Morgunblaðið - 03.12.1995, Page 9

Morgunblaðið - 03.12.1995, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995 9 BREFFRA KAIRIO MENN voru miklu í uppnámi daginn sem jarðskjálftinn varð hér. Það varð lítið úr boðhætti sagna sem voru á matseðl- inum þann daginn, því allir voru með hugann við skjálft- ann og eftirskjálfta sem fylgdu. Fæstir voru þó merkjanlegir en skjálftinn þennan morgun reyndist hafa verið 6,4 á Richter sem er engin smásmíði ef út í það er farið. Allir voru í óðaönn að riija upp jarð- skjálfta sem varð hér fyrir tveimur eða þremur árum. Þá fórst fjöldi manns og heilu hverfin hrundu eins og spilaborgir. Þegar þær hamfarir riðu yfir hafði ekki komið jarðskjálfti hér í landi svo lengi sem elstu menn mundu og hvarflaði ekki að neinum að slíkt gæti gerst. Síðan hefur verið í mönn- um mikil hræðsla við jarð- skjálfta enda var allt hjálpar- og björgunarstarf þá í handa- skolum og margir dóu af því enginn vissi hvernig átti að standa að neinu við slíkar að- stæður. Því greip um sig ofboðsleg skelfing nú og margir sögðust ætla að hafast við undir beru lofti nóttina á eftir. Ekki bætti úr skák að kvöldið áður hafði hiti snögglækkað og það var alskýjað og hvessti eftir því sem leið á daginn. Við gáfum náttúrlega öll skýrslu um hvernig okkur hefði orðið við þegar jarðskjálftinn gekk yfir. Að því loknu hafði ég svo sem ekki öllu meira um málið að segja. Kunningjum mínum fannst ég vera undraróleg ef ekki bara hetja að geta dundað við að giska á hvaða sagnir tækju i í boðhætti og hverjar ekki og við öll kannski í bráðri lífshættu. Kennarinn hafði sagt að það færi eftir því hvort langir sér- hljóðar væru í sögn- inni. Nú hefur ekki verið mín sterka hlið að reikna út langa eða stutta sérhljóða í arabísku svo mér fannst ansi fáránlegt að munur væri á sögn eins ogtil dæm- is jarsil sem verður irsil í 2. pers. kk.et. og irsili í 2. p. kvk. et. og svo framvegis og hegðaði sér því eðlilega á allan hátt en aftur á móti sögn eins og jasif, tók ekki sitt i og var því sif, sifi, sifee, sifu, sifna. En vegna jarð- skjálftans varð þessi gáta sem sagt ekki leyst þann daginn. Þegar ég kom heim um kvöldið og 60 jarðskjálftar, örsmáir að vísu, höfðu mælst yfir daginn rak mig í rogastans. Veggir í íbúðinni minni voru eins og æðakerfi, um þá alla liðuðust grunsamlegar sprung- ur. Ég fann að mér stóð eigin- lega nokk á sama um boðhátt- inn og hringdi til egypsks kunn- ingja míns. Hann kom á svæðið með öðrum sem er verkfræð- ingur. Sá skoðaði sprungurnar og fannst þær ekki til prýði né var hann sáttur við þær. Hann sagð- ist ekki halda að húsið - sem er tiltölulega nýbyggt - mundi hrynja í heilu lagi ef kæmi ann- ar skjálfti. Það var í sjálfu sér heldur uppörvandi. En aftur á móti ráðlegði hann mér eindreg- ið að hafa allan vara á og finna mér aðra íbúð eins fljótt og ég gæti. Um nóttina kom annar skjálfti, hann mældist að vísu ekki nema 4,4 stig. Ég fann að ég var fráleitt í stuði til að vera í hetjuleik og einsetti mér að lesa allar húsaleiguauglýsingar í blöðunum og finna mér sprungulausa íbúð hið bráðasta. Að því búnu gæti ég á ný brotið heilann yfir boðhætti sagnorða. JK Boðháttur ájarð- skjálfta- daginn Boðhættir sagna fóru fyrír lítið í arabískunámi Jóhönnu Kristjóns- dóttur daginn sem jarð- skjálftinn varð í Kaíró. Fimmtán sæmdir Fálkaorðunni FORSETI íslands sæmdi 1. desem- ber, samkvæmt tillögu orðunefnd- ar eftirtalda íslendinga heiðurs- merkjum Hinnar íslensku fálka- orðu: Bjarni Helgason, garðyrkju- bóndi, Laugalandi. Riddarakross fyrir störf að garðyrkju- og félags- málum. Eyþór Þórðarson, starfsmaður í Þjóðskjalasafni, Reykjavík. Ridd- arakross fyrir fræða- og félags- störf. Guðmundur Eiríksson, þjóðrétt- arfræðingur, Reykjavík. Stórridd- arakross fyrir störf að hafréttar- málum í þágu íslands. Dr. Gunnar Guðmundsson, pró- fessor og yfirlæknir, Reykjavík. Riddarakross fyrir vísindastörf. Hafsteinn Hafsteinson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, Reykjavík. Riddarakross fyrir störf í opinberá þágu. Helgi Þorláksson, fv. skólastjóri, Reykjavík. Riddarakross fyrir störf að skóla- og félagsmálum. Jensína Halldórsdóttir, fv. skóla- stjóri, Húsmæðraskóla Suður- lands. Riddarakross fyrir fræðslu- störf. Kristján Ragnarsson, prófessor og endurhæfingarlæknir, New York. Riddarakross fyrir félags- og vísindastörf. Petra Sveinsdóttir, húsmóðir, Stöðvarfirði. Riddarakross fyrir söfnun og varðveislu náttúruminja. Sigrún Hjálmtýsdóttir, óperu- söngkona, Mosfellsbæ. Riddar- kross fyrir söngiist. Snorri Hermannsson, húsa- smíðameistari, ísafirði. Riddara- kross fyrir framlag til björgunar- mála. ------♦ ♦ 4------ Ný umferð- arljós KVEIKT verður á tvennum nýjum happastýrðum gangbrautarljósum þriðjudaginn 5. desember nk. kl. 14. Önnur ljósin eru á Grensásvegi við Breiðagerði. Hin ljósin eru á Sóleyjargötu við Bragagötu. Fannst við bílasölu PEUGEOT bifreið, sem ekið var á tvö umferðarmerki við Ásgarð aðfaranótt fimmtudagsins, fannst um miðjan dag á fimmtudag á bílastæði við bílasölu. Ökumaður bílsins hafði stungið af eftir að hafa ekið á umferðarmerkin. Greinileg ummerki voru eftir bílinn á staðnum og lá m.a. merki bílsins á götunni. Starfsmenn viðkomandi bílasölu könnuðust ekki við að bíllinn væri á skrá hjá henni heldur hafði hon- um verið lagt þarna í framhaldi af óhappinu. -kjarni málsins! ÞESSIAUGLYSING TDVPPID ÍÍDVPPI hlTT lltibbln Unlbbl rlll Á HAGKVÆMAN HÁTT GERÐU SAMANBURÐ Á VAKÍ ÖRYOGISKERFI SÍMI 561 9000 . Fatnaour fra Pelsfóoursjakkar Margar gerðir. KYUSO J7IŒSIIGq va ranleq Pelskápur í miklu úrvali. Verð fyrir alla. Pelsfóðurs Pelsjakkar og hufur Fatnaður fra í miklu úrvali / a PEISINN Kirkjuhvoli - sími 552 0160 Þar sem vandíátir versla raðgreiðslur Greiðslukjör við allra hæfi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.