Morgunblaðið - 03.12.1995, Síða 2

Morgunblaðið - 03.12.1995, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Taugadeild Landspítala verður opnuð að nýju eftir hálfs árs lokun Hálf afköst í byrj un ÁKVEÐIÐ hefur verið að taugadeild Landspítala verði opnuð um áramót eftir hálfs árs lokun. Gunnar Guð- mundsson yfirlæknir taugadeildar hefur átt viðræður við stjórnarfor- mann Ríkisspítala og er búið að til- kynna starfsfólki deildarinnar að hún verði opnuð að nýju. Þó er gert ráð fyrir að í fyrstu verði deildin rekin með helmingi þess sjúkra- rúmafjölda sem áður var, eða um 22 rúmum, en síðan verði aukið við í áföngum. „Það er búið að ganga mikið á, við höfum rætt við ráðherra og sömuleiðis fulltrúa ýmissa sjúklinga- félaga, auk þess sem við höfum margsinnis rætt við stjórn Ríkisspít- alanna um að opna deildina að nýju og það hefur skilað þessum árangri. Úttekt á taugasjúkdómum Stjómarformaður Ríkisspítala hefur sýnt málinu mikinn skilning og er rætt að gera almenna úttekt á stöðu taugasjúkdóma á sjúkrahúsinu og skipuleggja starfsemina á þann veg að meiri stöðugleiki ríki, einkum á sviði göngudeildarþjónustu fyrir hin- ar ýmsu tegundir taugasjúkdóma, svo sem flogaveiki, Parkinsonsjúk- dóm, MS-sjúkdóm,“ segir Gunnar. Eftir að taugadeild var lokað síð- ari hluta júnímánuðar var starfsem- inni úthlutað 10 sjúkrarúmum á öðrum deildum Landspítala. Gunnar segir að þörfin hafi verið svo mikil að í raun hafi 19 sjúkrarúm verið í notkun í senn fyrir sjúklinga á þessu sviði, því að þrátt fyrir skömmtun haldi sjúklingar áfram að veikjast. „Aðstaðan var vitaskuld öll lakari fyrir hjúkrunarfólk og öll starfsemi var slitin úr samhengi, þannig að lokunin olli míklum erfiðleikum án þess þó að alvarleg slys hafi orðið,“ segir Gunnar. „Reynslan sýnir að við þurfum á sérhæfðri deild að halda til að glíma við margvísleg tilfelli, innkallanir og fleira." Gunnar kveðst ekki telja neinn spamað af lokun deildarinnar. „Lok- unin jók mjög mikið þörfina fyrir umönnun þessara sjúklinga annars staðar, til dæmis á göhgudeild eða hjá heimilislæknum, þannig að kostnaðurinn hefur eingöngu dreifst en ekki minnkað að mínu viti,“ seg- ir hann. Morgunblaðið/Ingvar NEÐST í Bankastræti beygði maðurinn til hægri og ók niður með steinsteyptum tröppum Sem liggja að Sljórnarráðinu. Bíllinn skemmd- ist mikið í háskaakstrinum, en ökumaður hljóp út úr bílnum inni í Vogum og var handtekinn í Dugguvogi þar sem hann reyndi að fela sig. Móðir slökkti eld í fötum 4 ára drengs Lögregla elti öku- mannúr miðbænum inn í Voga EFTIRFÖR lögreglu vegna öku- manns sem grunaður er um ölvunar- akstur og ákeyrslur lauk í Voga- hverfinu um miðja aðfaranótt laug- ardagsins. Þar reyndi maðurinn að fela sig fyrir laganna vörðum en var handtekinn og gisti fangageymslur um nóttina. Maðurinn ók á tvo bfla í Banka- stræti um kl. 2 um nóttina. Þegar hann varð þess áskynja að lögregla ætlaði að hafa afskipti af málinu beygði hann bíl sínum skyndilega til hægri og fór niður með steinsteypt- um tröppum sem liggja að Stjórnar- ráðinu. Þaðan komst hann út á Sæbrautina og fylgdi lögreglan hon- um fast eftir. Lögreglan missti