Morgunblaðið - 18.02.1996, Síða 10

Morgunblaðið - 18.02.1996, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ RAUNARÓDUR RÍKISÚTVARPSINS Byggíngarsaga Ríkisútvarpsins er nú orðið farín að fléttast inn í hugsanlegt framtíðar- skipulag RÚV þó ólíklegt sé að nýtt útvarps- lagafrumvarp verði lagt fram á vorþingi. Jóhanna Ingvarsdóttir komst að því að Framkvæmdasjóður hefur hin síðustu ár verið notaður sem mótvægi við umfram- keyrslu í rekstri. Mörgum fínnst löngu orðið tímabært að ljúka framkvæmdum við Ut- varpshúsið, burtséð frá því hvert notagildi „sjónvarpshlutans“ svokallaða eigi að vera. FRÁ því að framkvæmdir við Útvarpshúsið við Efstaleiti voru frystar vorið 1987, skömmu áður en húsið var formlega vígt og sam- keppni komin til, hafa ófáar nefndir verið skipaðar til að fara í saumana á húsnæðismálum og framtíðarskipulagi Ríkisútvarpsins. Sérfræðingar hafa verið kallaðir til skrafs og ráðagerða, innanbúðar sem utan, og hafa skýrslur þeirra borið vott um mislitar skoðanir. Á meðan hefur austurhluti Útvarps- hússins, sem ætlaður hefur verið sjónvarpinu, staðið ófrágenginn og Ríkisútvarpið rekið á tveimur stöð- um, sem að mati Ríkisendurskoðun- ar er mjög svo óhagkvæmur kost- ur. í menntamálaráðuneytinu er nú unnið að nýju útvarpslagafrumvarpi þar sem kveðið er á um verulegan aðskilnað útvarps og sjónvarps þótt jafnframt sé gert ráð fyrir að Ríkis- útvarpið verði eftir sem áður ein stofnun, sem hangi saman á út- varpsstjóra og útvarpsráði. Skv. upplýsingum frá ráðuneytinu er þess ekki að vænta að frumvarpið verði lagt fram á yfirstandandi þingi- Heimir Steinsson, útvarpsstjóri, segir það vera að nokkru leyti rétt að byggingarsagan sé farin að fléttast inn í hugsanlegt framtíðar- skipulag RÚV. Vorið 1994 hafi Ríkisútvarpinu borist bréf frá þá- verandi menntamálaráðherra, Ól- afi G. Einarssyni, þess efnis að ekki yrði haldið áfram húsbygg- ingu fyrr heldur en að frumvarp til nýrra útvarpslaga yrði til lykta leitt. „Síðan spurði ég núverandi menntamálaráðherra vorið 1995 hvort hann gæti ekki létt þessari stöðvun af og hann svaraði með því að skipa nefnd um húsnæðis- mál sjónvarpsins sem er önnur nefndin, sem fjallar um þetta mál í minni útvarpsstjóratíð." Upphaf- lega var nefndinni ætlað að skila tillögum sínum fyrir árslok 1995, en að sögn formanns hennar, Gunnlaugs S. Gunnlaugssonar, sem jafnframt er formaður Út- varpsráðs, er tillagna ekki að vænta fyrr en á vormánuðum. Þrír kostir Hina húsnæðisnefndina, sem til hefur orðið í útvarpsstjóratíð Heim- is, skipaði hann sjálfur 19. nóvem- ber 1993 og skilaði hún áliti 30. apríl 1994. Þó ekki væri það hlut- verk nefndarinnar að fjalla um frumvarp að nýjum útvarpslögum, var henni ljóst að tvær sjálfstæðar deildir hljóðvarps og sjónvarps gætu haft mest áhrif á framtíðar- skipan húsnæðismála. í áliti hennar segir að innan Ríkisútvarpsins séu skiptar skoðanir um þessi mál og snúi rök oft fremur að mismunandi skoðunum á skipulagi RÚV og stefnu í dagskrármálum en lausn á húsnæðismálum, eins og þau lægju fyrir. Nefndin taldi að um þrjá kosti væri að ræða. I fyrsta lagi óbreytt ástand. Sjónvarpsstarfsemi yrði áfram á Laugavegi 176, en þá yrði að gera allmijdar lagfæringar á húsnæði þar. í öðru lagi að lokið verði við frágang Útvarpshússins í Efstaleiti 1 og farið eftir þeirri áætlun, sem fyrir lægi, en þó með breytingum sem arkitekt og bygg- ingamefnd teldu æskilegar og nauðsynlegar. Húsnæðið á Lauga- vegi yrði nýtt áfram, e.t.v. yrði inn- heimtudeild og auglýsingadeild þar til húsa.J þriðja lagi yrði öll starf- semi RÚV á höfuðborgarsvæðinu flutt að Efstaleiti, húsið á Lauga- vegi selt og reist skrifstofuhús á lóðinni við