Morgunblaðið - 03.12.1995, Blaðsíða 48
f
48 SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
| sTi 111 v h t.yji i 'I liu
'ÍttelúzyúþSfi uPfí
*lunyl byfftt zéz'
, Hyl|-!lí{j ■j-7-sÍ
I STORBORGINNI
n
HASKOIABIO
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
GoldenEye
007~
,r ,rvr 1/2 Q. i
,r ,r ,r
Bsr»
Milijonamæringur er myrtur og morðinginn virðist vera há-
klassa vændiskona sem gengur undir nafninu Jade. En hver er
hún? David Caruso leikur saksóknara sem grunar fyrrum
ástkonu sína (Linda Fiorentino) sem nú er gift vini hans (Chazz
Palminteri) um að vera Jade.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 . Bönnuö innan 16 ára.
Hefur rilotiö gi.i'sik'ga dóma gagnrýnenda og fjöldamörg verðlaun
vilpiffiHpHm, sigraði m.a. á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í fyrra og
var tunefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin i ár.
Sýnd kl. 3, 5,7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
SAKLAUSAR LYGAR
INNOCENT LIES
Kyngimögnuð spennumynd. Lögreglumaður
rannsakar morð a félaga sínum og verður ást-
fanginn af gullfallegri stúlku sem tenigist
morðinu og fleiri dauðsfölllum.
Aöalhlutverk: Stepnen Dorff (Backbeat), Gabrielle
Anwar (Scent of A Woman) og Adrian Dunbar (Widows
Peak). Leikstjóri er Patrick Dewolf (Monsieur Hire).
Sýnd kl. 3, 5 7, 9 og 11.
Sýnd kl. 4.45 og 7
Síðustu sýningar.
Sýnd kl. 3
Rós í hnappagatið
Robbins í hlutverki
framleiðanda
LEIKARINN Tim Robbins
hefur tekið að sér að fram-
leiða fyrstu kvikmynd Inde-
pendent Film Channel-fyrir-
tækisins. Það er heimildar-
mynd sem ber heitið „The
Typewriter, the Rifle and the
Movie Camera“ og fjallar um
ævi óháða kvikmyndagerðar-
mannsins Sam Fuller.
Adam Simon leikstýrir
myndinni, en Robbins er þul-
ur og tekur viðtöl í henni.
Leikstjórarnir Martin Scor-
sese, Quentin Tarantino og
Jim Jarmusch koma fram í
myndinni. Frægustu myndir
Fullers eru „White Dog“,
„The Big Red One“ og „Ver-
boten“.
TÓNLIST
Gcisladiskur
PÁLL ÓSKAR
Geisladiskur Páls Óskars Hjálm-
týssonar. Söngur: Páll Óskar.
Hljóðfæraleikarar: Jón Ólafsson
hljómborö, Birgir Bragason
bassi, Stefán Hjörleifsson gítar,
Guðmundur Pétursson gítar,
Hilmar Jensson gítar, Matthías
Hemstock trommur, Jóhann
Hjörleifsson trommur, Stein-
grímur Guðmundsson trommur,
Astvaldur Traustason píanó,
Kjartan Valdimarsson hljómborð,
Jóel Pálsson sax, Sigurður Flosa-
son sax, Szymon Kuran, Bryndís
Halla Gylfadóttir, Auður Haf-
steinsdóttir strengir, Reynir Sig-
urðsson marimba, víbrafónn o.fl.,
auk fleiri hljóðfæraleikara. Upptöku-
stjóri: Páll Óskar. Útsetningar Páll
Óskar og fleiri. Strengjaútsetningar:
Szymon Kuran. Upptaka og hljóö-
blöndun: ívar Ragnarsson og Ól-
afur Halldórsson. Útgefandi:
POP, Paul Oscar Productions.
Dreifíng Japis. Verð 1.999
kr.
PÁLL Óskar: Sungið frá hjartanu.
PÁLL Óskar Hjálmtýsson er
skemmtikraftur fram í fingurgóma.
