Morgunblaðið - 12.03.1996, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Námskynning ’96 haldin í slæmu veðri á sunnudag
Morgunblaðið/ívar Brynjólfsson
LÖGREGLAN, forvarnadeild og jafningjafræðslan gerðu FLJÓTANDI köfnunarefni,
grein fyrir fíkniefnavandanum á Námskynningu ’96. sem notað er til kælingar.
Fólk á öllum aldri
og erindin markvissari
Tölvunefnd ritar
Stígamótum bréf
Ekki fjallað
um biskup
TÖLVUNEFND telur ekki ástæðu
til að grípa til aðgerða vegna bréfa-
sendinga, sem innihéldu trúnaðar-
upplýsingar, frá biskupsstofu til fjöl-
miðla. Þorgeir Örlygsson, formaður
Tölvunefndar, sagði að nefndinni
bæri samkvæmt lögum einungis að
fjalla um kerfísbundna skráningu
upplýsinga og meðferð þeirra. Bréfa-
sendingar biskupsstofu féllu ekki
undir verksvið nefndarinnar. Um-
fjöllun um þær yrði að eiga sér stað
á öðrum vettvangi.
Tölvunefnd fjallaði einnig í gær
um yfirlýsingar Guðrúnar Jónsdótt-
ur, talsmanns Stígamóta, um að þrjár
konur væru til meðferðar hjá Stíga-
mótum vegna kynferðislegrar áreitni
biskups íslands. Þorgeir sagði að
nefndin hefði lokið efnislegri umfjöll-
un um málið. Hún ætti hins vegar
eftir að rita Stígamótum bréf og
klæða niðurstöðuna í lagalegan bún-
ing. Niðurstaðan yrði ekki kynnt fjöl-
miðlum fyrr en þetta hefði verið gert.
♦ ♦ ♦--------------
Blaðamenn
á móti Iján-
ingarfrelsi
RAGNAR Aðalsteinsson, lögmaður
biskups, segir að sér virðist sem
blaðamenn hafí sett sig upp á móti
tjáningarfrelsi í fjölmiðlum. Blaða-
mannafélag íslands hefur farið fram
á að Ragnar biðjist velvirðingar á
ummælum sínum um fréttaflutning
fjölmiðla af málum biskups.
„Ég veit lítið út á hvað þessi álykt-
un gengur. Mér skilst þó að skoðan-
ir mínar hafí ekki fallið í góðan jarð-
veg og þær eigi ekki upp á pallborð-
ið hjá blaðamönnum. Ég vona að það
valdi blaðamönnum ekki miklum erf-
iðleikum að taka upp þá stefnu að
vera á móti tjáningarfrelsinu. Þeir
verða sjálfír óskaplega reiðir ef þeir
fá ekki setja fram skoðanir sínar
eins og þeir kjósa. Um leið og aðrir
gera það snýst málið alveg við,“ seg-
ir Ragnar.
„ÞETTA gekk mjög vel, miðað við
veður, sem setti töluvert strik í
reikninginn," segir Asta Ragnars-
dóttir, framkvæmdastjóri Náms-
ráðgjafar Háskóla Islands, um
kynningu námsleiða fyrir fólk á
öllum aldri, semfram fór síðastlið-
inn sunnudag.
Námskynningin var haldin í
fjórum byggingum Háskólans,
Sjómannaskólanum og húsi lista-
skólanna í Laugarnesi og var sú
nýbreytni höfð á að kynna skyldar
starfsgreinar á sama stað. „Það
var ekki þessi stöðugi straumur
sem við höfum átt að vepjast og
fólk kom í markvissari erinda-
gerðum enda leggur enginn á sig
að fara út úr húsi að óþörfu í svona
veðri,“ segir Ásta.
Hún segir að þeir sem sóttu
kynninguna hafi verið örlítið frá-
brugðnir gestum fyrri ára. Hluti
skýringarinnar kunni að vera sá
að einungis þeir sem hafi átt brýnt
erindi hafi leitað éftir upplýsing-
um. „Það hefur kannski líka haft
eitthvað að segja að við vorum
búin að vinna svolítið með náms-
ráðgjöfum í skólum frá því í nóv-
ember, og sumir þeirra höfðu
staðið mjög vel að undirbúningi
sinna nemenda. Það var því ekki
um að ræða hefðbundinn sunnu-
dagsrúnt þeirra sem koma til að
kíkja, sýna sig og sjá aðra.“
Fíkniefnafræðslan
vakti eftirtekt
Kynningin var ekki alveg tíð-
indalaus að Ástu sögn og fuku
fánaborgir í Laugarnesi og á Há-
skólalóðinni, svo þurfti að kalla
lögreglu til aðstoðar. Hún segir
erfitt að henda reiður á fjölda
gesta í heild en sumir hefðu dund-
að sér við að telja heimsóknir á
kynningarborðin, sem voru tvö
hundruð talsins, og hafi 1.000
manns leitað upplýsinga á sumum
þeirra. Aðsóknin hafi þó verið afar
misjöfn.