Efstaleiti. Úrelt hönnun Nefnd, sem til varð á vegum menntamálaráðuneytisins í júlí 1993 að ósk Útvarpslaganefndar o g Pétur Guðfinnsson fram- kvæmdastjóri sjónvarps sat m.a. í, skilaði skýrslu í september það sama ár. Henni var ætlað að gera faglega úttekt á skipulagi Ríkisút- varpsins með sérstöku tilliti til þess að einfalda yfirstjórn og skipulag stofnunarinnar. Einkum skyldi hug- að að kostum og göllum þess að skilja að rekstur hljóðvarps og sjón- varps. Húsnæðismálin komu þar einnig við sögu, en í niðurstöðum nefndarinnar segir að hönnun Út- varpshússins sé á margan hátt orð- in úrelt miðað við núverandi þarfir stofnunarinnar. Því vilji nefndin varpa þeirri hugmynd fram hvort finna megi því húsnæði, sem ónotað sé, annað Hlutverk en núgildandi áætlanir geri ráð fyrir. Þeim hug- myndum var varpað fram hvort ekki mætti nota ófrágengna hlut- ann sem kvikmyndaver fyrir sjón- varpið og upptökusali fyrir sjón- varpsbílinn eða jafnvel leigja hús- næðið til kvikmyndagerðamanna sem kvikmyndaver. Tækniþróun hafi verið á þann veg að tækjabúnaður sé sífellt að minnka og verða meðfærilegri og sjái ekki fyr>r endann á þeirri þró- un. Dagskrárefni sé í auknum mæli sótt út í þjóðfélagið í stað þess að taka efni upp í sérhæfðum upptökustúdíóum. Þessi þróun í tækni og búnaði hafí leitt af sér minni þörf fyrir stórt húsnæði, sem hlyti að endurspeglast í framtíðar- áformum Ríkisútvarpsins. Nefndin lagði áherslu á að um tvær aðskildar ákvarðanir væri að ræða. Afstöðu þyrfti að taka til þess hvaða starfsemi rúmaðist í Útvarpshúsinu og hvort byggja ætti við húsið. Hinsvpgar hvaða rekstrarform væri vænlegast til árangurs á tímum örra breytinga í fjölmiðlaheiminum. Húsnæðið eitt og sér mætti ekki ráða ferðinni í þeim efnum. Flutningur þrautalending Gunnlaugur S. Gunnlaugsson, formaður núverandi húsnæðis: nefndar, sagðist í samtali við Morg- unblaðið fyrir skömmu telja húsið við Efstaleiti mjög óhentugt fyrir sjónvarpið og óheppilegt í marga staði þó hann útiloki svo sem ekki að „þrautalendingin" verði flutning- ur sjónvarpsins í Efstaleitið og þá með mjög ódýrum hætti. Margt hafi breyst í sjónvarpsmálum frá því að húsið var teiknað. Hann kvað stofnunina rekna með halla, hún getí ekki sinnt dagskrárgerð svo fullnægjandi sé og spyr því hvernig í ósköpunum hún eigi þá að standa undir þúsund milljóna króna fjár- festingu, sem felist í flutningi sjón- varpsins frá Laugavegi 176 í Efsta- leiti 1. Hann sagði að Útvarpshúsið hafi í upphafi eingöngu verið ætlað fyr- ir Rás 1, „eins furðulegt og það kann að hljóma. Síðan áttu að rísa á sömu lóð tvö samskonar hús til viðbótar sem áttu að tilheyra sjón- varpinu, eða alls um þrefalt stærra en húsið er í dag; til að menn átti sig á þessu bijálæði eins og það var hugsað í upphaflegum áætlun- um. Fyrir einhver mistök, að mínu mati, var haldið áfram með bygg- inguna eftir að út- varpshlutanum var lokið og í sjónvarps- hlutann er búið að henda u.þ.b. 800 milljónum króna, en hann hefur staðið auður árum saman eins og flestir vita. í dag hefði enginn byggt hús af þessu tagi og til að það henti sjónvarpinu í dag þarf að gera á því miklar breytingar." Meðal ann- ars, sagði hann, að byggja þyrfti skrifstofubyggingu þar sem rýmið sem um ræðir sé fremur ætlað tækj- um en fólki. „Misskilningur formanns" Vilhjálmur Hjálmarsson, sem ásamt bróður sínum Helga, er arki- tekt Útvarpshússins, segir ljóst að verulegs misskilnings gæti hjá for- manni Útvarpsráðs. Hann noti land- nemaþáttinn, sem tryggja átti framtíð og sveigjanleika RUV, sem aðalröksemd til þess að sýna fram á hvað allar aðgerðir hafi verið vit- lausar. Hið rétta sé að áætlaður kostnað- ur við lokafrágang