Morgunblaðið - 22.11.1995, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1995 11
Hverfafundur borgarstjóra í Neðra-Breiðholti og Seljahverfi
Undirgöng’ og umboðs-
maður borgarinnar
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
íbúar Neðra-Breiðholts
og Seljahverfis töldu
brýnt að fá úrbætur í
umferðarmálunum og
vildu beita sér fyrir
fegmn hverfisins. Hild-
ur Einarsdóttir sat
fundinn og hlustaði á
tillögur borgarbúa.
Hverfafundur með borgar-
stjóra, Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur, fyrir Bakka-,
Stekkja-, Skóga- og Seljahverfi
var haldinn í ÖlduselsskÓla á
mánudagskvöld. Fundinn sóttu um
eitt hundrað manns sem spurðu
einkum um umferðarmálin í hverf-
inu og endurbætur á einstökum
svæðum. í inngangserindi sinu
fjallaði borgarstjórinn um helstu
verkefnin í hverfinu í nútíð og
framtíð. í umferðarmálunum sagði
hún ráðgert að byggja mislæg
gatnamót á Reykjanesbraut þar
sem hún mætir Stekkjarbakka og
Breiðholtsbraut. Byrjað verður á
framkvæmdum við Breiðholts-
brautina og er áætlað að þeim
verði lokið fyrir árið 1998. Þá er
í undirbúningi að koma fyrir
vinstri beygju frá Reykjanesbraut
og inn í Mjóddina til að styrkja
stöðu rekstrar þar. Ingibjörg Sól-
rún vék að íþrótta- og tómstunda-
málum og sagði að gerð fijáls-
íþróttavallar væri langt komin.
Breiðholtssundlaugin hefði ver-
ið fjölsótt og þar bryddað upp á
ýmsum nýjungum, meðal annars
ungbarnasundi, en laugina sóttu
255 þúsund gestir á síðastliðnu
ári. Einsetningu skóla í Neðra-
Breiðholti og Seljahverfi sagði
borgarstjóri vel á veg komna.
Breiðholts- og Ölduselsskóli eru
einsetnir og ráðgert að Seljaskóli
verði einsetinn fyrir árið 1997.
Fyrirhugað er að hefja fram-
kvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili
fyrir aldraða sem staðsett verður
í Norður-Mjódd þar sem fjölmenn-
ar íbúðarblokkir fyrir aldraða eru
fyrir. í hverfinu eru 7 leikskólar
og eru 183 börn á biðlista eftir
plássi. Þá hefur aðsókn minnkað
töluvert að gæsluvöllum í hverf-
inu, sérstaklega á vetuma, og
verður völlunum væntanlega
fækkað. Breytingar eru fyrirhug-
aðar á leiðum strætisvagnanna á
þessu svæði og verða óvíða jafn
miklar breytingar og þar á næst-
unni.
Eftir inngangserindi borgar-
stjóra var orðið gefið fijálst.
Verður heilsdagsskólum
lokað?
íbúi í Seljahverfi spurði hvort
undirgöng undir Breiðholtsbraut á
móts við Seljabraut væru á fram-
kvæmdaáætlun. Slík göng væru
nauðsynleg til að tengja Selja-
hverfi og Efra-Breiðholt. Einnig
spurði hann um undirgöng við
ÍR-húsið við Skógarsel, þar sem
börn væru fjölmennir vegfarendur.
Þá taldi hann nauðsynlegt að gerð
yrðu undirgöng milli Suður- og
Norður-Mjóddar til að skapa ör-
yggi fyrir hina fjölmörgu öldruðu
íbúa í Norður-Mjóddinni. Borgar-
stjóri sagði að ýmsar endurbætur
hefðu verið gerðar á þessum svæð-
um til að auka umferðaröryggi.
Vestan Seljabrautar hefði verið
sett gangbraut og ljós og nýlega
verið komið fyrir miðeyju á Skóg-
arseli. Sagði borgarstjóri að þótt
gert væri ráð fyrir undirgöngum
á þessum stöðum í aðalskipulagi
þá væri það dýr framkvæmd og
ekki forgangsverkefni hjá borg-
inni. Víða annars staðar í borginni
væru aðstæður erfiðari, til dæmis
þar sem væru skólar.
Kvartað var undan órækt í tijá-
beðum við Jaðarsel og spurt hvers
vegna verið væri að setja niður
gróður þar ef honum væri ekki
haldið við. Garðyrkjustjóri, Jóhann
Pálsson, svaraði athugasemdinni
og sagði að þegar tijábeðið var
skipulagt hefði ekki verið vandað
nægilega til þess. Síðan hefði vant-
að fjármagn til að laga það. En
hafin væri endumýjun á beðinu.
Spurt var um Mjóumýrina og
hvaða starfsemi ætti að vera þar.
Borgarstjóri sagði að skólagarð-
arnir yrðu þar áfram og þar væri
gert ráð fyrir leikskóla. í framtíð-
inni yrði svæðið lagfært. íbúi í
hverfinu lýsti yfir áhyggjum af því
að á IR-svæðinu þar sem fram-
kvæmdir stæðu yfir væru skurðir
sem væru hættulegir börnum.
