Morgunblaðið - 09.03.1996, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. MARZ 1996 43
MINNINGAR
ÞÓRARINN
SIGMUNDSSON
+ Þórarinn Sigrnundsson
mjólkurfræðingur fæddist í
Reykjavík 27. júlí 1917. Hann
lést 25. febrúar síðastliðinn og
fór útför hans fram frá Selfoss-
kirkju 5. mars.
Þórarni Sigmundssyni kynntist
ég sumarið 1974. Hann kom á hveij-
um degi í verslunina Höfn á Sel-
fossi, þar sem ég starfaði. Alltaf
var erindið það sama, að kaupa
Morgunblaðið. Hann lét einhveija
skemmtilega athugasemd fylgja
þegar ég rétti honum blaðið og hálf
afsakaði sig. Lét í það skína að
þetta væru óþarfa kaup, en samt
alveg ómissandi.
Mér fannst maðurinn strax mjög
sérstakur. Alltaf á hraðferð og þess
vegna reyndi ég að vera tilbúin með
blaðið þegar bíllinn hans brunaði í
hlaðið. Einhveiju sinni barst í tal
að hann væri bóndi í Glóru. Fyrst
hélt ég að mér hefði misheyrst.
Glóra, þvílíkt bæjarnafn. Ég hélt
að hann væri að grínast eina ferðina
enn. Svo var ekki og þetta bæjar-
nafn fannst mér alveg kóróna þenn-
an mann.
Ekki datt mér í hug á þessum
tíma hvað Þórarinn átti eftir að
skipa stóran sess í lífi mínu, en
örlögin höguðu því svo til að seinna
þetta sama ár kynntist ég Þórarni
betur og á annan hátt, þar sem
hann var þá orðinn verðandi
tengdafaðir minn. Þá fór ég að
gera mér grein fyrir því hvers
vegna þessi maður var alltaf á
hraðferð. Hann var, auk þess að
vera bóndi, í fullu starfi hjá Mjólk-
urbúi Flóamanna og sat í samn-
inganefnd fyrir sitt stéttarfélag.
Svona maður þarf að eiga góðan
lífsförunaut og það átti hann í konu
sinni, Ingibjörgu Björnsdóttur, sem
alltaf stóð við hlið hans og skapaði
þeim afar sérstakt og fallegt heim-
ili í Glóru. Það var Þórarni og börn-
unum þeirra mikið áfall þegar hún
lést snögglega vorið 1977.
Þó svo að ég fiytti frá Glóru fyr-
ir nokkrum árum hélst sambandið
heilt og gott á milli okkar. Hann
var fyrstur maður í heimsókn þegar
eitthvað bjátaði á í lífi mínu og hélt
áfram að miðla mér af visku sinni
og þeim mannkærleika sem hann
einn átti til. Þegar ég heimsótti
hann nú í vetur sagði hann mér
hvað hann hefði verið heppinn alla
tíð og þá kom þessi séerstaki svipur
á hann sem alltaf kom þegar hann
talaði um börnin sín og aðra afkom-
endur.
Hann talaði um það að nú væri
hann tilbúinn að kveðja þessa jarð-
vist, sáttur og ánægður. Með þess-
um orðum kveð ég þig, Þórarinn
minn, og þakka þér allar samveru-
stundirnar. Börnum Þórarins,
tengdabörnum og öðrum aðstand-
endum sendi ég samúðarkveðjur.
Erna Margrét Laugdal.
Það er mér erfitt að skrifa grein
um hann afa minn án þess að hafa
hana styttri en tíu blaðsíður, því ég
vil bara með þessum fátæklegu orð-
um þakka fyrir að hafa fengið að
þekkja hann og fá að eiga minning-
una um hann í hjartanu. Hann er
maður sem hefur verið til staðar
fyrir mig alla mína ævi og alltaf
verið mér mjög mikið. í mínum aug-
um var hann mikil hetja sem vor-
kenndi aldrei sjálfum sér og kærði
sig ekki um vorkunn annarra. Hann
lét aldrei þjáningar sínar buga sig
og kvartaði aldrei. Ég kveð afa
minn með söknuði.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt, sem Guði’ er frá.
MAGNEA
HJÁLMARSDÓTTIR
+ Magnea Hjálmarsdóttir í allri umgengni. Hún naut virðingar
kennari fæddist í Syðra-Seli nemenda og aðstandenda þeirra.
