Morgunblaðið - 13.01.1996, Page 26

Morgunblaðið - 13.01.1996, Page 26
Íé LAUGARDAGUR 13. JANUAR 1996 UM rmTrri MORGUNBLAÐIÐ M I HEIMSOKN HJA SVETLONU A Ut má/ Þegar Svetlana og Luka Kostic komu fyrst ---7--------------------------------------- til Islands höfðu þau tæpast heyrt á landið minnst. Því síður datt þeim í hug að þau ættu eftir að setjast hér að. Sveinn Guðjónsson heimsótti þau í fyrstu íbúðina ---------------------7--------------------- sem þau eignast á Islandi, en þau fluttu inn í nóvember síðastliðinn. VIÐ erum fædd og alin upp sem Júgóslavar. Nú erum við flokkuð sem Serbar í gamla landinu, en við erum auðvitað fyrst og fremst íslendingar," segja hjónin Svetlana Björg og Luka Lúkas Kostic þegar þau rifja upp fortíð sína og tildrög þess að þau ákváðu að sækja um íslenskan ríkisborgararétt, sem þau fengu árið 1993. Luka hafði þá gert garðinn frægan sem knattspyrnu- maður í liði Skagamanna, en flutti síðan til Grindavíkur þar sem hann þjálfaði í tvö ár. Síðastliðið haust tók hann við þjálfun meistaraflokks KR og festi um leið kaup á fyrstu íbúð- inni, sem þau hjónin eignast á Is- landi, við Alagranda í Vesturbænum. „Við vorum nýbúin að byggja okkur hús í Júgóslavíu, og eigum það enn, en það stendur nú autt og ónotað í Baranja í Króatíu. Ef heppnin er með getum við kannski selt það fyrir 3 til 4 milljónir, en það var miklu meira virði áður en stríðið skall á,“ segja þau. „Ég skildi líka nýjan bíl eftir og hann er nú í vörslu kunningja okkar,“ bætti Lúkas við. „Luka bjó aðeins í einn mánuð í húsinu,“ segir Svetlana. „Við fluttum inn í febrúar 1991, í mars fór hann til íslands, og þegar Igor var búinn í skólanum í júní fónun við líka til ís- -lands. Viku síðar skall stríðið á og við ákváðum að setjast hér að.“ „Ég held að við hefðum sótt um íslenskan ríkis- borgararétt þótt ekkert stríð hefði orðið í Júgóslavíu," segir Lúkas. „Okkur líður mjög vel hérna og hér vil ég ala upp börnin mín. Ég held að ísland sé besta land í heiminum til að ala upp börn.“ Svetlana tekur undir þessi orð en bætir við að stríðið hafí ýtt á eftir þeirri ákvörðun þeirra að setjast hér að. Hún sá mig sknra mark. Svetlana er fædd í Belgrad, en ólst upp hjá ömmu sinni og afa í héraðinu Baranja í Króatíu. Luka fæddist í Bosníu og ólst líka upp í Baranja. En hvernig kynntust þau? „Hún sá mig skora fallegt mark og hringdi í mig um kvöldið,“ segir hann og skellihlær. Svetlana brosir að þessu, en hristir höfuðið: „Nei, þetta var ekki svona.“ „Nei, hún var mjög ung þegar ég sá hana fyrst, aðeins fímmtán ára. Það var á einhverju balli. Síðan hitt- umst við aftur eftir 2 ár, á diskóteki. Hún var þá á föstu með öðrum og ég var líka á föstu. En málin þróuðust þannig að við urðum ástfangin og byrjuðum að vera saman. Og svo giftum við okkur 12. júní 1982.“ Luka var þá orðinn atvinnumaður í knattspyrnu, með 1. deildar liðinu Osijek frá samnefndri borg í Króatíu, og með tífalt hærri laun en faðir hans, sem var verkamaður. „Við höfðum það mjög gott og ég átti orðið sem svarar þremur bílverðum i banka. Svo fór ég í Við höfðum það mjög gott og ég átti orðið sem svarar þremur bílverðum í banka herinn í eitt ár, sem var skylda, og á meðan kom gengisfelling þannig að bankainnstæðan var komin niður í eitt bílverð þegar ég sneri aftur.