Flestir gestir voru í aðalbyggingu
Háskólans og Sjómannaskólanum
en jafnari straumur inn í Laugard-
al. Var mikið spurt um nám erlend-
is og námsefni málaskólanna sem
voru með í fyrsta sinn. Einnig vakti
skyndiþjálparkennsla Rauða kross-
ins athygli segir Ásta en aukin
áhersla var á nám með fullri vinnu.
Fíkniefnafræðsla lögreglunnar, for-
varnadeilda og jafningjafræðslunn-
ar, sem fram fór í einni stofu aðal-
byggingar, féll ennfremur í góðan
jarðveg. Þar höfðu menn ekki und-
an við að svara fyrirspumum og
biðraðir voru við borðin að Ástu
sögn.
Séra Ragn-
ar Fjalar
víkur sæti
SÉRA Ragnar Fjalar Lárusson
hefur vikið sæti í siðanefnd
Prestafélags íslands í mál
tveggja kvenna sem borið hafa
biskups íslands sökum. Vara-
maður séra Ragnars, séra Ag-
nes M. Sigurðardóttir, sóknar-
prestur í Bolungarvík, mun því
taka sæti hans í nefndinni
meðan hún fjallar um málið.
Konurnar sendu siðanefnd
bréf þar sem þær segjast vera
þeirrar skoðunar að séra Ragn-
ar Fjalar sé vanhæfur til að
ij'alla um erindi þeirra vegna
þess að hann hafi staðið að
ályktun Prófastafélagsins, þar
sem lýst er yfir fullvissu um
að biskup sé saklaus af þeim
ásökunum sem á hann hafa
verið bornar, og vegna þess að
hann hafi í sjónvarpsþættinum
Almannarómi á Stöð tvö lýst
yfir stuðningi við sjónarmið
biskups.
Séra Ragnar Fjalar sagði í
samtali við Morgunblaðið að
hann gæti tekið undir það sjón-
armið kvennanna, að hann
hefði með þessu tekið afstöðu
í málinu. Hann sagðist því hafa
ákveðið að víkja úr nefndinni
meðan hún fjallar um mál
kvennanna.
Þrír sitja í siðanefnd Presta-
félagsins, einn skipaður af Pre-
stafélagi íslands, einn skipaður
af biskupi Islands og einn skip-
áður af Siðfræðistofnun Há-
skóla íslands. Séra Ragnar
Fjalar er skipaður af biskupi í
nefndina.
Siðanefnd kemur saman til
fundar í dag til að fjalla um
hvort biskuþ íslands hafi rofið
trúnað með því að greina efnis-
lega frá því í fjölmiðlum sem
konurnar hafa sakað biskup
um. Á fundinn mætir Sigrún
Pálína Ingvarsdóttir, sem ásak-
að hefur biskup um nauðgun-
artilraun.
Foreldrar mótmæla endurskipulagningu grunnskólans 1 Hornafirði
Vilja ekki aka bömun-
um í skóla í Nesjum
Morgunblaðið/Sigrún
STURLAUGUR Þorsteinsson bæjarstjóri Hornafjarðar tekur við
mótmælum íbúanna úr hendi Þórgunnar Torfadóttur.
NEMENDUM úr þremur grunnskól-
um í Hornafjarðarbæ verður kennt
saman frá næsta hausti. Börn í fjór-
um neðstu bekkjunum þurfa að fara
í Nesjaskóla en eldri árgangamir
verða í tveimur skólum á Höfn. Mik-
il óánægja er með þetta fyrirkomulag
meðal íbúa bæjarins, einkum hjá for-
eldrum yngstu bamanna sem þarf
að aka í skólann í Nesjum, og hefur
um það bil þriðjungur kosningabærra
íbúa sveitarfélagsins óskað eftir því
við bæjarstjórn að reynt verði að
fínna leiðir til að bömin geti sótt
skóla niðri á Höfn.
Frá því þrjú sveitarfélög samein-
uðust í Hornafjarðarbæ hafa verið
reknir fjórir grunnskólar í sveitarfé-
laginu, Hafnarskóli og Heppuskóli á
Höfn, Nesjaskóli og Mýraskóli. í
Hafnarskóla eru nú fýrstu sjö bekkir
grunnskóla en 8.-10. bekkur í
Heppuskóla. í Nesjaskóla er kennsla
í öllum bekkjum grunnskólans fyrir
böm úr gamla Nesjahreppi og börn
af Mýrum sækja þangað í efstu bekk-
ina. A Mýrum er 1.-7. bekkurgrunn-
skóla og er ekki gert ráð fyrir breyt-
ingum þar á.
Síðasta vor skilaði nefnd á vegum
bæjarstjómar tillögum um fyrir-
komulag skólahalds og hafði meðal
annars til hliðsjónar það skólahús-
næði sem til er í sveitarfélaginu og
nauðsynlegar breytingar á skólahaldi
vegna nýrra grunnskólalaga, meðal
annars um einsetinn skóla. Sam-
þykkti bæjarstjórn tillögumar.
