Morgunblaðið - 18.02.1996, Side 24

Morgunblaðið - 18.02.1996, Side 24
24 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR/Háskólabíó sýnir bandarísku stórmyndina Casino sem Martin Scorsese leikstýrir. í aðalhlutverkum eru Robert DeNiro, Joe Pesci og Sharon Stone sem tilnefnd hefur verið til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í myndinni. Svikráð og prettir í Las Vegas JOE Pesci leikur Nicky Santoro, hinn ofbeldisfulla og skap- bráða vin og samstarfsmann Ace sem á endanum svíkur hann. SÖGUSVIÐIÐ í Casino er hin glitrandi spilaborg Las Veg- as í Nevadaeyðimörkinni þar sem fólk kemur til að láta drauma sína rætast en flestir snúa til baka með brostnar vonir og tóma vasa. Sagan hefst árið 1973. Á sviðinu eru milljarðamæringar, stjómmálamenn og glæsilegar dansmeyjar, en einnig er að finna veðmangara, okurlánara, eitur- lyíjasala, melludólga og sjón- hverfíngamenn. Borgin er Mekka 30 milljóna ferðamanna og fjárhættuspilara af öllum kynþáttum sem sækja hana heim árlega og skilja eftir sig um 10 milljarða dollara. Þetta er sannkölluð paradís fyrir mafíósa af öllu tagi, og einn þeirra er Sam „Ace“ Rot- hstein (Robert DeNiro), en hann er leikinn veðmangari sem getur breytt vinningshlutföllunum með því einu að leggja undir sjálfur. Hann hefur unnið sig upp innan raða mafíunnar í mið- vesturríkjunum og orðið fyrir valinu hjá yfirboðurum sínum til að vera í fararbroddi innreið- ar þeirra í spilaborgina. Hann rekur fjögur spilavíti og sér um að peningarnir streymi inn og lítur undan þegar auðurinn fer aftur út um bakdyrnar. Hann fylgist gaumgæfilega með hverri hreyfingu spilasvindlara af öllum gerðum og kemur í veg fyrir að þeim takist ætlunarverk sitt. Með útsjónarsemi sinni tekst honum að tvöfalda gróða mafíunnar af rekstri spilavít- anna og að lokum að breyta leik- reglunum sem fylgt er við rekst- ur þeirra. Hann er því orðinn hæstráðandi æðstiprestur í þessu töfraríki. En Ace gengur erfiðlega að stjórna vinningshlutföllunum þegar Ginger McKenna (Sharon Stone) kemur til sögunnar. Hún er lukkuriddari við spilaborðið og tekst henni að heilla Ace og verða eiginkona hans. Blind ást hans á þessari glæsilegu valkyrju spilahallanna verður að hreinni ástríðu þegar hún verður honum ROBERT DeNiro leikur Sam „Ace“ Rothstein, sem mafíuforingjarnir veljatil að veita fjórum spilavítum sínum í Las Vegas forstöðu. ÁST Ace á Ginger (Sharon Stone) eiginkonu hans ein- kennist brátt af hugsýkis- legri framkomu og lævís- legri drottnunargirni. samferða upp metorðastiga samfélagsins, en að leiðarlokum leitar hún sér huggunar með aðstoð Bakkusar og pilluglassins í einangrun sinni í því gullna búri þar sem hann hefur hreiðrað um hana. Jafnvel þótt hún hafí brotist í gegnum klakabrynjuna sem umlykur hjarta Ace og snert sál hans einkennist ást hans á henni smátt og smátt af hugsýk- islegri framkomu og lævíslegri drottnunargirni. Þessi hegðun verður svo boðberi óhjákvæmi- legs falls hans þegar hann gerist sekur um að láta stoltið ná tökum á sér. Þriðja persónan í þeim þrí- hy.rningi leynimakks og hugar- fjötra sem Casino fjallar um er Nicky Santoro (Joe Pesci), besti vinur Ace og skólafélagi úr skóla lífsins á götum stórborg- anna. Nicky er ofstopafullur morðingi sem þekkir allar gryfj- ur í eyðimörkinni umhverfis hina manngerðu paradís spila- fíklanna. í þessum gryfjum hef- ur hann falið margvísleg vanda- mál sem hann hefur rutt úr vegi. Saman standa þeir félagar að því sem á að vera hin fullkomna aðgerð, en Ace heldur um stjórnvölinn og Nicky leggur til ofbeldið. Nicky fer fram úr eigin vonum og hvor um sig öðlast þeir enn meiri völd en um leið flækjast þeir í atburðarás þar sem skapofsi, þrákelkni, pening- ar, ást og svik eru allsráðandi. Hið risavaxna ferlíki sem þeir hafa skapað í sameiningu verður smátt og smátt stjórnlaust og sprengifim endalok verða óum- flýjanleg. Líf þeirra tekur á ný óvænta stefnu og hið sama á við um spilaborgina Las Vegas á þeim áratug sem sagan spann- ar. Leikstjóri Casino er Martin Scorsese, einhver þekktasti kvik- myndaleikstjóri samtímans, en myndin er byggð á nýútkominni bók eftir rithöfundinn Nicholas Pileggi og skrifuðu þeir kvik- myndahandritið saman. