Morgunblaðið - 09.03.1996, Page 1
80 SIÐUR LESBOK/C/D
STOFNAÐ 1913
58. TBL. 84. ÁRG.
LAUGARDAGUR 9. MARZ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Leiðtogafundur um hermdarverk í Miðausturlöndum
Reynt að bjarga
friðar samningnm
Washington, London. Reuter.
FORSETAR Bandaríkjanna og
Egyptalands boðuðu í gær leiðtoga
um 30 ríkja til fundar til að ræða
leiðir til að binda enda á hryðju-
verkin í Miðausturlöndum _sem
hafa stefnt friðarsamningum ísra-
ela og araba í hættu. Vestrænir
stjórnarerindrekar sögðu þetta
síðasta tækifæri leiðtoganna til að
afstýra því að hermdarverk yrðu
friðarsamningunum að falli.
Fundurinn verður í egypska
ferðamannabænum Sharm el
Sheik á miðvikudag. Bill Clinton,
forseti Bandaríkjanna, á að stjórna
fundinum ásamt Hosni Mubarak,
forseta Egyptalands. Borís Jeltsín,
forseti Rússlands, Helmut Kohl,
kanslari Þýskalands, og Jacques
Chirac, forseti Frakklands, hafa
þegar ákveðið að sitja fundinn.
Búist er við að leiðtogar flestra
arabaríkja auk Shimon Peres, for-
sætisráðherra Israels og Yassers
Arafats, forseta sjálfstjórnar-
Kínverjar
hóta hörm-
unguni
Taipei. Reuter.
KÍNVERJAR skutu þremur eld-
flaugum í hafið undan ströndum
Tævans í gær og sögðu að „raun-
verulegar hörmungar“ myndu dynja
yfir ef stjórnvöld á eyjunni lýstu
yfir sjálfstæði. Yfírlýsing Kínveija
var fordæmd um heim allan og á
Tævan var slík eftirspurn eftir
Bandaríkjadollurum þegar almenn-
ingur reyndi að tryggja sparifé sitt
að þankar urðu uppiskroppa. Varð
að flytja bandarískan gjaldeyri með
flugvél til Tævan til að bregðast
við ástandinu. Einnig byrgði fólk
sig upp af hrísgijónum.
Fordæmdir
Kínveijar neituðu að staðfesta
að stýriflaugum af gerðinni M-9
hefði verið skotið í tilraunaskyqi,
en varnarmálaráðuneytið á Tævan
sagði að þijár flaugar hefðu lent í
tveimur „hólfum“, öðru 20 og hinu
30 sjómílur undan strönd Tævans.
Jiang Zemin, forseti Kína, sagði
að Kínveijar myndu ekki hætta
baráttunni gegn sjálfstæði Tævans,
en á fimmtudag lýsti kínverska ut-
anríkisráðuneytið yfir því að til-
raununum væri ætlað að neyða
stjórnvöld á Tævan til að hætta að
slægjast eftir alþjóðlegri viðurkenn-
ingu.
Kínveijar voru umsvifalaust for-
dæmdir vegna þessa máls. Banda-
ríkjamenn ítrekuðu viðvörun um að
það myndi hafa óskiigreindar „af-
leiðingar" ef eitthvað færi úrskeiðis
í tilraununum og tjón hiytist af.
svæða Palestínumanna, sitji fund-
inn.
Boðað var til fundarins eftir
ijögur sprengjutilræði palest-
ínskra hryðjuverkamanna sem
kostuðu 57 manns lífið á átta dög-
um frá 25. febrúar.
Mikilvægur
fyrir Arafat
Stjórnarerindrekar sögðu fund-
inn þýðingarmikinn þar sem leið-
togunum gæfist færi á að sýna
einingu í baráttunni gegn
hermdarverkum. „Ég býst við
raunverulegum stuðningi við
áframhaldandi friðarferli og yfir-
lýsingu um að öll ríkin séu staðráð-
in í að beijast gegn hermdarverk-
um og ef til vill verða tilkynntar
aðgerðir til að fylgja því eftir,“
sagði stjórnarerindreki í London.
