Morgunblaðið - 22.11.1995, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Félag íslenskra stórkaupmanna vill einkavæða Flugstöðina í Keflavík
Fríhöfnin verði
einkavædd strax
—.....
STJÓRN Félags íslenskra stórkaup-
manna hefur sent frá sér ályktun-
þar sem þeirri umræðu sem nú fer
fram um einkavæðingu Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar er fagnað og hvet-
ur stjórn félagsins ríkisstjómina til
að heQast nú þegar handa við
einkavæðingu.
Haukur Þór Hauksson, stjórnar-
maður Félags íslenskra stórkaup-
manna segir að nauðsynlegt sé að
stokka upp allan verslunarrekstur
í flugstöðinni. „í dag er verslunar-
rými í flugstöðinni mjög illa nýtt.
Við teljum eðlilegast að þessu yrði
skipt upp í 20-30 svæði, sem öll
yrðu með heimild til fríverslunar,
og þau boðin út á nokkurra ára
fresti. Þessi háttur er hafður á í
flestum ef ekki öllum nágrannaríkj-
um okkar og löngu orðið tímabært
að svo verði einnig hér á landi.“
BREYTINGAR á gjaldskrá Pósts
og síma vegna póstgírógreiðslna
þýða að kostnaður vegna smærri
greiðslna til útlanda getur aukist
um tugi prósenta. Hér er um að
ræða þóknun vegna umsýslu í er-
lendum gjaldmiðli. Fyrir breytingu
var þessi þóknun 2% af upphæð-
inni, en nú hefur verið sett fast
400 króna gjald á hvem póstgíró-
seðil.
Kostnaðurinn
óháður upphæð
Þessi breyting felur í sér umtals-
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ís-
landsbanka hyggst bjóða við-
skiptavinum bankans upp á nýja
tegund þjónustu á næstunni. Full-
trúi VÍB mun hafa aðsetur í 10
stærstu útibúum íslandsbanka og
verður hægt að leita til hans^ varð-
andi hefðbundna þjónustu VÍB svo
sem kaup eða sölu á verðbréfum.
Að sögn Margrétar Sveinsdótt-
ur, forstöðumanns einstaklings-
þjónustu VÍB, er með þessum
hætti verið að færa bæði ráðgjöf
og kaup og sölu á verðbréfum nær
viðskiptavinunum með því að bjóða
upp á þessa þjónustu í útibúunum,
auk þess sem það geri bankanum
kleift að bjóða upp á heildarþjón-
ustu í fjármálum einstaklinga.
Hún segir að útibúin verði öll
Þá skorar stjórnin á ríkisstjórnina
að láta nú þegar af ríkisrekstri frí-
hafnarinnar í Keflavík. Haukur seg-
ir stórkaupmenn hafa ýmislegt við
núverandi fyrirkomulag að athuga.
„Þar ber fyrst að nefna rekstur
innkomufríhafnar. Þetta þekkist
hvergi í Evrópu nema hér á landi
og í Tyrklandi og er mjög ósann-
gjamt gagnvart íslenskri verslun. Á
sama tíma og ríkisvaldið er að
leggja á okkar félagsmenn mjög
fjölbreytta flóm opinberra gjalda
er það sjálft í beinni samkeppni við
okkur með sölu á tollfijálsum vam-
ingi suður í Keflavík."
Haukur segir mikilvægt að gefa
rekstur fríhafnar fijálsan. Til dæm-
is sé vel athugandi að reka slíkar
verslanir víðar á landinu, t.d. við
Reykjavíkurhöfn. Fjöldi erlendra
ferðamanna og áhafnir erlendra
verðan kostnaðarauka fyrir ein-
staklinga. Þannig frétti Morgun-
blaðið af frímerkjasafnara nokkr-
um, sem fær reglulega sendar
smæmi sendingar frá útlöndum.
Það sem af er þessu ári hefur
hann keypt vömr í gegnum póstg-
író fyrir um 48 þúsund krónur í
alls 18 sendingum. Fyrir þetta
greiddi hann samtals um 960
krónur í þóknun til Pósts og síma
en eftir þessa breytingu myndi
hann greiða 7.200 krónur í þóknun
vegna þessara sendinga, eða 750%
hærri upphæð en áður.
með beinlínutengingu við skrif-
stofu VÍB og því verði hægt að
nálgast þar allar helstu upplýs-
ingar um verðbréfaviðskipti. Ef um
sé að ræða flókin verðbréfavið-
skipti er hins vegar gert ráð fyrir
því að fólk muni áfram leita til
sérfræðinga fyrirtækisins.
