Morgunblaðið - 08.12.1995, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1995 33
Didda
Þorri
Jóhannsson
Guðmundur
Steingrímsson
Ljóð o g djass
í Hafnarborg
SUNNUDAGINN 10. desember
nk. kl. 20.30 verður flutt dagskrá
í Hafnarborg þar sem fléttað er
saman flutningi Ijóða og djasstón-
list. Þar munu skáldin Ari Gísli
Bragason, Didda, Jóhann Hjálm-
arsson, Jón Óskar, Matthías Jo-
hannessen, Nína Björk Árnadóttir
og Þorri lesa úr verkum sínum
við undirleik tónlistarmannanna
Carls Möllers píanóleikara, Guð-
mundar Steingrímssonar trommu-
leikara og Róberts Þórhallssonar
bassaleikara. Höfundur tónlistar-
innar er Carl Möller og skilgrein-
ir hann hana sem [jóðrænan djass
sem taki mið af hugblæ ljóðanna.
Þessi hópur hefur áður unnið
saman að svipuðum flutningi og
má rekja upphaf þess samstarfs
tvo áratugi aftur í tímann. Hluti
þess hóps kom aftur saman í fyrra
og endurnýjaði samvinnuna ásamt
yngra fólki. Flutningur þeirra
hefur hvarvetna hlotið góðar und-
irtektir áheyrenda.
Dagskráin verður flutt í Kaffi-
stofu Hafnarborgar og gefst
áheyrendum kostur á að njóta
léttra veitinga. Dagskráin hefst
eins og fyrr segir kl. 20.30. Áður
geta gestir skoðað sýningar í hús-
inu, en í aðalsal stendur yfir sýn-
ing á verkum þriggja gull- og silf-
ursmiða, þeirra Sigríðar Onnu
Sigurðardóttur, Timo Salsola og
Hannu Tuomaala frá Finnlandi. 1
Sverrissal er sýning á verkum úr
safni Hafnarborgar. Aðgangseyr-
ir er 500 kr.
Nýjar bækur
Valbjörg* minnist
o g kveður
VALBJORG Krist-
mundsdóttir á Akranesi
sendir frá sér fyrstu
bók sína er hefur að
geyma endurminningar
hennar, kviðlinga og
gamanmál. Hún hrakt-
ist frá heimabyggð
sinni í frumbernsku,
þegar foreldrar hennar
slitu samvistir, og var
boðin upp sem hrepps-
ómagi. Hún var yngst
fimm systkina; eitt dó
í bernsku. Næstur
henni var skáldið
Steinn Steinarr, þá
Hjörtur skólastjóri og
Steinunn húsmóðir.
Vinkona hennar, Bjarnfríður
Leósdóttir, lýsir henni svo: „Ég hygg
að Valla sé mjög lík Steini. Dálítið
kaldhæðin, ákaflega fundvís á ýmsar
misfellur í fari og framkomu fólks
og getur þá brugðið fyrir sig skopi
á sinn hátt í smellnum
vísum eða mæltu máli.
Engan veit ég sem hún
hefur sært, en margan
glatt með skopi sínu.
Hún er skarpgreind og
skáldskapurinn _er
henni í blóð borinn. Ég
treysti mér ekki til að
líkja þeim saman sem
skáidum, Steini og
henni, en þegar ég les
kvæði Steins og smá-
þætti, þá finn ég sama
strenginn í fari þeirra.“
Valbjörg vakti mikla
athygli þegar hún las
Passíusálmana í út-
varpinu fyrst íslenskra
kvenna.
Bókin er 160 bls. Mynd á forsíðu:
Ljósmyndastofa Akraness. Prent-
vinnsla: Oddi hf. Útgefandi er
Hörpuútgáfan á Akranesi.
Valbjörg
Kristmundsdóttir
Tónleikar í Húsinu
Ljósm. Lýður Pálsson
ÚR STOFUNNI í Húsinu, Eyrar-
bakka. Á tónleikunum verður spilað
á taffel-píanó frá 1872, sem er með
elstu píanóum landsins. Píanóið var
gjöf Jakobs Lefolii kaupmanns til
Sylviu konu Guðmundar Thorgrímsen
verslunarstjóra.