Fundurinn er mjög mikilvægur
fyrir Arafat þar sem hann þarf
að tryggja sér stuðning arabaríkja
BRESKA lögreglan fylgist nú
grannt með Trafalgartorgi í
London til að koma í veg fyrir
hættulega fækkun í dúfnahópn-
um sem glatt hefur ferðalanga
þar í áratugi. Komist hefur upp
um útsmoginn þjóf sem stundað
hefur það undanfarna daga að
lokka dúfur í kassagildru. Vitni
við herferð gegn samtökum músl-
ímskra heittrúarmanna. Arafat
hefur sætt gagnrýni á Vesturlönd-
um og í Israel fyrir að hafa ekki
taumhald á herskáum Palestínu-
mönnum. Hann hefur látið hand-
taka hundruð liðsmanna Hamas,
múslimasamtaka_ sem stóðu fyrir
tilræðunum, en ísraelar segja að
hann verði að ganga lengra, af-
vopna samtökin og leysa þau upp.
Ekki var ljóst í gær hvort for-
seti Sýrlands mætti á fundinn.
Hátt settur embættismaður í Dam-
askus vísaði í gær á bug ásökunum
um að sýrlenska stjórnin styddi
palestínska hryðjuverkamenn.
„Þessar ásakanir eru tilraun til að
kúga Sýrlendinga og knýja þá til
að falla frá harðri afstöðu sinni
hvað varðar rétt araba,“ sagði
hann.
■ Netanyahu með meira/18
segja hann hafa tekið 40 dúfur
hverju sinni og haft með sér á
brott. Lögreglunni sagði hann
að hann ætlaði að þjálfa þær til
kappflugs en er grunaður um að
hafa selt þær kjötvinnslu sem
framleiðir fuglakjötsbökur.
Myndin var tekin við brunninn á
Trafalgartorginu í gær.
Dúfum stolið á
Trafalgartorgi
Reuter
Hafna
Bítlunum
London. The Daily Telegi*aph.
RÁS eitt, tónlistarstöð breska
ríkisútvarpsins, BBC, hefur
neitað að leika nýjasta Bítla-
lagið, Real Love, en það var
gefið út sl. mánudag og er
nú þegar komið í fjórða sæti
á sölulistanum.
John heitinn Lennon er höf-
undur lagsins en eftir að hann
var myrtur í New York 1980
kom ekkja hans, Yoko Ono,
snældu með því og öðrum
óbirtum lögum í hendur Pauls
McCartneys. í fyrra komu
Ringo Starr og George Harri-
son saman til að taka aftur
upp öll lög Johns Lennons, en
til stendur að gefa út öll lög,
sem Bítlarnir sömdu, á geisla-
diskum.
Status Quo í mál
Gamla hljómsveitin Status
Quo höfðaði í síðustu viku
skaðabótamál á hendur Rás
eitt fyrir að neita að leika
endurútgefin lög með hljóm-
sveitinni en talsmenn Rásar
eitt segja, að stefna hennar
sé að spila nýja eða nýlega
tónlist. Engin ástæða sé til
að keppa í gömlu lögunum við
um 50 aðrar tónlistarstöðvar
á Bretlandi.
Vala varð
Evrópu-
meistari
VALA Flosadóttir, frjáls-
íþróttakona úr ÍR, sigraði í
stangarstökki á Evrópumeist-
aramótinu í frjálsíþróttum inn-
anhúss í Stokkhólmi í gær-
kvöldi. Setti hún nýtt Islands-
met í leiðinni og heimsmet ungl-
inga en Vala er aðeins 18 ára.
Sigur Völu kom nokkuð á
óvart þar sem fjórir keppinaut-
ar hennar höfðu stokkið hærra
í vetur. Sigraði hún af öryggi,
stökk 4,16 metra en silfur- og
bronsverðlaunahafarnir stukku
4,05 metra. Stökk Vala ætíð
yfir rána í fyrstu tilraun við
liverja hæð.
Meðal þeirra sem Vala lagði
að velli var Daniela Bartova frá
Tékklandi sem setti 10 sinnum
heimsmet í greininni í fyrra og
stökk þá hæst 4,22 metra.
Vala bætti árangur sinn um
5 sentimetra, átti 4,11 inetra
sem hún stökk á afmælisdaginn
sinn, 16. febrúar sl.
A myndinni sveiflar Vala sér
til lofts í sigurstökkinu í Globen-
höllinni í Stokkhólmi í gær-
kvöldi.
■ Skráði nafn sitt/Dl