Morgunblaðið - 03.12.1995, Síða 8

Morgunblaðið - 03.12.1995, Síða 8
8 SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Siv Friöleifsdóttir vill aö ráöherrar sitji ekki á þingi Þið þurfið ekkert að vera hræddir við lögguna. Þið raegið vera eins lengi úti á kvöldin og þið viljið.... Fær þinn hundur í skóinn? ■landsins mesta úrval af jólavörum fyrir dýravini DÝRARÍKIÐ ...fyrir dýravini! viö Grensásveg sími 568 6668 Heildarskipulag vantar í geðheilbrigðisþjónustu barna Brjóta þarf niður stofnanamúrana Helga Hannesdóttir SAMKVÆMT rann- sókn, sem Helga Hannesdóttir hefur gert á þjónustu til barna og unglinga með hegðun- ar- og tilfinningaörð- ugleika og lauk með birt- ingu greinar í Norræna geðlæknatímaritinu sl. sumar, fá mun færri börn á íslandi greiningu og meðferð vegna hegðunar og tilfinningavandamála ' en gerist í öðrum þróuðum löndum, eða aðeins 0,2% bama 19 ára og yngri. Hvað er til ráða? Byrja þarf á að endur- skipuleggja reglugerð um geðheilbrigðismál og læknisfræðilega vinnu alls staðar á landinu, í ung- og smábarnaeftirliti, á heilsugæslustöðvum og á öllum barnadeildum og stofnunum þar sem börn og ungl- ingar fá heilbrigðisþjónustu. Það þarf að byggja þar upp ábyrga þjónustu sem hefur heildræna sýn og tekur mið af gæðum, greining- arvinnu og meðferðarúrræðum. Ef hegðunar- og tilfinningavanda- mál fá að þróast þá leiðir það til veikinda á fullorðinsárum, slíkt vandamál læknast ekki af sjálfu sér. Hvernig er árangursríkast að standa að þessum lækningum? Fyrst þarf að greina vandamái- in, síðan tekur við þverfagleg vinna sérfræðinga á sviði læknis- fræði og sálfræði og innan fjöl- skyldu og skóla viðkomandi ein- staklings. Sum börn eru í meiri hættu en önnur. Þeim sem eru í meiri áhættu þarf að sinna fyrr og fylgjast betur með. Ekki síst ef um er að ræða veikindi í frum- bernsku, eða veikindi eða sálræn áföll í fjölskyldu barnanna, svo sem geðræn vandamál og drykkjusýki foreldra. Börn sem sýna afbrigðilega hegðun, eru óró- leg og eirðariaus eða eru á eftir í þroska, börn sem hafa verið út- sett fyrir miklar breytingar, þ.e. tíða flutninga og síendurteknar breytingar á heimilislífi. Eftir greiningu kemur sjálft meðferðar- starfið sem þarf að vera samhang- andi og ráðgefandi til handa for- eldrum, fjölskyldu og skóla. Ein- staklingsmeðferð eða hópmeðferð barna er árangursrík til að fá börn til þess að skilja hugsanir sínar og tilfínningar og öðlast betri stjórn á atferli eða hegðun. Koma niðurstöður þessarar rannsóknar á óvart? Niðurstöður rannsóknarinnar koma á óvart að því leyti að þjón- ustan hér á landi er mun takmark- aðri, eða allt að tíu til hundrað- falt, en í nágrannalöndum okkar. Niðurstöður sýna einn- ig að drengjum hefur fækkað meðal sjúkl- inga en meðalaldur sjúklinga yfirleitt hef- ur hækkað um eitt ár. Fleiri börn hafa hegðunar- og til- finningaerfiðleika í samfélaginu í dag en fyrir tuttugu árum. Líkindi benda til að þetta tengist þjóðfé- Iagsbreytingum og skorti á geð- heilbrigðisþjönustu innan heilsu- gæslu og barnadeilda á landinu. Þjóðfélagsbreytingarnar eru þær helstar að skilnuðum hefur fjölgað og fleiri búa á höfuðborgarsvæð- inu en á landsbyggðinni. Fæðing- um hefur fækkað og fóstureyðing- um hefur fjölgað. Algengara er nú en áður að börn búi með einu foreldri og ijöldi mæðra sem vinna utan heimilis hefur aukist mikið. Barna- og unglingageðlækningar hafa þróast óvenju seint og hægt ►Helga Hannesdóttir, barna- og unglingageð- læknir, er fædd í Reykjavík árið 1942. Hún lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólan- um í Reykjavík árið 1962 og prófi frá Læknadeild Háskóla íslands árið 1969. Hún starfaði á barna- og unglingadeild Landspítal- ans sl. 20 ár. Hún er formað- ur í Norræna félaginu um þarfir sjúkra barna, NOBAB. Hún er gift Jóni G. Stefánssyni yfirlækni og eiga þau fjögur uppkomin börn. sem læknisfræðileg sérgrein á ís- landi. Til dæmis er engin kennslu- staða í barna- og unglingageð- lækningum innan Læknadeildar Háskóla íslands, sem hefur dregið verulega úr þróun sérgreinarinnar hér á landi. Hafa niðurstöður þessarar rannsóknar vakið athygli og við- brögð? Eg hef fengið mikil viðbrögð erlendis frá við þessari grein í norræna læknablaðinu. Flestir spyija um stefnu íslenskra stjórn- valda í þessum málaflokki. Menn álíta þá að að stefnan sé kannski að sinna þessum málaflokki svona lítið í hæpnu sparnaðarskyni. Aðr- ir spyrja hvort hér sé ríkjandi hjá yfirvöldum svona mikil afneitun og skilningsleysi á málaflokknum. Loks spyrja menn hvort yfirvöld haldi að hegðunar- og tilfínninga- vandamál barna læknist af sjálfu sér. Ástæðan fyrir þessu er að það hefur skort geðlæknisfræðilega og sálfræðilega þjónustu innan barnadeilda og heiisugæslu og ekki hefur verið byggt nægilega upp starf á þessu sviði á landsvísu. Efla þarf geðlæknis- þjónustu fyrir börn og ungmenni og gera þjón- ustuna aðgengilegri. Það þarf að koma í veg fyrir að börn og ungl- ingar séu vistaðir á geðdeildum fyrir fullorðna. Með uppbyggingu á skipulagi á geðheiibrigðisþjón- ustu fyrir börn og unglinga er komið í veg fyrir óþarfa innlagnir þeirra á stofnanir á fuilorðins- árum. Það þarf að sameina allar ijárveitingar frá ríki og bæ til að koma á samhæfðri þjónustu frá heilbrigðis-, félags-, mennta- og dómsmálaráðuneyti. Það þarf að bijóta niður stofnanamúrana og skipuleggja þjónustuna, auka á samtengingu sérfræðinga og mynda þverfagleg þjónustuteymi sem ná sem hæstu gæðamati Það þarf að sameina allar fjárveitingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.