Morgunblaðið - 22.11.1995, Page 38

Morgunblaðið - 22.11.1995, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ -H MINNIIMGAR *7 t Ástkaer móðir okkar, ÞÓRDÍS GUÐJÓNSDÓTTIR frá ísafirði, Digranesvegi 80, Kópavogi, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 20. nóvember. Unnur Jakobsdóttir, Kristmundur Jakobsson. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur, afi og langafi, BJÖRN O. ÞORLEIFSSON sjómaður, Hverfisgötu 39, Hafnarfirði, lést í Landspítalanum þann 21. nóvember. Þorleifur Björnsson, Ragna Björg Björnsdóttir, Guðrún Björnsdóttir, Guðmundur R. Guðmundsson, Elín Björnsdóttir, Sturlaugur Björnsson, Guðbjörg Björnsdóttir, Sigurður Sveinbjörnsson, Björn Grétar Sigurðsson, Alma Jónsdóttir, Jóhanna Þorleifsdóttir, Sigríður Þorleifsdóttir, mágur, barnabörn og barnabarnabörn. t Okkar ástkæri INGIMAR VALDIMARSSON, Hvassaleiti 54, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 24. nóvember kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Vísindasjóð Landspítalans. Bjarnveig Pálsdóttir, Jóhann Páll Ingimarsson, Valdimar Óskarsson, Kristinn Már Ingimarsson, Gerður Þorsteinsdóttir, Valdís Ingimarsdóttir, Páll Aðalsteinsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, systkini og fjölskyldur. t Móðir okkar, fósturmóðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, VILHELMÍNA SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR, Vesturgötu 52, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 24. nóvember kl. 13.30. Ólafur Jóhann Jónsson, Sigríður Jónsdóttir, Guðjón Pálsson, Vilhjálmur Jón Guðbjartsson, Jóhanna S. Guðjónsdóttir, Ingibjörg Jóna Jónsdóttir, Guðbjartur Haraldsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Hjartanlegar þakkir til allra, sem auðsýndu mér samúð og hlýhug við andlát og útför föður míns, GUÐMUNDAR GUNNARSSONAR, Arnarsfðu 2A, Akureyri. Helga Guðjónsdóttir. JÓNA JÓNSDÓTTIR + Jóna Jónsdóttir var fædd í Reykjavík 30. nóv- ember 1919. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Eir 10. nóvember 1995. Foreldrar hennar voru Jón Þorkelsson sjómaður og Þóra Jónsdóttir húsmóð- ir. Systkini Jónu eru bæði látin, þau hétu Guðrún og Georg, var Jóna yngst þeirra. Jóna giftist 5. júní 1943 eftirlif- andi eiginmanni sínum, Oskari Vigfússyni. Börn Jónu og Ósk- ars eru þrjú: Þóra Óskarsdóttir, gift Pétri Yngvasyni; Sveinn Öskarsson, kvæntur Guðríði Halldórsdóttur; og yngstur er Örn Óskarsson, kvæntur Sjöfn Svansdóttur. Barnabörnin eru sjö og barnabarnabörnin tvö. Utför Jónu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. ELSKULEG tengdamóðir okkar Jóna Jónsdóttir er nú látin. Okkar kynni hafa staðið í rúma tvo áratugi. Þann tíma hefur hún átt við veikindi að stríða. Jóna var mjög ósérhlífin kona og alltaf var stutt í kímnigáfuna. Jóna gaf fjölskyldu sinni mikla hlýju. Þegar heilsan leyfði naut hún þess að fara á mannamót og vera með fólki sínu og þá ekki sist í barna- afmælum. Jóna fylgd- ist náið með þjóðlífinu, það var fátt sem fór fram hjá henni og minni hennar með ein- dæmum. Kom það sér þá oft vel að geta leitað til Jónu. Eiginmaður Jónu, Óskar, gerði henni kleift að vera mun lengur á heimili þeirra en nokkur þorði að vona. Síðustu fimm árin dvaldi hún á hjúkrunar- heimilum, fyrst í Hátúni, en lengst af á hjúkrunarheimilinu Eir. Þar naut hún yndislegrar umhyggju og góðrar aðhlynningar, sem hún var mjög þakklát fyrir. Elsku Óskar, við vitum að Jóna vakir yfir þér, eins og hún var vön að gera, Elsku Jóna, megir þú hvíla í Guðs friði. Tengdadætur. Með nokkrum orðum langar mig að kveðja elsku ömmu mína, Jónu t Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir, SIGURBJÖRN HERBERTSSON, Hvammabraut 14, Hafnarfirði, lést í Landspítalanum að morgni 20. nóvember. Hildur Jóhannesdóttir, Bylgja Sigurbjörnsdóttir, Steinunn Felixdóttir, Elfsabet Herbertsdóttir. t Útför eiginmanns míns, föður, tengda- föður, afa og langafa, ANTONS GUNNARS AXELSSONAR flugstjóra, Hlíðargerði 19, Reykjavík, fer fram frá Bústaðarkirkju föstudaginn 24. nóvember kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hins látna er vinsamlegast bent á Krabbameinsfélag- ið. Jenný Jónsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts og jarðar- farar sonar míns, KJARTANS KARLSSONAR, Ránarstíg 8, Sac:ðárkróki. Guðrún Jónsdóttir og aðrir vandamenn hins látna. