Morgunblaðið - 13.01.1996, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 29
Að g’efnu tilefni
FYRIR tveimur árum seldi ríkis-
sjóður hlutabréf sín í SR-mjöli hf.
Sala bréfanna var liður í viðleitni
þáverandi ríkisstjórnar að losa
ríkisvaldið úr atvinnurekstri sem
var betur kominn í höndum aðila
sem verða að lúta markaðslögmál-
um hveiju sinni.
SR-mjöl hf. hét áður Síldarverk-
smiðjur ríkisins og átti fyrirtækið
sér rúmlega 60 ára merka sögu.
A löngum ferli hafði oltið á ýmsu
með afkomu fyrirtækisins, og þeg-
ar verið var að taka ákvarðanir
um einkavæðingu þess lá fyrir að
taprekstur undangenginna ára
nam um kr. 100 milljónum á ári
að jafnaði.
Eftir úttekt og mat á fyrirtæk-
inu var ákveðið á Alþingi að hlut-
afé hins nýja hlutafélags skyldi
vera 650 milljónir króna og var í
þeirri ákvörðun fólgin viss áætlun
um verðmæti fyrirtækisins og
hugsanlegt söluverð.
Þegar kom að sölu fyrirtækisins
bárust tvö tilboð. Hærra tilboðið
sem barst var fyrst tekið til
skoðunar en því síðan hafnað,
þegar í ljós kom að tilboðsgjafi
gat ekki staðið við tilboðið sem
var upp á 800 milljónir.
Við Jónas Aðalsteinson hrl. stóð-
um að hinu tilboðinu fyrir hönd
fjölmenns hóps útgerðarmanna,
starfsmanna, sveitarfélaga, lífeyr-
issjóða og fjárfesta, sem margir
voru viðskiptamenn SR til margra
ára. Þessi breiði hópur uppfyllti öll
þau skilyrði, sem sett voru við söl-
una, m.a. um dreifða
eignaraðild og traust-
an áframhaldandi
rekstur, auk þess sem
hér var um fjárhags-
lega traustan hóp að
ræða.
Hlutaféð skiptist
þannig á hluthafana
að um það bil þriðj-
ungiir er í eigu lífeyr-
issjóða, þar sem Líf-
eyrissjóður Austur-
lands er stærsti hlut-
hafi félagsins með um
8% hlutafjár. Meðal
lífeyrissjóðanna má
nefna Lífeyrissjóð sjó-
manna, Lífeyrissjóð
Dagsbrúnar, Lífeyrissjóð lækna og
marga aðra lífeyrissjóði.
Eignarhaldsfélagið Alþýðu-
bankinn hf. er með stærstu hlut-
höfum og Síldarvinnslan hf., Nes-
kaupstað, keypti myndarlegan
hlut. Um tuttugu útgerðir loðnu-
skipa sem leggja verksmiðjunum
til meginið af hráefninu eiga um
þriðjungs hlut, og margvíslegir
fjárfestar eiga um þriðjunginn. í
þeim hópi eru Sjóvá Almennar
með 7,5% hlut.
Það var síður en svo auðvelt
verk að skipuleggja kaupendahóp-
inn og ná saman þeim 725 milljón-
um króna sem til þurfti. Miklu
moldviðri var þyriað upp til að
reyna að eyðileggja söluna og átti
þar stærstan hlut sá aðili sem
ekki hafði getað staðið við sitt til-
boð í hlutabréfin, og
ýmsir þeir fjölmiðlar
og aðrir sem þrífast á
upphlaupum. Reynt
var að halda því að
fólki að ofantalinn
hluthafahópur væri
meðal einkavina ríkis-
stjórnarinnar, eða
a.m.k. þeirra ráðherra
sem undirrituðu kaup-
samninginn fyrir rík-
isins hönd, en það
voru ráðherrarnir
Davíð Oddsson og
Þorsteinn Pálsson.
Fátt kom mér á
óvart úr þessari um-
ræðu allri
En eitt kom mér mjög á óvart
við undirbúning málsins og frá-
gang þess. Það var afstaða Lands-
banka íslands, sem verið hafði
viðskiptabanki Síldarverksmiðja
ríkisins rúm 60 ár í gegnum sætt
og súrt og var aðallánardrottinn
SR-mjöls hf.
