Morgunblaðið - 12.03.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1996 39
STEFÁN
AÐALSTEINSSON
+ Stefán Valdimar
Aðalsteinsson
fæddist á Litla Dun-
haga í Hörgárdal 17.
ágúst 1919. Hann
lést á heimili sinu
1. mars síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Aðalsteinn Jóhanns-
son og Sigríður Sig-
urjónsdóttir. Stefán
var elstur af átta
systkinum sem kom-
ust á legg.
Hinn 15. janúar
1949 kvæntist Stef-
án Jónínu Helgu Guðmunds-
dóttur ættaðri úr Bolungarvík.
Þau eignuðust átta börn og sex
þeirra komust á legg. Elst er
Guðrún og er sambýlismaður
Nú er hann sofnaður svefninum
langa elsku hjartans pabbi okkar
og þjáist ekki lengur, því oft þjáð-
ist hann undanfarið ár en aldrei
kvartaði hann. Við erum líka sann-
færð um að vel hefur verið tekið
á móti þér á himninum af foreldr-
um og öðrum skyldmennum, því
annar eins ljúflingur finnst okkur
að fyrirfinnist ekki. Alltaf vaktir
þú yfir hópnum þínum og vannst
myrkranna á milli til að við hefðum
nóg að bíta og brenna, því fjöl-
skyldan þín var þér allt.
í 47 ár vann hann pabbi okkar
hjá sláturhúsi KEA við fláningu.
Þá áttum við heima lengst inni í
innbæ og sláturhúsið er lengst niðri
á eyri og alltaf hjólaði hann á
milli hvernig sem veður var. Fyrsta
bílinn sinn keypti pabbi árið 1974
og þeir bílar sem. hann átti lentu
sko ekki í slæmum höndum, hann
var alltaf að pússa. Hann var svo
mikið snyrtimenni hann pabbi okk-
ar og ef einhver bilun kom í ljós
hennar Sigurjón
Eðvaldsson; þá
Guðmundur,
kvæntur Hrefnu
Svanlaugsdóttur;
Kristín, gift In-
gjaldi Guðmunds-
syni; Kolbrún,
gift Friðrik
Adolfssyni; Omar
Þór, kvæntur
Huldu Vigfús-
dóttur, og Stefán
Heimir, kvæntur
Önnu Halldórs-
dóttur. Barna-
börnin eru 22 og barnabarna-
börnin eru þrjú.
Útför Stefáns fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag og
hefst athöfnin kl. 13:30.
var farið með bílinn á verkstæði.
Bílarnir hans urðu alltaf að vera
tandurhreinir og í topplagi.
Við vitum systkinin að pabbi
vildi ekki neina hólræðu um sig,
því hann var alltaf svo hógvær.
Núna þegar við kveðjum þig á
þessari jörðu, elsku pabbi, þá vitum
við að við eigum eftir að hittast
aftur og við skulum passa vel uppá
mömmu fyrir þig, því við vitum
að þú hafðir áhyggjur af henni
eftir að hún lærbrotnaði.
Guð geymi þig og varðveiti elsku
pabbi.
Lifendum guð minn líkna þú
liðnum þú miskunn gefur.
Veit huggun þeim, sem harma nú
hvíld veita þeim er sefur.
Góðir menn, Drottinn gef þú, að
í góðra manna komi stað
á öllu ráð einn þú hefur.
(Sveinbj. E.)
Guðrún, Guðmundur, Kristin, Kolbrún,
Omar og Heimir.
Það er með söknuði að ég kveð
mág minn. Mér finnst skrýtið að
þessi ljúfi og góði maður eigi ekki
oftar eftir að standa við gluggann
og veifa okkur þegar við komum
við á leiðinni á Langanesið. Alltaf
var tilhlökkun að koma við og
barnabarnið sem oft var með í för
spurði alltaf hvort við kæmum
ekki við hjá Nínu og Stebba því
það var alltaf svo góður matur hjá
þeim. Alltaf var okkur tekið opnum
örmum og dýrindismatur eða kök-
ur á borðum. Hún systir mín hefur
staðið við hlið hans eins og klettur
uns yfir lauk, þó að heilsa hennar
væri ekki nógu góð, en með aðstoð
hennar góð'u fjölskyldu gekk þetta
allt.
