Morgunblaðið - 13.01.1996, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 37
MINNINGAR
BERTA SNÆDAL
inni með sína aðstöðu. Að mati
Samkeppnisstofnunar er afleiðing-
in sú að samræmd neyðarþjónusta
á Islandi þarf að vera háð stöð-
ugri skoðun um brot á samkeppn-
islögum. Var það virkilega þetta
sem menn vildu?
Án efa eru þeir til sem vilja
þessa þróun, telja jafnvel heppileg-
ast að stíga skrefið til fulls og
láta Securitas og önnur öryggis-
fyrirtæki taka við löggæslunni.
Og skyldi sá draumur blunda hjá
stöndugum og vel búnum hjálpar-
og björgunarsveitum að þær taki
að sér þá starfsemi sem er rekin
á vegum opinberra aðila? Það
skyldi þó aldrei vera að sveltistefn-
an sem rekin hefur verið gegn
opinberri löggæslu og neyðarþjón-
ustu í landinu standi í beinu sam-
hengi við viljann til að einkavæða
þessa starfsemi?
Óskhyggjan dugar skammt
Framkvæmdastjóri Slysavarna-
félags íslands sagði í umræðu-
þætti í morgunútvarpi á dögunum
að sér þætti slæmt hvernig reynt
hefði verið að sverta þessa starf-
semi með gagnrýni. Þvert á móti
tel ég ábyrgðarhluta að reyna að
kæfa þessa umræðu því hún snýst
um grundvallaratriði. Slíkt er ekki
til að skapa traust.
Formaður Landssambands
slökkviliðsmanna hefur sett fram
gagnrýni fyrir hönd slökkviliðs-
manna á fyrirkomulagið, aðdrag-
anda og allan undirbúning á upp-
töku samræmdrar neyðarsímsvör-
unar. í morgunútvarpi við sama
tækifæri og rætt var við fram-
kvæmdastjórann sagði hann að af
hálfu slökkviliðsmanna sem tekið
hefðu að sér neyðarsímsvörunina,
„til bráðabirgða", yrði allt gert til
að láta dæmið ganga upp. Og
vonandi tekst þeim það. Framhjá
því verður þó ekki horft að þessi
starfsemi verður ekki rekin á
grundvelli óskhyggju. Allt tal og
yfirlýsingar af hálfu forsvars-
manna Neyðarlínunnar hf. um að
hlutirnir hefðu verið í stakasta
lagi þegar samræmdri neyðarsím-
svörun var hrint af stokkunum
reyndust ekki réttar og í framhald-
inu hafa komið fram tillögur af
landsbyggðinni um svæðaskipt-
ingu þessarar þjónustu. Þessar
raddir þarf að hlusta á. Auk þess
sem nauðsynlegt er að endurskoða
eignaraðildina frá rótum.
Ekki lái ég aðilum á lands-
byggðinni að hafa efasemdir um
miðstýrða neyðarlínu á meðan
umræðan snýst fyrst og fremst
um samkeppnisstöðu öryggisfýrir-
tækja en ekki öryggi þegnanna.
Úr þessu verður ekki bætt fyrr
en skipulag starfseminnar hefur
verið tekið til gagngerrar endur-
skoðunar og tryggt að viðskipta-
og einkahagsmunir verði algerlega
látnir víkja fyrir almannahags-
munum.
Höfundur er formaður BSRB og
alþingismaður.
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
faest á Kastrnpflugvelli
og Rábhústorginu
3K*rgiitt(Miifrtö
-kjarni málsins!
+ Berta Andrea Jónsdóttir
Snædal fæddist 4. nóvember
1924 á Tanga, Búðum í Fá-
skrúðsfirði. Hún iést í Landspít-
alanum 1. janúar og fór útförin
fram frá Fossvogskirkju 9. jan-
úar sl.
Nú er sál þín rós
í rósagarði Gúðs
kysst af englum
döggvuð af bænum
þeirra sem þú elskaðir
aldrei framar mun þessi rós
blikna að hausti.
(Ragnhildur Ófeigsdóttir.)
MINNINGIN er hlý um Bertu, mág-
konu og föðursystur þeirra er minn-
ast hennar í þessum línum. Það er
auðvelt að sjá hana fyrir sér á góðum
og hlýjum stað rósa og engla.
Berta kvaddi jarðvistina á fyrsta
degi ársins, aðeins sólarhring eftir
að bróðir hennar, eiginmaður og fað-
ir okkar undirritaðra, lést á gamlárs-
dag. Þá eru þau öll farin af sviði
þessa mannlífs systkinin frá Tanga
á Fáskrúðsfirði. Áður voru látnar
systurnar Sigríður, búsett á Nes-
kaupstað, - og Margrét, Tvoroyre
Færeýjum. Berta var yngst þeirra.
Hún fór ung frá Fáskrúðsfirði suður
til náms og bast þar eftirlifandi eigin-
manni sínum, Gunnlaugi Snædal frá
Eiríksstöðum á Jökuldal. í hugum
okkar systkinanna frá Sunnuhvoli
var Berta „frænkan" í Reykjavík og
fyrirmynd í mörgu. Eins og hún yf-
irgaf æskustöðvamar freistuðum við
þess líka. Og við systumar nutum á
þeim tímamótum umhyggjusemi
góðrar frænku og tók hún okkur á
heimili sitt. Lengst dvaldi Jóna Krist-
ín hjá henni. Berta reyndist okkur
sérstaklega vel. Það var ekki í kot
vísað að vera á heimili þeirra Gunn-
laugs, þar vom samhent hjón og
kært með þeim. Heimilið bar glöggt
vitni um bæði vandaða húsráðendur
og einstaklega gestrisna. Þar bjó
stolt og dugmikið fólk, yfir öllu fág-
að yfirbragð, smekkvísi og reisn.
Berta var mikil húsmóðir, fyrir-
hyggjusöm og vel skipulögð í hverju
verki. Allt virtist vinnast henni létt
og dögunum tekið með jafnaðar-
geði. I huga okkar var hún alltaf
til staðar á heimilinu, en jafnframt
því skilaði hún samt vandasömu og
velunnu dagsverki utan þess. Hún
var þægileg samvistum, traust
kona, hlý, ráðagóð, brosmild og
stutt í smitandi hláturinn.
Hennar er ljúft að minnast. Þakk-
lát fyrir árin öll, indælar samvistir
og allt sem hún var okkur kveðjum
við hana með eftirsjá.
Við biðjum Gunnlaugi, sonum,
tengdadætrum og barnabörnum
Guðsblessunar í framtíðinni.
Oddný A. Jónsdóttir,
Jóhanna Á. Þorvaldsdóttir,
Guðný B. Þorvaldsdóttir,
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir,'
Kristján Þorvaldsson.
Hvert fara Lottó-
milljónamæringamir
á vetuma?
Fáðu l)éi nriða fyrir kl. i kvöld.