Landsbankinn taldi fyrirtækið
svo ótraust að bankinn gerði kröfu
til þess að ríkisábyrgð yrði á skuld-
um þess við bankann, en þær
námu um 750 milljónum króna og
voru tryggðar með veðum í eign-
um félagsins auk. þess sem allar
eignir félagsins stóðu fyrir skuld-
unum. Mér til undrunar beitti
Sverrir Hermannsson bankastjóri
Landsbankans sér mjög í málinu
og var fyrirtækinu ógnað með því
að bankinn mundi gjaldfella öll lán
Benedikt
Sveinsson
Yiðhorf til lífsgæða
Landsbankinn krafðist
ríkisábyrgðar vegna
kaupa SR-mjöls, segir
Benedikt Svcinsson,
en nú er sagt að krefj-
ast hefði átt þrefalds
kaupverðs.
félagsins í bankanum ef ríkis-
ábyrgð fengist ekki. Lausn máls-
ins varð sú að SR-mjöl hf. varð
að leita til annarra lánastofnana,
sem treystu fyrirtækinu fyrir
lánsfé, og taka ný lán og greiða
Landsbankanum um 500 miiijónir
af skuldunum við bankann. Lán í
óláni var að fyrirtækið hefur spar-
að mikla fjármuni við færslu lán-
anna frá ríkisbankanum.
Aftur kom bankastjórinn mér á
óvart í útvarpsviðtali hinn 9.jan.
sl. I viðtalinu segir hann efnislega
að fyrirtækið hafi verið svo trapst
að greiða hefði átt 1.500 milljón-
um meira fyrir það en gert var.
Hvernig hann kemst að þeirri nið-
urstöðu er mér hulin ráðgáta og
hvernig sú niðurstaða fer saman
við fyrri afstöðu bankastjórans læt
ég lesendum þessa pistils eftir að
finna út.
Öll meginmarkmið Alþingis og
stjórnvalda með einkavæðingu SR
hafa náðst. Ríkissjóður hefur
fengið allt kaupverð hlutabréfanna
greitt á yfirgengi. Meðlagsskyldu
og meðlagsgreiðslum úr ríkissjóði
til Síldarverksmiðja ríkisins er lok-
ið en nýja hlutafélagið hefur greitt
tekjuskatt í ríkissjóð fyrstu tvö
starfsárin og verður vonandi fram-
hald þar á a.m.k. næsta ár, en því
má ekki gleyma að rekstur fyrir-
tækja á starfssviði SR-mjöls er
mjög áhættusamur.
Einkavæðing ríkisfyrirtækja
mun halda áfram hér á landi sem
- annars staðar. Einkarekstrarform
hefur þegar sannað yfirburði yfir
ríkisrekstur. Hveijir kaupa verður
að ráðast hveiju sinni en dreifð
eignaraðild er æskileg. Fyrirtækj-
um er þó að mínu viti hollt að ein-
hver ábyrgur kjarni sé í hluthafa-
hópi svo fyrirtæki verði undir sam-
hentri stjórn.
Allt orkar tvímælis þá gert er
og sjálfsagt verður enn mikil um-
ræða um einkavæðingu. Vonandi
verður hún á hærra plani en sú
umræða sem hefur verið um SR-
mjöl hf.
Höfundur er hæstaréttarlögmað-
ur og stjórnarformaður SR-njöIs.
Alþjóðleg og öðruvísi
kennaramenntun
Det Nodvendige Seminarium í Danmörku býður uppá 4rá ára kennaranám
fyrir unga Evrópubúa, sem vilja afla sér menntunar í alþjóðlegu umhverfi.
Lagt er stund á nám í mörgum fögum í tengslum við starfsnám í skólum
í Danmörku og öðrum löndum: Samfélagsfræði, sálfræði, uppeldisfræði,
listum, tónlist, íþróttum, dönsku, öðrum Evrópumálum, stærðfræði, trúar-
bragðafræði og heimspeki.
4ra mánaða námsferð með langferðabíl gegnum Evrópu og Asíu til
Indlands. í ferðinni er aflað upplýsinga um lifnaðarhætti fólks í ýmsum
löndum.
Unnið við kennslu í Afrkíu: í 8 mánuði tekur þú þátt i að mennta nýja
kennara í Mosambík og Angóla.
Allir nemendur búa við skólann. Byrjað 1. september 1996.
Kynningarfundur í Hótel Reykjavík laugardaginn 27. janúar kl. 16.
SAMHJÁLP er eitt
af höfuðeinkennum
þess þjóðfélags sem
við höfum byggt upp
hér á landi og er í
anda hins svokallaða
norræna módels, eins
og þetta fyrirkomulag
hefur verið nefnt á
alþjóðlegum vinnu-
markaði. Sá þjóðfé-
lagsþegn sem verður
undir í lífsbaráttunni
á ekki að standa einn
og óvarinn. Hann á
að hafa möguleika til
þess að halda mann-
legri reisn sama hvort
hann hafi atvinnu eða sé veikur,
slasaður eða atvinnulaus.
í könnun sem gerð var fyrir
u.þ.b. ári í Danmörku meðal launa-
fólks kom fram að fólk vill fá störf
sem hafa tilgang og gefa kost á
eftirmenntun og auknum þroska
einstaklingsins. Þar kom glöggt
fram að launafólk lagði meiri
áherslu á þessi atriði en beinar
launahækkanir.