í Hrunamannahreppi 29. des- Ég minnist þess að einn af nemend-
ember 1908. Hún lést á Drop- um hennar viðhafði þau orð er hann
laugarstöðum 25. febrúar síð- var spurður um kennarann: „Hún
astliðinn og fór útför hennar er ströng en hún er góð.“
fram frá Dómkirkjunni 6. mars. Þessi lýsing hygg ég að hafi ver-
------ ið sönn. Hjá Magneu fundu börnin
Magnea Hjálmarsdóttir var kenn- hvorttveggja í senn, öryggi og hlýju.
ari við Skildinganesskólann í Skeija- Þegar ég tók við skólastjórn í
firði þegar hann tók til starfa sem Melaskóla, ungur að árum, var gott
sjálfstæð stofnun árið 1936. Hún að geta leitað til eldri og reyndari
kenndi við þann skóla þar til haust- kennara í starfi. Þeirra á meðal var
ið 1946 að Melaskóli tók við af Magnea. Hún var hollráð, sagði álit
Skildinganesskólanum. Við Mela- sitt á málefnum vafningalaust. Fyr-
skólann kenndi Magnea síðan þar ir það er ég ævinlega þakklátur.
til hún lét af kennslustörfum. Með þessum fáu orðum eru
Magnea bjó sig vel undir kennsl- Magneu færðar heilar þakkir fyrir
una. Eftir kennarapróf stundaði hún störf sín í Skildinganesskóla og
nám í uppeldisfræði við háskóla í Melaskóla.
Edinborg og fór námsferðir til Eng- Ég sendi aðstandendum innilegar
I lands og Norðurlandanna. samúðarkveðjur við fráfall merkrar
Magnea vakti athygli fyrir tígu- konu.
lega framkomu, var hrein og bein Ingi Kristinsson.
Nú héðan lík skal hefja,
ei hér má lengur te§a
í dauðans dimmum val.
Úr inni harms og hryggða
til helgra ljóssins byggða
far vel í Guðs þíns gleðisal.
(V. Briem)
Guðrún Birna Olafsdóttir.
SVAVA
JÓNS-
í DÓTTIR
+ Svava Jónsdóttir fæddist á
Vatnshömrum í Borgarfirði
1. júlí 1908. Hún lést í Sunnu-
hlíð í Kópavogi 16. febrúar síð-
astliðinn ojg fór útför hennar
fram frá Ospakseyrarkirkju 2.
mars.
Elsku amma. Okkur systkinin
j langar til að þakka þér fyrir allar
þær góðu stundir sem við áttum
með þér. Það var alltaf svo gaman
á vorin þegar þið afi komuð frá
Reykjavík til að dvelja hjá okkur
heima í Snartartungu yfír sumar-
tímann, og biðum við oft með
óþreyju eftir að rauði Willis-jeppinn
rynni í hlaðið, og eins gat það verið
svo tómlegt þegar þið fóruð aftur á
haustin.
Seinna er við fórum að fara til
I Reykjavíkur til lengri eða skemmri
dvalar vorum við ávallt velkomin til
þín í Álftamýrina. Þú kenndir okkur
svo margt, sýndir okkur myndirnar
þínar og sagðir okkur sögur frá lið-
inni tíð, er þú varst ung stúlka á
Vatnshömrum, og eins er þið afi
byijuðuð að búa í Snartartungu.
Þið afi voruð okkur svo góðar
fyrirmyndir, svo hlý og kærleiksrík.
Elsku amma, við kveðjum þig
með hlýjum minningum sem munu
Ifylgja okkur um ókomin ár.
Birna, Svavar, Ásmundur og
Ilalldór Sigurkarlsbörn.
t
Ástkær vinur okkar,
KARL OLAF IDLAND
flugstjóri,
Sagávein 34,
Elverum,
Noregi,
varð bráðkvaddur á Filippseyjum að morgni 7. mars.
Fyrir hönd fjölskyldu hins látna,
Erling Jóhannesson, Alfhild Nielsen.
t
Elskulegur sonur okkar, bróðir og mágur,
ÞORSTEINN ÁGÚST BRAGASON,
Vatnsleysu,
Biskupstungum,
lést 6. mars sl.
Halla Bjarnadóttir, Bragi Þorsteinsson,
Ragnheiður Bragadóttir, Eymundur Sígurðsson,
Inga Birna Bragadóttir, Kristrún Bragadóttir.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim,
er sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför móður minnar og fóstur-
móður,
ÞÓRHILDAR MARGRÉTAR
VALTÝSDÓTTU R
frá Seli,
Austur-Landeyjum,
til heimilis
í Ljósheimum 11.
Valtýr Sigurðsson,
Sverrir Kristjánsson.
INGUNN
MAGNÚSDÓTTIR
TESSNOW
+ Ragnheiður Ingunn Magn-
úsdóttir Tessnow fæddist í
Arnarfirði 26. október 1913.
Hún lést á Borgarspítalanum
7. febrúar síðastliðinn og fór
útför hennar fram frá Kópa-
vogskirkju 19. febrúar.
