur stjórnun-
artækjum til að ná árangri eins og
sveigjanlegu launakerfi.
Tryggingasjóð-
ir sameinaðir
FINNUR Ingólfsson viðskiptaráð-
herra hefur lagt fram í ríkisstjórn
frumvarp til laga um breytingar á
lögum um viðskiptabanka og spari-
sjóði. Samkvæmt frumvarpinu verða
tryggingasjóðir banka og sparisjóða
sameinaðir í einn sjóð. Sjóðurinn
hefur það hiutverk að tryggja inn-
eignir viðskiptavina lánastofnana.
Talsmaður kjarnorkuvinnslustöðvarinnar við Dounreay í samtali við Morgunblaðið
„ÞAÐ ER mjög mikilvægt fyrir efna-
hag Norður-Skotlands að fá aukin
verkefni fyrir stöðina. Ég hef bent
andstæðingum endurvinnslu geisla-
virks úrgangs á, að ef við hættum
þessari starfsemi er eini kosturinn
sá að koma úrganginum fyrir í sér-
stökum geymslum. Slíkt leysir auð-
vitað engan vanda, heldur skýtur
honum aðeins á frest og næstu kyn-
slóðir verða að kljást við hann,“
sagði Ian Shepherd, talsmaður
kjarnorkuvinnslustöðvarinnar við
Dounreay, í samtali við Morgunblað-
ið í gær.
Eins og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu í gær hefur umhverfisráð-
herra óskað eftir því við __________
utanríkisráðuneytið að
sendiherra íslands 1 Lond-
on kanni hjá - breskum
stjórnvöldum hvað hæft
sé í fregnum um fyrirætl-
anir að auka endurvinnslu ___________
á geislavirkum úrgangi í
Do'unreay. Haft var eftir Magnúsi
Jóhannessyni, ráðuneytisstjóra í um-
hverfisráðuneytinu, að aukin vinnsla
þýddi aukna mengun og hann gerði
ráð fyrir að íslensk stjómvöld myndu
mótmæla kröftuglega.
Endurvinnsla betri
kostur en geymsla
Starfsemin
mikilvæg
efnahag N-
Skotlands
„Við höfum endumnnið geisla-
virkan úrgang frá rannsóknarstöðv-
um í Evrópu undanfarin 30 ár,“
sagði Ian Shepherd. „Nú eram við
________ hins vegar að leita eftír
fleiri verkefnum, enda
viljum við halda þeim
störfum, sem hér em.
Starfsemin í Dounreay er
mjög mikilvæg fyrir efna-
hag Norður-Skotlands,
sem að öðm leyti reiðir
sig að mestu á landbúnað og sjávar-
útveg. Ef við fáum ekki fleiri verk-
efni, þá verðum við að loka hluta
stöðvarinnar, verksmiðjunni sem
endurvinnur geislavirkan úrgang.
Hún er sú eina sinnar tegundar í
hinum vestræna heimi og yrði hún
lögð niður hyrfi möguleikinn á að
losna við geislavirkan úrgang. Þá
yrði að koma geislavirkum úrgangi
fyrir í geymslum og fresta þannig
vandanum."
Ian Shepherd sagði að verið væri
að kanna möguleikann á að vinna
geislavirkan úrgang frá 33 rann-
sóknarstofum í Evrópu. „Sumar
þessara stöðva hafa skipt við okkur
áður. Þetta eru til dæmis stofur, sem
nota kjarnorku við krabbameins-
rannsóknir eða aðrar læknisfræði-
legar rannsóknir. Undanfarið hafa
margar þessara rannsóknarstofa
þurft að geyma geislavirka úrgang-
inn, því nú er rekið dómsmál í
Bandaríkjunum, þar sem reynir á
það hvort seljendum geislavirkra
efna þar í landi sé skylt að taka við
úrganginum. Eins og málin horfa
við nú eru líkur á að við
fáum þetta verkefni, að
endurvinna úrganginn."
Að sögn Ians Shep-
herds skýrist úm miðjan
desember hvort evrópsku
rannsóknarstofurnar leita
til Dounreay. „Ef reiknað
er með eðlilegum tíma til samninga-
viðræðna gætum við byijað vinnslu
á næsta ári. Við gætum fengið næg
verkefni til fimm ára og fyrir þessa
vinnslu reiknum við með að fá um
90 milljónir punda [um 9 milljarða
Verkef ni til
fimm ára fyrir
níu milljarða
ísl. króna
króna]. Hagnaður okkar af þessari
vinnslu myndi einnig leiða til þess
að frarhlag ríkisins, og þar með
skattgreiðenda, til stöðvarinnar gæti
lækkað."
Aðspurður um afstöðu íbúa á
svæðinu við Dounreay til aukinnar
endurvinnslu þar, sagði Ian Shep-
herd að útskýrt hefði verið fyrir
íbúum hvern hag þeir hafi af vinnsl-
unni. Aðspurður um mótmæli sagði
hann að borist hefði bréf frá Green-
peace. Þar væri m.a. farið fram á
að fulltrúar kjarnorkuvinnslustöðv-
arinnar hittu fulltrúa umhverfis-
samtakanna á opnum fundi. „Við
höfum þegar átt ágæta fundi með
almenningi á svæðinu,
sem þetta mál snertir
mest, en ekki tekið af-
stöðu til þess hvort við
fundum með þrýstihópi,
sem á ekki rætur að rekja
___ til heimamanna.“
lan Shepherd vísaði
spurningum um það, hvort önnur
ríki hefðu gert athugasemdir við
aukna vinnslu í Dounreay, til breska
iðnaðarráðuneytisins. Ekki náðist í
talsmann þess í gær.