í viðtölum sem birst hafa við
íslendinga sem flutst hafa til Dan-
merkur undanfarið eru þessi atriði
mjög áberandi. Lýsingar á því
hvernig framkoma vinnuveitenda
og verkstjórnenda eru gagnvart
launþegum, samskipti við stétt-
arfélög, upplýsingar um hvernig
fyrirtækin gangi og það viðhorf
og traust sem greinilega er lagt
upp að skapist á vinnustað. Það
er viðurkennt í stjórnun fyrirtækja
eigi framleiðni að aukast þá þurfa
þessi atriði að vera í lagi.
Undir þetta tók islenskur stjórn-
a'ndi á fundi hjá samtökum stór-
kaupmanna nýverið. Hann hefur
rekið fyrirtæki í Bandaríkjunum
með mjög góðum árangri og hélt
því fram að 5 grundvallarreglur
þyrfti til þess að ná góðum ár-
angri í rekstri fyrirtækis, flestar
þeirra snerust um góð samskipti
við launþega og hlutdeild þeirra í
árangri fyrirtækj-
anna.
Starfsfólki stéttar-
félaga koma lýsingar
íslenskra launþega á
vinnustöðum hér á
landi ekki á óvart.
Kvartanir um samn-
ingsbrot, launalækk-
anir og mörg grund-
vallaratriði í mannleg-
um samskiptum hafa
aukist svo á undan-
förnum árum að það
er með hreinum ólík-
indum. Atvinnuástand
og hótanir vinnuveit-
enda hafa oft komið í
veg fyrir að launþegar láti gögn
af hendi svo stéttarfélögin geti
farið fram gegn atvinnurekendum.
Við verðum einnig varir við vax-
andi kröfur vinnuveitenda um að
launþegar séu ekki innan stéttar-
félaga og þeim er hótað uppsögn
leiti þeir til stéttarfélaganna. Það
er ánægjuleg þróun sem á sér stað
nú þessa dagana, batnandi ástand
vinnumarkaðar, minnkandi at-
vinnuleysi og þessu hefur fylgt að
vaxandi fjöldi launþega sem hefur
verið haldið föngnum sem undir-
verktökum á undanförnum árum
sækir nú um inngöngu í stéttarfé-
lögin.
Það kemur í sjálfu sér engum
á óvart ofstækisfull áróðursher-
ferð Morgunblaðsins gagnvart
launþegum, réttindum þeirra og
samtökum nú undanfarið. Það
koma heldur ekki á óvart greinar
Við verðum varir við
vaxandi kröfur atvinnu-
rekenda um, segir Guð-
mundur Gunnarsson,
að launþegar séu ekki
innan stéttarfélaga.
í Viðskiptablaðinu þar sem fólk
er beinlínis hvatt til skattsvika og
atvinnulífið hvatt til þess að snið-
ganga helstu grundvallarmann-
réttindi. Það er broslegt hvernig
leiðarahöfundum Morgunblaðsins
tekst að lesa greinar í blaðinu án
þess að koma auga á það helsta
sem viðmælendur blaðsins eru að
segja um réttindi sín og afstöðu
til vinnuveitenda.
Markmiðið er aftur á móti aug-
ljóst, „elítan“ er búin að skammta
sér margfalda launahækkun um-
fram almennt launafólk, kjara-
samningar renna út eftir nokkra
mánuði, nú er stefnan sett á að
veikja samtakamátt og kjarabar-
áttu launfóiks af öllum mætti og
eftir skamman tíma hefjast ræð-
urnar og brýningar um að laun-
þegar og stéttarfélög þeirra eigi
að sýna ábyrgð. Þetta þekkjum
við öll.
Höfundur cr formaður Rafiðnað-
arsambands íslands.
Rosenthal _ pegnr K'veUir gÍðf
Glæsilegar gjafavörur rtS
Matar- oe kaffistell C7) W\ ^
í sérflokki
Verð við nllra hæfi Laugavegi 52, sími 562 4244.
Guðmundur
Gunnarsson
Det Nodvendige Seminarium, Tvind, DK-6990 Ulfborg.
Fax 00 45 43 99 5982. Sími 00 45 4399 5544.
í FAXAFENI5
SÍÐASTIDAGUR
ÚTSÖLUNNAR (20-60%)
SPRENGITILBOÐ
Á NOKKRUM VÖRUM í DAG KL. 12.00-16.00.
VIÐ MINNUMÁ AÐ MYNDLISTARGALLERÍIÐ ER FLUTT
ÍAÐALSTRÆTI6 (MORGUNBLAÐSHÚSIÐ) OG ÞAR ER
HAFIN MÓTTAKA Á MÁLVERKUM FYRIR NÆSTA
LISTMUNAUPPBOÐ.
INNAN SKAMMS FLYTJUM VIÐ ANTIKVERSLUNINA OG
OPNUM GLÆSILEGA VERSL UNÍ350FMSALÍ
AÐALSTRÆTI6 (MORGUNBLAÐISHÚSINU).
NÝJAR VÖRURÁ LEIÐINNI