Borgarstjóri taldi að verið væri
að loka þessum ræsum.
íbúi spurði hvort heilsdagsskóla
í Bakkahverfi yrði lokað um ára-
mótin, en skólastjórar ættu í kjara-
deilu vegna starfa sem þeir inna
af hendi fyrir borgina. Borgar-
stjóri sagði að heilsdagsskólanum
í Bakkahverfi yrði ekki lokað nema
það næði til allra heilsdagsskóla
borgarinnar. Borgarstjóri kvaðst
ekki trúa að til þess þyrfti að
koma. Kennarasambandið ætti nú
í samningaviðræðum við starfs-
mannahald Reykjavíkurborgar.
Hjól fáí að fara inn í
strætisvagnana
Fulltrúi Skátafélagsins Seguls
í Seljahverfi spurði hvort borgin
ætlaði að styðja við bakið á félag-
inu eins og Iofað hefði verið. Borg-
arstjóri kvaðst reyna að horfa á
málefni skátafélaganna líkt og
íþróttafélaganna, í heild sinni, en
borginni bærust margar beiðnir
um byggingarstyrki frá þessum
aðilum. Sagði hún að viðræður
hefðu farið fram við skátafélögin
á þessu ári og reynt að koma til
móts við óskir þeirra en verið
gæti að skátafélagið Segull hefði
ekki verið þar á meðal.
í inngangserindi Ingibjargar
Sólrúnar kom fram að hún teldi
göngubrú yfir Kringlumýrarbraut
sem lokið verður við á næstunni
mikla samgöngubót fyrir gang-
andi og hjólandi umferð. Þá yrði
til samfelld leið órofin af umferð
frá Seltjarnarnesi og upp í Heið-
mörk. Kvað hún nema í Háskóla
íslands sem byggju í Breiðholtinu
sérstaklega geta notið góðs af
stígnum.
I tilefni þessara ummæla borg-
arstjóra var spurt hvort ekki mætti
athuga hvort taka mætti hjól inn
í strætisvagnana á leiðinni frá
miðborginni og upp í Mjódd. Á
brattan væri að sækja upp í Breið-
holtið og oft væri vindurinn í fang-
ið. Borgarstjóri sagði að tillögur
sem þessar hefðu þegar komið
fram en þær hefðu ekki hlotið
hljómgrunn hjá vagnstjórum. Ver-
ið væri að reyna að ná samkomu-
lagi um þetta atriði. Það ætti ekki
að vera meira vandamál að hafa
hjól í vögnunum en til dæmis
vagna og kerrur.
Fulltrúi Iðnnemasambandsins
var á fundinum og spurði hvort
borgarstjóri væri meðmæltur því
að leggja niður tæknisvið Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti eins og
tillögur í skýrslu menntamálaráð-
herra fælu í sér?
Borgarstjóri sagðist telja að
borgaryfirvöld myndu ekki taka
undir það sem sagt er í skýrsl-
unni. Sagði hún að innan skólans
væru ýmsar deildir sem höfðuðu
frekar til kvenna. „Mér finnst
þurfa að gæta jafnvægis svo bæði
kynin hafi val, vona ég því að
þetta verði skoðað nánar,“ sagði
Ingibjörg Sólrún.
Einn íbúanna óskaði borgar-
stjóra til hamingju með að Reykja-
víkurborg hefur verið valin menn-
ingarborg Evrópu og spurði jafn-
framt hvort borgarbúar mættu
vænta þess að fá sinn eigin um-
boðsmann.
Borgarstjóri sagðist gera ráð
fyrir að embættið yrði stofnað á
þessu ári en taldi að embætti
umboðsmanns þyrfti að vera í öll-
um sveitarfélögunum. Ingibjörg
Sólrún kvað einn annmarka á
fyrirkomulagi þess en því væri
ætlað að heyra undir borgarstjórn
sem það ætti jafnframt að gagn-
rýna.. Sagði hún viðræður standa
yfir við umboðsmann Alþingis um
embættið.
Fundur með íbúum Neðra-
Breiðholts og Seljahverfis var jafn-
framt lokafundurinn með borg-
arbúum að þessu sinni. Væntan-
lega verður þráðurinn tekinn upp
að nýju á næsta ári að sögn
borgarstjóra. Sagði hún að 1.400-
1.600 manns hefðu mætt á fund-
ina og um 200 manns tekið til
máls.
27. nóv.
síðustu sætin
London
á kr.
Flug og hótel kr. 19.930
Viðbótargisting á hinu ágæta ráðstefnuhóteli Earls Court sem við
bjóðum nú á frábæru verði í þessa brottför. Gott hótel með öllum
aðbúnaði. Oll herbergi með sjónvarpi, síma, baði og buxnapressu.
Veitingasalir, barir og fundaaðstaða.
Síðustu sætin til London í vetur
16.930
gvallarsköttum, 27. nóv.
19.930
Verð
Verð með flugvallarsköttum, 27. nóv.
kr.
kr.
M.v. 2 í herbergi, Earls Court, 3 nætur, 27. nóv.
Verð með flugvallársköttum.
30. nov.
F'unmtudagur
t\l sunuudag •
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562 4600.