Morgunblaðið - 03.12.1995, Page 1
160 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
277. TBL. 83. ÁRG. SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Takið mark á
mittismálinu
FUNDIN hefur verið leið, sem læknar
segja nokkuð örugga, til að meta lík-
urnar á hjartaáföllum og heilablóðfalli.
Hún er einfaldlega sú að athuga mittis-
málið. Ef það er á uppleið, þá er svo
einnig með hættuna á áðurnefndum
sjúkdómum. Konur, sem eru meira en
80 sm í mittið, og karlar, sem eru
meira en 94, ættu að fara í megrun.
Michael Lean, prófessor við háskólann
í Glasgow, segir í grein í breska lækna-
blaðinu, að við þessi mörk sé hættan
um það bil helmingi meiri en ella og
við hvern sm, sem við bætist, eykst hún
stöðugt og getur orðið allt að fimmföld
á við það, sem er hjá fólki í eðlilegum
holdum. Þessi niðurstaða var fengin
með rannsóknum á 5.000 Hollending-
um, konum og körlum. Meðal þess, sem
tekið var tillit til eða mælt, var líkams-
þyngd, aldur, áfengisneysla, reykingar,
hreyfing og menntun.
Sex og hálfs
árs fangelsi
Singapore. Reuter.
NICK Leeson, sem setti Baringsbank-
ann breska á hausinn með því að tapa
um 90 milljörðum fsl. kr. í spákaup-
mennsku, var dæmdur í sex og hálfs
árs fangelsi í Singapore í gær. Var
dómurinn harðari en sumir lögfræð-
ingar höfðu spáð en virtist ekki koma
sakborningnum á óvart. Brosti hann
breitt þegar hann var leiddur úr rétt-
arsalnum. Dómarinn sagði, að Leeson
hefði spunnið mikinn blekkingarvef í
kringum viðskipti sín en viðurlögin
við ákæruatriðunum tveimur voru átta
ára fangelsi mest. Frá dóminum drag-
ast níu mánuðir í gæsluvaðhaldi og
líklegt þykir, að Leeson' losni eftir
hálft fjórða eða fjögur ár hagi hann
sér vel. Leeson var dæmdur í hálfs
árs fangelsi fyrir að hafa blekkt end-
urskoðunarfyrirtækið Coopers and
Lybrand og í sex ára fangelsi fyrir
að hafa leikið sama leik gagnvart yfir-
völdum í Singapore. Verjendur Lee-
sons létu ekkert hafa eftir sér um
dóminn eða hvort þeir ætluðu að
áfrýja honum. Til þess hafa þeir 10
daga. Leeson verður fyrst um sinn í
Tanah Merah-öryggisfangelsinu í Sin-
gapore en verður líklega fluttur í ann-
að síðar. Farið er vel með fanga í
Singapore en aðstæður eru afar fá-
brotnar og ekki dekrað við þá að neinu
leyti. Engin loftkæling er í klefum og
beðurinn er þunn strámotta. Leeson
getur þó fengið vestrænan mat biðji
hann um hann.
Morgunblaðið/RAX
SMIÐI húss Karlakórs Reykjavíkur í Öskjuhlíðinni hefur miðað vel áfram og hér eru smiðir í óðaönn að ganga frá
þakinu. Handan við sundin sér til Skarðsheiðar.
Bill Clinton með hermönnum sem sendir verða til Bosníu
„Erum staðráðnir í að
gera skyldu okkar“
Ramstein. Reuter.
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, kvaddi
í gær írland og hélt til Þýskalands þar sem
hann að ávarpaði þúsundir bandarískra her-
manna, sem sendir verða til friðargæslustarfa
í Bosníu. Fullvissaði hann þá um, að þeir
gætu svarað fyrir sig af fullum krafti ef á
þá yrði ráðist. Aðfinnslur Frakka og áróður
gegn Dayton-samkomulaginu eru farin að
valda nokkrum áhyggjum.
Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, tók á
móti Clinton þegar hann kom til Ramstein-
herflugvallarins fyrir utan Kaiserslautern í
Suðvestur-Þýskalandi. í Baumholder-herstöð-
inni skammt frá Ramstein eru 11.000 banda-
rískir hermenn og margir þeirra verða sendir
til Bosníu um miðjan desember eftir að friðar-
samningarnir hafa verið undirritaðir í París.
Hlakka þeir ekki til að eiga jól í Bosníu en
biðu komu Clintons með eftírvæntingu.
„Hér bíða allir spenntir eftir komu forset-
ans,“ sagði Fred Armstead liðþjálfi. „Það er
vissulega nokkur kvíði í mönnum en við erum
staðráðnir í að gera skyldu okkar.“
Friðarför til Bosníu
Clinton sagði í ávarpi sínu til hermann-
anna, að þeir hefðu heimild til að svara fyrir
sig af fullum krafti ef á þá yrði ráðist. Kvaðst
hafa staðið gegn því í þrjú ár, að bandarísk-
ir hermenn yrðu sendir til Bosníu en nú færu
þeir þangað til að tryggja frið. Ekki væri
unnt að útiloka, að einhveijir féllu í valinn,
en hann kvaðst vilja fullvissa hermennina um,
að allt hefði verið gert til að tryggja, að áhætt-
an yrði sem minnst.
Clinton hefur heitið að senda 20.000 her-
menn til Bosníu, þriðjung friðargæsluliðsins,
en honum hefur þó ekki enn tekist að sann-
færa bandarísku þjóðina um réttmæti þess.
Er um helmingur hennar andvígur því en það
var þó verulegur sigur fyrir hann þegar Bob
Dole, leiðtogi repúblikana í öldungadeild,
ákvað í vikunni að styðja stefnu forsetans í
þessu máli.
Búist var við, að Clinton kveddi formlega
700 bandaríska hermenn, sem senda átti til
Bosníu í gær, en þeir og 1.900 hermenn aðr-
ir eiga að búa í haginn fyrir komu meginher-
aflans. Verður hann fluttur til Bosníu á nokkr-
um vikum.
Gagnrýni Frakka
Stöðug gagnrýni Frakka á Dayton-sam-
komulagið um frið í Bosníu er farin að vekja
ótta um, að friðargæsla NATO kunni að ein-
kennast af sömu óeiningunni og einkennt
hefur friðargæslu Sameinuðu þjóðanna.
Island þarf ódýr
o g trygg fjarskipti
Yinnuálag er áhættu-
p þátturí
meðgöngu
' 6 Gengið á veggi
R «