Morgunblaðið - 13.01.1996, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
MINNINGAR
Guðspjall dagsins:
Brúðkaupið í Kana.
(Jóh, 2.)
ÁSKIRKJA: Barnaguösþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir
messu. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Foreldrar hvattir til þátt-
töku með börnunum. Guðsþjónusta
kl. 14. Organisti Guðni Þ. Guð-
mundsson. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Hjalti Guðmundsson. Dómkór-
inn syngur. Organleikari Marteinn
H. Friðriksson. Barnastarf í safnað-
arheimilinu á sama tíma og í Vestur-
bæjarskóla kl. 13. Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14. Prestur sr. Jakob
Á. Hjálmarsson. Fundur fermingar-
barna og foreldra þeirra að messu
lokinni.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIM-
ILIÐ: Samkoma í dag kl. 17.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma
kl. 11. Messa kl. 14. Prestur sr.
Halldór S. Gröndal. Organisti Árni
Arinbjarnarson.
HALLGRfMSKIRKJA: Barnasam-
koma og messa kl. 11. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr.
Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Helga Soffía Konr-
áðsdóttir. Messa kl. 14. Sr. Tómas
Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Flóki Kristinsson. Almennur
safnaðarsöngur. Sunnudagaskóli á
sama tíma í umsjá Báru Friðriksdótt-
ur og Sóleyjar Stefánsdóttur. Kaffi-
sopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 11.
Hólmfríður Friðjónsdóttir syngur
einsöng. Félagar úr kór Laugarnes-
kirkju syngja. Organisti Gunnar
Gunnarsson. Barnastarf á sama
tíma. Guðsþjónusta kl. 14 í Sjálfs-
bjargarhúsinu, Hátúni 12. Ólafur Jó-
hannsson.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11.
Opið hús frá kl. 10. Munið kirkjubíl-
inn. Messa kl. 14. Sr. Frank M.
HalldórSson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Prestur sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir. Organisti Vera Gul-
asciova. Barnastarf á sama tíma.
ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Organleikari Sigrún Steingrímsdótt-
ir. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11.
Samkoma ungs fólks með hlutverk
kl. 20. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Organisti Smári Óla-
son. Sunnudagaskóli kl. 11. Gunnar
Sigurjónsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Messa
kl. 11. Prestur sr. Hreinn Hjartar-
son. Organisti Lenka Mátéová. Bar-
naguðsþjónusta á sama tíma í um-
sjón Ragnars Schram. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Umsjón hafa Hjörtur
og Rúna. Barnaguðsþjónusta í Rima-
skóla kl. 12.30 í umsjón Jóhönnu og
Ólafs. Guðsþjónusta kl. 14. Organ-
isti Ágúst Ármann Þorláksson.
Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Altar-
isganga. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir
prédikar. Fermingarbörn aðstoða.
Barnaguðsþjónusta kl. 13 í umsjá
Fríkirkjusöfnuðurinn
í Reykjavík
í dag, laugardaa kl. 11.00:
Flautuskóíinn í
Safnaðarheimilinu.
Sunnudagur:
BarnaguSsþjónusta kl. 11:15
GuSsþjónusta kl. 14:00.
Organisti Pavel Smid.
Cecil Haraldsson.
m
u
3L
sr. Bryndísar Möllu og Dóru Guðrún-
ar. Foreldrar eru hvattir til þátttöku
með þörnum sínum. Órganisti
Oddný Þorsteinsdóttir. Kristján Ein-
ar Þorvarðarson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf i
safnaðarheimilinu Borgum kl. 11.
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl.
11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson hér-
aðsprestur prédikar og þjónar fyrir
altari. Organisti Örn Falkner. Ægir
Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Irma
Sjöfn Óskarsdóttir prédikar. Organ-
isti Kjartan Sigurjónsson. Sóknar-
prestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: í dag, laugardag,
kl. 11 flautuskólinn í Safnaðarheimil-
inu. Sunnudag barnaguðsþjónusta
kl. 11.15. Guðsþjónusta kl. 14. Org-
anisti Pavel Smid. Cecil Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há-
messa kl. 10.30. Messa kl. 14. Ensk
messa kl. 20. Laugardaga messa
kl. 14. Aðra rúmhelga daga messur
kl. 8 og kl. 18.
KFUM og KFUK, v/Holtaveg: Sam-
koma á morgun kl. 17. Ræðumaður
Friðrik Hilmarsson. Barnasamverur
á sama tíma. Léttar veitingar seldar
að lokinni samkomu.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11 á sunnudögum.
HVITASUNNUKIRKJAN Filadelfía:
Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðu-
maður Mike Fitzgerald. Allir vel-
komnir.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Messa kl.