LAUGARDAGINN 9. des-
ember kl. 14 halda Hauk-
ur Guðlaugsson orgelleik-
ari og Gunnar Kvaran
seilóleikari í samvinnu við
Byggðasafn Árnesinga
tónleika í Húsinu á Eyrar-
bakka. Leikin verða lög
úr Ljóðalögum Guð-
mundu Nielsen (1885-
1936) en hún stjórnaði
kórum og hélt uppi söng-
lífi á Eyrarbakka snemma
á öldinni. Fyrir tónleik-
ana heldur Lýður Pálsson
safnvörður Byggðasafns
Árnesinga stutta tölu um
Guömundu og tónmenn-
ingu þá sem barst frá Húsinu um
langt skeið. Þar sem tónleikarými
er takmarkað verða tónleikarnir
endurteknir kl. 16 ef þörf krefur.
Aðgangseyrir á tónleikana eru
frjáls framlög til Orgelsjóðs Eyr-
arbakkakirkju.
TÖNTJST
J a z z
HÁDEGISTÓNLEIKAR
Hljómsveit Carls Möller. Flytjend-
ur: Carl Möller píanó, Róbert Þór-
hallsson rafbassi og Guðmundur
Steingrímsson trommur. Norræna
húsið 6. desember 1995.
LÖG Carls Möller við ljóð eftir
Nínu Björk Árnadóttur og Jóhann
Hjálmarsson eru fremur í ætt við
stef og stemningar en fullgerð lög.
Sum voru reyndar ekki annað en
hljómgrunnur, Svartir skór ígrasi,
eða hljóðeffektar, Forn höfundur.
Enda þótt formið sé knappt komst
furðu mikið af blæ ljóðanna til
skila. Alls voru flutt 30 smálög-
við ljóð skáldanna og ljóðatónleik-
Ljóð og
djass
arnir stóðu yfir í
30 mínútur. Carl
skilgreinir sjálf-
ur tónlistina sem
ljóðrænan djass
eða stefdjass.
Ljóðalestur
við djasstónlist á
sér sögu hérlend-
Carl Möller is því fyrir tutt-
ugu árum vann
hópur íslenskra skálda og tónlist-
armanna saman að flutningi ljóða
og djass í Norræna húsinu og víð-
ar.
Eftirminnilegustu stefin við ljóð
Nínu Bjarkar eru Öskur drengs-
ins, sem er ágætt sveiflustef með
gangandi bassa, og fallegt sálma-
stef, í minningu Jóns Haraldsson-
ar arkitekts. Sum stefin eru lík,
má þar nefna Jón Proppé og Jón
Gunnar Árnason, eða ef til vill var
það aðeins suður-ameríski hrynj-
andinn sem tengir þau saman í
huganum. Inn á milli glitti í veru-
lega fallegar tónperlur eins og við
ljóð Jóhanns, Rigningu, Morgunn
og Meðan við sofum.
Flutningur þeirra Carls, Róberts
og Guðmundar, var felldur og
fumlaus en dálítið skorti upp á
hljóðstyrk úr bassanum.
Guðjón Guðmundsson
UWT
Q/rOnixQ tniyiY apa Q/rönixQ
9 160% runiiA pu f\m% AFMÆLISTILBOÐ 9 9 loÖ%
•5 ara Vegna frábærra undirtekta framlengjum við 5 cxpcx V
H/POnixB afmælistilboð okkar og veitum jafnvel enn ES^onixES
hærri afslátt en áður.
M ASKO
ÞVOTTAVELAR-ÞURRKARAR- UPPÞVOTTAVELAR KÆLISKAPAR-FRYSTISKAPAR-FRYSTIKISTUR
5-10% AfslÁttvir
ÞÚ ÞARFT EKKI KASKO
EF ÞÚ KAUPIR ASKO!
- því Asko er trygging þín fyrir
hámarks árangri og sannkallaðri
maraþonendingu.
Nú er lag að fá sér sænskt hágæðatæki
frá Asko - með verulegum afslætti.
ASKO þvottavélar frá 69.990,-
ASKO tauþurrkarar frá 59.990,-
ASKO uppþvottavélar frá 49.990,-
10-15% AfslÁttwr
Margar gerðir og litir af ofnum til
innbyggingar, með eða án blásturs,
á verði frá 24.800,-. Helluborð með
2 eða 4 hellum, bæði „venjuleg" og
keramik. Einnig gas-helluborð.
