Morgunblaðið - 22.11.1995, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1995
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
STÖNDUM
VÖRÐ UM
VERK-
ÞEKKINQU
íslenskt f^játakk
SAMTÖK
■ » IÐNAÐARINS
/V//? FULLKOMNARI
OFNHITASTILLIR
Á ÓBREYTTU VERÐI.
NYÍTT
NFOSS
Enn ein nýjung í
sjálfvirkum ofnhitastillum.
$M ELLT4
Allar aðgerðir
eru fljótvirkari,
tenging nemans
við lokann
er enn traustari
og nýting á
heita vatninu
nákvæmari.
Einnig er hægt
að læsa
nemanum á
einfaldan hátt.
„KVÖLDBIRTA“ milli „Stúlku“ og „Storms“.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Tveir togarar
og þrjár stúlkur
INGÁLVUR av Reyni er færeyskur
listmálari. Hann sýnir málverk í
Gallerí Borg við Austurvöll til næst-
komandi sunnudags. Ingálvur er
fæddur 1920 og er þegar kominn á
stall með helstu listamönnum Norð-
urlandanna á þessari öld og sam-
kvæmt fréttatilkynningu frá gallerí-
inu er hann þekktasti núlifandi list-
málari Færeyinga.
Gallerí Borg hefur löngum höndl-
að með svokallaða „gamla meistara"
þó ungir listmálarar hafi sýnt þar
töluvert einnig. Ingálvur fer í hvor-
ugan flokkinn enda myndir hans
nútímalegar þótt stíllinn sé að verða
aldargamall. Myndirnar sýna með
titlum sínum, svo ekki verður um
villst, að hér fer maður sem hefur
lifað við saltan sjóinn. Togari, Skip
á firðinum, Útskipun og Stormur eru
dæmi um titla.
Til Garðars
15 olíuverk og sex þekjuiitsverk
prýða tvær hæðir gallerísins. Mynd-
irnar eru óhlutbundnar og áberandi
er notkun Ingálvs á gráum litum þó
rauð og græn innskot spretti fram
Myndlist færeyskra
frænda okkar er sjald-
séð í sýningarsölum
hér á landi. Þóroddur
Bjarnason skoðaði
verk Ingálvs af Reyni
í Gallerí Borg.
í flestum myndanna á milli kantaðra
forma.
Það er oft ástæða til að velta fyr-
ir sér titlum mynda og þá sérstak-
lega þegar þeir eru í mjög óljósu
samhengi við myndina. „Togari" er
túlkaður á stórum óhlutbundnum
fleka í mynd númer eitt. Vissulega
er enginn togari á myndinni en ef
málið er hugsað nánar er best að
vera ekki að velta því of mikið fyrir
sér enda myndin góð.
Titillinn er viðbót við myndina og
gefur möguleika á að komast nær
helstu hugðarefnum listamannsins
og hvernig veröld hans lítur út. Á
efri hæð er ein þriggja stúlkna á
sýningunni. Hún er iagleg og er sú
yngsta og minnsta af þeim þremur,
unnin á þessu ári.
Ein mynd er staðsett á trönum
líkt óg listamaðurinn hafi klárað
myndina í galleríinu rétt fyrir opn-
un. Þar er annar togarinn á sýning-
unni kominn en því miður er prent-
villa í sýningarskrá og fyrst hélt ég
að myndin héti upp á enska tungu;
„To Gari“, Til Garðars, og fannst
mér strax persónulegur tónn í henni
en þegar ég áttaði mig á villunni
breyttist myndin og ég stóð aftur
við höfnina en leit við og inn í Kvöld-
birtu sem Ingálvur málar Iíflega og
skemmtilega og grái liturinn hopar
fyrir þeim rauða.
Á efri hæð eru þekjulitamyndir.
Þær eru án titils en þess í stað hafa
þær ailar fengið lítinn appelsínu-
rauðan sölupunkt við hlið sér, eins
og reyndar fleiri myndir í salnum,
sem sannar áþreifanlega að íslend-
ingar hafa tekið Ingálvi vel. Á leið-
inni út leit ég snöggvast á „Storm“
sem blés mér út í mánudagskulið.
KÓR Öldutúnsskóla.