14. Barnastarf á sama tíma. Kaffi
og maul eftir messu.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Helgun-
arsamkoma kl. 11 á sunnudag.
Hjálpræðissamkoma kl. 20. Turid
og Knut Gamst stjórna og tala.
MOSFELLSPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Lágafellskirkju kl. 14.
Barnastarf í safnaðarheimilinu kl.
11. Bíli frá Mosfellsleið fer venjuleg-
an hring. Jón Þorsteinsson.
VÍDALÍNSKIRJA: Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Bragi Frið-
riksson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Munið skólaþflinn.
Messa kl. 14. Organisti Ólafur W.
Finnsson. Kirkjukórinn syngur.
Strandberg opið eftir messu.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfi^ði. Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Organisti Krist-
jana Þ. Ásgeirsdóttir.
VÍÐISTAÐAKIRKJA. Barnamessa kl.
11. Almenn guðsþjónusta kl. 14.
Sigurður Helgi Guðmundsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa
kl. 10.30. Rúmhelga daga messa kl.
18.
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl.
8. Allir velkomnir.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 13.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Baldur Sigurðsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11 í umsjá Málfríðar og
Ragnars, Laufeyjar og sr. Sigfúsar.
Munið skólabílinn. Guðsþjónusta kl.
14. Prestur: Ólafur Oddur Jónsson.
Kór Keflavíkurkirkju syngur. Organ-
isti: Einar Örn Einarsson.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Messa sunnu-
daginn kl. 14. Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Messa kl. 14. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11.
STOKKSEYRARKIRKJA: Messa kl.
14.
ODDASÓKN: Guðsþjónusta sunnu-
daginn 14. janúar kl. 14. Sóknar-
prestur.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum:
Almenn guðsþjónusta kl. 14. Sr.
Bjarni Þór Bjarnason héraðsprestur
þjónar. Barnasamvera meðan á
prédikun stendur. KFUM & K heldur
unglíngafund kl. 20.30.
AKRANESKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta í dag, laugardag, kl. 11. Börn
borin til skírnar. Stjórnandi Sigurður
Grótar Sigurðsson. Messa sunnu-
dag kl. 14. Altarisganga. Björn.
BORGARPRESTAKALL:
BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjal-
arnesi: Guðsþjónusta kl. 11 f.h.
Gunnar Kristjánsson, sóknarprest-
ur.
VILLINGAHOLTSKIRKJA i Fióa:
Messa nk. sunnudag kl. 13.30.
Vænst er þátttöku fermingarbarna.
Kristinn Á. Friðfinnsson.
RÍKARÐUR
SIGMUNDSSON
+ Ríkarður Sigmundsson, raf-
virkjameistari, fæddist í
Vestmannaeyjum 7. janúar
1914. Hann lést á Landspítalan-
um 28. desember síðastliðinn
og fór útför hans fram frá
Laugarneskirkju 8. janúar.
ÚTFÖR Ríkarðs Sigmundssonar fór
fram 8. janúar sl. frá Laugarnes-
kirkju í Reykjavík, en hann andað-
ist 28. desember sl.
Þar sem ég hafði ekki aðstæður
til að fylgja honum síðasta spölinn
vil ég minnast hans í fáeinum orð-
um.
Ég kynntist Ríkarði þegar ég fór
að starfa innan LÍR árið 1957. Rík-
arður hafði þá stofnað fyrirtækið
R. Sigmundsson sem var sérhæft í
viðgerðum og þjónustu á siglinga-
leitartækjum. Auk þess hafði hann
á höndum innflutningsumboð fyrir
fjölmörg fyrirtæki. Ríkarður var á
þessum tíma að byrja að selja nýja
gerð af ratsjá í fiskiskip frá fyrir-
tæki í London sem heitir Kelvin
Hughes. Fram til þess tíma voru
ratsjár aðeins í stærstu skipum
landsmanna. Ég minnist þess hvað
ég heillaðist af því þegar ég sá í
radar í fyrsta skipti, um borð í
Skjaldbreið út á Húnaflóa, komandi
frá Hólmavík á leið til Siglufjarðar
haustið 1953.
Ríkarður þurfti því ekki að hvetja
mig lengi þegar hann stakk upp á
því að ég færi til London á skóla
hjá umboðsfyrirtæki hans og lærði
að þjónusta þessa nýju gerð af rat-
sjá sem hann var þá að selja til fiski-
skipaflotans í mjög vaxandi mæli.
