Morgunblaðið - 18.02.1996, Qupperneq 38
38 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Tommi og Jenni
Smáfólk
HOW ABOUT THAT 7
Hvað finnst þér um þetta?
UJHEN THE FR06RAM ENDED,
THE LADY 5AIP,"THANK
y0U FOR WATCHIN6"
I PIDN'T THINK SHE
EVEN KNEW ME..
Þegar þættinum lauk, sagði þul- Ég vissi ekki einu sinni að hún
an: „Þakka þér fyrir að horfa á.“ þekkti mig.
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang:lauga@mbl.is
Var Leifur heppni
kristniboði?
Frá Magnúsi Jónssyni:
í MORGUNBLAÐINU 11. febrúar
sl. birtist grein sem nefndist „Gim-
steinn í lófa Dalamanna". Greinin
bytjar þannig: „Fyrir tæpum eitt
þúsund árum sigldi ungur maður frá
Grænlandi til Noregs þar sem hann
tók kristna trú. Hann hélt síðan
heimleiðis meðal annars þeirra er-
inda að kristna landa sína en hrakt-
ist af leið og villtist. Um síðir kom
hann að landi, sem hann hafði ekki
áður séð, og nefndi það Vínland.
Ungi maðurinn var auðvitað Leifur
Eiríksson sem síðar fékk viðurnefnið
heppni.“
Það er almennur misskilningur
að viðurnefnið heppni sé tengt fundi
Ameríku, en svo er ekki. Viðurnefn-
ið heppni fékk Leifur þegar hann
bjargaði 15 mönnum af skeri.
Frásögnin sem vísað er til hér um
kristniboð Leifs hefur verið kennd í
íslenskum skólum frá upphafi barna-
fræðslu til þessa dags. Við rannsókn-
ir á fornum ritum hefur komið í ljós,
að þessi frásögn er ekki rétt. Leifur
heppni fór aldrei trúboðsferð á veg-
um Ólafs Tryggvasonar Noregskon-
ungs. Er þá ekki kominn tími til að
missögn þessi verði leiðrétt í íslensk-
um kennslubókum. Það þjónar ekki
hagsmunum okkar íslendinga að
halda við þessum röngu staðhæfing-
um um tilgang ferðar Leifs heppna.
í elstu sögu af Ólafi konungi
Tryggvasyni eru vandlega tíunduð
nöfn allra þeirra landa sem hann
kristnaði. Þar er Grænland ekki
nefnt. Það er löngu síðar að Græn-
land kemur á skrá yfir þau lönd sem
hann á að hafa kristnað. Einnig má
benda á, að í elstu sögu Noregs er
sagt að Grænland hafi verið kristnað
frá íslandi. Af þessu má ljóst vera
að sagan um að Kristur hafi haldið
upp á 1000 ára afmæli sitt með því
að láta kristniboða í kristniboðsferð
finna nýja heimsálfu er tilbúningur.
Líkur hafa verið leiddar að því, að
höfundur þessarar sögu sé Gunn-
laugur Leifsson munkur. Þessi
Gunnlaugur Leifsson skrifaði mikið
en rit hans eru ekki talin áreiðanleg
vegna þess að honum er tamt að
búa til sögur í þeim tilgangi að varpa
ljóma á kirkjunnar menn til að
styrkja kirkjuna og kristindóminn.
I blaðagreininni „Gimsteinn í lófa
Dalamanna“ er sagt að amerískur
listmálari hafí sagt um fæðingarstað
og minjar Leifs Eiríkssonar að Dala-
menn héldu á gimsteini í lófa sínum.
Dalamenn eiga þakkir skildar fyrir
frumkvæði að því að heiðra minningu
Leifs Eiríkssonar. Ég vona að gim-
steinninn í lófa þeirra fái að glóa og
þeim takist að halda honum svo hátt
á lofti að bjarma slái yfir landið allt.
MAGNÚS JÓNSSON,
fyrrverandi skólastjóri,
Tómasarhaga 23.
Kvennakór Reykjavíkur
- Ný útflutningsgrein?
Frá Arnlaugi Helgasyni:
Í MYRKUM janúarmánuði er oft
auðvelt að leggjast í bölmóð og
svartsýni og almenn neikvæðni fær
oft byr undir báða vængi. Risastór-
ir reikningar greiðslukorta bíða
handan hornsins og bankarnir bjóða
greiðsludreifingu á hærri vöxtum
en dráttarvöxtum. Ekki er því að
undra að fólk sé yfirhöfuð vilhallt
neikvæðni og svartsýni á slíkum
tímum. Sem betur fer eru þó ekki
allir með „mörke briller" og einn
er sá hópur sem, að mínu áliti,
stendur upp úr hvað varðar bjart-
sýni og jákvæðni en það er hinn
ungi Kvennakór Reykjavíkur!
Eitt hundrað og tuttugu hressar
konur á öllum aldri, úr öllum stétt-
um, blása á allan barlóm og ætla
sér stóra hluti. Ég hef verið þeirrar
ánægju aðnjótandi að fá að fylgj-
ast með þróttmiklu starfi þeirra
og sú gleði sem ríkir í hópnum er
ólýsanleg. Undir styrkri stjórn
Margrétar Pálmadóttur er kórinn
nú strax orðinn einn besti kór
landsins og örugglega sá lang-
stærsti, kór sem ætlar sér stóra
hluti í framtíðinni.
Þær hafa á undanförnum árum
barist hörðum höndum við að koma
sér upp æfingaraðstöðu að Ægis-
götu 7 og er húsnæðið orðið allt hið
glæsilegasta. Fyrir þá sem hafa
áhuga er alltaf eitthvað að gerast,
opið hús með ýmsum uppákomum,
tónleikar og fyrirhuguð er gospel-
sveifla með Agga Slæ o.fl. En áhug-
inn og krafturinn er slíkur að þær
ætla ekki að láta staðar numið við
fjöruborðið heldur hyggja á víking
nú í vor.
Stærsti kvennakór íslands er að
öllum líkindum einnig stærsti
kvennakór heimsins, enda þykir er-
lendum tónlistarmönnum það ganga
kraftaverki næst að gera út slíkan
kór á íslandi. Kórinn fer í júní til
vöggu sönglistarinnar, Ítalíu, og
hefur verið boðið að syngja á ekki
ófrægari stað en Péturskirkjunni í
Róm! Oft hefur verið talað um
hversu erfitt er að ná þátttöku í
stórum hópum í slíkar ferðir en því
er ekki til að dreifa hjá Kvennakór
Reykjavíkur, af um 120 konum fara
yfir 110 konur til Ítalíu. Þetta litla
dæmi sýnir í raun þann anda sem
ríkir innan hópsins.
Slíkur rekstur kostar ekki einung-
is mikla vinnu heldur mikið íjár-
magn og því þurfa þessar valkyijur
á eins miklum styrk að halda og
mögulegt er og skora ég á fyrirtæki
og einstaklinga að veita þeim stuðn-
ing til þessarar farar.
Landkynningin af för þeirra er
augljós og éjg veit að sómi þeirra
og um leið Islands verður mikill í
þessari ferð. Um leið og ég tek ofan
fyrir þessum frábæra kór segi ég
það sama og ítalirnir munu segja
þegar þeir berja augum þessar
glæsilegu konur, bravissímó!
ARNLAUGUR HELGASON
styrktarfélagi Kvennakórs
Reykjavíkur.
Allt efni sem birtist I Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.