Morgunblaðið - 18.02.1996, Side 22

Morgunblaðið - 18.02.1996, Side 22
22 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ VERKFRÆÐINGARNIR Sveinn Jónsson og Jóhannes Pálsson með Reyðarfjörð í baksýn. Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson ÞJÓNUSTAN NÆR VWSKIPTA VINUM eftir Helga Bjarnason VERKFRÆÐISTOFAN Hönnun og ráðgjöf á Reyðarfirði hefur vaxið jafnt og þétt þau sex ár sem hún hefur verið starfrækt. Verkfræðingarnir Sveinn Jónsson og Jóhannes Pálsson byijuðu tveir saman en réðu sér starfsmann á fyrsta árinu og hafa síðan bætt við manni á ári. Eru nú sjö verk- og tæknifræðingar starfandi á stofunni á Reyðarfírði og í útibú- inu á Egilsstöðum og fjórir aðrir starfsmenn. Stærstu verkefnin síðustu árin hafa verið við endur- uppbyggingu mjöliðnaðarins á Austfjörðum en þeir eru með verk- efni um allt landið og eru nú einn- ig að reyna fyrir sér á erlendum markaði. Upphafið að stofnun verkfræði- stofunnar er rakið til ársins 1971 er verkfræðistofan Hönnun hf. í Reykjavík stofnaði útibú á Reyðar- firði til þess að annast verkefni í vegagerð fyrir Samtök sveitarfé- laga á Austurlandi. Fastur starfs- maður var þó ekki ráðinn fyrr en 1975. Sveinn Jónsson var við úti- búið í þijú ár, 1984 til 1987, og Jóhannes^ Pálsson tók svo við af honum. í janúar 1990 stofnuðu þeir sjálfstæða verkfræðistofu, Hönnun og ráðgjöf hf., í samvinnu við Hönnun hf. Eiga þeir helming hlutafjár á móti Hönnun. Fagleg einangrun rofin „Það var eiginlega tilviljun að við fórum út í þetta. Ég vann allt- af einn og var orðinn hundleiður á því. Við Sveinn vissum auðvitað hvor af öðrum enda hafi hann verið hér á undan mér. Ég frétti af því að hann væri að hætta sem framkvæmdastjóri byggingafé- VTOSHCTI flMNNUIÍF Á SUNIMUDEGI ► Jóhannes Pálsson er 37 ára, fæddur og uppalinn í Reykjavík. Hann lærði vélvirkjun í Fjölbrautaskólan- um í Breiðholti og eftir stúdentspróf frá sama skóia var hann eitt ár í Tækniskóla íslands. Hann nam við háskólann í Álaborg í Danmörku og lauk prófi sem véla- og rekstrarverkfræðingur 1985. Vann síðan hjá skipasmíðastöð og iðnfyrirtæki í Álaborg í tvö ár. Þá fluttist hann til Reyðarfjarðar, starfaði hjá Hönn- un í tvö ár en hefur verið framkvæmdastjóri verk- fræðistofunnar Hönnunar og ráðgjafar hf. frá stofn- un, 1990. Eiginkona Jóhannesar er Reyðfirðingurinn Elísabet Benediktsdóttir, forstöðumaður Byggða- stofnunar á Egilsstöðum, og eiga þau þrjú börn. ► Sveinn Jónsson er 47 ára, „hreinræktaður“ Aust- firðingur að eigin sögn, fæddur og uppalinn á Egils- staðabænum. Hann stundaði nám við Alþýðuskólann á Eiðum og Menntaskólann á Akureyri. Hann nam byggingaverkfræði við Strathclyde-háskólann í Glasgow í Skotlandi og lauk mastersprófi þaðan 1975. Hann vann sem staðarverkfræðingur við byggingu brúar í Stavanger í Noregi 1975-78. Þá lá leiðin heim á Egilsstaði þar sem hann var fyrst í hálft ár hjá Verkfræðistofu Austurlands og síðan bæjarverkfræð- ingur Egilsstaðabæjar í sex ár. Hann vann hjá Hönn- un á Reyðarfirði í þrjú ár og var síðan framkvæmda- stjóri byggingafélagsins Brúnáss hf. í tvö ár. Hann tók þátt í stofnun verkfræðistofunnar Hönnunar og ráðgjafar í ársbyrjun 1990 og hefur starfað þar síð- an, síðustu tvö árin í útibúinu á Egilsstöðum. Eigin- kona Sveins er Jóhanna Illugadóttir skrifstofumaður og eiga þau þrjú börn. lagsins Brúnáss og heimsótti