sjón- ar á honum um stund en fann síðan bílinn yfirgefinn í Vogahverfinu og manninn skömmu síðar í Dugguvogi. Maðurinn er grunaður um ölvun og til stóð að yfirheyra hann í gær. ♦ ♦ ♦----- Tólf fyrir- tæki sýna í S-Afríku „ÍSLENZKU fyrirtækjunum hefur orðið vel ágengt hér í Höfðaborg. J Hinriksson hefur þegar selt tvö tog- hlerasett og aðrir samningar eru í vinnslu," sagði Þorgeir Pálsson hjá Útflutningsráði íslands í samtali við Morgunblaðið í gær. Sjávarútvegs- sýningunni Fish Afrika 95 lýkur um helgina í Höfðaborg og fer íslenzka viðskiptasendinefndin að henni lok- inni til Namibíu. Þorgeir sagði að á sýningunni hefðu 230 fyrirtæki frá 29 löndum kynnt framleiðslu sína og þar með tólf íslenzk fyrirtæki. FJÖGURRA ára drengur í Reykja- vík brenndist talsvert á baki í vik- unni þegar kviknaði í fötum hans út frá sprittkerti. Móðir drengsins kom að honum logandi og brennd- ist á höndum við að slökkva í föt- um hans. Bæði eru á góðum bata- vegi. Móðirin sagði í samtali við Morgunblaðið að þau mæðginin hefðu verið að horfa á sjónvarp þegar hún brá sér í þvottahús og drengurinn varð einn eftir. Á sófa- borði logaði á litlu sprittkerti. „Skömmu síðar heyrði ég ópin í honum, þaut upp. Hann kom á móti mér og ég sá að bakið á peysunni hans var alelda,“ sagði móðirin. Hún segir að drengurinn hljóti að hafa sest upp á borðið og logi úr kertinu komist í peys- una. Hún sagðist strax hafa vöðlað saman peysunni og slökkt eldinn og síðan kælt bak drengsins með vatni í baðkari. Sjálf hefði hún ekki kælt eigin sár fyrr en eftir að sjúkraflutningsmenn voru komnir á staðinn. „Mín viðbrögð voru ósjálfráð og ég deyfði minn sársauka þangað til aðstoð var komin.“ Mæðginin voru flutt á slysadeild Borgarspítalans þar sem búið var um sár þeirra. Brunasár á lófastór- um bletti á baki drengsins voru að mestu 1. stigs en móðirin er með 2. stigs brunasár á hendi. í gær sagði hún að bæði væru búin að jafna sig allvel en umbúðir verða teknar af sárunum eftir helgi. Móðirin sagði að þrátt fyrir allt væri augljóst að verr hefði getað farið. Lærdómurinn sem hún drægi af þessu væri sá að aldrei væri óhætt að fara úr herbergi og skilja eftir logandi kerti sem möguleiki væri á að bam kæmist að. Hún kvaðst vilja þakka sjúkraflutnings- mönnum og starfsfólki slysadeildar fyrir skjót viðbrögð og góða að- hlynningu. Úthafsveiðisáttmáli Sameinuðu þjóðanna Undirritun eftir helgi ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegs- ráðherra hélt til Bandaríkjanna í gær en hann undirritar úthafsveiði- sáttmála Sameinuðu þjóðanna fyrir íslands hönd næstkomandi mánu- dag. Undirritunin fer fram í höfuð- stöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York að viðstöddum fulltrúum allra landa sem aðild eiga að sátt- málanum. Enn er eftir að fullgilda sáttmálann en talið er að það taki mun skemmri tíma en fullgilding hafréttarsáttmálans, sem var full- giltur tólf árum eftir undirritun hans. Færri ríki standa að úthafs- sáttmálanum og hann er einfaldari í uppbyggingu. -----♦ ♦ ♦---- Nýr eigandi að Café Operu SIGÞÓR Siguijónsson veitinga- maður hefur fest kaup á Lækjar- götu 2 sem skiptist í Café