Morgunblaðið - 03.12.1995, Side 38
38 SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
JÚLÍUS
GEIRSSON
■4- Júlíus Guð-
* bjartur Geirs-
son fæddist í Út-
verk á Skeiðum í
Árnessýslu hinn
16. júli 1910. Hann
lést á heimili sinu
í Reylyavík 19.
nóvember síðast-
liðinn. Júlíus var
sonur hjónanna
Guðbjargar Gísla-
dóttur og Geirs
Halldórssonar. Al-
bræður Júlíusar
voru Ólafur læknir
á Vífilsstöðum og
Helgi kennari á Laugarvatni,
báðir látnir. Hálfbræður af
móður voru Gísli
Bjarnason sem er
látinn og Matthias
Jónsson sem býr
hér í borg. Hálf-
bróðir af föður var
Sölvi Geirsson, er
hann látinn.
Júlíus kvæntist
Guðrúnu Halldórs-
dóttur árið 1936 og
bjuggu þau lengst
af á Móskógum í
Fyótum í Skaga-
firði. Guðrún lést
1955. Þeim varð
ekki bama auðið,
en ólu upp að hluta Ólöfu Ól-
afsdóttur sem er dótturdóttir
Guðrúnar. Maður Ólafar
heitir Jón Torfi Snæbjörnsson
og börn þeirra heita Ólafur
Örn, Pálína og Júlía Þómnn.
Júlíus var alinn upp á Brúna-
völlum á Skeiðum af hjónun-
um Ólöfu Ólafsdóttur og Þor-
grími Árnasyni. Júlíus flutti
til Reykjavíkur 1955 og vann
lengst af (frá 1958-86) hjá
Olís sem bílstjóri.
Útför Júlíusar fór fram frá
Áskirkju hinn 27. nóvember
síðastliðinn.
EINN af mínum gömlu vinum,
Júlíus Geirsson, er fallinn frá 85
ára að aldri. Eftir sitjum við hljóð
og döpur í huga. Júlíus var seinni
maður Guðrúnar ömmu minnar,
sem var ekkja og bjó á Syðsthóli
í Sléttuhlíð, en fyrri mann sinn
missti hún þegar mamma var enn
ung að árum. Guðrún og Júlíus
fluttu nokkrum árum síðar að
Móskógum í Fljótum og þaðan til
Siglufjarðar 1953. Guðrúnu ömmu
minni var ég ekki svo lánsöm að
kynnast, þar sem ég var aðeins
rúmlega ársgömul þegar hún dó.
Það yljar mér þó alltaf um hjarta-
rætur að vita að hún sat með mig
í fanginu og vafði mig ást og
umhyggju síðustu mánuðina sem
hún lifði. Ég veit einnig að Júlli
eins og hann var kallaður mat
hana ávallt mikils. Eftir að Guðrún
amma mín dó flutti Júlli til Reykja-
víkur. Þar vann hann lengstum
hjá Olís, einna mest við útkeyrslu
í Reykjavík og Kópavogi, og síðar
við lagerstörf hjá sama fyrirtæki.
Oft var hann sendur í ferðir út á
land og alltaf var jafn spennandi
þegar hann kom við heima á Siglu-
firði.