sjónvarpshlut- ans í Éfstaleiti nemi 400 milljónum króna, þar af um 250 milljónir í lokafrágang og 150 milljónir í loft- ræstikerfi og raflagnir, en ekki ein- um milljarði, eins og Gunnlaugur vildi vera láta. Aftur á móti næmi kostnaður við endurnýjun tækja- búnaðar 500 milljónum, burtséð frá því hvort af flutningi yrði eða ekki. Sá kostnaður gæti allt eins orðið til í núverandi sjón- varpshúsi við Laugaveg. End- urnýjun tækjabún- aðar væri orðin brýn, en kæmi loka- frágangi Útvarps- hússins og flutningi sjónvarpsins lítið við. I stuttu máli rakti Vilhjálmur byggingarsöguna í samtali við blaða- mann um leið og hann hafnaði alfar- ið þeirri gagnrýni að_ skammsýni hafi gætt við hönnun Útvarpshúss- ins. „Ég vil meina að húsið sé mjög heilbrigt og gott og er sannfærður um að það eigi mjög auðvelt með að taka á móti þeirri starfsemi, sem það á að þjóna. Leitað var eftir víð- sýnustu þekkingu, sem til var þegar verkið hófst og unnið var mjög mikið með öllu starfsfólki. Sveigjan- leiki var forsenda og grundvallarat- riði hönnunarvinnunnar. Gagnrýnin hefur fyrst og fremst byggst á full- yrðingum, sem eiga ekkert skylt við röksemdir,“ segir Vilhjálmur. Hugsað til framtíðar Það var árið 1972 sem fyrstu forsagnir fyrir byggingu nýs Út- varpshúss voru gerðar og þá var ákveðið að stefna bæri að því að byggja fyrir hljóðvarp og sjónvarp á einum stað og sem eina skipulags- heild. Ríkisútvarpið leitaði leiðsagn- ar Evrópusambands útvarpsstöðva, sem aftur benti á íra sem heppilega ráðgjafa, en þeir voru þá sjálfir að ljúka byggingaframkvæmdum und- ir eigin útvarps- og sjónvarpsrekst- ur á stóru svæði í Dyflinni. írsku ráðgjafarnir lögðu áherslu á að sameina bæri rekstur sjónvarps og útvarps af hagkvæmnisástæðum. Ríkisútvarpinu hafði verið boðin lóð norðan við hitaveitustokkinn á núverandi lóð RÚV. Sýnt þótti að sú lóð væri of lítil fyrir heildarstarf- semi RÚV, en rík áhersla var lögð á að tryggja starfseminni góða lóð, sem dygði um ókomin ár. Til að sýna fram á hugsanlega þróun starfseminnar á lóðinni var gert heildarskipulag af byggingarmögu- leikum hljóðvarps og sjónvarps. Því var þó eingöngu ætlað að vera fræðileg skoðun á því hvernig heppilegast væri að koma starfsem- inni fyrir og halda opnum möguleik- um til stækkunar, að sögn Vil- hjálms. „Þetta var eiginleg forsenda þess að við fengum alla þessa lóð, sem þá var 5,6 hektarar en við skiluðum borginni til baka 1,9 hekturum á síðasta ári vegna eindreginna óska borgarinnar þar um. Við sýndum fram á að þarna gæti orðið þróun. Gerð heildarskipulags er hið eðlileg- asta mál frá arkitektum séð þótt það segi ekkert um að það eigi að fara að byggja skv. því strax. Með þessu vildum við einfaldlega halda möguleikum opnum. Það hefur t.d. aldrei verið gert heildarskipulag fyrir Alþingi og stjórnarráðsbygg- ingar á íslandi. Því eru þær eins og þær eru, margsprungnar af plássleysi. Útvarpshúsið stendur aftur á móti á lóð til hinnar ókomnu framtíðar fyrir fjölmiðlunarstarf- semi,“ segir Vilhjálmur. Á þessum árum voru ekki önnur áform uppi en að byggja fyrir hljóð- varpið í fyrsta áfanga, en í forsögn fyrir það var gert ráð fyrir að byggja 300 fermetra tónlistarsal með tilheyrandi upptökuherbergj- um, hlustunaraðstöðu fyrir gesti og svölum. Þróunin varð hinsvegar sú að byggingamefnd ákvað að byggja allt hljóðvarpshúsið með þeirri breytingu að allri starfsemi RÚV yrði komið fyrir í byggingunni. Þetta var gert með ríkisstjórnar- samþykkt og staðfestingu sam- „Taka á I notkun það húsnæði, sem búið erað byggja, burtséð frá því hvernig rekstrarforminu yrði fyrir komið,“ segir útvarps- stjóri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.