Það varð svo úr að ég fór í byij-
un árs 1958 og var þar í skóla með
einum aðila frá Svíþjóð, Þýska-
landi, Hollandi og Noregi, frá fyrir-
tækjum sefn seldu þessar ratsjár í
þessum löndum. Ég framlengdi
dvölina um tvær vikur í samráði
við Ríkarð og bjó á heimili hjá verk-
fræðingi í London og lærði viðgerð-
ir á dýptarmælum og fisksjám sem
voru í nýsköpunartogurunum. Fékk
ég á þeim tíma innsýn í þann óhugn-
að sem heimstyijöldin var með frá-
sögnum hjónanna sem ég dvaldi
hjá. Flugvélar Þjóðveija komu inn
yfir London kl. 16, dag hvern, og
köstuðu sprengjum á borgina með
þeim afleiðingum að viðnámsþrótt-
ur íbúanna fór þverrandi.
Bretarnir voru að vonum stoltir
af því að vera fyrstir til að fram-
leiða „klystronin" sem settur var í
ratsjána og gerði mögulegt að
skjóta niður óvinaflugvélar í myrkri.
Þjóðveijar hættu skyndilega þess-
um árásum á London og er talið
að notkun ratsjárinnar hafi breytt
gangi síðari heimstyijaldarinnar.
Or þróun varð einnig í öðrum raf-
eindatækjum svo sem kafbátaleitar-
tækjum (asdic) sem hægt var að
nota til fiskileitar. Það var því verk
Ríkarðs Sigmundssonar ásamt
fleirum að sjá til þess að íslending-
ar gætu tileinkað sér þessa tækni
með innflutningi og sölu á þessum
tækjum, þegar þau voru ekki lengur
hemaðarleyndarmál.
Honum var það því mikið kapps-
mál að fá viðgerðarmenn sem víð-
ast um landið til þess að skipin
stöðvuðust sem styst i höfnum
vegna bilana.
Mér er kunnugt um að hann sendi
fleiri menn út til þess að læra þess-
ar viðgerðir. Ég mun ætíð minnast
hans fyrir þetta sem einstaklega
framsýns manns sem sá þá miklu
möguleika sem nýting þessara
tækja hafði í för með sér fyrir fiski-
skipaflotann og bættan hag útgerð-
arinnar og öryggi sjómanna.
Ég minnist þess að Ríkarður kom
til Siglufjarðar um sumarið 1959,
höfnin var full af bátum og ein-
hveijir bilaðir eins og gengur og
mikill hávaði í áhugasömum skip-
stjórum sem vildu komast út til að
fiska. Ríkarður fór með mér í
nokkra báta og dáðist ég að rósemi
hans og yfirvegun í viðræðum sín-
um við skipstjóra sem átt höfðu
viðskipti við hann, sem þeir mátu
mikils. Samskipti okkar urðu mikil
fram til þess tíma að síldin kvaddi
og ég hvarf til annarra starfa.
Ég minnist hans sem gleðigjafa
í hópi rafvirkjameistara á fundum
Landssambands ísl. rafverktaka þar
sem hann var hrókur alls fagnaðar.
En fyrir þau samtök var hann kall-
aður til ýmissa trúnaðarstarfa.
Hæst ber minninguna um hógvær-
an, reglusaman, dagfarsprúðan
mann sem var í fararbroddi að
tæknivæða íslenska skipaflotann.
Ég sendi eiginkonu og börnum
þeirra og fjölskyldum innilegar
samúðarkveðjur.
Sverrir Sveinsson.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski-
legt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðra
ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta-
skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word-
perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu.
Senda má greinar til blaðsins á netfang
þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs-
ingar þar um má iesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina og hálfa örk
A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega
línulengd — eða 3600-4000 slög.
SIGRÍÐUR EIRÍKSDÓTTIR
+ Sigríður Ei-
ríksdóttir
fæddist 24. nóv-
ember 1896 á
Hraunbæ í Alfta-
veri. Hún lést 3.
janúar síðastlið-
inn á sjúkrahúsi
Suðurlands. Sig-
ríður giftist Þor-
geiri Jóhannes-
syni 23. maí 1925
og eignuðust þau
sex börn. Þorgeir
lést 9. febrúar
1984 og hélt Sig-
ríður heimili eftir
það fram á 91. aldursár.
Útför Sigríðar verður gerð
frá Hrunakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
MEÐ eftirfarandi ljóðlín-
um langar mig að kveðja
elskulega móður mína.
Mamma mín.
Ertu horfín? Ertu dáin’
Er nú lokuð glaða bráin?
Angurs horfi ég út í bláinn,
autt er rúm og stofan þín,
elskulega mamma mín.
Gesturinn með grimma ljáinn
glöggt hefur unnið verkin sín.
Ég hef þinni leiðsögn lotið,
líka þinnar ástar notið,
finn, hve allt er beiskt og brotið,
burt er víkur aðstoð þín,
elskulega mamma mín. -
Allt sem gott ég hefi hlotið,
hefír eflst við ráðin þín.