Ein af mínum fyrstu minningum
um Júlla var þegar olíubíllinn
renndi í hlað í Grundargötunni og
út úr bílnum steig Júlli til að heilsa
upp á okkur á sinn rólega og glað-
lega hátt. Okkur systkinunum
þótti olíubíllinn afar merkilegt far-
artæki sem við vildum skoða í
krók og kring og fá að sitja í
spottakorn. Eitt er mér sérlega
minnisstætt en það er þegar ég
u.þ.b. 10 ára fékk að fara til
Reykjavíkur með honum. Hvílíkt
ævintýri! Ég, sem fór nánast aldr-
ei í bíl, aðeins stöku sinnum með
rútu inn í Sléttuhlíð og nægði sá
spölur yfirleitt til þess að ég var
orðin bílveik. En nú brá svo við
að bílveikin hvarf. Það var æðis-
legt að sitja svona hátt uppi, hafa
allt þetta útsýni og finna það að
maður var svo velkominn og ör-
uggur. Júlli var alltaf svo blíður
og barngóður og svaraði öllu mal-
inu í mér þannig að það gladdi
barnslundina. Ógleymanlegt var
líka þegar við stoppuðum á leið-
inni, fundum okkur laut og
Til sölu úr dánarbúi vel með farin Old Charm húsgögn:
Borðstofuborð og 8 stóiar kr. 325.000-
Borðstofuskápur kr. 110.000-
Hornskápur kr. 42.000-
Standklukka kr. 110.000-
Skatthol kr. 62.000-
Einnig fallegar kristalsljósakrónur á kr. 25-50.000-
Uppl. í síma 555 0584 næstu daga.
: Póstsendum
STOPP
Vorum að taka upp stór-
glæsileg polyester-
blönduð gardínuefni
og rúmteppavatt í stíl,
sem enginn fær staðist,
frá J. Rosenthal.
Einnig rómantísk
blúnduefni í úrvali.
Nú prýðum við
heimilin fyrir jólin.
Verið velkomin
Draumaland, Keflavík
Paloma, Grindavík
Inga, Hamraborg 14A, Kópavogi
Álnabúðin, Stigahlíð 45-47, Reykjavík
Saumagallerí, Háholti 14, Mosfellsbæ
Nýja Línan, Akranesi
Kaupf. Borgfirðinga, Borgarnesi
Blómsturverllir, Hellissandi
Kaupf. ísfirðinga, ísafirði
Brún, Bolungarvík
Kaupf. V-Húnvetninga, Hvammstanga
Kaupf. Húnvetninga, Blönduósi
Kaupf. Skagfirðinga, Sauðárkróki
Línuhúsið, Akureyri
Valberg, Ólafsfirði
Kaupf. Þingeyinga, Húsavík
Kaupf. Vopnfirðinga, Vopnafirði
Samkvæmispáfinn, Egilsstöðum
Júllubúð, Eskifirði
E.J. Waage, Seyðisfirði
Kaupf. A-Skaftfellinga, Höfn, Homafirði
Mosart, Vestmannaeyjum
. v. ;
J ólahlaðborð
í hádeginu og á kvöldin alla daga fram til 2.janúar
SJÁVARRÉTTIR
Kryddsíld með lauk og eggi* Marineruð síld með
lauk • Karrýsíld með grænmeti • Reyksoðinn fiskur með
graslaukssósu • Sjávarréttasalat • Graflax • Reyktur lax
Grásleppuhrogn • Sardínur • og fleira
KJÖTRÉTTIR
Hangikjöt • Reykt grísakjöt • Lambasteik • Grísasteik með
puru • Lifrarkæfa og paté • Pottréttir með gæsa- anda- eða
hreindýrakjöti • Reyksoðinn lundi og svartfugl • Kaldreykt
lambacarpacio • Litlar kjötbollur • Tartalettur • og fleira
EFTIRRÉTTIR
Jólasmákökur • Amerísk ávaxtakaka • Ris a la mandel • o.fl.
Verð í hádeginu kr. 1.650- en kr. 2.550 á kvöldin.
Vinsamlega pantið tímanlega í síma
5050 925 og 562 7575
Jólaheimur Hótel Loftleiða erfyrirþig og alla fjölskylduna.
Jólasöngvar og lifandi tónlist hljóma alla daga og skapa
hina réttu jólastemningu.
Sunnudagana 10 og 17 desember klukkan 14.00
verður jólaball fyrir alla fjölskylduna.
’ Jólasveinninn kemur með pakka handa börnunum.
SCANDÍC
LOFTLEIÐIR
Jólaheimur út affyrir sig
Matargestir eru sjálfkrafa þátttakendur í ferðahappadrætti.
i