Elskuleg móðursystir mín er iát-
in. Hún lést á áttræðisafmæli eigin-
manns síns 7. febrúar síðastliðinn.
Með fráfalli Ingu er farin einhver
elskulegasta og hjartahlýjasta mann-
eskja, sem ég hef fyrir hitt á lífsleið-
ini nema þá væri móðir hennar,
móðuramma mín, Ingibjörg Magnús-
dóttir, sem bjó í Feitsdal við Arnar-
fjörð. Þær voru um margt líkar.
Jarðirnar okkar lágu saman,
Feitsdalur þar sem amma mín bjó
og Grandi þar sem foreldrar mínir
bjuggu.
Ég hef verið fjjög-urra til fímm
ára þegar ég fór að leggja upp í
ferðir yfir í Feitsdal til að heim-
sækja ömmu mína, því ég vissi að
þar fengi ég blíðar viðtökur. Tekinn
í fangið og látið vel að manni, farið
í kökukistuna og fékk góða köku í
munninn. Hún vinkona mín, Píla,
naut einnig góðs af.
Eitt sinn sem oftar lagði ég upp
í eitt slíkt ferðalag. Mér var fylgt
yfir Feitsdalsána og þaðan ferðaðist
ég á eigin spýtur. í eldhúsið var
farið, þóttist vita að þar mundi
amma vera. En þar var Inga fyrir,
sem tók á móti mér með sínum
elskulegheitum. Hvar er amma?
spurði ég. Nú er hún amma þín úti
á túni, það er brakandi þurrkur og
hana langaði að fara í heyskapinn,
sagði Inga, en hún var þá að taka
til miðdagskaffið handa fólkinu.
Stúfurin sagði: Ég er þreyttur.
Elsku stubburinn minn, ég skal
sinna þér, sagði Inga. Tók mig í
fangið og söng eitthvað fyrir mig
og ég mun hafa sofnað með það
sama. Svona var hún Inga mín allt
sitt líf. Hjartáhlýja, elskulegheit og
mannkærleikur. Þótt mikið væri að
gera utanhúss sem innan gaf hún
sér tíma til að sinna litlum frænda,
sem kominn var í heimsókn.
Um leið og ég enda þetta, bið ég
Guð að styrkja alla ættingja henn-
ar, og sér í lagi eiginmann hennar,
sem syrgir konu sína sárt. Inga
mín, alla þá dásamlegu samveru,
sem ég og mín fjölskylda hefur átt
með þér, þakka ég þér.
Þinn frændi,
Magnús Július Jósefsson.
t
Ástkær dóttir mín, móðir okkar, systir,
tengdamóðir, amma og frænka,
KATRÍN GUÐJÓNSDÓTTIR
ballettkennari,
Suðurhólum 28,
Reykjavík,
sem lést 2. mars sl., verður jarðsungin
fró Fossvogskirkju mánudaginn 11. mars
kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast Katrínar sér-
staklega, er bent á Landssamtök áhugafólks um flogaveiki, LAUF-
samtökin, Laugavegi 26, sími 551 4570.
Friðrika Guðmundsdóttir,
Guðjón Erlingsson, Friðrik Erlingsson,
Heimir Guðjónsson,
Bertha Ragnarsdóttir,
Hannes Þór, Knútur Þór og Friðrik Þór Guðjónssynir,
Harpa Heimisdóttir, Brynja Scheving.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
STEFÁN VALDIMAR
AÐALSTEINSSON,
Spítalavegi 1,
Akureyri,
sem lést á heimili sínu föstudaginn
1. mars, verður jarðsunginn frá Akur-
eyrarkirkju þriðjudaginn 12. mars
kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Heimahlynningu.
Jónína Helga Guðmundsdóttir,
Guðrún Stefánsdóttir,
Guðmundur Stefánsson,
Kristín Stefánsdóttir,
Kolbrún Stefánsdóttir,
Ómar Þór Stefánsson,
Stefán Heimir Stefánsson, Anna Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sigurjón Eðvarðsson,
Hrefna Svanlaugsdóttir,
Ingjaldur Guðmundsson,
Friðrik Adólfsson,
Hulda Vigfúsdóttir,
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
HARÐAR ÞÓRARINSSONAR
múrarameistara,
Jófrfðarstaðavegi 17,
Hafnarfirði.
María Helgadóttir,
Ásbjörn Harðarson, Svana Björk Karlsdóttir,
Kristín Harðardóttir, Tómas Tómasson,
Helgi Harðarson, Kristbjörg Lilja Jónsdóttir,
Jóhann Harðarson, Brynja Brynjarsdóttir
og barnabörn.