Óperu, Café Romance og Óperudrauginn, en staðurinn hefur verið í eigu Veitingahússins Lækjargötu 2 hf. um talsvert skeið. Gengið var frá kaupsamningi á fullveldisdaginn, og hefur Sigþór þegar tekið yfir reksturinn, en kaupverð er trúnaðarmál að hans sögn. Sigþór segir að bryddað verði upp á ýmsum nýjungum í starfsemi veitingahússins við eigendaskiptin og þannig verði eldhús Café Óperu opið eins lengi og staðurinn, sem þýðir að gestir geta borðað eftir miðnætti ef þeir vilja. * KA svarar í jólabókastríði KAUPFÉLAG Ámesinga (KÁ) sel- ur bækur með 25% afslætti um helgina, en sú ákvörðun Jóhannesar Jónssonar, kaupmanns í Bónusi að veita 20% afslátt af bókum sprengdi samkomulag Félags íslenskra bóka- útgefenda og Félags bóka- og rit- fangaverslana um 15% hámarksaf- slátt af búkum. Árni Benediktsson, verslunar- stjóri hjá Kaupfélagi Ámesinga, sagði að ekki færi hjá því að hafið væri verðstríð á jólabókamarkaðn- um. - ísland þarf ódýr og trygg fjarskipti ►Hröð þróun fjarskipta og hörð samkeppni á fjarskiptamarkaði hefur verið til umræðu. Halldór Blöndal, ráðherra fjarskiptamála, situr fyrir svörum um hlutverk rík- isstofnunar á borð við Póst og síma í slíku umhverfi. /10 Clinton á sigurbraut ►Bill Clinton Bandaríkjaforseti hefur unnið nokkra merka sigra á undanfömum vikum og staða hans styrkst mjög. /12 GengiA á veggi ►Eitt af stærri vandamálunum í skólakerfinu er hegðun misþroska barna. Félögunum stendur stuggur af þeim, kennarar vita ekki sitt ijúkandi ráð, foreldrarnir sitja uppi með vandann. /20 Systkinin sex í sælgætinu ►í Viðskiptum/Atvinnulífi á sunnudegi er fjallað um Sælgætis- gerðina Mónu sem er fjölskyldu- fyrirtæki í orðsins fyllstu merk- ingu. /24 B ► 1-36 Bandaríkja-Björk ►Vinsældir Bjarkar Guðmunds- dóttur hafa aldrei verið meiri vest- an hafs. Morgunblaðið brá sér til Bandaríkjanna og komst að því að þótt Björk eigi möguleika á að leggja Bandaríkin að fótum sér er ekki víst að hún vilji kosta því til sem þarf. /1-2 Matur og vín ►Fyrstu Beaujolais Nouveau-vín- in eru komin í verslanir og eru þau sögð lofa góðu um árið. /5 Óttalaus ►í kynningu á nýju bókum er gripið niður í nokkur kaflabrot úr ævisögu Jósafats Hinrikssonar sem hann hefur sjálfur skráð /6 Frá Akureyri til Udmúrtíu ►Vettvangur Hauks Gunnarsson- ar er víðfeðmur. í sömu andrá er hann að setja upp jólaleikritið á Akureyri, fjarstýra Samaleikhús- inu sínu í N-Noregi, skreppa til Tromsö að ráða fjármálastjóra að leikhúsinu sem hann tekur við þar, og bregða sér til að móta leik- hús í rússneska lýðveldinu Údmúr- tíu. /18 BÍLAR___________ ► 1-4 UmferAaröryggi ►Ekki allir upplýstir um öryggi bamaíbílum./l Reynsluakstur ►Boxer er snarpur sem fólksbíll. /2 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Leiðari 28 Helgispjall 28 Reykjavikurbréf 28 Minningar 34 Myndasögur 42 Bréftil blaðsins 42 Brids 44 Stjömuspá 44 Skák 44 ídag Fólk I fréttum Bi6/dans Utvarp/sjónvarp Dagbók/vcður Gárur Mannlífsstr. Kvikmyndir Dægurtónlist INNLENDAR FRÉTTIR- 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR- 1-6 44 46 48 52 55 lOb lOb 12b 14b

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.