Það er systur minni styrkur að
minnast hans sem góðs eiginmanns
og föður barnanna þeirra. Blessuð
sé minning hans.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Guð styrki ástvini Stefáns í sorginni.
Sigríður Sigurborg Guðmundsdóttir.
t
Þökkum sýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför
KARLS SÆMUNDARSONAR
frá Krakavöllum
í Fljótum.
Irma Geirsson,
María Valgerður Karlsdóttir, Hersteinn Þráinn Karlsson,
Ragna Freyja Karlsdóttir, Gfsli Ólafur Pétursson,
Fanney Magna Karlsdóttir,
Særún Æsa Karlsdóttir,
Jón Óttarr Karlsson, Ingigerður Torfadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HELGA VALDIMARSDÓTTIR,
Hraunbæ 103,
sem lést þann 6. mars sl., verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju fimmtudag-
inn 14. mars kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim,
sem vilja minnast hennar, er bent á líkn-
arstofnanir.
Elias Valgeirsson,
Magdalena S. Elíasdóttir, Theódór S. Marinósson,
Sigurður Rúnar Eliasson, Edda Sveinbjörnsdöttir,
Valdimar Elfasson
barnabörn og barnabarnabörn.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski-
legt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðra
ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár.
Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru
einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má
greinar til blaðsins á netfang þess
Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar
þar um má lesa á heimasíðum. Það eru
vinsamleg tilmæli að lengd greina fari
ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu-
bil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar systur okkar,
ÁSTU GUDJÓNSDÓTTUR,
Njörvasundi 22.
Gisli Guðjónsson,
Ágúst Guðjónsson,
Guðrún Guðjónsdóttir,
Þorbjörg Guðjónsdóttir.
Suöiirlandsbraut 10
108 Reykjavík • Sími 553 1099
öpið öll kvöícl
til kl. 22 ~ cínnig um
Skreytingar fyrír öl
Cijafavörur.
ERFIDRYKKJUR
P E R L A N sími 562 0200
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
í síma 5050 925
og 562 7575
FLUGLEIÐIR
IIÓTEL LIIFTLEllllll
Erfidrykkjur
Kiwanishúsið,
Engjateigi 11
s. 5884460
Erfidrykkjur
Glæsilegt kaffihlaðborð
og hlýleg salarkynni.
Góð þjónusta.
HÓTEL
REYKJAVÍK
Sigtúni 38.
Upplýsingar í simum 568 9000 og 588 3550
Minnismerki ur steini
Steinn er kjörið efni í allskonar minnismerki. Veitum
alla faglega ráðgjöf varðandi hverskonar minnismerki.
Áralöng reynsla.
Bgs. HELGAS0N HF
ISTEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48 . SÍMI 557 6677
t
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts systur
okkar,
ÞÓRU ÞÓRÐARDÓTTUR,
Furugerði 1.
Sérstakar þakkir færum við heimahlynningu Krabbameinsfélagsins
og starfsfólki í Furugerði 1 fyrir góða umönnun.
Kári Þórðarson,
Þórunn Þórðardóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna fráfalls sonar okkar,
BJARNA HALLDÓRS
HÖSKULDSSONAR
frá Hátúni.
Sérstakar þakkir viljum við færa kven-
félaginu Hvöt og Slysavarnafélagi
Árskógsstrandar.
Guð blessi ykkur öll.
Höskuldur Bjarnason,
Ingibjörg Ólafsdóttir.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát elskulegrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
GUÐRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Háamúla,
Fljótshlfð,
til heimilis
á Eyrarvegi 9,
Selfossi.
Sigurgeir Ingvarsson,
Sigrún Sigurgeirsdóttir,
Guðmundur Birnir Sigurgeirsson, Ágústa Traustadóttir,
Pálmar Sigurgeirsson, Valgerður K. Sigurðardóttir,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.