Þó skal ekki vfla og vola,
veröld þótt oss bijóti í mola,
ÞORVALDUR
JÓNSSON
+ Þorvaldur Jónsson fæddist
á Tanga í kauptúninu Búð-
um á Fáskrúðsfirði 18. ágúst
1908. Hann lést í Reykjavík 31.
desember síðastliðinn og fór
útför hans fram frá Fáskrúðs-
fjarðarkirkju 6. janúar.
EKKI fær maður aftur að sjá þig,
Þorvaldur minn, kátan og hressan á
Hrafnistu, þar sem þú dvaldir síð-
ustu árin. Ekki kunnir þú að kvarta,
enda varstu vanari að þjóna öðrum
heldur en að láta þjóna þér, og
vannst nánast allan þinn aldur við
þjónustu, sem þú leystir ætíð vel af
hendi, stundum helst til greiðvikinn,
en það skaðaði þig en ekki aðra.
Margt kemur upp í hugann, Þorvald-
ur minn, og þá fyrst hvað þú varst
jákvæður, áttir gott með að hrósa.
Aldrei heyrði ég þig tala illa um
nokkum mann. Virðulegur, glæsi-
legur og teinréttur í jakkafötum með
hatt, þannig sá ég þig fyrst, þannig
ertu ljóslifandi í huga mér í dag.
Efst í huga mér er þakklæti fyrir
hvað þú tókst mér vel strax við
fyrstu kynni og góða vináttu ætíð
síðan.
Heiðursmaðurinn Þorvaldur Jóns-
son frá Sunnuhvoli var umboðsmað-
ur Ríkisskipa, Eimskipafélags ís-
lands og fulltrúi Fiskifélags Islands
þegar ég kynntist honum. Aður starf-
aði Þorvaldur a.m.k. sem verkstjóri
hjá Kaupfélagi Fáskrúðsfirðinga og
sem símstöðvarstjóri á Fáskrúðsfirði
í fimmtán ár., Einnig var Þorvaldur
umboðsmaður Flugfélags íslands til
1964. Eftir að hann flutti til Reykja-
víkur 1981 stárfaði hann nokkur ár
í skrifstofu Ríkisskipa.
Þorvaldur hafði skemmtílegan frá-
sagnarstfl, enda kunni hann frá
mörgu að segja. Hann kynntist mörg-
um eins og gefur að skilja, þar sem
hann vann við afgreiðslu skipanna
sem voru lífæð byggðarlaga eins og
Fáskrúðsflarðar sem ekki var fært
til hér á árum áður nema fuglinum
fljúgandi sex til sjö mánuði á ári.
starfa, hjálpa, þjóna, þola,
það var alltaf hugsun þín,
elsku góða mamma mín. -
Og úr rústum kaldra kola
kveiktirðu skærust blysin þín.
Flýg ég heim úr fjarlægðinni,
fylgi þér í hinsta sinni,
krýp með þökk að kistu þinni,
kyssi í anda sporin þín,
elsku góða mamma min. -
Okkur seinna í eilífðinni
eilíft ljós frá Guði skín. _
(Árni Helgason.)
Vil ég nota tækifærið og þakka
hjúkrunarfólki, læknum og starfs-
fólki á Sjúkrahúsi Suðurlands fyrir
frábæra hjúkrun og aðhlynningu
móður minnar. Guð blessi ykkur,
Sigríður
Þorgeirsdóttir.
Valdi á Tanga eins og hann var kall-
aður hér á árum áður var borinn og
bamfæddur á Tanga í Búðakauptúni
á Fáskrúðsfírði. Þorvaldur kvæntist
eftirlifandi eiginkonu sinni Oddnýju
Jónsdóttur frá Þorvaldsstöðum í
Breiðdal. Áttu þau mjög fallegt heim-
ili á Sunnuhvoli, fyrst á 1, síðan 2,
þar til þau fluttu til Reykjavíkur
1981. Sunnuhvoll var næsta hús við
Melgerði sem var æskuheimili konu
minnar. Var ætíð mikil vinátta og
samgangur þar á milli.
Við Guðrún kveðjum Þorvald með
söknuði og þökkum honum fyrir
samfylgdina, vináttuna við okkur og
bömin og öll hlýju orðin frá honum.
Elsku Oddný, Jóhanna, Guðný,
Jóna Kristín, Kristján og fiölskyld-
ur, við biðjum góðan Guð að styrkja
ykkur á sorgarstund. Við vitum líka
að það er huggun harmi gegn að
eiga minning um góðan dreng, góð-
an, góðan eiginmann, fóður, tengda-
föður og afa.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífeins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, æm gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Eiríkur Ólafsson.