Morgunblaðið - 03.12.1995, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
Góðir sjómenn - Gott sambýli
Úlfar á Vattarnesi telur að Fær-
eyingar hafi byijað með opna vél-
báta um 1927-28. Þeir þóttu lagn-
ir að sigla og notuðu seglin mikið
þegar róið var. Hvarvetna þóttu
þeir sjómenn góðir að því er ég fæ
séð og beinlínis fiskiklær.
Steinunn Úlfarsdóttir frá Vattar-
nesi, nú á Selfossi, segir mér að
Færeyingamir hafi ætíð verið kær-
komnir gestir á hennar uppvaxtar-
árum og öll samskipti við þá verið
með ágætum. Kemur þetta og fram
frá beggja hálfu í bókinni Til lands
sem títt er vitnað til hér.
Úlfar Kjartansson: Yfirleitt voru
Færeyingar, sem hingað komu til
róðra, úrvalsmenn og sérlega vel
liðnir af heimafólki.
Jacob Pauli Midjord:
„Á Vattarnesi vóru tá seks húski,
(fjölskyldur), og tað vóm sera dáml-
ig fólk og ógvuliga blíð við okkum,
vit vóm ofta inni hjá teimum, og
mennimir á Vattarnesi komu tíðin
inn til okkara. Teir keypmenn, sum
vit hovdu nakað við at gera, vóru
av bestu og hampiligastu (áreiðan-
legustu) monnum, tað skuiu teir
eiga.“
- Þetta er ekki amalegur vitnis-
burður, gagnkvæmur. Og þegar
Úlfar Kjartansson á efri árum gerði
för sína til Færeyja að heimsækja
fornvini sína i Leirvík var honum
tekið með slíkum kostum og kynjum
að á orði er haft hjá börnum hans
enn í dag.
Færeyingar rem einnig út frá
Hafnarnesi fram eftir öldinni. Einnig
þar er stutt á miðin. Langræði er
hins vegar innan frá Búðakauptúni
og hef ég ekki rekist á frásagnir
af útræði Færeyinga þaðan fyrr en
á seinni stríðsámnum. Þá vom vélar
komnar í bátana og er getið um
fimm báta þar eða fleiri þau sumur.
Inga í Króki
Enn er ónefnd glögg heimild um
framhald útróðra Færeyinga frá
Vopnafirði, upp úr 1890, en það
er viðtal sem birtist í Búgvanum i
Þórshöfn 16. janúar 1945 og síðan
í Til lands 1980. Þar ræðir Sigurð
Joensen við Ingu í Króki sem segir
frá íslandsferðum sínum og meðal
annars dvöl á Vopnafirði. Sá hluti
viðtalsins verður endursagður hér
í lauslegri þýðingu, spurningum
Sigurðar sleppt.
Inga fór fyrst til íslands 1889
og segir það muni hafa verið annað
sumarið sem færeyskar stúlkur fóru
þangað til að vinna í fiski. Þær
fóru þá sex saman til Seyðisfjarð-
ar, unnu á Hánefsstaðaeyram og
voru til húsa á Gullsteinseyri. Inga
var alls fjórtán sumur á íslandi.
Ég var fleiri sumur á Vopnafirð-
inum, segir Inga. Jacob Lutzen réð
okkur. Við unnum hjá Valdemar
Davíðssyni og eftir að hann dó hjá
Ólafi Davíðssyni bróður hans.
Á Vopnafírði var fjöldi Færey-
inga, bátshafnir úr mörgum fær-
eyskum byggðum, og ég held að
við stúlkurnar höfum verið þijátíu
fyrsta árið. Við vorum frá ýmsum
stöðum, margar úr Kollafirði.
Við bjuggum á „stúlkuloftinu",
þijátíu saman í herbergi, ár eftir
ár. Fyrsta sumarið vom tvær ís-
lenskar stúlkur þarna ásamt okkur.
Við sváfum í kojum, tvær og tvær.