Gildir þá einu hvort hann kemur
fram sem leikari á leiksviði eða
söngvari á tónleikum, í sjónvarpi
eða í útvarpi. Á hljómplötum er
hann jafn sannfærandi og á sviði
og hefur sungið inn á þær nokkrar
með góðum árangri. Nú er komin
út ný plata og með henni bætist
enn ein rósin í hnappagat þessa
stórskemmtilega söngvara.
Sem söngvari virðist Páll Óskar
jafnvígur á allar tegundir tónlistar,
hvort heldur hann fæst við rokk,
suðræna sölsu, standarda, diskó eða
ballöður. Mér finnst hann einna síst-
ur í diskóinu, en líklega er það frem-
ur mitt vandamál en hans. í róleg-
um bailöðum og „standördum"
tekst honum best upp að mínu
mati og af slíkri tónlist er nóg á
nýju plötunni. Það leiðir því af sjálfu
sér að mér finnst platan góð.
En það er fleira en söngur Páls
Óskars á þessari plötu sem fer vel
í mig, því hljóðfæraleikur er sérlega
góður, lagaval vel heppnað, góð
upptökustjórn og hljóðblöndun og
virðist sem allir, er koma nálægt
gerð plötunnar, hafi lagt sig fram
til hins ýtrasta. Jafnvel upplýs-
ingabæklingurinn er vel unninn,
með textum og hugleiðingum
söngvarans um hvert einstakt lag,
sem er hin skemmtilegasta lesning.
Textar plötunnar eru ýmist á ís-
lensku eða ensku, sem einhvern
tíma hefði þótt óheppilegt, en í
þessu tilfelli gengur blandan upp.
Sum laganna eru einfaldlega þann-
ig að þau verða ekki sungin á
okkar hljómfagra móðurmáli
svo vel sé. í einu laganna leys-
ir Páll Óskar málið með þeim
hætti að syngja hluta lagsins á
íslensku og aðra á ensku og
portúgölsku, sem er vænt-
anlega upprunalega útgáfan því
þetta er Corcovado eftir brasil-
íska eðaltónskáldið Antonio
Carlos Jobin. Þetta lag hefur
verið í sparihólfi plötusafns
míns allt frá því ég heyrði Stan
Getz blása það fyrst á sjöunda
áratugnum og þótti mér
ánægjulegt að heyra hversu vel
Páll Óskar og félagar hans í
hljómsveitinni fóru með þennan
gimstein meistara Jobims. ís-
lensku textarnir á plötunni eru
allir eftir Pál Óskar og kemst
hann vel frá þeim kveðskap.
Auk áðurnefnds meistaraverks
Jobims eru þarna þrjú lög eftir
annað uppáhaldstónskáldið mitt,
Burt Bacharach, Anyone who had
a heart, The look of love og Mak-
inglove, sem öll hljóma vel úr barka
Páls Óskars, og augljóst að söngv-
aranum er annt um tónsmíðar
Bacharachs. Annars koma lögin úr
ýmsum áttum og eiga það öll sam-
eiginlegt að vera Páli Oskari hjart-
fólgin, enda syngur hann frá hjart-
anu, allt frá fyrsta tóni plötunnar
til hins síðasta. Eitt eftirminnileg-
asta lag plötunnar er Sjáumst aft-
ur, fallegt franskt miðaldatónverk,
en þar nýtur Páll Óskar aðstoðar
Sverris Guðjónssonar og Kristjönu
Stefánsdóttur við sönginn, með
afai' áheyrilegum árangri og er
útsetningin vel heppnuð að mínu
mati.
Fjöídi valinkunnra hljómlistar-
manna kemur við sögu þessarar
plötu og skal hér vísað í upptaln-
ingu að framan, en of langt mál
er að fara ofan í saumana á
frammistöðu hvers og eins. Þeir
leysa yfirhöfuð verk sitt vel af
hendi og eiga hrós skilið. Ég vil
heldur ekki hætta mér út í saman-
burð á þessari plötu og fyrri plötum
Páls Óskars, enda sjálfsagt
smekksatriði hvað hverjum og ein-
um finnst í þeim efnum. Sjálfum
fínnst mér platan vera hápunktur-
inn á glæsilegum ferli þessa fjöl-
hæfa listamanns.
Sveinn Guðjónsson
FOLK