Frístæðar eldavélar frá 39.900,-
ELDHUSVIFTUR - MARGAR GERÐIR
10-20% ðfslÁttvir
15 gerðir og litir:
Venjulegar, hálfinnbyggðar,
m/útdregnum glerhjálmi, hálfháf-
formaðar eða til innbyggingar í háf.
Verð frá aðeins kr. 6.990,-
NILFISK
NÝ NILFISK FYRIR NÚTÍMAHEIMILI
5-15% AfsUttur
Dönsku GRAM kæliskáparnir
eru rómaðir fyrir glæsileika,
hagkvæmni, styrk og endingu.
Þú getur valið um 20 gerðir
kæliskápa, með eða án frystis.
Einnig 8 stærðir frystiskápa og
4 stærðir af frystikistum.
Verðdæmi: GRAM KF-355E kæliskápur
með 272 I. kæli og 62 I. frysti.
HxBxD=174,2 x 59,5 x 60,1 cm.
Áður kr. 79.990,- Nú aóeins 69.990,-
ÖRBYLGJUOFNAR MEÐ MEIRU
TURNTABLE MICROWAVE
”0 --^ /7AV\
*g,**ss
COMBI QRILL COMBI
▼▼▼ V' MICROWAVE .
10-15% AfslÁttwr
7 gerðir: Val um ofna m/örbylgjum ein-
göngu, örbylgjum og grillelementi eða
örbylgjum, grilli og blæstri. Verðdæmi:
18 1. 800W örbylgjuofn 16.990,-
27 I. 900W örbylgjuofn 21.990,-
17 1. 800W örb. + grill 21.990,-
27 I. 850W örb. + grill + bl.38.900,-
í... tjmmmmmmmmmwmmmmmm
0O.ERRE
LOFTRÆSTING ER OKKAR FAG!
Já, við erum í afmælisskapi um þessar mundir. Staðgreiðslu- og magnafsláttur, Euro-
og Visa-raðgreiðslur til allt að 36 mán., án útborgunar. FRÍ HEIMSENDING og við
FJARLÆGJUM GAMLA TÆKIÐ þér að kostnaðarlausu - um leið og við komum með
það nýja - glæsilegt, notadrjúgt og /\ I P\
sparneytið - og nú á afmælisverði. I |N|I 1 mánud.-fÖStd. 9—18
Velkomin í Fönix I I L/ laugardag 10-18
- neitt a konnunm og is fyrir bornin.
3ja
ára abyrgð
OMENGUÐ GÆÐI
20% AfslÁttur
Allir vildu Lilju kveðið hafa,
en það er aðeins ein Nilfisk!
Þær eru nú reyndar þrjár,
hver annari betri.
En hvað veldur, að allir vilja eignast
Nilfisk? Er það útlitið, krafturinn,
tandurhreina útblástursloftið eða
þessi magnaða ending?
Kannski allt þetta og ennþá fleira.
Nú bjóðum við nýja Nilfisk á
tilboðsverði, frá kr. 17.590,-
10-15% AfslÁttvir
Þeir eru notadrjúgir litlu
borðofnarnir frá DéLonghi.
Þú getur steikt, bakað og grillað að vild á
styttri tíma og með mun minni orkunotkun
en í stórum ofnum eða eldavélinni.
7 gerðir: 8 lítra, 13 lítra eða 28 lítra.
Verð frá aóeins 9.990,-
Mikið úrval af loftræstiviftum fyrir
hvers konar húsnæði, til heimilisnota
eða í atvinnuhúsnæði.
Gott loft skapar vellíðan og eykur
afköst. Ef þú þarft að loftræsta,
komdu þá til okkar.
LITLU TÆKIN A
LÁGA VERÐINU
10-30% ^fslÁttwr
Ávaxtapressur, brauðristar, brauð- og
áleggshnífar, djúpsteikingarpottar,
dósahnífar, eggjasjóðarar, handsugur,
hárblásarar, hitamælar, hnífabrýni,
hrærivélar, hraðsuðukönnur, mat-
vinnsluvélar, mínútugrill,
rafmagnsofnar, ryksugur, ryk- og
vatnssugur, safapressur, straujárn
- og ótal margt fleira.
Sextug og síung....
/FQnix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420