Einsetning strax í haust
Hallur Magnússon, félagsmála-
stjóri Homafjarðarbæjar, segir að
með því að sameina árgangana úr
skólunum þremur fáist fullar tvær
bekkjardeildir af hagkvæmri stærð í
hveijum árgangi. Ákveðið var að
skipta skólanum þannig niður að
fyrstu fjórum bekkjunum verður
kennt í Nesjaskóla, 5.-7. bekk í
Hafnarskóla og 8.-10. bekk í Heppu-
skóla. Segir Hallur að byggðar verði
tvær lausar kennslustofur við núver-
andi húsnæði í Nesjum og gengið frá
lóðinni þannig að hún verði við hæfí
6-9 ára bama. Kostnaður er áætlað-
ur um 30 milljónir og segir Hallur
að nauðsynlegt hefði verið að ráðast
í meirihluta þess kostnaðar þótt þessi
skipulagsbreyting hefði ekki verið
gerð.
Með þessu fyrirkomulagi verður
hægt að einsetja skólann strax í
haust, að sögn félagsmálastjórans.
Auk þess er gert ráð fyrir samþætt-
ingu hins hefðbundna grunnskóla-
náms við tónlistarskóla, aukna íþrót-
takennslu og aðrar tómstundir. Strax
og skóla lýkur segir Hallur að boðið
verði upp á tónlistarnám þar sem
börnin geta fengið ókeypis fomám
að tónlistarskóla, og aukna íþrótta-
kennslu þar sem farið verður yfir
undirstöðuatriði fjölmargra íþrótta-
greina.
Skólaakstur neyðarúrræði
Skipting skólans með þessum
hætti þýðir meiri skólaakstur. Aka
þarf um 130 sex til níu ára börnum
frá Höfn 7-8 kílómetra leið í Nesja-
skóla. Gert er ráð fyrir því að þau
verði sótt klukkan átta á morgnana
og komi yfirleitt heim hálf þijú og
hugsanlega fyrr á föstudögum.
Sömuleiðis þarf að aka eldri nemend-
um úr Nesjum og þeim elstu af
Mýrum niður á Höfn og er það lengri
akstur fyrir þau en áður.
Nýverið voru bæjarstjóra afhent
mótmæli vegna breytinganna. Listar
með nöfnum 400—500 íbúa voru af-
hentir en það er um þriðjungur kosn-
ingabærra íbúa sveitarfélagsins.
Einn af forgöngumönnum und-
irskriftasöfnunarinnar, Þórgunnur
Torfadóttir kennari, gagnrýnir að
lagt skuli í fjárfrekar framkvæmdir
við breytingar á Nesjaskóla til að
hægt verði að flytja börnin út úr
þéttbýlinu. Hún lýsir þeirri skoðun
sinni að skólaakstur sé dýr og tíma-
frekur, hann eigi að vera neyðarúr-
ræði þegar ekki sé mögulegt að
hafa skóla á staðnum. „Við getum
ekki verið sátt við það að missa
skólann. Það er kostur þéttbýlisins
að hafa skólann skammt frá sér
enda er það eitt af þeim atriðum sem
fólk hefur í huga þegar það velur
sér búsetu. Við erum hissa á því að
einhveijum skuli detta í hug að
breyta því,“ segir hún.
„Okkur finnst vanta ákveðna
skólastefnu til framtíðar og að hún
þurfí að liggja fyrir áður en ákveðið
er að sameina árgangana og þrí-
skipta grunnskólanum," segir Þór-
gunnur. Hún segir nauðsynlegt að
byggja nýjan skóla á Höfn. Hafnar-
skóli hafí lengi verið of lítill. Hún
segir að bæjarstjórnarmenn viður-
kenni að það þurfí að gera á næstu
árum og segir að það hljóti að vera
skynsamlegra að flýta þeirri fram-
kvæmd heldur en að leggja í kostnað
við breytingar á Nesjaskóla.
Hallur Magnússon lýsir þeirri
skoðun sinni að það sé tilfinninga-
legt atriði fyrir marga að hafa skól-
ann nærri heimili sínu. Hins vegar
bendir hann á að ekki sé verið að
tala um langar leiðir og nú þegar
nýti margir sé þann skólaakstur sem
boðið er upp á innan bæjar á Höfn.
Hann segir að bygging nýs skóla
kosti 170—280 milljónir og þeir pen-
ingar séu ekki til. Því sé ekki um
aðra leið að ræða en nýta það skóla-
húsnæði sem fyrir hendi er.
Bæjarstjórn og embættismenn
bæjarins hefja í dag kynningu á
nýja skólaskipulaginu og verða fund-
ir með foreldrum næstu daga. Skóla-
málin verða síðan til umfjöllunar á
bæjarstjórnarfundi 21. mars næst-
komandi.