hann á skrifstofuna. Þar var þetta af- ráðið,“ segir Jóhannes. Þeir voru einir í upphafi en starfsemin vatt fljótt upp á sig. Þeir réðu sér starfsmann á fyrsta árinu og síðan hafa þeir bætt við manni á hveiju ári. Nú eru sjö verk- og tæknifræðingar á stof- unni auk fjögurra annarra starfs- manna. Árið 1993 var opnað útibú á Egilsstöðum og starfar Sveinn þar ásamt tveimur verkfræðingum. Sveinn og Jóhannes segja að það hafi breytt miklu þegar þeir fóru að vinna saman, með því hafi þeir rofið þá faglegu einangr- un sem þeir báðir höfðu verið lok- aðir í hjá útibúinu. „Stuðningurinn sem við fengum hvor af öðrum jók okkur sjálfstraust og svigrúm til starfa,“ segir Sveinn. Styrkur af tengslunum við Hönnun Þeir segja að Hönnun og ráð- gjöf sé sjálfstætt fyrirtæki. Hins vegar notfæri þeir sér sérfræði- þekkingu Hönnunar í Reykjavík. „Verkfræðisviðið er orðið svo vítt í tæknivæddu þjóðfélagi að lítil verkfræðistofa getur ekki náð yfir það allt. Það er því mikill styrkur fyrir okkur að geta gengið að vísri aðstoð á stórri stofu. En samskipt- in eru ekki bara á þann veginn, við höfum yfir að ráða þekkingu sem þeir leita eftir þannig að við erum líka að leiðbeina þeim!“ seg- ir Sveinn. Hönnun og ráðgjöf starfaði mest á byggingasviðinu í upphafi enda hafði það verið grunnurinn í útibúinu hjá Hönnun. Þetta hefur verið að breytast, eins og þjóðfé- lagið. Verkefni við hreina hönnun á húsum og götum hefur minna vægi, að sögn Jóhannesar og Sveins, en í staðinn hefur komið áætlanagerð, aðstoð við útboð og tilboðsgerð og rekstrarráðgjöf. Áherslan hefur verið að færast meira yfir á þjónustu við fyrirtæki og stofnanir og vinna þeir töluvert inni í fyrirtækjunum sjálfum. Dæmi eru um að þeir taki að sér stjórnun fyrirtækja sem eru svo lítil að þau bera ekki fram- kvæmdastjóra í fullu starfí. Þann- ig er Sveinn til dæmis fram- kvæmdastjóri tveggja fyrirtækja. Annað er verktakafyrirtækið Hér- aðsverk hf., sem er að taka að sér lagningu vegar á Hólsfjölium, en það er hluti af nýjum vegi milli Norður- og Austurlands, og bauð einnig í veginn yfir Gilsfjörð. Uppbygging mjöliðnaðarins fyrirferðarmest Enduruppbygging mjöliðnaðar- ins á Austfjörðum hefur verið langstærsta verkefni stofunnar undanfarin þijú ár. Hún hefur unnið við endurbyggingu loðnu- verksmiðjunnar á Eskifirði sem nú er að ljúka, byggingu nýrrar verksmiðju á Fáskrúðsfirði sem sömuleiðis er að ljúka og endur- byggingu verksmiðjunnar í Nes- kaupstað en vinna við það verk stendur nú yfir. Verkfræðistofan gerði úttekt á stöðu sorphirðu á Austurlandi fyrir umhverfisráðu- neytið og þróaði síðan lausnir fyr- ir sveitarfélögin. Niðurstaðan varð byggðasamlag sveitarfélaganna á fjörðunum, frá Neskaupstað til Stöðvarfjarðar, og er verkið að komast til framkvæmda. Jóhannes segist oft hafa óttast það að færast of mikið í fang þeg- ar bætt hefur verið við mönnum en það hafi svo alltaf gengið vel. „Maður efast stundum um það. Nú eru hins vegar mörg smærri verkefni fyrirliggjandi og ég held að þau komi í staðinn," segir Jó- hannes þegar þeir félagar eru spurðir um það hvort ekki verði erfitt að útvega næg verkefni nú þegar sést fyrir endann á stórverk- efnum. Þeir Sveinn segjast sjá þörf fyrir aukna tækniþekkingu á mörgum sviðum. Þá hafi þeir ver- ið að breikka grundvöll fyrirtækis-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.