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlót og útför ástkærs eig- inmanns míns, föður'okkar, tengdaföð- ur, afa og langafa, JÓHANNS KR. JÓHANNESSONAR, Bröttugötu 4B, Borgarnesi. Ragnheiður I. Ásmundsdóttir, Ásmundur Jóhannsson, Jóhannes Gylfi Jóhannsson, Björn Jóhannsson, Jóhann Már Jóhannsson, Gísli Margeir Jóhannsson, Tryggvi Jóhannsson tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn. t Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna fráfalls ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, MARTEINS DAVÍÐSSONAR múrarameistara, Neðstaleiti 26. Við óskum ykkur Guðs blessunar. Sigríður Ársælsdóttir, Ragnheiður Marteinsdóttir, Hörður Sævaldsson, Ingibjörg Marteinsdóttir, Jón Karl Snorrason, Maria Aldfs Marteinsdóttir, Marta Bryndis Marteinsdóttir, Helga Marteinsdóttir, Sigurður Kristinsson, Ásta Björk Marteinsdóttir, Ægir Axelsson, barnabörn og barnabarnabörn. Jónsdóttur, sem er látin 75 ára gömul. Amma hafði lengi átt við MS- sjúkdóminn að stríða. Hann tók sinn toli í hennar lífi, því hún var bund- in við hjólastól í rúm 20 ár. Þrátt fyrir veikindi sín skorti hana ekki lífsgleðina og hlýjuna. Það voru ófá skiptin sem leið mín lá beinustu leið úr skólanum á Blöndubakkann þar sem mér var tekið hlýlega og yfirleitt voru kringlur og vínarbrauð á boðstólum. Oft naut ég hjálpar hjá henni við heimanámið, þá sérstaklega í dönskunni. Við áttum margar góðar stund- irnar þar sem við dunduðum okkur við spjall, en oft tókum við þó í spil og þar lærði ég mest af minni eigin spilamennsku. Seinna meir fengu amma og afi vídeó, þar sem við horfðum á margar myndirnar saman. Jólin eru ofarlega í huga mínum, því þá naut amma sín vel. Ég fékk að taka fullan þátt í jólaundirbún- ingnum. I sameiningu skipulögðum við skreytingar og innkaup og ég fékk síðan að pakka inn öllum gjöf- unum, nema minni, sem ég var yfir- leitt mjög forvitin um. Amma bjó lengst af á Blöndu- bakkanum en á sínum seinni árum flutti hún í Hátún og síðan á Eir þar sem mjög vel var hugsað um hana. Elsku amma mín, ég veit að þér líður nú vel og minning þín mun fylgja mér um ókomna tíð. Nanna Dísa Sveinsdóttir. Elsku amma, okkur langar að kveðja þig með örfáum orðum. Við vorum alltaf velkomin til þín og afa á Blöndubakka og síðustu árin á hjúkrunarheimilið Eir. Þú varst okkur góð amma og hafðir ávallt meiri áhyggjur af okkur hinum en sjálfri þér. Elsku afi, við biðjum guð að gefa þér styrk í sorg þinni. Fríða Björk og Arnar. Elsku amma. Nú ertu sofnuð svefninum langa óg ég vona að þér líði nú vel. Þú varst búin að vera svo mikið veik og í svo mörg ár. En aldrei heyrði ég þig kvarta og aldrei var neina sjálfsvorkunn að finna. Þú varst svo hugrökk og svo góð og gjafmild. Þú varst gefandi en ekki þiggjandi í lífinu. Þegar við hittumst nokkrum dög- um fyrir andlátið varstu svo dauf og þreytt, eins og nú værir þú búin að fá nóg. Ég vonaði að þú myndir hrista þetta af þér eins og svo oft áður. Én svo var ekki í þetta sinn og er fréttin kom þann 10. nóvem- ber þá var hún svo sár, svo sár elsku amma. Ég er þakklát fyrir að hafa átt svona góða ömmu og ég var líka svo heppin að þú bjóst í næsta húsi á mínum uppvaxtarárum. Ég var þitt fyrsta barnabarn og það eina í mörg ár og að sjálfsögðu naut ég þeirra forréttinda hjá þér. Á þessum tíma hittumst við að minnsta kosti einu sinni á dag. Við sátum og spjölluðum, spiluðum á spil og ósjaldan skrapp ég í búðina og náði í ís handa okkur, en það var uppá- hald okkar beggja. Pönnukökurnar þínar voru þær bestu í heimi, ég man að þú sast á háum stól og bakaðir þær, en svo varstu veikari og gast ekki gert margt af því sem þú vildir. Ég man að mér þótti svo voðalega leitt að þú gast ekki geng- ið, því þér hafði þótt svo gaman að fara í gönguferðir og þú vildir frekar ganga en fara í bíl. En í öllum þessum veikindum kvartaðir þú aldrei. Ég hef aldrei kynnst jafn skapgóðri konu og þér amma. Mik- ið er ég glöð að þú skyldir komast í brúðkaupið mitt í september síð- astliðnum, það var auðséð á þér hvað þér fannst gaman. Elsku amma og langamma, við kveðjum þig með miklum söknuði og geymum allar fallegu minning- arnar um þig. I hjarta rnínu veit ég að þú átt eftir að fylgjast með mér og íjölskyldu minni um ókomin ár. Jóna Ósk Pétursdóttir og synir. < i i i i I : 4 fl i Í 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.