Að sögn Margrétar verður þess-
ari nýjung hleypt af stokkunum á
fimmtudaginn kemur í útibúinu á
Suðurlandsbraut. Fyrir áramót er
síðan ætlunin að búið verði að
koma þessari þjónustu upp í fjórum
útibúum til viðbótar, í Lækjargötu,'
Vestmannaeyjum og á Kirkjus-
andi. Fljótlega upp úr áramótum
bætist síðan við útibúin á Akur-
eyri, Selfossi, í Keflavík, Kringl-
unni og á Háaleitisbraut.
skipa fari um höfnina á ári hveiju
og athuga þurfí hvort ekki sé hægt
að sinna þessum hóp betur. Til þess
verði verslunin að fá svigrúm til
að þreifa sig áfram á þessu sviði.
„Þetta er ekki aðeins mikilvægt
fyrir verslunina, heldur einnig fyrir
ferðaþjónustuna. Við sjáum að
u.þ.b. 24-25% af því sem ferðamenn
á Vesturlöndum eyða fer í verslun.
Að sögn Guðbjargar Gunnars-
dóttur, upplýsingafulltrúa Pósts
og síma, er þessi breyting komin
til þar sem kostnaðurinn við þessa
þjónustu sé hinn sami, óháð því
hver upphæðin sé. „Samkvæmt
gömlu gjaldskránni voru þeir sem
greiddu hærri upphæðir í raun að
greiða niður kostnaðinn við lægri
upphæðirnar,“ segir Guðbjörg.
„Með þessu móti er hver viðskipta-
vinur að greiða það sem honum
ber.“ Þá bendir hún á að hér sé
um svipaðar upphæðir að ræða og
bankarnir taka fyrir þessa þjón-
STJÓRNIR norsku skipafélaganna
Bergesen d.y. AS og Havtor AS
hafa samþykkt að leggja til að þau
verði sameinuð.
í yfírlýsingu frá þeim segir að
samkomulag hafí náðst um skipti á
hlutabréfum þannig að fyrir hver
70 bréf í Havtor fáist 11 í Bergesen.
Bergesen er stærsta skipafélag
Noregs og umsvifamesti óháði aðil-
inn í heiminum, sem gerir út olíu-
flutningaskip. Havtor stendur fram-
arlega í útgerð meðalstórra skipa.
Bergesen nær einnig markaðsfor-
ystu á því sviði við sameininguna
og verðmæti hins sameinaða fyrir-
tækis verður um 10 milljarðar nor-
skra króna að sögn kunnugra.
Gefnar verða út 18,9 milljónir
nýrra bréfa í Bergesen og þau verða
75,8 milljónir alls eftir sameining-
una.
Hlutabréf í Bergesen lækkuðu um
3 n.kr. í kauphöllinni í Ósló í 122.
Bréf í Bergesen hafa lækkað síðan
skýrt var frá fyrirhugaðri samein-
ingu, sumpart vegna þess að ýmsir
Hér á landi sýnist okkur þetta hlut-
fall vera talsvert lægra og það er
því mjög mikilvægt að okkur gefist
tækifæri til að þjóna sívaxandi
fjölda erlendra ferðamanna sem
hingað koma. í ferðaþjónustu er
litið á verslun sem afþreyingu sem
mikilvægt er að vel sé sinnt,“ segir
Haukur.
ustu. Þar getur kostnaðurinn legið
á bilinu 100 krónur upp undir 950
krónur, eftir því eðli þjónustunnar.
Guðbjörg segir þessa breytingu
vissulega koma ver út fyrir aðila
sem eru að greiða smærri upphæð-
ir og þá hugsanlega með reglulegu
millibili. Hún bendir hins vegar á
að mörg fyrirtæki erlendis, svo
sem tímarit, sem séu í umtalsverð-
um viðskiptum hér á landi hafi
farið þá leið að stofna bankareikn-
inga hérlendis til þess að spara
viðskiptavinunum þennan kostn-
að.
fjárfestingar eru mótfallnir vaxandi
umsvifum félagsins á sviði gasflutn-
inga.
Skipasíða- og borpallafélagið
Kværner A/S, sem á 44,99% í Havt-
or, kveðst hlynnt sameiningunni.
Kynningarbæklingur hlutabréfa
verður fáanlegur 4. desember og
hlutahafafundur haldinn í báðum
félögum 13. desember.
Lagt er til að sameiningin fari
fram-1. janúar.
Bergesen bauð í Havtor 15. nóv-
ember vegna þráteflis í viðureign
við skipafélag Wilh. Wilhelmsens
(WWL) um yfirráð yfir bílafeijufé-
laginu Den Norske Amerikalinje
(NAL).
Wilhelmsen og Bergesen áttu
nógu mörg hlutabréf í NAL hvort
félag um sig til að koma í veg fyrir
yfirtöku hins. í síðustu viku sam-
þykkti Bergesen að selja WML 40,6
milljónir NAL-hlutabréfa á 13 kr.
hvert.