Þetta var stórt herbergi og það var
gengið beint af götunni upp fjórtán
tröppur utan á húsinu. Ifyrst var
komið inn í stórt herbergi fyrir
framan svefnskálann og þar döns-
uðum við um helgar. Auðvitað við
færeysku sjómennina sem voru
margir. Eitt sumarið vomm við 250
Færeyingarnir á Vopnafirði.
Það var ýmist að útróðramenn-
imir bjuggu hjá bændum eða í hús-
um sem þeir fengu leigð. Þeir vom
dreifðir með öllum fírðinum þar sem
byggðin var.
- Þetta atriði minnir á ummæli
„Sjávarbónda" á Vopnafirði og áður
er getið, að verslun Örum & Wulff
þar „smali“ saman Færeyingum og
dreifi þeim um „ríki sitt“.
Frásögn Ingu er sérlega lífleg.
Og þegar blaðamaður spyr hvort
henni hafi líkað betur á Vopnafirði
eða Seyðisfírði þá svarar hún glað-
hlakkalega:
Skemmtilegra var á Vopnafirðin-
um því þar vom flestir Færeying-
arnir! Ekki svo að skilja, það var
líka gaman á Seyðisfirði, þar vom
svo margir Norðmenn! Þeir vom
feiknarlegir dansmenn. Verkalaun
vom hærri á Seyðisfirði hjá Norð-
mönnunum, sagði Inga í Króki.
Vonandi eiga eftir að koma fram
í dagsljósið fleiri og fyllri heimildir
um útveg Færeyinga á Vopnafirði.
Og þá ekki síst frá fyrstu áratugum
þessarar aldar.
„Ég var búinn að sjá
dálítið af svartfugli"
„Nú ætla ég að biðja þá sem
nenna að lesa þetta að koma með
mér í einn róður í huganum. Þetta
er hásumar, og veðrið er eins gott
og hægt er að hugsa sér. Sólin er
að síga niður mót Nesinu og Gunn-
ólfsvíkuifyall speglast í haffletinum.
Þetta er um tíuleytið, ég er búinn
að borða og bitakassinn er klár, og
í honum em tveir hitabrúsar og
annað góðgæti. Ég labba niður í
Sæluvík, en svo heitir víkin þar sem
báturinn liggur, ég set vélina í gang
og losa landfestar, keyri svo útfyrir
tangann, fram með Rauðubjörgum
og Litlutó, fyrir Steintúnstangann
og víkina, framhjá Byrþjófi, en það
er hár tangi sem stal bymum frá
áraskipunum í gamla daga, þegar
þeir létu hafgoluna bera sig á seglum
heim úr róðri. Þá náði hún ekki
lengra en innað þessum tanga. Á
þessum tanga er stórt skarð utan-
til, og einhver hagyrðingur söng um
hann þetta vísukom, hluta af kvæði
sem ég kann bara lítinn part úr:
Hver hefur Byrþjóf brotið
Blámanns það er verk.
Það hefur held ég hlotið
hönd að vera sterk.
Aldrei Ægir þapar,
ei fær Serkur ró,
fiskimönnum fagnar
fógur Litlató.
Næst er fyrir okkur Svartnes,
ofan á því trónar Digranesviti hátt
upp í hlýja sumamóttina. Nú emm
við komin út úr firðinum og björgin
taka við. Ég hafði hugsað mér að
fara suður í Leiruna, því ég var
búinn að sjá dálítið af svartfugli
að undanfömu, það er ekki nema
rúm hálftíma keyrsla þangað suð-
ur. Við höldum því áfram suður
með noðurbjörgunum og á milli
Róðrarstapa og skers, framhjá Jón-
asarstapa og fyrir Norðurtorfu-
tangann og áfram þangað til við
emm komin suður fyrir syðri torf-
una og það langt að áin, eða foss-
inn sem fellur út af björgunum
milli torfanna, ber við skerið sem
stendur á miðjum tanganum, þá er
haldið eftir þessu miði þangað til
Karlinn, norðan Viðvíkur, kemur
inn í bergið með lítilli rifu að ofan.