Afmælishátíð og útgáfutónleikar
í DAG 22. nóvember eru liðin 30 ár frá stofnun
Kórs Öldutúnsskóla. Af því tilefni heldur’kórinn
afmælishátíð óg útgáfutónleika í Hafnarborg sem
hefst kl. 20. Þar koma fram auk kórsins, Litli kór
Öldutúnsskóla og kór fyrrum kórfélaga.
Kórinn hefur gefið út geisladisk sem ber heitið
„Dagur er risinn“. Þar er að finna 18 lög og kór-
verk, sem sum eru sérstaklega saminn fyrir kórinn.
Diskurinn á að gefa gott yfirlit yfir margt af því
sem kórinn hefur verið að fást við á liðnum árum.
í bæklingi sem fylgir með eru upplýsingar um
kórinn, textar og fjöldi mynda.
Fyrrum kórfélagar, vinir og velunnarar kórsins
eru velkomnir á afmælishátíðina.
Stofnandi og stjórnandi Kórs Öldutúnsskóla er
Egill Friðleifsson.
A
Islensk
kvennalist
í Chicago
SJÖ ÍSLENSKAR listakonur
sýna verk sín í Artemisia
Galleríinu í Chicago í Banda-
ríkjunum. Þetta eru myndlist-
arkonurnar Sólveig Aðal-
steinsdóttir, Jónína Guðna-
dóttir, Sigríður Hrafnkels-
dóttir, Rúrí, Brynhildur Thor-
geirsdóttir, Inga Svala Thors-
dóttir og Björg Thorsteins-
dóttir. Sýningin heitir Altitu-
des, eða Hæðir, og undirtitill-
inn er Sjö listakonur frá Is-
landi. Hún mun standa fram
til 26. nóvember. Listakon-
urnar voru allar viðstaddar
opnun sýningarinnar og héldu
tölu um verk sín.
Listakonurnar fluttu einnig
fyrirlestra með skyggnum um
verk sín við skúlptúrdeild í
School of the Art Institute of
Chicago og að auki flutti
Rúrí fyrirlestur við Harper
College.
í desember munu listamenn
frá Artemisia Galleríinu sýna
verk sín í Nýlistasafninu í
Reykjavík. Sú sýning mun
nefnast Attitudes: Good Girls,
Bad Women eða Viðhorf:
Stilltar stelpur, vondar konur.
Samsöngur
þriggja
karlakóra
KARLAKÓR Selfoss og
Karlakór Rangæinga koma í
heimsókn til Hafnarfjarðar
laugardaginn 25. nóvember
næstkomandi og syngja í
Víðistaðakirkju kl. 17 ásamt
Karlakórnum Þröstum.
Er þetta í þriðja skipti sem
kórar þessir koma fram sam-
an, en haustið 1993 stofnuðu
kórar þessir til samstarfs og
héldu samsöng á Hvolsvelii.
Aftur sungu þeir saman í
fyrra á Selfossi og nú í Hafn-
arfirði. Hafa þessar skemmt-
anir yfirleitt verið upphaf
vetrarstarfs kóranna, sem
þeir síðan fylgja eftir með
aðventusöng og sjálfstæðum
tónleikum.
Skemmtun þessi verður
ekki endurtekin.
Gull og ger-
semi á Sóloni
LÍTIL myndaröð eftir Sölva
Helgason (Sólon íslandus)
prýðir veggi kaffilistahússins
Sólon íslandus, neðri hæð, í
tilefni af þriggja ára afmæli
kaffihússins og hundrað ára
dánardægri hans.
Verkin eru í einkaeign íjöl-
skyldu í Reykjavík. Mynd-
heimur Sölva er afar sérstæð-
ur, fínlegur og mynstur-
kenndur. Verk efitr Sölva fyr-
irfinnast einnig á Þjóðminja-
safni íslands.
Gæði og hreinleiki
Gustavsberg blöndunar- og hreinlætistækin eru stílhrein og endingargóð.
Kynnið ykkur fjölbreytta og fallega hönnun fyrir eldhús og baðherbergi.
- þar sem gæði og hreinleiki skipta máli
Fæst í öllum helstu byggingavöruverslunum
Innflutningsaðili Gustavsberg á íslandi: Krókháls hf. Sími 587 6550