Wilhelmsen hefur komizt yfir
91,85% bréfa í NAL og tekur við
rekstri félagsins.
HPjók
hagnað
um 42%
Palo Alto, Kaliforníu. Bloomberg.
HEWLETT-PACKARD tölvu-
fyrirtækið í Bandaríkjunum
skilaði alls um 678 milljóna
dollara hagnaði á síðasta
fjórðungi reikningsársins sem
stóð til loka októbermánaðar
og jókst hann um 42,4% frá
sama tíma árið áður.
Þá jukust rekstrartekjur um
29% milli ára eða úr 7 milljörð-
um dollara í 9,05 milljarða.
Sala á einkatölvum og prent-
urum jókst, en hlutfallslega
minni hagnaður var af söl-
unni.
Pantanir voru að andvirði
8,8 milljarðar dollara á tíma-
bilinu sem er 27% aukning
miðað við sama tíma í fyrra.
Bandarískar pantanir voru að
andvirði 4,3 milljarðar dollara,
sem er 26% aukning, og pant-
anir utan Bandaríkjanna 4,8
milljarðar dollara, sem er 29%
aukning.
Hagnaður reikningsársins í
heild nam alls um 2,4 milljörð-
um dollara og jókst um 52%
frá fyrra ári. Tekjur námu
alls 31,5 milljörðum dollara
og jukust um 26%.
AT&T í við-
ræðum við
Time-Warner
New York. Reuter.
AT&T símafyrirtækið á í við-
ræðum um milljarða dollara
fjárfestingu í kaplasjónvarps-
deild Time Warners sam-
kvæmt Wa.ll Street Joumal.
Að sögn blaðsins sækist
Time Warner eftir 2-4 millj-
örðum dollara frá AT&T til
að grynnka á skuldum og end-
urbæta kaplakerfi sitt í því
skyni að taka upp símaþjón-
ustu.
Bent er á að samkomulag
milli fyrirtækjanna hafí ótví-
ræða kosti. Fjarskiptaumsvif
AT&T eru alþjóðleg og Time-
Warner er annað stærsta
kaplasjónvarpsfyrirtæki
Bandaríkjanna og í röð helztu
seljanda skemmti- og fjöl-
miðlaefnis.
Víðtæk endurskipulagning
stendur yfir hjá báðum fyrir-
tækjum. Í ráði er að skipta
AT&T í þijú fyrirtæki. Time
Warner bíður eftir samþykki
til að kaupa Turner Broad-
casting System og fyrirtækinu
hefur verið skipt í skemmti-,
útgáfu- og fjarskiptadeild.
♦
Handels-
banken með
minna tap
Stokkhólmi. Reuter.
TAP Handelsbankens í Sví-
þjóð af lánum fyrstu níu mán-
uði ársins minnkaði um 18%
í 1,77 milljarða sænskra króna
samanborið við 2,14 milljarða
á sama tíma í fyrra.
Óinnheimtanlegar skuldir á
tímabilinu námu 3,65 milljörð-
um s.kr., eða 1,3% af heildar-
lánveitingum, og minnkuðu
um 34% miðað við sama tíma
1994.
Rejtstrarhagnaður bankans
jókst um 17% í 3,72 milljarða
s.kr. úr 3,17 milljörðum á
fyrstu níu mánuðunum 1994.
Sérfræðingar höfðu búizt
við rekstrarhagnaði upp á
3,81 milljarð s.kr. á níu mán-
uðum.
Byggingarvísitalan
stendur í stað
VÍSITALA byggingarkostnaðar
er óbreytt í nóvember frá því sem
hún var í október eða 205,1 stig.
Þessi vísitala gildir fyrir desemb-
ermánuð.
Síðustu tólf mánuði hefur vísi-
tala byggingarkostnaðar hækk-
að um 3%, en síðustu þijá mán-
uði hefur vísitalan hækkað um
0,3% sem jafngildir 1,2% verð-
bólgu á heilu ári.
Launavísitalan um miðjan
októbermánuð reyndist sam-
kvæmt útreikningi Hagstofu ís-
lands vera 141,2 stig og hækkar
um 0,3% frá fyrra mánuði.
Hækkun vísitölunnar síðustu
þtjá mánuði jafngildir 4,4%
hækkun á heilu ári, hækkunin
síðustu sex mánuði jafngildir
5,8% árshækkun, en hækkunin
síðustu tólf mánuði er 5,7%.
Póstur o g sími tekur upp fasta þóknun á greiðslur með póstgírói í stað prósentu
Hækkun á lægri upphæðir
Verðbréfaráðgjöf í
útibúum Islíin dsbanka
Norsk skipafélög
sameinast
Ósló.Reuter.
$
í
»
[
f
í
«
i
4
c
4
>
i
í