Morgunblaðið - 09.03.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. MARZ 1996 11
FRETTIR
Afrakstur ljósmyndamaraþons
á opnun menningarviku BISN
MENNINGARVIKA Bandalags ís-
lenskra námsmanna (BÍSN), sem
er samtök 15 sérskóla, stendur yfir
9.-16. mars. Er þetta í sjötta sinn
sem slík menningarvika er haldin
og er allur undirbúningur unnin í
sjálfboðavinnu af nemendum skól-
anna og framkvæmdastjórn BÍSN.
Opnunarhátíðin verður laugar-
daginn 9. mars í Kennaraháskóla
íslands, þar sem afrakstur ljós-
myndamaraþons sérskólanema
verður sýndur og verðlaun afhent.
Nemendur úr Söngskólanum og
Tónlistarskólanum í Reykjavík sjá
um tónlistarflutning ásamt kór
Tækniskóla íslands. Þá verður
ljóðaupplestur úr nýútkomnu ljóða-
og smásagnakveri BÍSN. Frú Vig-
dís Finnbogadóttir, forseti íslands,
verður viðstödd opnunina.
Alla daga vikunnar verður síðan
eitthvað um að vera. Námskynning
1996 fer fram í ýmsum skólum á
sunnudeginum kl. 13-18 og er það
nánar auglýst í blöðum. Á mánu-
dagskvöld íd. 20 verður listakvöld
í Tækniskóla íslands, m.a. sýning
á verkum nemenda Myndlista- og
handíðaskóla íslands. Á þriðjudags-
kvöld kl. 20 verður spilakvöld í
Fósturskóla íslands. Á miðvikudag-
inn kl. 17 hefst kvikmyndasýning
í Regnboganum á myndunum Pulp
Fiction og Cyrano de Bergerac. Á
fimmtudagskvöld kl. 22 verða rokk-
tónleikar á Tveimur vinum, þar sem
hljómsveitirnar Olympia, Sagtmóð-
igur og Kuml koma fram. Á föstu-
daginn kl. 15 verður keilumót milli
sérskólanema í Keiluhöllinni í
Öskjuhlíð. í lok keppninnar verða
veitt verðlaun.
Á föstudagkvöld verður dansleik-
ur í Ingólfskaffi. Laugardaginn 16.
mars verður árlegur kynningardag-
ur Stýrimannaskólans í Reykjavík,
þar sem nemendur kynna tæki og
búnað skólans. Skólar sem mynda
Samband íslenskra sérskólanema
eru: Fiskvinnsluskólinn,_ Fósturskól-
inn, Garðyrkjuskólinn, Iþróttakenn-
araskólinn, Kennaraháskólinn,
Leiklistarskólin, Myndlista- og
handíðaskólinn, Samvinnuháskól-
inn á Bifröst, Stýrimannaskólinn,
Söngskólinn, Tónlistarskólinn,
Tækniskólinn, Tölvuháskólinn, Vél-
skólinn og Þroskaþjálfaskólinn.
DAGAR
Verðið er aðalatriðið þegar allt annað stenst samanburð.
Þessi einföldu rök skyra hinar miklu vinsældir
Hyundai sem eru íhópi allra mest seldu bíla á íslandi.
^) Nú bætum við enn um betur og bjóðum í skamman
/ {y Vjr tíma virkilega veglega kaupauka með hverjum
nýjum bíl.
Valið stendur milli tveggja pakka, að sama
verðmæti, en með misjöfnum áherslum.
Og víðar leynast pakkar.
Allir sem reynsluaka Hyundai á þessum dögum,
velja sér pakka úr pakkahorninu.
Pakkaðir kaupaukar á
pakkadögum HYUNDAI
8. -17. mars
Hvorn pakkann má bjoða þér?
Pqkka 1
1. Álfelgur C— (f
2. Vindskeið með bremsuljósi
3. Utvarp og segulband
4. Mottur
5. Vetrar- og sumardekk
6. Fullur bensíntankur
Sonata
Draumabíllinn sem þú þarft ekki lengur að láta þ
Bíll sem ber öll merla glæsibifreiðar án þess að ver<
Pakka 2
1. BOSCH-GSM sími
2. PANASONIC geislaspilari
3. Mottur
4. Vetrar- og sumardekk
5. Fullur bensíntankur
Reynsluakstur - pakkaferð!
Allir sem reynsluaka Hyundai á pakkadögunum velja sér glaðning
úr pakkahorninu. í hverjum pakka er smá gjöf frá B&L, en auk
þess höfúm við laumað í þá happdrættismiðum sem dregið verður
úr í beinni útsendingu á útvarpsstöðinni FM, sunnudaginn
17. mars. Vinningar eru tvær pakkaferðir í Kerlingafjöll og ein
pakkaferð til Benidorm með Samvinnuferðum Landsýn.
Góðaferð! -x
Accent
Fallegur, rúmgóður, kraftmikill og nýtískulegur bíll, hannaður með
það að leiðarljósi að gera aksturinn ánægjulegan á öruggan hátt.
Elantra
Straumlínulagað útlitið gerir hann spordegan og fallet
innréttingin er þægileg og glæsileg og öryggisbúna<
er ríflegur.
Elantra er einnig til sem skutbíll, forvitnilegur og
rennilegur bíll sem er nýr í flokki bíla frá Hyundai.
ÁRMÚLA 13, SÍMI: 568 1200
BEINN SÍMI: 553 1236
til framtíðar
ARGUS & ÖRKIN /SlA BL102