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þeir félag- ar starfa saman því þeir gerðu saman handritið að myndinni GoodFellas sem Scorsese leik- stýrði og var byggð á bókinni Wiseguy eftir Pileggi. Scorsese lauk námi í kvik- myndagerð frá New York Uni- versity 1964 og fyrstu myndina í fullri lengd, Who’s That Knocking on My Door?, gerði hann árið 1968. Næsta mynd hans var Boxcar Bertha (1970), en árið 1973 sló Scorsese hins vegar í gegn með Mean Streets þar sem Robert DeNiro en þó einkum Harvey Keitel fóru á kostum í aðalhlutverkum. Næst kom Alice doesn’t Live Here Anymore, en fyrir þá mynd hlaut leikkonan Ellen Burstyn Óskarsverðlaun. Enn sló Scor- sese í gegn með Taxi Driver árið 1976 þar sem Robert DeN- iro og Jodie Foster voru í aðal- hlutverkum. Myndin var til- nefnd til fernra Óskarsverð- launa. Síðan hefur hver Scor- sese-myndin rekið aðra og oft- ast við frábærar undirtektir, en með einstaka undantekningum þó. Ófáir samstarfsmenn Scor- seses hafa hlotið Óskarsverð- laun en aldrei hann sjálfur þótt hann hafi hlotið nokkrar tilnefn- ingar til verðlaunanna. Helstu kvikmyndir Martins Scorseses eru þessar: The Color of Money (Óskarsverðlaun fyrir Paul Newman), GoodFellas (Óskarsverðlaun fyrir Joe Pesci fyrir aukahlutverk og sex til- nefningar alls), Cape Fear (1991, mest sótta mynd Scorse- ses og mesta gróðafyrirtæki hans til þessa), Live Lessons í New York Stories (árið 1989) og The Last Waltz um kveðju- hljómleika hljómsveitarinnar The Band. Eftir þá mynd lagðist Scorsese í hálfs árs sukk með Robbie Robertson gítarleikara hljómsveitarinnar. Ferill Scors- eses hefur ekki verið samfelld sigurför. New York, New York þótti ekkert sérstök og heldur ekki The King of Comedy. í báðum var DeNiro vinur Scorse- ses í aðalhlutverki. The Last Temptation of Christ sem gerð var árið 1988 olli umtali og mótmælum um víða veröld þar sem leikstjórinn þótti ekki sýna frelsaranum og guðspjöllunum næga lotningu í umfjöllun sinni. Síðasta myndin sem Scorsese leikstýrði á undan Casino var The Age of Innocence (1993), en næsta mynd hans mun fjalla um ævi Dalai Lama og verður hún væntanlega frumsýnd á næsta ári. Gáfuð og glæsileg SHARON Stone hefur verið tilnefnd til Óskarsverðlaun- anna fyrir hlutverk sitt í Cas- ino og fyrir skömmu hlaut hún Golden Globe-verðlaunin fyrir hlutverkið. Stone er fædd 10. mars 1958 í Meadville í Penn- sylvaníu, en þar sigraði hún í nokkrum fegurðarsamkeppn- um. Hún stundaði nám í skap- andi skrifum og listum en sneri sér að fyrirsætustörfum fyrir Eileen Ford í New York og kynnti hún meðal annars Diet Coke, Clairol og Revlon. Fyrsta kvikmyndahlutverk hennar var smáhlutverk í Stardust Memories (1980) sem Woody AUen leikstýrði. Næsta áratug lék hún í 11 myndum sem færðu henni lítinn frama, en þeirra á meðal eru Bolero, Police Academy 4 og King Solomon’s Mines. Það var svo ekki fyrr en henni tókst að nýta sér til fullnustu möguleik- ana sem gáfust þegar hún fékk hlutverk á móti Arnold Schwarzenegger í Total Recall (1990) að hjólin fóru að snúast fyrir alvöru. Hún fékk í kjöl- farið aðalhlutverk í nokkrum myndum sem gerðu það sæmi- legt, en eftir að nektarmyndir birtust af henni í Playboy þótti hún tilvalin í aðalhlutverkið í Basic Instinct (1992) á móti Michael Douglas. Myndin sló rækilega í gegn og síðan hefur Stone verið ein eftirsóttasta leikkonan í Hollywood. Hún þykir þó ekki hafa haft heppn- ina með sér við val á hlutverk- um þar til nú, en meðal mynda sem hún hefur leikið í á eftir Basic Instinct eru hinar miður heppnuðu Sliver (1993), Int- ersection (1994) og The Quick and the Dead (1995). Sagan segir að gáfnavísitala Sharon Stone sé 154 og það hafi hjálp- að til þess að Martin Scorsese valdi hana í aðalhlutverk á móti þeim Robert De Niro og Joe Pesci í Casino. Sú ákvörðun virðist ætla að færa henni enn meiri frama á hvíta Ijaldinu miðað við þær móttökur sem myndin hefur fengið og glæsilega frammi- stöðu leikkonunnar. Hún hefur nýlega lokið við að leika aðal- hlutverk í myndinni Last Dance, sem Bruce Beresford leikstýrir og um þessar mund- ir leikur hún í tryllinum Dia- bolique sem er endurgerð klassískrar spennumyndar frá árinu 1954.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.