Nú eram við komnir í innri leir-
una, og þá er dregið af og vélin
stöðvuð, stjórinn.látinn falla og lagt
fyrir fast Það er þægilegra þegar
maður er einn á báti, og virðist reyn-
ast betra í mörgum tilfellum. Þama
er um 30 faðma dýpi. Eftir augna-
blik er sakkan komin í botn og hann
er strax kominn á. Þama virðist
vera nóg af fiski og vænn líka. Sól-
in læddist með haffletinum út af
Langanesfonti og náttúran skartaði
sínu fegursta, ekkert hljóð heyrðist,
nema gagg í einstaka múkka. Ég
held að það hafi verið um það bil
þijár klukkustundir sem það stóð á
höndunum að draga, en svo hvarf
hann allt í einu. Ég var búinn að
taka eftir því áður að það virtist sem
hann færi í fylu stundum þó að nóg
væri af honum. Ég dró þess vegna
færið upp og lagði það í bátinn, fór
svo fram í og fékk mér hressingu.
Þegar ég var búinn að því, fannst
mér best að renna einu sinni enn,
áður en ég færi að leita eitthvert
annað, og viti menn, hann gaf sig
strax til, og ég var búinn að fylla
miðrúmið þegar ég sá fyrsta bátinn
koma út. Þetta vom feðgar frá
næsta bæ, og komu þeir til mín og
fóm að spjalla við mig um daginn
og veginn, og býsnast yfir aflanum.
Sá gamli rétti mér pontuna og bað
mig að fá mér í nefið, sem ég þáði.
Þegar komið var fram yfir hádegi
tók hann alveg undan og ég dró inn
stjórann og keyrði í land.“
•Þe/r breyttu íslandssögunni er
eftir Vilhjálm Hjálmarsson. Útgef-
andi er Æskan. Bókin er 232 bls.
VercI kr. 2980.
SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995 31
SVIKRÁÐ
(RESERVOIR DOCS)
Myndin sem skaut Quentin
Tarantino upp á stjörnuhimininn.
RIKKI RIKI
Rfkasti drengur f heimi lendir (
stórskemmtilegum ævintýrum.
FVRSTU JOL CASPERS
Sprelligosinn og góði draugurinn
hann Casper er allra yndi.
ARABÍUIUÆTUR
Æringjarnir Skúbí-dú og
Skeggi eru engum Ifkir i
þessari fjörugu teiknimynd.
S' K- I- F-A' N
fast í næstu urvalsverslun
STJÖRIUUHLIÐID
(STARCATE)
Frábærlega vel gerö ævintýramynd
með Kurt Russell oq James Spader.
PHILADELPHIA
Tom Hanks hlaut verðskuldaðan
Óskar fyrir frábæra túlkun f
hlutverki eyðnismitaðs
lögfræðings.
J ABB A-D ABBA-DÚ!
Hver þekkir ekki Fred Flintstone
og fjölskyldu hans?
Klikkar ekkilll
BJARCFAST BARNALÁN
Tvær sígildar teiknimyndir með
Steinaldarmönnunum þar sem
Bamm-Bamm og Vala eru
f aðalhlutverkum.
KRYDDLECIN HJÖRTU
(COMO AGUA PARA CHOCOLATE)
Einn óvæntasti og eftirmihnilegasti
ástarsmellur kvikmyndasögunnar.
REYFARI
(PULP FICTION)
Pessi umtalaða kvlkmynd
leikstjórans Quentin Tarantino
hlaut Gullpálmann f Cannes.
Óumdeilanlega mynd ársins.
k_h yjj t> m c i n
HÍÓRTU
Eá9
PÍANÓ ÚLFUR
(THE PIANO) (WOLF) ,
Sfgilt ástardrama sem allir ættu Jack Nicholson og Michelle
að eiga. Þrenn Óskarsverðlaun. Pfeiffer eru mögnuð þe
dýrið gengur laust.