“ En hvernig datt þér í hug að fara til íslands aðspila knattspyrnu? „Ég var farinn að eldast og vissi að möguleikar mínir minnkuðu sífellt í atvinnumennskunni heima. Ég var að vísu með tilboð frá Þýskalandi, en Svetlana vildi ekki fara þangað. Einnig var ég með gott tilboð frá 1. deildarliðinu Elehe á Spáni, en umboðsmaðurinn klúðraði því. Svo fékk ég ágætt tilboð frá Þór á Akureyri og þar sem við vissum nánast ekkert um Island fannst okkur dálítið spennandi að fara þangað. Þetta var eiginlega bara af ævintýraþrá. StríðiB dapurlegt Ég kom fyrst til íslands 1989 og var hjá Þór fyrstu tvö árin, en síðan á Skaganum. Við fórum alltaf heim á milli og byggðum húsið, en svo skall stríðið á og við fónim ekki aft- ur næstu þrjú árin. í september 1994 fórum við svo aftur og mér fannst ekkert hafa breyst í rauninni. Svæðið sem við bjuggum á slapp nánast alveg við stríðsátökin. Það var fyrst og fremst Bosnía sem fór illa út úr þessu. Pabbi dó mánuði áður en stríðið hófst, en mamma býr enn á sama stað og áður og það amar ekkert að henni. Fólkið hennar Svetlönu býr í Belgrad, sem slapp alveg við stríðsátökin. Striðið hefur því lítil áhrif haft á okkar vini og vandamenn, en ég þekki samt marga sem hafa farið illa út úr stríðsátökunum, fólk sem hef- ur misst ættingja og vini, og þetta fólk er biturt. Við hjónin höfum bara horft á stríðið úr fjarlægð og vissu- lega var dapurlegt að fylgjast með þessum sorglegu atbúrðum. En við berum ekki kala til neins, nema þeirra sem bera ábyrgð á stríðinu. Við vonum bara að friður geti hald- ist og fólkið í gömlu Júgóslavíu geti fyrirgefíð hvert öðru. En það getur tekið mörg ár þar til sárin gróa að fullu.“ Þau Lúkas og Svetlana stóðu fyrir söfnun á Akranesi árið 1991 til stuðnings stríðshrjáðu fólki í gömlu Júgóslavíu og söfnuðu fímm tonnum af fötum sem send voru út. Og þau hafa bæði unnið í sjálfboðavinnu fyrir Rauða krossinn. „Við höfum líka sent reglulega fot og peninga til fólks sem við þekkjum og hefur skrifað okkur og sagst ekki eiga fyrir mat. Stríðið hefur því vissu- lega haft áhrif á okkur og valdið okkur áhyggjum og kvíða. En von- andi er þessu nú lokið.“ Það er annað mnð hann Lúkas hafði menntað sig í matvælaiðnaði í Júgóslavíu, en kvaðst aldrei hafa haft áhuga á að vinna við það. Þegar hann kom til ís- lands fór hann að vinna við trésmíð- ar, ásamt knattspymunni, enda KNATTSPYRNA - Igor Bjarni heldur upp á AC Milan og | Manchester United. Hér bendm hann á uppáhaldsleikmann sinn í liði AC Milan, Savicevic. Morgunblaðið/Arni Sæberg FJÖLSKYLDAN - 11itidyrunum við nýja heiinilið að Alagranda. Fremst er Aleksandar Alexander 3 ára, Igor Bjarni 12 ára, Svetlana Björg og Luka Lúkas. Q FYRSTA skólamyndin. Luka Kostic 7 ára. 0 SVETLANA með Rade bróður sínum í Belgrad 1965. □ LUKA með mömmu og pabba, Danica og llija Kostic 1965. O MAMMA Radmila og Svetl- ana litia í Belgrad, fæðingar- árið 1963. £] JÓLASVEINNINN er líka ( Júgósiavíu. Svetlana er þarna 8 ára. Q GELGJUSKEIÐIÐ hafið. Luka 15 ára með Rada systur sinni 1973. Q SNEMMA beygist krókurinn. Luka 5 ára með knöttinn í fanginu ásamt mömmu og frænda 1963. n DRAGAN bróðir og Svetlana í skemmtigarði í Suður- Serbíu 1973. „Mamma vildi að við færum f júgóslavn- eska þjóðbúninga en við frekjuðumst til að vera eins og Kanar . . .“ Q BRUÐKAUPIÐ f Baranja, 12 júní 1982. nm ANNAR flokkur Osijek varð Króatfumeistari 1977 ffyrsta sinn í sögu félagsins. Lúka er annar frá hægri í efri röð. m HUSIÐ í Baranja, sem nú stendur autt og yfirgefið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.